Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 13
13ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2003 ÞÝSKALAND, AP Réttað er yfir tæp- lega níræðum fyrrverandi SS- liðsmanni í Þýskalandi um þessar mundir. Maðurinn, sem er hollenskættaður, er ákærður fyrir morð á Jan Houtmann, meðlimi hollensku andspyrnuhreyfingar- innar, árið 1944. Hebertus Bikker var dæmdur í lífstíðarfangelsi í Hollandi skömmu eftir síðari heims- styrjöldina fyrir pyntingar og landráð. Hann flúði til Þýskalands árið 1952, þar sem hann hefur búið síðan. Hann var lögsóttur í Þýskalandi árið 1957, en vegna skorts á sönnunargögnum var málinu vísað frá. Í síðustu viku var mál hans aftur tekið upp. Réttarhöldin mega aðeins standa í tvær klukkustundir á dag vegna lakrar heilsu Bikkers. Í miðjum réttarhöldum í síðustu viku var hann fluttur á spítala með of háan blóðþrýsting. Lög- fræðingar Bikkers telja að engin ný sönnungargögn hafi komið fram í málinu og því beri að vísa því frá. Saksóknari segist hins vegar telja að framburður nýs vitnis varpi nýju ljósi á málið. Kona hafi séð Bikker skjóta Hout- mann í bakið í hlöðu í Hollandi, þar sem hann var að reyna að flýja úr fangabúðum. ■ Skorradalur: Misbeiting á forkaupsrétti STJÓRNSÝSLA Guðni Ágústsson land- búnaðarráðherra hefur fellt úr gildi ákvörðun hreppsnefndarinnar í Skorradal um að neyta forkaups- réttar að helmingi jarðarinnar Efstabæjar. Tveir menn ákváðu í apríl í fyrra að kaupa helming Efstabæjar. Mánuði síðar ákvað hreppsnefndin að neyta forkaups- réttar og bar við landverndunar- sjónarmiðum enda ætluðu menn- irnir tveir aðeins að nýta jörðina til sauðfjárbeitar en ekki byggja hana upp. Landbúnaðarráðuneytið segir ekki hafa verið sýnt fram á að neyta þyrfti forkaupsréttar til að ná markmiðum um landvernd. ■ HEBERTUS BIKKER Í miðjum réttarhöldum í síðustu viku var hann fluttur á spítala með of háan blóð- þrýsting. Réttað yfir fyrrum liðsmanni SS í Þýskalandi: Skaut mann í bakið í hlöðu starfsemi í 10 löndum: London, Kaupmannahöfn, Genf, Helsinki, Lúxemborg, New York, Osló, Reykjavík, Stokkhólmi og Þórs- höfn í Færeyjum. Sextán prósent útlána til útlendinga Sextán prósent af útlánum Ís- landsbanka eru nú frá útlöndum. Bankinn var fyrsti bankinn sem hóf útrás á fyrirtækjasviði með því að reka fyrirtækjaþjónustu við stærstu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækin í helstu lönd- um, m.a. Kanada, Bandaríkjunum, Chile, Nýja-Sjálandi, Suður-Afr- íku og Noregi. Bankinn rekur líka útibú í London og Lúxemborg og á lítinn banka í Bretlandi, Raphaels- bankann. Þá tekur bankinn oft þátt í sambankalánum með öðrum bönkum og hefur haslað sér völl í svokölluðum millilagsfjárfesting- um í Norður-Evrópu. Erlendur Magnússon, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Íslandsbanka, segir það athyglisvert að enginn ís- lensku bankanna hafi farið ná- kvæmlega sömu leið í útrás á er- lenda markaði. Menn hafi séð það strax árið 1998 hjá Fjárfestinga- banka atvinnulífsins að eina leiðin til að vaxa væri að færa starfsem- ina að hluta til til útlanda. Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um að opna fleiri starfs- stöðvar í útlöndum en vissulega geti oft borgað sig að hafa fólk á staðnum, þrátt fyrir gott netsam- band og að auðvelt sé að senda fólk í tiltekin verkefni. ■ BLAÐAMANNAFUNDUR KAUPÞINGS BÚNAÐARBANKA Í HELSINKI Nýjasti þátturinn í útrás íslenskra banka er kaup Kaupþings Búnaðarbanka á finnsku fjármálafyrirtæki fyrir 5,5 milljarða króna. LANDSBANKINN Í LÚXEMBORG Landsbankinn ætlar sér að sigra á nýjum mörkuðum. Húsavíkur harðviður: Bærinn borgi kröfurnar SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Húsavík- ur ætlar að greiða allt að 1,5 millj- ónir króna vegna forgangskrafna í fyrirtækið Húsavík harðvið ehf. sem á í greiðsluerfiðleikum. Tillagan var lögð fram af bæj- arstjóranum Reinhard Reynissyni og bæjarfulltrúanum Friðfinni Hermannssyni. Það gerðu þeir sem stjórnarmenn í Húsavík harð- viði og viku því sæti við afgreiðslu málsins í bæjarráði. Bærinn er að- aleigandi fyrirtækisins. Auk þess samþykkti bæjarráð að standa skil á skuldaskilasamn- ingi við almenna kröfuhafa, náist sá samningur við þá. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.