Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 14
Kaup Kaupþings Búnaðarbankaá finnskum fjárfestingarsjóði eru ánægjuleg tíðindi. Einnig yfir- lýsing formanns bankaráðs Lands- bankans að sá banki stefni að útrás á erlenda markaði. Þótt landamæri hafi verið að falla í viðskiptum á undanförnum áratugum vorum við Íslendingar frekar seinir til að til- einka okkur breytta heimsmynd. Við áttum okkur innri landamæri byggð annars vegar á sögulegri minnimáttarkennd og undarlegri trú um sérstöðu Íslands og ís- lenskra aðstæðna. Áhrif þessara innri landamæra urðu þau að stærstu fyrirtækin á Íslandi urðu of stór fyrir íslenskan markað án þess að sækja út. Þetta hafði bæði skaðleg áhrif á fyrirtækin sjálf og íslenskt viðskiptalíf – og að lokum á almenning allan. Þessi innri landamæri hafa haft áhrif víðar en í viðskiptalífinu. Þrátt fyrir að þær breytingar sem orðið hafa í nágrannalöndunum á ríkiskerfinu komi á endanum hing- að heim hefur sú trú ríkt meðal ís- lenskra stjórnmálamanna að verk- efni þeirra séu sérstök og einstök. Það er ekki svo að þeir leiti lausna erlendis heldur koma þær fremur í gegnum alþjóðleg samskipti emb- ættismanna. Íslenskir stjórnmála- menn hafa sömuleiðis mjög sterka trú á sérstöðu íslenska efnahags- lífsins. Þegar vel árar í efnahagslífi heimsins og áhrifa þess gætir hér heima er það vanalega túlkað sem afleiðing af verkum ríkisstjórnar- innar. Þrátt fyrir að við höfum flest gert okkur grein fyrir að við erum hluti miklu stærri heildar viljum við halda í þá trú að við séum sjálf- stæð og einstök – höfum örlög okk- ar algjörlega á okkar hendi. Við túlkum líka sjálfstæði okkar undar- lega þröngt og erum tilbúin að fórna augljósum hagsmunum af auknum samskiptum við aðrar þjóðir fyrir möguleikana á að geta brugðist við óvæntum aðstæðum án þess að ráðgast við neinn. Við höfum sambærilegar hug- myndir um íslenska menningu – að hún sé einstök og sjálfstæð. Samt er fátt sem bendir til þess. Við höf- um vissulega okkar eigið tungumál en við notum það að mestu til að tjá ósköp líkar tilfinningar og aðrar þjóðir. Flest það sem hugsað er í heiminum – og er á annað borð til útflutnings – ratar hingað heim. Það gerist reyndar seint og um síð- ir en þá einkum vegna trúar okkar á sjálfstæði íslenskrar menningar. Af sömu ástæðum er tiltölulega lít- ið af því sem við hugsum hæft til útflutnings. Það er flest hugsað fyr- ir heimamarkað. En allt er þetta að breytast. Við erum óðum að verða hluti af stærri heild í viðskiptum, stjórnmálum, menningu – hverju sem er. Og eftir því sem við áttum okkur betur á kostum þess munu gamlar hug- myndir um einstakt samfélag óháð öðrum smátt og smátt daga uppi. ■ Kåre Isaachsen Willoch varforsætisráðherra Noregs á árunum 1981 til 1986. Hann var formaður Hægri-flokksins og helsti andstæðingur Gro Harlem Brundtland í norskum stjórnmál- um á tímum meðan rautt var enn- þá rautt og blátt var blátt. Menn gerðust þá ekki öllu blárri en Kåre Willoch. Willoch er nú hniginn á efri ár. Hann er fæddur árið 1928, en hann er í fullu fjöri og jafn tannhvass og áður. Það vakti því töluverða at- hygli þegar hann