Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Það ætlar allt af göflunum aðganga í Bretlandi þessa dagana vegna þess að foringi íhaldsflokks- ins, hinn litlausi Iain Duncan Smith, réð eiginkonu sína í vinnu hjá bresk- um skattborgurum fyrir þúsund pund á mánuði (136 þús. kr.) og nú spyrja menn hvort vinnuframlag frúarinnar hafi verið nægilegt til að réttlæta þessa meðferð á fjármunum almennings, og hvort réttlætanlegt hafi verið af herra Duncan Smith að ráða frú Duncan Smith í létta inni- vinnu. Rannsóknarnefnd þingsins með Sir Philip Mawer í forsæti hef- ur nú málið til meðferðar, og er Duncan Smith talinn eiga pólitíska framtíð sína undir niðurstöðu nefnd- arinnar. Hann reynir að verjast og hefur skrifað rannsóknarnefndinni 40 síðna varnarræðu til að réttlæta gerðir sínar. Í SVÍÞJÓÐ er fjallað um það í blað- inu Dagens Nyheter að dæmi séu um að þingmenn í sænska þinginu fái greitt aukalega fyrir setu í þing- nefndum þrátt fyrir að þeir mæti ekki á nefndarfundi. Þykir þetta hið versta hneykslismál, annars vegar að þingmenn skuli skammta sér aukaþóknun ofan á þingfararkaupið fyrir að gegna störfum í fastanefnd- um þingsins, og hins vegar að menn skuli geta gengið að þessum bónus- greiðslum vísum jafnvel þótt þeir skrópi af og til á nefndarfundum. NÝVERIÐ birtist einhvers staðar sú fullyrðing að spilling í veröldinni væri næstminnst á Íslandi af öllum löndum heims. Aðeins Finnar væru óspilltari. Það er því von að manni blöskri svínaríið og sukkið og bruðlið með almannafé hjá þessum Duncan Smith í Bretlandi, eða fram- ferði sjálftökuliðsins í sænska þing- inu sem skammtar sér aukagreiðslur að vild fyrir að mæta eða mæta ekki á nefndarfundi í vinnutíma sem þeir fá þegar greiddan með þingfarar- kaupi. ÞAÐ er sorglegt til þess að vita að spilling reykmettaðra bakherbergja skuli grúfa yfir Bretlandi og Svíþjóð, og jafnframt gott til þess að vita að íslensk þjóðarsamviska skuli vera hrein og óspillt eins og fjallaloftið. ■ Hrein samviska Netsalan ehf. Knarrarvogi 4, 104 Reykjavík. Sími 517 0220, Gsm: 693 0225. Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan Missið ekki af einstöku tækifæri! Eigum til á lager Dodge Durango, árg. 03. Mjög lítið keyrður á frábæru verði. 7 manna bíll með öllu. Leður. Eigum einn Dodge Ram 2500 diesel Quad Cab 03, ek. 1.200 km. Mjög gott verð. Leður. Erum byrjaðir að selja lúxus jeppann Cherokee Limited Overlan, árg. 2004. Dodge Durango 03 Dodge Ram 2500 diesel Cherokee Limited 04 Overland Ath. Þessir bílar eru enn í Kanada.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.