Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 10
10 16. október 2003 FIMMTUDAGUR VEÐURVERKEFNIÐ Sýning Ólafs Elíassonar myndlistarmanns var opnuð í Túrbínusal Tate Modern-lista- safnsins í London í gær. Yfirskrift sýningar- innar er „Veðurverkefnið“ en þar notast Ólafur við spegla, ljós, hljóð og gufu til að ná fram sérstökum áhrifum. Ýmsar leiðir skoðaðar til að koma í veg fyrir fjárþurrð Fæðingarorlofssjóðs: Engar grundvallarbreytingar FÆÐINGARORLOF „Ég hef sem fé- lagsmálaráðherra ekki í hyggju að gera grundvallarbreytingar á þessum lögum,“ sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra í umræðu um fjárhagsstöðu Fæð- ingarorlofssjóðs á Alþingi í gær. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingar, spurði félagsmálaráðherra hvernig hann hygðist bregðast við fjár- þurrð sjóðsins, en ef fram fer sem horfir klárast eigið fé hans á næstu tveimur árum. Árni sagð- ist þá hafa sett könnun á stöðu sjóðsins og veikleikum í fram- kvæmd laga um hann. Meðal ann- ars verði að skoða hvort og hvernig megi breikka tekjustofn hans og draga úr útgjöldum án þess að ganga um of að rétti for- eldra. Þórunni þótti upphafleg svör ráðherrans fremur rýr eins og heyra mátti á viðbrögðum henn- ar: „Gott og vel, það er hópur embættismanna í málinu. Við höfum heyrt það áður í dag. Það sem skiptir þó mestu er að póli- tísk leiðsögn ráðherra sé í lagi.“ Lýsti Árni því að engar grund- vallarbreytingar yrðu gerðar heldur unnið innan núverandi ramma. ■ Óttast að Óperan tefji tónlistarhúsið Framkvæmdastjóri fyrirhugaðs tónlistarhúss segir ótta við tafir á verkefninu ef stækka eigi húsið til að koma Íslensku Óperunni þar fyrir. Borgarleikhússtjóri segir Óperuna geta verið þar en vill að fénu sé fremur varið í listamenn en steinsteypu. LISTIR Stefán Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Austurhafnar TR ehf., segir suma óttast tafir á fyr- irhuguðu tónlistar- og ráðstefnu- húsi ef stækka eigi verkefnið til að koma Íslensku Óperunni fyrir í húsinu. Bjarni Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Íslensku Óperunn- ar, hefur sagt að Óperan vilji fá inni í tónlistarahúsinu. Lausleg at- hugun hefur sýnt að stofnkostnað- ur hússins myndi aukast um 1.700 millj- ónir króna við það. Húsið kosti ella 6.400 millj- ónir. Bandarískt ráðgjafarfyrir- tæki segir það hins vegar mundu kosta 843 milljónir að stækka Borgarleikhúsið þannig að Óper- an gæti flutt þangað. „Samningurinn milli ríkisins og Reykjavíkurborgar gerir ekki ráð fyrir aðstöðu fyrir óperu í tón- listarhúsinu. Stjórn Austurhafnar hefur ekki verið beðin um afstöðu í þessu máli. Okkur finnst þó já- kvætt að unnið sé að því að finna framtíðarlausn fyrir óperufólk- ið,“ segir Stefán. Að sögn Stefáns hefur ekki verið kannað hvernig flutningur Óperunnar í tónlistarhúsið fari saman við það að Sinfóníuhljóm- sveit Íslands muni hafa þar höfuð- stöðvar. Stækkun hússins sé hins vegar vel framkvæmanleg tækni- lega: „En það eykur kostnaðinn heilmikið. Sumir sem lítið hafa viljað hlusta á óskir óperunnar hafa kviðið því að það myndi tefja fyrir málinu að vera alltaf að stækka boltann. Það er borð- leggjandi,“ segir Stefán. Guðjón Pedersen, leikhús- stjóri í Borgarleikhúsinu, segir að þar hafi menn eingöngu kom- ið að málinu með því að veita umbeðnar upplýsingar um starfsemina hingað til og fram í tímann. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur hafi ekki fengið málið á sitt borð og ekki tekið afstöðu: „Í ljósi þess hvernig staðið er að leikhúsum á Íslandi finnst mér það persónulega vera skrít- ið að ætla að byggja enn eitt leikhúsið. Það er frekar kominn tími til að fara að eyða í þá lista- menn sem eiga að búa listina til,“ segir Guðjón. Aðspurður segist Guðjón þó ekkert sjá því til fyrirstöðu að starfsemi Óperunnar geti farið saman við þá starfsemi sem fyr- ir sé í Borgarleikhúsinu: „Skipu- lagslega gengur þetta alveg leik- andi upp. Sýningar og æfingar myndu einfaldlega dreifast öðru vísi yfir árið og á salina.