flutti ræðu í síðustu viku og g a g n r ý n d i norska skatta- kerfið og bruðl og flottræfils- hátt hjá norsk- um forstjórum. Háir skattar draga úr löngun til að vinna Að sögn Af- tenposten sagði Kåre Willoch að skattakerfið í Noregi (sem er ekki ósvipað íslenska skattkerfinu) drægi úr löngun fólks til að vinna, vegna þess að afrakstur vinnunn- ar væri skattaður mun hærra heldur en arður af peningum. „Hér áður fyrr sögð- um við „vinnan göfgar manninn,“ sagði Kåre Willoch, „en nú höfum við haft endaskipti á hlutun- um og segjum „fjár- magnið göfgar manninn.“ En þrátt fyrir að skatt- kerfinu sé beitt til að grafa undan mikilvægum siðfræðilegum gildum í samfélaginu fæst enginn til að gera neitt í málinu, segir Willoch. Í viðtali við norsku fréttastof- una NTB sagði Willoch að það hljóti að vera æskilegt að skatta- löggjöfin hvetji fólk til að vinna með því að gera vinnusemi arð- bæra. Hann er þeirrar skoðunar að vinnulaun séu sköttuð allt of hátt, meðan arður af fjár- magnstekjum njóti skattfríðinda. Græðgi stjórnenda, bónusar og bruðl Í ræðu sinni á fundi norskra rotarymanna lét Willoch smella í keyrinu yfir forstjórum og stjórn- endum fyrirtækja sem hugsa meira um eigin gróða en afkomu heildarinnar. „Græðgi stjórnenda er orðin eitt af óleystum vandamálum kap- ítalismans. Það er líka vandamál hvernig einstakir kapítalistar verja auðæfunum. Auðæfum á að fylgja ábyrgð. Það er ekki einka- mál fárra hvernig miklu fjár- magni er varið,“ sagði Willoch, og benti til dæmis á lúxusveislur, bónusgreiðslur og bruðl og flott- ræfilshátt í rekstri fyrirtækja máli sínu til stuðnings. Sú hugmynd að eðlilegt sé að greiða háan skatt af fjár- magnstekjum en lágan skatt af vinnulaunum kemur eins og köld vatnsgusa yfir fjármálaspekúlanta í norsku þjóðfélagi – og ekki síst vegna þess að hugmyndin kemur frá hinum forna og fagur- bláa leiðtoga hægri- manna. Vinstrimenn fagna því að kapítalisti skuli loksins hafa opnað augum fyrir göllum kap- ítalismans og telja að norskt efnahagslíf geti haft gott af þessari yfirhalningu Willochs, enda hafi skrattinn loks- ins fengið að hitta ömmu sína. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um útrás íslenskra banka. 14 30. september 2003 ÞRIÐJUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Fyrir fáeinum dögum birtistmjög athyglisverð frétt í fjölmiðlum. Í ljós kom að meira en helmingur þjóðarinnar á aldrinum 16 til 75 ára hefur keypt líftryggingu og um 40% hafa keypt sjúkdóma- tryggingu. Það fylgdi sögunni að hver tryggingar- þegi væri metinn sérstaklega og þá horft til sjúkdóms- sögu viðkomandi. Tryggingafyrir- tækið sem hefur haft sig mest í frammi á þessu sviði heitir Samlíf og hefur annað veifið gengist fyr- ir kynningu og markaðsátaki til að koma „vöru“ sinni á fram- færi. Markaðsstjóri Samlífs var spurður í fréttum Sjónvarps hvort það væri ekki rétt skilið að ekki gætu allir fengið líf- tryggingu hjá fyrirtækinu. „Það er rétt,“ sagði markaðsstjórinn, „engu að síður eru velflestir sem geta nálgast þessa vöru og nýtt sér hana.