Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 30
30 16. október 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
12 13 15 16 17 18 19
OKTÓBER
Fimmtudagur
Leikmenn Arsenal:
Játa sakargiftir
FÓTBOLTI Leikmenn Arsenal hafa
játað sök í níu atriðum sem
Enska knattspyrnusambandið
kærði þá fyrir eftir slagsmál í
leik gegn Manchester United í
ensku úrvalsdeildinni. Stjórn
United neitar hins vegar
tvennum svipuðum sakargift-
um.
Enska knattspyrnusamband-
ið kærði leikmenn liðanna sem
og Arsenal sjálft fyrir slagsmál
í markalausum jafnteflisleik
þann 21. september síðastliðinn.
Upp úr sauð þegar Ruud van
Nistelrooy klúðraði vítaspyrnu
og í kjölfarið veittust leikmenn
Arsenal að honum. Það endaði
með því að til handalögmála
kom milli leikmanna.
Martin Keown, Ray Parlour,
Patrick Vieira, Ashley Cole og
Lauren hjá Arsenal hafa allir
játað sök og fá líklega þunga
refsingu fyrir.
Ryan Giggs og Cristiano Ron-
aldo, leikmenn United, neita
hins vegar sök. Kæra gegn Jens
Lehmann, markverði Arsenal,
var dregin til baka.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Enska knattspyrnusamband-
inu verður reynt að flýta málinu
eins og kostur er. ■
HANDBOLTI Ásgeir Örn Hallgríms-
son, handknattleiksmaðurinn ungi
í Haukum, gæti verið á leið til
spænska stórliðsins Barcelona. Ás-
geir Örn lék með Haukum gegn
Barcelona í Meistaradeild Evrópu
um síðustu helgi og í kjölfarið
ræddi spænski þjálfarinn við
Viggó Sigurðsson, þjálfara Hauka.
„Þeir hafa áhuga á að fá mig en
ég á eftir að tala við þá sjálfur.
Mér líst meiriháttar vel á þetta –
þetta er eiginlega alveg frábært.
Félögin gerast ekki stærri,“ sagði
Ásgeir Örn í samtali við Frétta-
blaðið og viðurkenndi að hafa ekki
þorað að láta sig dreyma um að
leika með Barcelona.
Börsungar hafa fylgst með
handknattleiksmanninum unga
frá því á Evrópumótinu í hand-
bolta, 18 ára og yngri, í Slóvakíu.
Ásgeir Örn fór fyrir liði Íslands
sem varð Evrópumeistari, hann
varð markahæstur og var valinn í
lið mótsins.
Ef af samningum verður mun
Ásgeir Örn fara út eftir næsta
tímabil.
Viggó Sigurðsson, sem lék með
Barcelona fyrir um tuttugu árum,
segir að Ásgeir Örn eigi eftir að
standa sig vel semji hann við
spænska liðið.
„Hann á eftir að pluma sig
mjög vel. Þetta er einn besti
klúbbur sem til er og það er vel
staðið að öllum hlutum. Ég yrði
mjög ánægður ef tilboð kæmi og
hann myndi taka því,“ segir
Viggó. „Hann kemst ekki hærra í
handboltanum.“
Barcelona hefur sex sinnum
unnið Meistaradeild Evrópu á
síðustu tólf árum og tvisvar orð-
ið Evrópumeistari bikarhafa.
Viggó segir Ásgeir Örn vera
bráðefnilegan. „Ég er að þjálfa
hann á fjórði ára í meistara-
flokki þó hann sé aðeins nítján
ára. Það segir margt. Hann hef-
ur mikla möguleika á að verða
stórstjarna ef hann fer rétt að,“
segir Viggó.
Viggó mun ræða við
Barcelona eftir seinni leik lið-
anna í Meistaradeild Evrópu
þann 22. nóvember og þá skýrist
væntanlega hvort Ásgeir Örn
fær tilboð frá Barcelona. ■
FIFA:
Ferdinand
refsað
FÓTTBOLTI Rio Ferdinand verður
refsað af Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, FIFA, fyrir að mæta
ekki í lyfjapróf ef Enska knatt-
spyrnusambandið gerir það ekki.
Michael D’Hooge, yfirmaður
lyfjanefndar FIFA og maðurinn á
bak við herferð sambandsins
gegn lyfjanotkun, segir mál
Ferdinands alvarlegt og honum
verði að refsa.
„Við munum láta Eng-
lendingana vinna að málinu fyrst
og kannski þurfum við ekki að
aðhafast neitt,“ sagði D’Hooge.
Ferdinand gæti átt yfir höfði sér
tveggja ára keppnisbann. ■
19.15 Grindavík og Njarðvík leika
í Grindavík í 1. deild kvenna í körfubolta.