“ gar@frettabladid.is Kráka áreitti Berlínarbúa: Náðist útúrdrukkin BERLÍN Lögreglan í Berlín þurfti að beita nokkuð sérstakri aðferð til að góma kráku, sem hafði komið sér fyrir við göngustíg í borginni og áreitti fólk sífellt með grimmdar- legum árásum. Lögreglunni tókst ekki að veiða krákuna með hefðbundnum að- ferðum og því greip hún til þess að gegnvæta kattamat með ávaxta- víni og leggja fyrir krákuna. Hún beit á agnið og ekki leið á löngu þar til hún lagðist út af útúrdrukk- in. Búist er við því að krákan verði síðan flutt upp í sveit þar sem hún getur ekki áreitt neinn nema sína jafningja. ■ Barnapía í Flórída: Misþyrmdi ungbarni FLÓRÍDA, AP Saksóknari í Flórída í Bandaríkjunum hefur ákært 29 ára gamla konu fyrir að mis- þyrma 5 mánaða gömlu barni sem hún var að passa. Foreldrar barnsins höfðu komið fyrir myndbandsupptöku- vélum í húsinu sem sýna barnapíuna misþyrma barninu. Á myndbandinu sést konan hrista barnið eins og dúkku, þannig að höfuðið sveiflaðist til og frá, og lemja því þrisvar til fjórum sinnum á eldhúsgólfið. Lögreglan segir mikla mildi að barnið skyldi ekki hafa skaðast af þessu. „Ég vona að þessi kona snerti aldrei ungbarn aftur,“ segir móðir barnsins. „Þegar ég af- henti barnapíunni dóttur mína virtist allt í góðu, en þegar ég fór að heiman breyttist hún í ófreskju.“ Lögmaður barnapíunnar held- ur því fram að konan sé saklaus. Gæði myndbandsins séu lítil og sýni ekki vel hvað gerðist. ■ STÁLU JEPPADEKKJUM Brotist var inn í dekkjalager á Akranesi í fyrrinótt og þaðan stolið jeppadekkjum að verð- mæti 600 þúsund króna auk lít- ilræðis af varahlutum. Málið er í rannsókn lögreglu. UMFERÐARÁTAK Á ÓLAFSVÍK Lögreglan á Ólafsvík þurfti að hafa af- skipti af 40 prósentum ökumanna fyrir utan leikskólann þar í bæ í gærmorgun. Helst voru gerðar athugasemdir við ónæga belta- notkun, ljósleysi og að fólk væri ekki með ökuskírteini. Heróínsmygl á Balkanskaga: Um 38 kíló gerð upptæk KOSOVO, AP Löggæslumenn Sam- einuðu þjóðanna komu upp um viðfangsmikið heróínsmygl í Kosovó í gær. Alls voru 36 kíló af heróíni gerð upptæk, sem er mesta magn sem fundist hefur í land- inu í fjögur ár. Heróínið fannst þegar þrír menn reyndu að smygla efninu frá Albaníu til Kosovo í bíl. Áætlað söluverð- mæti heróínisins er um 135 milljónir króna. Í júlí síðastliðin- um voru 18 kíló af heróíni gerð upptæk í landinu. Algengt er að smyglarar reyni að koma eitur- lyfjum á markaði í Mið- og Norð- ur-Evrópu með því að fara með þau í gegnum Kosovo. ■ Fyrstu mönnuðu geimflaug Kínverja skotið á loft í fyrrinótt: Þriðja ríkið til að senda mann út í geim KÍNA, AP Kína varð í fyrrinótt þriðja ríki veraldar til að senda mannað geimfar út fyrir gufuhvolf jarðar. Fjórir áratugir eru síðan Sovétrík- in sálugu og Bandaríkjamenn sendu mönnuð geimför á loft. Það var um miðnætti að íslensk- um tíma sem Shenzhou 5-flauginni var skotið á loft frá Gobi-eyði- mörkinni. Tíu mínútum síðar var flaugin komin á sporbaug. Einn geimfari er um borð, Yang Liwei, 38 ára, en hann var valinn úr hópi úrvalsflugmanna kínverska flug- hersins. „Mér líður stórkostlega, við sjá- umst á morgun“ sagði Yang skömmu eftir skotið og bætti við að hann ætlaði að lesa handbók geimflaugarinnar. Hu Jintao, forseti Kína, sem var viðstaddur geimskotið, mærði þá sem unnu að verkefninu og sagði að geimskotið yki hróður landsins. Japanar voru súrir og sögðust hafa tapað í geimkapphlaupinu við Kín- verja. Hjá bandaríska varnarmála- ráðuneytinu voru menn fámálir. „Við óskum þeim farsældar og geimfaranum óskum við góðrar heimkomu,“ sagði Cheryl Irwin, talsmaður Pentagon. Yang Liwei, fyrsti geimfari Kína, var væntanlegur til jarðar 20 klukkustundum síðar, á níunda tímanum í gærkvöld. ■ ÍSLENSKA ÓPERAN „Sumir sem lítið hafa viljað hlusta á óskir Óperunnar hafa kviðið því að það myndi tefja fyrir málinu að vera alltaf að stækka boltann,“ segir Stefán Hermannsson, framkvæmda- stjóri Austurhafnar, sem heldur utan um væntanlegt tónlistar- og ráðstefnuhús á hafnar- bakkanum í Reykjavík. Óperan vill komast að í húsinu en ekki er gert ráð fyrir henni. „Skrítið að ætla að byggja enn eitt leikhúsið. Á LEIÐ ÚT Í GEIM Fyrsti geimkfari Kínverja, Yang Liwei, gekk um borð þremur stundum fyrir geimskotið. FLUGTAK Í GOBI-EYÐIMÖRKINNI Kína varð í fyrrinótt þriðja ríkið til að skjóta mönnuðu geimfari út fyrir gufuhvolfið. ■ Lögreglufréttir ÁRNI MAGNÚSSON Styrkja þarf stoðirnar undir Fæðingarorlofssjóði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.