Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 20
20 16. október 2003 FIMMTUDAGUR ■ Nýjar bækur Árið 1964 gerðu Kínverjar til-raun með að sprengja kjarn- orkusprengju. Tilraunin tókst og þar með komust Kínverjar í hóp þeirra þjóða sem hafa yfir kjarn- orkuvopnum að ráða, en í þeim hópi voru fyrir Bandaríkin, Sovét- ríkin, Bretland og Frakkland. Vestræn stjórnvöld voru ekk- ert sérstaklega undrandi á þessu afreki Kínverja, því allt frá því á sjötta áratugnum höfðu þeim borist fréttir af því að Kínverjar væru að vinna að því að koma sér upp kjarnorkusprengjum, og þá jafnvel með aðstoð sovéskra vís- indamanna. Vestræn stjórnvöld höfðu engu að síður töluverðar áhyggjur af þessum áfanga, því kommúnista- stjórnin í Kína hafði þá um skeið verið býsna hvöss í orðum í garð Vesturlanda. Sovétmenn höfðu einnig áhyggjur, því ágreiningur þeirra við Kínverja var orðinn býsna mikill árið 1964. Auk kjarnorkuveldanna fimm er talið fullvíst að Ísrael hafi yfir kjarnorkuvopnum að ráða, þótt ekki vilji þarlend stjórnvöld við- urkenna það. Sömuleiðis hafa bæði Indland og Pakistan gert til- raunir með kjarnorkusprengjur á síðustu árum. ■ ■ Andlát Ágústa Guðmundsdóttir, Hjallavegi 20, Reykjavík, lést sunnudaginn 12. október. Guðjón Ragnar Helgi Jónsson, Álfa- skeiði 96, Hafnarfirði, lést mánudaginn 13. október. Ragnhildur Helga Magnúsdóttir, Kleppsvegi 62, Reykjavík, lést miðviku- daginn 1. október. Útförin fór fram í kyrrþey. Lára Guðmundsdóttir er látin. Útförin fór fram í kyrrþey. ■ Jarðarfarir 13.30 Óli Valdimarsson, Vífilsgötu 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Ég ætla að láta þennan dag faraframhjá mér en þó vildi ég helst að ég væri ófæddur og ætti öll afmælin í vændum,“ segir Guðbergur Bergsson, sem í dag er sjötíu og eins árs. Hann gerir sér að fullu grein fyrir því að ekki er hægt að bakka og verða ungur aftur en væntir þess þó að þegar hann komist á vissan aldur gangi hann í barn- dóm. Guðbergur minnist horfinna daga og tregablandinna stunda á haustin sem jafnan báru upp í kringum afmælisdaginn. „Þá voru réttir og kindur leiddar til slátr- unar. Það þótti mér mjög leitt, ég sem átti alla framtíðina fyrir mér að horfa á eftir litlu lömbunum í sláturhúsið. Nú er ég kominn á þann aldur að ég á minni framtíð en fortíð. Ævidagarnir leiða mann smá saman til slátrunar,“ segir hann bætir við að maður geti þrátt fyrir það aldrei étið kjötið af sjálf- um sér. „Ég veit samt um mann sem lét skera sig upp og vildi fá það sem skorið var úr honum. Ég held að það hafi verið eitthvað úr maganum,“ fullyrðir Guðbergur og staðhæfir að hann hafi soðið það og smakkað. „Honum þótti það mjög sætt og ég trúi honum vel því ég hef heyrt af mannætum að þannig bragðist kjötið,“ segir hann og neitar því að hann sé að segja ósatt. Að öllu gamni slepptu er Guð- bergur um þessar mundir að und- irbúa sýningu. „Ég er að reyna að skipuleggja sýningu á spænskri og portúgalskri list og menningu sem haldin verður í Gerðarsafni í Kópavogi. Meðal annars vinn ég að því að fá flamenco-dansara frá Spáni og þjóðlagasöngvara frá Portúgal og þetta virðist ætla að ganga,“ segir Guðbergur. Hann segist alls ekki hættur að skrifa en fái það ekki útgefið. „Ég vildi helst vera að halda upp á af- mælið með bók en ég er orðinn þannig að ég sendi ekki handrit nema vera viss um að fá það út- gefið. Það er allt fullt núna og ég geymi því það sem ég skrifa í skúffunni,“ segir Guðbergur og er ekki frá því að markaðslögmálið gildi alls staðar nema í afmælum. bergljot@frettabladid.is Vildi vera ófæddur Exos og Octal eru tónlistarfeðg-ar. Í raun heitir Exos Arnviður Snorrason en Octal er pabbi hans og heitir Snorri Björn Arnarson. Hann er einnig smiður og tók nafnið Octal eftir átthyrningi sem hann smíðaði. „Ég byrjaði að gera raftónlist með því að fylgjast með strákn- um,“ útskýrir Snorri Octal en son- ur hans hóf feril sinn sem plötu- snúður og þá fór Snorri að hlusta á þessa tónlist. Exos segir föður sinn vera mun tilraunakenndari en hann sjálfur í lagasmíðum: „Sem plötusnúður er ég að spila teknó. Það sem er sér- stakt við okkar tónlistargerð er að hann er að gera hljóð en ég er að gera takta,“ segir Exos. „Þegar við blöndum þessu saman kemur svolítið skemmtileg blanda.