Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2003 27 Leikarinn Keanu Reeves hefurnú dregið sig alveg í hlé og mun jafnvel sleppa því alveg að taka þátt í kynningarferðum vegna þriðju Matrix-myndarinn- ar. Ástæðan er sögð sú að litla systir hans, Kim, er komin með hvítblæði. Kim er ein þeirra sem staðið hafa við bakið á Keanu í raunum hans undangengin ár. En fyrir 4 árum fæddi konan hans, Jennifer Syme, andvana barn og eins og það væri ekki nóg dó hún í bílslysi tveimur árum síðar. Svo hinn 39 ára gamli leikari er eiginlega kominn með nóg af þessu öllu saman og kærir sig ekki um að umgangast neinn nema systur sína hana Kim og reynir að styðja hana í gegnum þrautir sínar. ■ Tónlistarmaðurinn Phil Collinssegist vera byrjaður að trúa fólki sem segist sjá drauga þar sem hann sé sjálfur enn í sambandi við látinn föður sinn. Söngvarinn greindi nýlega frá því í viðtali við Brigitte Magazine að eitt kvöldið hefði rafmagnsteppi verið rifið ofan af börnum hans. Í fyrstu héldu þau að það hefði runn- ið af og settu það aftur ofan á sig. Þegar teppið hafði verið hrifsað af krökkunum aftur og aftur voru þau orðin handviss að draugur væri þar á ferð. Síðar kom í ljós að teppið var bilað og að það hefði hæglega getað skaðað börnin. Phil segist stuttu eftir þetta hafa leitað til miðils og þá hafi komið í ljós að draugurinn var enginn ann- ar en látinn faðir hans sem vissi af biluninni og vildi vernda börnin frá skaða. Eftir þetta segist Phil Collins aldrei draga orð þeirra í efa sem segjast hafa séð drauga. ■ Keanu Reeves: Harmleikur Matrix- stjörnu KEANU REEVES Hefur lent í ótrúlegum hremmingum und- anfarin ár og nú er systir hans komin með hvítblæði. Í sambandi við látinn föður sinn Skrýtnafréttin PHIL COLLINS Trúir því að látinn faðir sinn hjálpi sér að passa börnin. Madonna hefur samþykkt aðleika S&M meistara í næsta myndbandi Britney Spears. Lagið er dúett þeirra og heitir „Me Against the Music“. Eiginmaður Madonnu, Guy Ritchie, ætlar að leikstýra. Madonna leikur ógnvekjandi næt- urklúbbseiganda sem lokkar til sín hina saklausu Britney og lok- ar hana inni með öðrum myndarleg- um hnát- um. Sviðs- og kvikmyndaleikararminntust leikarans Gregory Hines með glæsi- legri uppákomu í Apollo Theater í Harlem í New York á sunnudags- kvöldið. Eldri bróð- ir hans, Maurice, var kynnir. Á með- al þeirra sem komu fram voru rússneski ballet- dansarinn Mikhail Baryshnikov, Debbie Allen og leikkonan Isa- belle Rossellini. Söngvari bresku sveitarinnarThe Libertines gæti sloppið úr fangelsi innan nokkurra daga eft- ir að lögfræðingar hans fengu dómi hans hnekkt. Lög- fræðingar hans sögðu að fangelsis- vistin hefði hrist verulega upp í hon- um og að hann væri ólíklegur til þess að brjóta lögin aftur. Fyrr- um liðsmenn hans í Libertines hafa sagst ætla að taka við hon- um aftur þegar hann losnar, þrátt fyrir að söngvarinn hafi endað í fangelsi fyrir að hafa brotist inn hjá einum þeirra. Sjónvarpsleikaranum MattLeBlanc hefur verið skipað að fara í megrun áður en tökur á þættin- um Joey hefjast. Leikarinn hefur bætt örlítið á sig á meðan tökur á tí- undu og síðustu Friends-seríunni hafa staðið yfir. Vinir leikarans segja þó að leikar- inn sé ansi langt frá því að teljast feitur, en svona getur skemmtana- bransinn nú verið harður. Önnur breiðskífa The Strokeshefur lekið út á Netið. Platan heitir Room on Fire og hafa aðdá- endur fyrstu plöt- unnar beðið hennar með mikilli eftir- væntingu. Tíu af ellefu lögum plöt- unnar eru nú fáan- leg á skiptiforrit- um Netsins, útgefandanum og hljómsveitinni til ama. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.