Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 6
6 30. september 2003 ÞRIÐJUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77,49 0,49% Sterlingspund 127,72 -0,24% Dönsk króna 11,9 -0,06% Evra 88,4 -0,11% Gengisvísitala krónu 125,82 -0,02% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 359 Velta 11.696 milljónir ICEX-15 1.812,7 -0,34% Mestu viðskiptin Landsbanki Íslands hf. 2.229.584.979 Íslandsbanki hf. 898.917.679 Fjárfestingarf. Straumur hf. 608.163.040 Sjóvá-Almennar hf. 416.551.402 Mesta hækkun Síldarvinnslan hf. 4,74% Tryggingamiðstöðin hf. 3,70% SÍF hf. 2,68% Kögun hf. 2,46% Mesta lækkun Landsbanki Íslands hf. -1,89% Jarðboranir hf. -1,74% Bakkavör Group hf. -1,25% Össur hf. -0,95% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 9.385,6 0,8% Nasdaq* 1.813,0 1,2% FTSE 4.142,7 -0,3% DAX 3.317,3 -0,2% NK50 1.308,9 0,0% S&P* 1.004,5 0,8% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvaða land í Evrópu þurfti að glímavið langt rafmagnsleysi um helgina? 2Hvað heitir maðurinn sem handtek-inn hefur verið vegna morðsins á Önnu Lindh? 3Hvað heitir markvörður Stuttgart semekki hefur fengið á sig mark í 735 mínútur? Svörin eru á bls. 30 BJÖRGUN Íshús Njarðvíkur hefur gefist upp við björgun togarans Guðrúnar Gísladóttur af hafs- botni við Noreg. Ekki tókst að fjármagna framhald verkefnis- ins. Að sögn norska ríkisútvarps- ins hafa yfirvöldum þegar borist tilboð frá þremur fyrirtækjum um að lyfta skipinu af hafsbotni. Útvarpsstöðin segir að norska köfunarfyrirtækið hugleiði að lögsækja Íslendingana sem réðu fyrirtækið til að taka þátt í björg- unarverkefninu. Kafarafyrirtæk- ið er sagt eiga að minnsta kosti 50 milljónir króna inni vegna vinnu starfsmanna sinna. Hið glænýja fjölveiðiskip Guðrún Gísladóttir sökk í júní í fyrra eftir að hafa steytt á skeri sem ekki var á sjókortum. Út- gerðarfélagið Festi í Grindavík fékk verðmæti skipsins, yfir 2 milljarða króna, greitt út frá Tryggingamiðstöðinni og erlend- um endurtryggingaraðilum. Ís- hús Njarðvíkur keypti flakið og hefur unnið að björgun þess með mörgum hléum frá í fyrra. Tekist hafði að rétta skipið við á hafs- botni áður en fjármögnun verks- ins fór endanlega út um þúfur. Kostnaður er sagður vera kom- inn yfir 200 milljónir. Norska ríkið hyggst krefja Festi um greiðslu vegna kostnað- ar við að fjarlægja flakið. ■ Fara verður að leikreglum ATVINNUMÁL „Það er ómögulegt að segja til hvaða ráða við grípum ef ekki verður farið eftir virkj- anasamningnum,“ sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands, um þá stöðu sem nú er uppi gagnvart ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo. „Okkur sýnist við fyrstu sýn að þessar tillögur sem þeir hafa lagt fram séu til þess fallnar að koma til móts við þær kröfur sem við höfum gert en það liggur ekki ljóst fyrir vegna þess að við að snúa þeim yfir á íslensku er hægt að túlka hugmyndir þeirra á ýmsan veg. Þetta er mjög óljóst en það er ennþá verið að vinna í þessu og það skýrist um miðja vikuna hvort eitthvað bitastætt er í þessum tillögum þeirra.“ Grétar segir þolinmæðina vera á þrotum en vill ekki segja hver næstu skref verða ef tillög- ur Impregilo uppfylla ekki vænt- ingar verkalýðsfélaganna. „Við sættum okkur ekki við minna en að farið sé eftir virkjanasamn- ingnum og þeim leikreglum sem gilda á íslenskum markaði. Samningar eru lausir um áramót og ef ekki næst að afgreiða þessa deilu erum við þar með vopn í höndunum.