“ Hverjir eiga rétt á „vör- unni“? Þeir sem ekki geta nálgast „vöruna“ eru væntanlega hinir sömu og undanskildir voru í Sumargjöf Samlífs 2002. Þá kom inn um bréfalúguna tilboð um hvort ég vildi „aðstoða einhvern sem mér þykir vænt um við að stíga fyrsta skrefið að mikil- vægri tryggingavernd“. Þeim sem vildu hafa viðskipti við fyr- irtækið bauðst „að gefa ein- hverjum á aldrinum 22 til 26 ára sjúkdómstryggingu...“. Vá- tryggingarupphæðin var 2 millj- ónir króna. En til þess að geta þegið gjöfina þurfti viðkomandi að uppfylla skilyrði sem m.a. voru eftirfarandi: „Ég hef ekki nú eða áður haft alvarlega sjúkdóma eða sjúk- dómseinkenni eins og t.d. hjarta- og æðasjúkdóma, heila- og taugasjúkdóma, krabbamein, sykursýki, MS, MND, HIV-smit, nýrnasjúkdóma, geðsjúkdóma, Parkinsonsjúkdóm eða Alz- heimersjúkdóm. Ekki er mér kunnugt um að foreldrar mínir eða systkini hafi haft alvarlega hjarta- eða æða- sjúkdóma, nýrnasjúkdóma, heila- og taugasjúkdóma, sykur- sýki, brjóstakrabbamein eða maga-/ristilkrabbamein.“ Hér á landi höfum við búið við samtryggingarkerfi sem að grunni til er gott þótt margt megi þar bæta. Kerfið hvílir á almannatryggingum, lífeyris- sjóðum og ýmsum þáttum vel- ferðarþjónustunnar og vegur heilbrigðiskerfið þar þyngst. Í lífeyrissjóðunum er ekki spurt um það hvort foreldrar hafi haft heila- eða taugasjúkdóma eða aðra sjúkdóma sem getið er í skilmálum tryggingafélagsins. Inni á heilsugæslustofnunum og á sjúkrahúsum hafa allir þeir sem eru sjúkir eða illa á sig komnir fengið aðhlynningu og lækningu. Hlúð hefur verið að fólki ef það hefur verið sjúkt og einu látið gilda hvort það sjálft eða aðstandendur hafi haft syk- ursýki, krabbamein, nýrnasjúk- dóm eða aðra sjúkdóma sem tryggingafélagið setur fyrir sig samkvæmt ofangreindum skil- málum. Nú ætla ég ekki að fella neinn áfellisdóm yfir tryggingafélag- inu Samlíf, síður en svo. Fyrir- tækið er einfaldlega að gera það sama og tryggingafyrirtæki af þessu tagi gera um heim allan. Spurningin sem við hins vegar stöndum frammi fyrir sem þjóð er áleitin. Ef við veikjum stoðir þess samhjálparkerfis sem lýst er hér að framan höfum við fengið sterka vísbendingu um hvað tekur við. Ekki spurt um réttlæti Þeir sem helst þyrftu á aðstoð að halda og eru í áhættuhópi, annað hvort vegna eigin sjúk- dómasögu eða aðstandenda, yrðu einmitt þeir sem annað hvort yrðu útilokaðir frá trygg- ingu eða fengju hana á afarkjör- um. Fram til þessa hefur yfir- gnæfandi meirihluti þjóðarinnar verið á þeirri skoðun að okkur bæri að standa sameiginlega að kostnaði við velferðarþjónust- una til að fyrirbyggja mismun- un. Markaðsþjóðfélagið gerist sí- fellt ýtnara og ágengara og sæk- ir stöðugt inn í velferðarþjónust- una. Talsmenn þessara aðila segjast síður en svo vilja ógna grunnþáttum þeirrar þjónustu, sem fyrir hendi er. Þeirra „vara“ sé einfaldlega viðbót. Ekki ætla ég að efast um góðan vilja þess- ara aðila, en þó benda á að þegar heilsan og trygging hennar er orðin „vara“ á markaði mun það jafnframt gerast að lögmál markaðarins taka yfir. Velviljað- ir menn fá þar engu ráðið um. Þar verður ekki spurt um rétt- læti heldur fyrst og fremst um arðsemi. Hagsmunir trygginga- félags