Fréttablaðið - 30.09.2003, Qupperneq 18
heilsa o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heilsa@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi og verkjastillandi lyf. Lyfið er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig má nota það sem
verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir t.d. tanndrátt. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða er með skerta lifrarstarfsemi má ekki nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera) ætti ekki að nota lyfið. Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með
tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. ofnæmi (útbrot) og meltingaróþægindum.
Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 01.09.01.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Öflugur
bakhjarl!
FERSK Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI
Alda Jónsdóttir, formaður Ís-lenska fjallahjólaklúbbsins,
heldur sér í formi með því að
hjóla út um allar trissur. Á hverj-
um degi hjólar hún í vinnuna frá
svæðinu við sundlaugarnar í
Laugardal alla leið upp á Fossháls,
sem gerir um 6,5 km. „Ég er í um
það bil 25 mínútur uppeftir en svo
er ég fljótari heim. Ég lít bara á
Ártúnsbrekkuna sem mína æf-
ingu.“
Alda segir að margir vina
hennar séu undrandi á ferðum
hennar upp brekkuna og telji hana
jafnvel ekki með öllum mjalla.
Hún kærir sig hins vegar kollótta
um það og segir hjólreiðatúrinn
gera sér mjög gott: „Ég hef séð
heilmikinn mun á mér síðan ég
byrjaði í þessari vinnu og vöðvar
sem hafa lítið verið notaðir áður
hafa styrkst.“
Auk hjólreiðanna segist Alda
hafa voðalega gaman af því að
vera úti og ganga, sérstaklega þó
á sumrin. Hún segist hafa byrjað
að stunda hjólreiðar árið 1988
þegar hún keypti sér fjallahjól:
„Fyrst notaði ég hjólið aðallega til
ferðalaga en núna finnst mér líka
þægilegt að nota það til sam-
gangna. Þetta sparar annan bílinn
á okkar heimili,“ segir Alda, sem á
mann sem þarf nauðsynlega á bíl
að halda vegna vinnu sinnar.
„Maður gerir í staðinn eitthvað
skemmtilegt fyrir peningana sem
annars færu í bílakaup.“
Aðspurð segir Alda að mikið sé
búið að gera fyrir hjólreiðamenn
undanfarin ár. Betur megi hins
vegar ef duga skuli. „Ég vildi
gjarnan sjá sérstaka hjólreiða-
vegi meðfram helstu stöðum. Ég
vil líta á hjól sem samgöngu-
tæki. Ef Sundabrautin
verður lögð verður von-
andi hugsað um hjólandi
fólk líka. Vandamálið er
að Vegagerðin hugsar
um uppbyggingu þjóð-
vega og sveitarfélögin
eiga að sjá um gangandi
og hjólandi. Það eru smá
árekstrar þarna á
milli.“
Um 500 manns
eru meðlimir í Ís-
lenska fjalla-
hjólaklúbbnum.
Að sögn Öldu
hefur klúbbur-
inn gert tölu-
vert að því að
standa fyrir
kvöldferðum. Einnig var farið í
eftirminnilega ferð til Noregs í
fyrra þar sem hjólað var um
fjöll og firnindi. „Þetta er
ekki eins svakalegt núna
og þegar maður hjólaði
Kjöl fyrir ellefu árum
síðan með barn. Þá taldi
fólk mann klikkað. Núna
þykir þetta ekkert tiltöku-
mál og fólk er farið að drífa
sig í alls konar ferðir.“
freyr@frettabladid.is
Hvernig heldur þú þér í formi?
Hjólar upp
Ártúnsbrekkuna
ALDA
JÓNSDÓTTIR
Fékk hjólreiða-
bakteríuna eft-
ir að hún
keypti sér
fjallahjól árið
1988.
Stúlkur þurfa á næringarríkarimorgunverði að halda en piltar
ef þær vilja ná hámarksárangri í
skólastofunni. Þetta kemur fram í
rannsókn sem var gerð af heilsu-
sérfræðingi við háskólann í Ulster
á Norður-Írlandi.
Samkvæmt rannsókninni stóðu
stúlkur sig betur í prófum sem
reyndu mikið á minnið ef þær
höfðu borðað góðan morgunverð.
Aftur á móti stóðu piltarnir sig bet-
ur í prófunum ef þeir höfðu borðað
minna og voru örlítið hungraðir.
Þess má geta að morgunverður
nemendanna sem notaður var í
rannsókninni samanstóð af ristuðu
brauði og bökuðum baunum. ■
Breskar skólastúlkur:
Þurfa góðan morgunverð
SKÓLASTÚLKUR
Vonandi snæddu þessar afgönsku skóla-
stúlkur næringarríkan morgunverð áður en
þær lögðu af stað að heiman.
HÁIR HÆLAR
Þessi sýningarstúlka er ekki í áhættuhópi
hvað varðar gigt í hnjám samkvæmt rann-
sókninni.
Bresk rannsókn:
Háir hælar
valda ekki
gigt
Engar sannanir hafa fundistfyrir því að háhælaðir skór
geti valdið gigt í hnjáliðum. Aftur
á móti geta of mikil þyngd, reyk-
ingar og gömul hnémeiðsli aukið
hættuna á gigt, að því er kemur
fram í nýlegri rannsókn við Ox-
ford Brookes-háskólann.
Rúmlega 100 konur á aldrinum
50 og 70 ára sem voru á leið í að-
gerð vegna hnémeiðsla tóku þátt í
rannsókninni. Samkvæmt rann-
sókninni hafði skóval þeirra engin
áhrif á meiðslin. ■
AP
/M
YN
D
SÓL
Sólin sendir frá sér útfjólubláa geisla sem
eru hættulegir fyrir húðina.
Bresk rannsókn:
Sólar-
áburður
gagnslaus?
Sólaráburður veitir hugsanlegaekki þá vörn gegn húðkrabba-
meini sem hingað til hefur verið
talið. Þetta kemur fram í skýrslu
breskra lækna.
Samkvæmt skýrslunni virka
nokkrar af helstu tegundum sólar-
áburðar ekki til að vernda húðina
gegn útfjólubláum geislum sólar-
innar.
Telja læknarnir að fleiri rann-
sóknir þurfi til að komast að því
hvort og þá hvaða sólaráburður
virki að einhverju marki gegn sól-
inni, að því er sagði á fréttavef
BBC. Í skýrslunni er fólki sem vill
vernda húðina ráðlagt að forðast
sólarljósið eða skýla sér á ein-
hvern annan máta frá sólinni þeg-
ar það fer út úr húsi.
Talmaður snyrtivöruframleið-
andans Boots sem selur eigin sól-
aráburð, segir að fólk eigi ávallt að
fara varlega þegar það er úti í sól-
inni. „Þú mátt ekki halda að þú sért
fullkomlega varinn fyrir sólinni ef
þú notar sólaráburð. En samt sem
áður er betra að nota sólaráburð en
ekki neitt.“ ■
HOLLT OG GOTT
Gulrætur eru hollar og góðar og
eru eins og annað grænmeti á
góðum kjörum í búðum þessa
dagana. Gulrætur eru ríkar af
a-vítamíni. Gott er að borða þær
hráar í millimál, sérstaklega þær
sem eru lífrænt ræktaðar. Ein
góð aðferð við að matreiða þær
sem meðlæti er að léttsjóða þær
og smjörsteikja þær svo. Salta
svo og pipra og bera fram til
dæmis með lambakjöti.