“ Alþýðusambandsmenn eru ekki einir um að hafa áhyggjur af starfsemi ítalska stórfyrir- tækisins. Starfsmenn Vinnu- málastofnunar hafa að undan- förnu farið yfir gögn um launa- greiðslur til erlendra starfs- manna Impregilo. Hafa þeir far- ið þess á leit í framhaldi af því að fulltrúi Vinnumálastofnunar verði viðstaddur þegar starfs- menn undirverktakans Techno- service fá greidd laun nú um mánaðamótin. „Því hefur ekki verið svarað enn sem komið er,“ sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála- stofnunnar. „Okkar upplýsingar benda til að ákveðnir aðilar fái greitt með seðlum beint yfir borðið og okkur leikur forvitni á að vita hvort það reynist rétt. Það fer tvennum sögum af því hvort þarna sé greitt inn í banka eða hvort einhverjar kvittanir fáist fyrir. Einhver hluti launa fer í gegnum banka í Rúmeníu en allt þetta ferli er tiltölulega óljóst eins og staðan er.“ Gissur sagði að rökstuddur grunur um lögbrot þyrfti að vera til staðar áður en gripið yrði til aðgerða. „Við getum gripið til þeirra úrræða að afturkalla at- vinnuleyfi en hjá því viljum við komast í lengstu lög.“ albert@frettabladid.is SPRENGJUSVÆÐI Innflytjendurnir virtu að vettugi viðvörunar- skilti grískra stjórnvalda á landamæra- svæðinu. Sjö innflytjendur létust: Stigu á jarð- sprengjur AÞENA, AP Sjö ólöglegir innflytj- endur létust þegar þeir stigu á jarðsprengjur á landamærum Tyrklands og Grikklands. Menn- irnir, sem taldir eru hafa verið frá Pakistan, virtu viðvörunar- skilti grískra yfirvalda að vettugi þegar þeir fóru inn á sprengju- svæðið. Í síðustu viku skrifuðu Grikk- ir og Tyrkir undir alþjóðlegan samning sem bannar notkun jarð- sprengja. Ekki liggur fyrir hvenær verður hafist handa við að fjarlægja sprengjur á landamærasvæðinu. Þúsundir ólöglegra innflytj- enda frá Asíu, Afríku og Austur- Evrópu fara yfir landamæri Grikklands á ári hverju. Hug- myndir eru uppi um að koma á fót sérstakri öryggissveit til að gæta ytri marka Evrópu á sjó og landi. ■ Háttalag Impregilo vekur sífellt meiri furðu. Bæði Alþýðusamband Íslands og Vinnumálastofnun fá loðin svör við fyrirspurnum sínum og eingöngu tímaspursmál hvenær gripið verður til harðari aðgerða. FORYSTA ASÍ Öll þolinmæði gagnvart hátterni Impregilo er á þrotum og næsta skref er að vígbúast. Björgun fjölveiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur: Íslendingar gefast upp GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR Kaflaskipti virðast vera orðin staðreynd í sögunni um sokkna fjölveiðiskipið Guðrúnu Gísladóttur. Eigendur Íshúss Njarðvíkur hafa gefist upp og norska ríkið tekið við. Eftirlit lögreglu við Kárahnjúka: Starfsmenn sektaðir LÖGREGLUMÁL Starfsmenn Impreg- ilo urðu uppvísir að fjölmörgum brotum í eftirlitsferð lögreglunn- ar á Egilsstöðum um vinnusvæði Kárahnjúka um helgina. Voru bif- reiðar og vinnuvélar stöðvaðar og leyfi ökumanna skoðuð. Kom í ljós að nokkrir starfsmenn höfðu ekki vinnuvélaréttindi á þær vélar sem þeir störfuðu á. Verður viðkom- andi gert að greiða sektir vegna þessa. Talsvert var einnig um að ökutæki væru óskoðuð og gerði lögreglan athugasemdir við fjöl- mörg önnur atriði á svæðinu. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.