“ Báðir segja þeir að sameigin- leg plata sé á stefnuskránni, vandamálið sé aðeins að finna tíma til að vinna hana. Exos hefur þó gefið föður sínum pláss á plöt- um sínum til þessa auk þess sem þeir koma stundum fram á tón- leikum. „Þessi maður hefur alltaf skaffað mér mikið af tónlist,“ seg- ir Exos og bendir á föður sinn. „Alls konar tónlist, reggae, afrískri og be-bop.“ „Ég ól þig nú upp sem alætu,“ segir Octal. „Fóðraði þig á hverju sem var.“ Þeir feðgar stofnuðu fyrst hljómsveit þegar Exos var aðeins 12 ára gamall. Sá yngri trommaði undir blúsgítarleik föður síns. Hann kvartaði svo sáran þegar hann missti son sinn í „kjaftinn á elektróníkinni“, eins og hann orðar það. Í dag hefur hann svo stungið sér í rafstraumana sjálfur: „Samband okkar byggist á vin- áttu og gagnkvæmri virðingu,“ segir Snorri og þakkar syni sínum fyrir að hafa kynnst raftónlist- inni. „Ég geri samt þær kröfur á hann að hann virði mína þörf fyr- ir að hlusta á Hallbjörn og finnist í lagi að ég fíli hann líka,“ segir Snorri Octal að lokum og báðir hlæja. biggi@frettabladid.is Afmæli GUÐBERGUR BERGSSON RITHÖFUNDUR ■ Hann er 71 árs í dag og ætlar að láta daginn líða hjá en vildi helst vera ófædd- ur og eiga öll afmælin í vændum. TIM ROBBINS Leikarinn er 45 ára í dag. 16. október ■ Þetta gerðist KÍNVERJAR SKJÓTA UPP FÓLKI Í dag eru liðin 39 ár frá því Kínverjar komust í hóp kjarnorkuvelda. Nú í vikunni náðu Kínverjar svo þeim áfanga að koma mönnuðu gemifari út í geiminn. Einungis Bandaríkjamenn og Rússar hafa gert slíkt hið sama. Kínverjar sprengja stórt ■ Kínverjar komust í hóp kjarnorkuvelda. 16. október 1964 JPV útgáfa hefursent frá sér bók- ina Einhvers konar ég eftir Þráin Ber- telsson. Bókin hef- ur að geyma sjálfsævisögur Þrá- ins um fátækt, geð- veiki, einelti, þung- lyndi – og töframátt lífsins. Æðrulaus upprifjun Þráins Ber- telssonar er fyndin og átakanleg í senn og minnir lesandann á að sorgir minnka um helming þegar þeim er deilt með öðrum – en gleðin tvöfaldast. JPV útgáfa hefursent frá sér nýja bók um Kaftein Of- urbrók eftir Dav Pil- key. Þetta er fjórða bókin sem kemur út um kappann á ís- lensku og heitir Kafteinn Ofurbrók og vandræðin með prófessor Prumpubrók. Bjarni Fr. Karlsson þýddi. GUÐBERGUR BERGSSON Hann minnist horfinna daga þegar hann var drengur og fannst sárt að sjá kindur leiddar til slátrunar á afmælisdaginn. 1793 Marie-Antoinette er hálshöggvin í Frakklandi, níu mánuðum eftir að slíkt hið sama var gert við mann hennar, Lúðvík konung sextánda. 1859 Bandaríkjamaðurinn John Brown gerir ásamt félögum sínum árás á vopnabúr hersins í bænum Harper’s Ferry í Virginíu í þeirri von að koma af stað almennri upp- reisn gegn þrælahaldi. 1934 Gangan langa í Kína hefst þennan dag árið 1934 þegar kommúnist- um tekst að brjótast í gegnum rað- ir þjóðernissinna. 1946 Tíu þýskir nasistaforingjar eru tekn- ir af lífi samkvæmt úrskurði stríðs- glæpadómstólsins í Nürnberg. 1973 Henry Kissinger og Le Duc Tho fá tilkynningu um að þeir hljóti friðar- verðlaun Nóbels. Kissinger tekur við verðlaununum en Le Duc Tho vill þau ekki. Tónlist EXOS OG OCTAL ■ Eru listamannanöfn feðga sem eru báðir á kafi í raftónlist. Arnviður Snorra- son og Snorri Björn Arnarson heita þeir. EXOS OG OCTAL Feðgarnir Arnviður Snorrason og Snorri Björn Arnarson eru báðir djúpt sokknir í raftónlistina. Feðgar í raftónlist FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.