Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Biðlistabingó
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
Allt að 80%veðsetningarhlutfall
af verðmæti fasteignar
A
B
X
9
0
3
0
3
7
5
Er allt þitt á þurru?
Ég er svo heppin að hafa sjaldanverið á biðlista, enda er aldrei að
vita hvenær röðin kemur að manni,
hvort maður er í röðinni og hvernig
maður færist til á listanum. Færist
maður upp eða niður? Getur maður
færst á milli biðlista og endað með
því að bíða eftir einhverju allt öðru
en maður ætlaði? Hátt í hundrað og
fimmtíu manns sitja á biðlistum
fólks sem þarf að komast í varanlega
vistun eftir meðferð á sjúkrahúsum.
Börn með geðraskanir eru á biðlist-
um eftir viðunandi þjónustu. Aldrað-
ir um allar trissur sitja á biðlistum,
kannski vegna þess að þeir hafa
nægan tíma.
KONA EIN á níræðisaldri hefur
verið á biðlista í sex ár. Hún er á
löngum lista yfir fólk sem bíður eftir
íbúðarholu hjá félagsþjónustu aldr-
aðra í sjálfum höfuðstaðnum. Fyrir
margt löngu var henni tjáð að hún
þætti vera í brýnni þörf fyrir þjón-
ustuíbúð og að hámarksbið væri þrjú
ár. Þessi góða kona heldur þó áfram
að færast upp og niður og út og suð-
ur á biðlistanum. Nýverið fékk hún
heimsókn sérfróðra sem vildu meta
hennar brýnu þörf, enn á ný. Ung
blómarós tjáði henni að hún ætti að
fá sér neyðarhnapp og húshjálp á
meðan hún sæti á biðlistanum. Hin
aldna frú sagði fátt en leit á brennd-
ar hendur sínar eftir slys við elda-
mennsku skömmu áður.
ÞEGAR sérfræðingarnir heyrðu um
hennar brýnu þörf, einu sinni enn,
stungu þeir upp á að hún sækti um
vistun á elliheimili og bættu við að
þar væru að vísu biðlistar líka sem
hún þyrfti að fara neðst á. En þolin-
mæði er dyggð og konan sú ætti að
vera komin í góða biðlistaæfingu eft-
ir sex ára setu á lista. Hver veit
nema hún þurfi ekki á plássinu að
halda loks þegar og ef röðin kemur
að henni?
EN HVERNIG skal stytta biðlist-
ana dularfullu? Enginn veit hvar
hann situr á flóknum og margslungn-
um listunum. Þeir taka sífelldum
breytingum eins og um galdra sé að
ræða. Lengi hefur þó tíðkast að
bjóða öldruðum upp á bingó til að
stytta sér stundir. Í stað þess að
spila um kertastjaka og lopateppi
væri hugsanlegt að spila um íbúðir
fyrir aldraða. Möguleikar þátttak-
enda gætu orðið talsvert meiri en
þeir eru nú. Að auki væri um kær-
komna dægrastyttingu að ræða og
við bættist örlítil spenna í annars til-
breytingarsnautt líf.