verða þeir að tryggja ekki gallaða vöru. ■ Enn um Hemma Einhleyp kona skrifar: Ég er ein þeirra sem fengu skila-boð frá þessum Hemma. Þegar ég sá fyrirsögnina „Varúð til ein- hleypra kvenna“ í Fréttablaðinu 26. september ákvað ég að lesa þá grein þar sem ég er einhleyp. Eftir því sem leið á lesturinn stækkuðu augun um helming. Allt sem fram kom í greininni passaði við mína reynslu af svokölluðum Hemma. SMS-skilaboðin byrjuðu alveg eins hjá mér, með nafngreiningu, og svo kom afsakið skakkt númer en ég heiti Hemmi. Við erum búin að skrifast á í svolítinn tíma og alltaf með SMS-skilaboðum. Mér fannst það svolítið skrítið og reyndar finnst mér allt þetta mál stórfurðu- legt. Ég er mjög þakklát þessari dömu, sem sendi lesendabréfið í blaðið áður en sambandið náði að ganga lengra. Í Fréttablaðinu á sunnudag var sagt að ekki væri hægt að komast að óskráðum númerum. Ég tel að ef einhver ætlar sér að komast að því hefur viðkomandi samband við mann sem þekkir annan o.s.frv. Sjálf er ég með skráð númer. En hvernig gat þetta gerst? Þetta var engin tilviljun hjá Hemma að senda í „vitlaust“ númer og að við- komandi heiti sama nafni og „hin“ manneskjan sem upprunalega átti að fá númerið. Enn og aftur vil ég þakka dömunni fyrir og tek undir hennar orð að einhleypar konur ættu að hafa allan varann á. ■ Um daginnog veginn ÖGMUNDUR JÓNASSON ■ alþingismaður og for- maður BSRB skrifar um tryggingamál. Hvort viltu samtryggingu eða einkatryggingu? ■ Bréf til blaðsins ■ Aðsendar greinar Við erum orðin hluti af stærri heild „Sú hug- mynd að eðli- legt sé að greiða háan skatt af fjár- magnstekjum en lágan skatt af vinnulaunum kemur eins og köld vatnsgusa yfir fjármálaspek- úlanta í norsku þjóð- félagi. Úti í heimi ■ Hægrimaðurinn Kåre Willoch vill lækka launaskatt og hækka fjár- magnstekjuskatt. AF MARKAÐI „Hér áður fyrr sögðum við „vinnan göfgar manninn,“ segir Kåre Willoch, „en nú höfum við haft endaskipti á hlutunum og segjum „fjármagnið göfgar manninn“.“ Willoch les yfir hægrimönnum KÅRE WILLOCH Gagnrýndi kapítalism- ann í ræðu á dögun- um. Handritasafn Halldórs Auðunn Bragi Sveinsson rithöfundur: Búið er að loka handritasafniHalldórs Laxness í Lands- bókasafni/Háskólabókasafni öðr- um en tveimur aðilum: Halldóri Guðmundssyni og Helgu Kress. Helga Kress og Halldór G hafa aðgang fengið ein að Halldórs erfðafé; andans hækkar gengið. Sjávarútvegs- ráðherra Kjósandi úr Norðvesturkjördæmi skrifar: Beitir sjaldan blekkingu, bros á vanga glóir. Heilinn þenst af þekkingu, þar til út úr flóir. Fréttablaðið tekur við aðsend-um greinum. Greinarnar eiga að vera á bilinu 3.000 til 3.500 slög með bilum í word count. Senda skal greinarnar á netfang- ið kolbrun@frettabladid.is ásamt mynd af greinarhöfundi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til þess að velja og hafna og stytta greinar. ■ ■ Þeir sem helst þyrftu á aðstoð að halda og eru í áhættuhópi, annað hvort vegna eigin sjúkdómasögu eða aðstand- enda, yrðu ein- mitt þeir sem annað hvort yrðu útilokaðir frá tryggingu eða fengju hana á afar- kjörum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.