Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 8
8 30. september 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Bara maður-sjálfur
„Þá þarf maður kannski ekki
alltaf að vera að velta sér uppúr
því að maður sé karl eða kona.
Þá er maður bara maður - sjálf-
ur.“
Katrín Jakobsdóttir í Morgunblaðinu
29. september.
Endurnýjun nauðsynleg
„Reykjavíkurlistinn þarf að
tryggja öfluga innri endurnýjun
til að lifa af.“
Andrés Jónsson, DV 29. september.
Karlar að
rífast um fisk
„Íslenskri þjóðfélagsum-
ræðu til skamms tíma
verður ef til vill lýst
með einni setn-
ingu: Karlar að
rífast um fisk.“
Guðmundur Andri
Thorsson í Fréttablaðinu
29. september.
Orðrétt
SKIPULAG Úrskurðarnefnd skipu-
lags- og byggingarmála hefur
fellt úr gildi deiliskipulag sem
Kópavogsbær samþykkti fyrir
svokallað Linda IV hverfi. Nefnd-
in segir nýtingarhlutfall lóðarinn-
ar vera 18% umfram það sem að-
alskipulag heimilar.
Lindir IV lóðin afmarkast af
Reykjanesbraut í vestur og norð-
ur, Lindarvegi í austur og Fífu-
hvammsvegi í suður.
Kópavogsbær vildi að reist
yrði 25 þúsund fermetra verslun-
armiðstöð með níu hæða turni í
Lindum IV. Íbúar í nágrenninu
kærðu nýja deiliskipulagið til úr-
skurðarnefndarinnar.
„Skipulagsáætlanir hafa meðal
annars það hlutverk að gefa borg-
urum til kynna hvers megi vænta
um nýtingu og þéttleika byggðar,
en hækkun nýtingarhlutfalls um
18% getur haft töluverða breyt-
ingu í för með sér hvað varðar
stærð bygginga, umferð og ásýnd.
Staðfest aðalskipulag er bindandi
fyrir stjórnvöld og borgara og
skal deiliskipulag vera í samræmi
við gildandi aðalskipulag,“ sagði
úrskurðarnefndin og bætti við:
„Verður ekki hjá því komist að
fella hina kærðu deiliskipulags-
ákvörðun úr gildi.“ ■
Dollarar úr möppu
Þróunarfélagsins
Dollarar úr óþekktum möppum og ógreiddir milljóna reikningar
vegna verkefnis sem Þróunarfélagið hafði fengið Evrópustyrk greidd-
an út á eru meðal þess sem núverandi stjórn félagsins er að fara yfir.
SVEITARSTJÓRNIR Stjórn Þróunarfé-
lags Vestmannaeyja áætlar að
funda í dag og fara yfir stöðuna
sem er uppi vegna nýlegs fundar
á týndum reikningum sem félag-
inu eru gerðir.
Reikningarnir fundust bæði á
skrifstofu Þróunarfélagsins og í
skrifborði sem
notað var af
Inga Sigurðs-
syni, sem var
framkvæmda-
stjóri félagsins
þann tíma sem
hann sat sem
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Ingi er staddur í Tyrklandi þar
sem ekki náðist símasamband við
hann í gær.
„Þetta er í plastpokum og
möppum sem verður líklegast
bara skutlað upp á fundarborðið.
Við vitum ekki enn hvort þessir
reikningar eru skráðir eða ekki.
Það duttu líka tæplega 300 dollar-
ar út úr möppum sem enginn veit
hver á. Þetta er vægast sagt
stórfurðulegt,“ segir Andrés Sig-
mundsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokks og núverandi stjórn-
arformaður Þróunarfélagsins.
Að sögn Andrésar hefur tafist
að fara yfir málið vegna funda-
halda fulltrúa bæjarins með fjár-
veitinganefnd Alþingis og sam-
gönguráðherra.
Meðal þess sem uppgötvaðist í
bæjarstjóraskrifborðinu voru
ógreiddir reikningar á Þróunarfé-
lagið upp á tæpar tvær milljónir
króna. „Þetta voru reikningar frá
fyrirtækjum sem tóku þátt í verk-
efni sem Þróunarfélagið hafði
fengið greiddan Evrópustyrk fyr-
ir,“ segir Andrés. Einn heimildar-
maður Fréttablaðsins segir reikn-
inga vera kröfu um endurgreiðslu
sem viðkomandi fyrirtæki telji
sig eiga rétt á.
Fyrir liggur að Þróunarfélag-
inu verði slitið. Andrés segir Vest-
mannaeyjabæ hafa frá því 1995
lagt á bilinu 160 til 170 milljónir
króna inn í félagið. Allt það fé sé
tapað yfir eign í fiskstautafyrir-
tæki sem hugsanlega sé örfárra
milljóna króna virði. „Verst er að
þetta skilur ekki eitt einasta starf
eftir sig,“ segir Andrés.
gar@frettabladid.is
SAMSKIP
Tveimur hefur verið sleppt.