19.15 Haukar og Þór keppa á Ás-
völlum í Hópbílabikar karla í körfubolta.
19.15 Hamar og Snæfell leika í
Hveragerði í Hópbílabikar karla í körfu-
bolta.
19.15 KR mætir KFÍ í DHL-höllinni í
Hópbílabikar karla í körfubolta.
19.15 Njarðvík fær Skallagrím í
heimsókn í Hópbílabikar karla í körfu-
bolta.
19.15 Tindastóll keppir við Val á
Sauðárkróki í Hópbílabikar karla í körfu-
bolta.
19.15 ÍR leikur við Breiðablik í
Seljaskóla í Hópbílabikar karla í körfu-
bolta.
16.45 Handboltakvöld á RÚV.
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
18.30 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.
19.00 Kraftasport (Sterkasti mað-
ur Íslands) á Sýn.
19.30 Toyota-mótaröðin í golfi á
Sýn.
20.40 European PGA Tour 2003
(Dutch Open) á Sýn. Þáttur um evr-
ópsku mótaröðina í golfi.
21.30 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum) á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
22.30 HM 2002 á Sýn. Útsending
frá leik Mexíkómanna og Bandaríkja-
manna á Sýn.
Vet
rar
sól
24.
930kr..
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
Alicante
Beint leigu-
flug me›
Icelandair
í allan vetur!
Sumarhúsa-
eigendur
og a›rir
farflegar
til Spánar!
Tilbo›
5. og 19. nóv.
í 2 vikur:
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Tilvali›
tækifæri
til a› stytta
veturinn.
Skosk félög
í Meistaradeildinni:
Umbun fyr-
ir árangur
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, tilkynnti í gær að
Skotlandsmeistarar þessarar leik-
tíðar fái sæti í riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar næsta haust.
Skotar hækkuðu úr tólfta sæti í
það níunda á styrkleikalista sam-
bandsins vegna árangurs Celtic í
UEFA-bikarkeppninni í fyrra.
Fyrir vikið missa Tyrkir öruggt
sæti í riðlakeppninni.
Spánverjar, Ítalir og Englend-
ingar eiga tvö sæti vís í riðla-
keppninni auk þess sem tvö félög
frá þessum þjóðum taka þátt í
undankeppninni. Svisslendingar
og Ísraelar hafa einnig klifið upp
styrkleikalistann og eiga tvö félög
í forkeppni Meistaradeildarinnar
á næstu leiktíð. ■
ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON
Ásgeir Örn stundar nám við Verslunarskóla Íslands. Hann hefur leikið með íslenska
A-landsliðinu og er með markahæstu mönnum í Remax-deild karla.
Á mikla möguleika á
að verða stórstjarna
Ásgeir Örn Hallgrímsson gæti verið á leið til stórliðsins Barcelona.
Kemst ekki hærra, segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, sem segir að
leikmaðurinn eigi eftir að standa sig vel.
SLAGSMÁL
Slagsmál brutust út meðal leikmanna
Arsenal og United fyrir skömmu.
M
YN
D
/L
ÁR
U
S
K
AR
L
IN
G
AS
O
N
FÓTBOLTI Stjarnan í Garðabæ hefur
fengið vilyrði stjórnar KSÍ um
fullan stuðning fyrir því að leikir
félagsins í öllum mótum á vegum
sambandsins fari fram á gervi-
grasvelli. Völlurinn verður að
uppfylla þær kröfur sem mann-
virkjanefnd KSÍ gerir til slíkra
valla.
„Við skrifuðum KSÍ bréf og
fengum svar frá þeim þar sem þeir
leggja blessun sína yfir þessa hug-
mynd,“ sagði Bjarni Benediktsson,
formaður knattspyrnudeildar
Stjörnunnar. „Við sjáum fyrir okk-
ur að við verðum komnir með full-
komnasta keppnisvöll á Íslandi
þegar stúkan, gervigrasið og flóð-
lýsingin verða komin,“ sagði
Bjarni. „Við ætlum fyrst og fremst
að nota völlinn í mótin hérna
heima og æfingar. Það veldur okk-
ur ekki miklum áhyggjum þó við
getum ekki spilað á honum í Evr-
ópukeppni á næstunni.“
Snorri Olsen, formaður Stjörn-
unnar, sagði að í stúkunni verði
um 1.200 sæti. Þar verða líka bún-
ingsherbergi, vélageymsla, skrif-
stofa og aðstaða fyrir áhorfendur.
Einnig verður byggð tengibygg-
ing frá stúkunni og yfir í Stjörnu-
heimilið. ■
Ungmennafélagið Stjarnan:
Gervigras í Garðabæ
STJARNAN
Stjarnan hefur hug á að byggja gervigrasvöll þar sem aðalvöllur félagsins er nú.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M