Fréttablaðið - 30.09.2003, Page 23

Fréttablaðið - 30.09.2003, Page 23
23ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2003 EGILSSTAÐA 6.300kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og ÍSAFJARÐAR 5.400kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.600 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is flugfelag.is 1. – 7. okt VOPNAFJARÐAR/ ÞÓRSHAFNAR 3.900kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Akureyrar og Fargjald fyrir börn 1 króna! Gildir aðra leiðina fyrir börn, 2ja til 12 ára, í fylgd með fullorðnum (við bætist flugvallarskattur og tryggingagjald, samtals kr. 333). ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 24 01 10 /2 00 3 HANDBOLTI Keppni í SS-bikarkeppni karla í handbolta hefst í kvöld með fjórum leikjum. Á morgun verða sex leikir en síðustu fjórir leikirn- ir fara fram á laugardag. Fjögur félög úr RE/MAX-deild- inni verða í eldlínunni í kvöld. Val- ur, sem er í efsta sæti norðurriðils RE/MAX-deildarinnar, leikur í kvöld gegn utandeildarliðinu World Class. Fram, sem er í öðru sæti norðurriðils, leikur gegn Handknattleiksfélagi Reykjavíkur. Lið ÍR 2 leikur við Breiðablik í Seljaskóla og Grótta/KR 2 við Aft- ureldingu á Seltjarnarnesi. Lið ÍR og Gróttu/KR eru skipuð leik- mönnum sem léku fyrir nokkrum árum með meistaraflokki og nokkrir léku á árum áður með landsliðinu. Með Gróttu/KR 2 leika til dæmis Guðmundur Albertsson, Davíð Gíslason, Leifur Dagfinns- son og Konráð Olavson en í liði ÍR 2 eru meðal annarra Þorkell Guð- brandsson, sem áður lék með Aft- ureldingu, Framararnir Njörður Árnason og Guðmundur Helgi Pálsson og ÍR-ingurinn Ólafur Gylfason. ■ SS-BIKARKEPPNIN Í HANDBOLTA Valur mætir World Class í kvöld og Aftur- elding leikur gegn Gróttu/KR 2. SS-bikar karla í handbolta: Gamlar hetjur í sviðsljósinu FÓTBOLTI Átta liða úrslit á Heims- meistarakeppni kvenna hefjast í kvöld með tveimur leikjum í Boston. Heimsmeistarar Banda- ríkjanna leika gegn norsku ólympíumeisturunum og Brasilíu- menn leika gegn Svíum. Á morg- un leika Þjóðverjar og Rússar og Kínverjar gegn Kanadamönnum. Bandaríkjamenn unnu alla sína leiki í A-riðli. Á sunnudag unnu þeir Asíumeistara Norður-Kóreu 3-0. Abby Wambach skoraði í fyrri hálfleik og fyrirliðinn Cat Redd- ick bætti tveimur mörkum við í þeim seinni. Svíar unnu Nígeríu 3-0 og fylgja gestgjöfunum í átta liða úrslitin. Hanna Ljungberg (2) og Malin Moström skoruðu mörk Svía í seinni hálfleik. Kínverjar unnu Rússa 1-0 og sigruðu í D-riðli. Jie Bai skoraði eftir korters leik og færði Kín- verjum sjötta sigurinn í sex leikj- um gegn Rússum. Hefðu Rússar unnið ættu Ástralir möguleika á sæti í átta liða úrslitum með sigri á Gana. Hvorugt gekk eftir og urðu Ástralir neðstir í riðlinum. Alberta Sackey skoraði tvisvar fyrir Ganamenn í fyrri hálfleik og Heather Garriock minnkaði muninn fyrir Ástrala í seinni hálfleik. ■ HM kvenna í knattspyrnu: Átta lið eftir LEIKIR Í ÁTTA LIÐA ÚRSLITUM 1. okt. Bandaríkin - Noregur 1. okt. Brasilía - Svíþjóð 2. okt. Þýskaland - Rússland 2. okt. Kína - Kanada KÍNA - RÚSSLAND Rússinn Elena Fomina (númer 13) í bar- áttu við Kínverjann Liu Ying (númer 10). FÓTBOLTI Í kvöld fara fram átta leikir í annarri umferð Meistara- deildar Evrópu. Arsenal leikur gegn Lokomotiv í Moskvu og er enn óljóst hvort Patrick Vieira, Freddie Ljungberg, Ashley Cole og Martin Keown verði með en þeir meiddust í leiknum gegn Newcastle á föstudag. Sol Camp- bell og Dennis Bergkamp urðu eftir heima en David Bentley, 19 ára miðjumaður, verður í leik- mannahópi Arsenal. Hann hefur aðeins leikið í 13 mínútur með að- alliði Arsenal. Internazionale leikur gegn Dynamo Kyiv í sama riðli. Varn- armaðurinn Marco Materazzi meiddist gegn Udinese um helg- ina og leikur hvorki í kvöld né gegn AC Milan um helgina. Einnig er talið ólíklegt að Christian Vieri leiki gegn Dynamo. Anderlecht leikur gegn Bayern München án sænska miðvallar- leikmannsins Christian Wilhelms- son, sem meiddist í 4-2 sigri gegn K. Heusden-Zolder. Bayern hefur hins vegar endurheimt Owen Hargreaves, sem missti af leikn- um gegn Hansa Rostock á laugar- dag vegna flensu. Celtic leikur gegn Lyon í Glas- gow. Celtic tapaði 2-1 fyrir Bayern München fyrir tveimur vikum en Lyon vann Anderlecht 1-0. Celtic lenti í basli með Hi- bernian um helgina en Lyon burstaði Lens 4-0 og skoraði Bras- ilíumaðurinn Juninho Pernam- bucano þrennu. Galatasaray og Real Sociedad leika í Istanbúl í D-riðli. Tyrkirnir töpuðu 2-1 fyrir Juventus í fyrstu umferðinni en spænska félagið vann Olympiakos 1-0 á heimavelli. Juventus og Olympiakos leika í Grikklandi í kvöld. Deportivo og PSV mætast í La Coruña í kvöld. Þar mætast markahæstu leikmenn spænsku og hollensku deildanna. Úrúgvæ- inn Walter Pandiani hefur skorað fimm mörk í fimm leikjum með Deportivo en Serbinn Mateja Kezman hefur skorað átta mörk í sex leikjum með PSV. Deportivo gerði jafntefli við AEK í fyrstu umferðinni en Monaco vann PSV 2-1 á útivelli. Monaco, sem vann Toulouse 3-0 um helgina, er efst í frönsku deildinni og leikur við AEK á heimavelli í kvöld. ■ PATRICK VIEIRA Patrick Vieira meiddist á mjöðm í leiknum gegn Newcastle á föstudag og er óvíst hvort hann leiki með Arsenal í Moskvu í kvöld. Meiðsli hjá Arsenal Óvíst er hvort Patrick Vieira, Freddie Ljungberg, Ashley Cole og Martin Keown leiki með Arsenal í Moskvu í kvöld. Þeir eru enn meiddir eftir deildarleikinn gegn Newcastle á föstudag. A RIÐILL Anderlecht - Bayern Celtic - Lyon B RIÐILL Internazionale - Dynamo Kyiv Lokomotiv Moskva - Arsenal C RIÐILL Deportivo La Coruña - PSV Eindhoven Monaco - AEK Aþenu D RIÐILL Galatasaray - Real Sociedad Olympiakos Pireus - Juventus

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.