Fíkniefnamál:
Þrír enn í
haldi
FÍKNIEFNAMÁL Tveimur mönnunum
af fimm sem setið hafa í gæslu-
varðhaldi vegna fíkniefna sem
smyglað var inn með skipi Sam-
skipa hefur verið sleppt úr haldi.
Skipið sem efnin fundust í kom
frá Rotterdam í Hollandi.
Að sögn Ásgeirs Karlsson hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík var ekki talin ástæða
til að halda tveimur mannanna
lengur. Þeir sem enn sitja inni
voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald
til miðvikudags. ■
Vopnafjörður:
Löggubíll
bilaður
LÖGREGLUBÍLL Lögreglubíllinn á
Vopnafirði er bilaður á ný, en
hann var nýkominn úr viðgerð í
Reykjavík. Lögreglan fór á við-
gerðum bílnum að Kárahnjúkum í
eftirlitsferð. Hann dugði ekki
ferðina alla og var dreginn til
baka af dráttarbíl.
Rúnar Valsson, varðstjóri á
Vopnafirði, staðfesti við Frétta-
blaðið að lögreglubíllinn væri far-
inn aftur í viðgerð til Reykjavík-
ur. Svo illa var komið fyrir lög-
reglunni um daginn að enginn bíll
var til staðar og varð lögreglan
því að ganga í útköll. Úr því var
bætt og bíll leigður. „Ég er aftur
kominn á bílaleigubíl og er nokk-
uð sáttur,“ sagði Rúnar. ■
Ríkisstjórakosningar:
Arnold tek-
ur forystuna
KALIFORNÍA, AP Ný skoðanakönnun
bendir til þess að kvikmyndaleik-
arinn Arnold Schwarzenegger
muni fara með sigur af hólmi í
ríkisstjórakosningunum í Kali-
forníu 7. október næstkomandi.
Könnunin var framkvæmd af
Gallup fyrir sjónvarpsstöðina
CNN.
Um 63% aðspurðra voru fylgj-
andi því að umboð núverandi rík-
isstjóra, Gray Davis, yrði aftur-
kallað. Af þessum hópi sögðust
40% ætla að kjósa Schwarze-
negger sem eftirmann hans. Fylgi
demókratans Cruz Bustamante
mældist 25%, sem er svipað og í
fyrri skoðanakönnunum.
Frambjóðendur í ríkisstjóra-
kosningunum eru 135 talsins. ■
LINDIR IV
Kópavogsbær vill að reist verði 25 þúsund fermetra verslunarmiðstöð á þessum stað í
Lindahverfi. Úrskurðarnefnd segir komið aftan að nágrönnum sem fyrir eru þar sem nýt-
ingarhlutfall lóðarinnar fari út fyrir heimildir aðalskipulags bæjarins.
Úrskurðarnefnd gerir Kópavog afturreka
með deiliskipulag:
Verslunarmiðstöð
stóðst ekki skipulag
„Þetta er
vægast sagt
stórfurðulegt.
DOLLARAR
„Það duttu líka tæplega 300 dollarar út úr möppum sem enginn veit hver á. Þetta er
vægast sagt stórfurðulegt,“ segir Andrés Sigmundsson um meinta óreiðu í bókhaldi Þró-
unarfélags Vestmannaeyja. Seðlarnir á myndinni eru ekki þeir sem fundust á skrifstofu
Þróunarfélagsins.
ANDRÉS SIGMUNDSSON
„Verst er að þetta skilur ekki eitt einasta starf
eftir sig,“ segir Andrés Sigmundsson, for-
maður stjórnar Þróunarfélags Vestmanna-
eyja, um yfirvofandi endalok félagsins.
Rokktónleikar:
Sjálfsmorð
á sviðinu
FLÓRÍDA, AP Borgaryfirvöld í St.
Petersburg í Flórída hafa sam-
þykkt nýja reglugerð sem ætlað er
að koma í veg fyrir áform banda-
rískrar rokkhljómsveitar um að
sýna sjálfsmorð á tónleikasviði.
Hljómsveitin Hell on Earth hafði
lýst því yfir að dauðvona einstak-
lingur myndi fremja sjálfsmorð á
sviðinu á tónleikum á laugardag-
inn til að vekja athygli á rétti
manna til að deyja. Forsprakki
hljómsveitarinnar segir að tónleik-
arnir og sjálfsmorðið muni fara
fram á ótilgreindum stað í borg-
inni þrátt fyrir bannið. ■
Í FRAMBOÐI
Arnold
Schwarzenegg
er gefur ekkert
eftir í kosn-
ingabaráttunni.