Fréttablaðið - 16.10.2003, Blaðsíða 25
25FIMMTUDAGUR 16. október 2003
■ Uppáhaldsborgin
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Barcelona
þann 26. okt. Þú kaupir tvö sæti en greiðir bara fyrir eitt, og tryggir þé
ferðina til þessa vinsæla staðar á
ótrúlegu verði. Að auki getur þú
valið um úrvalsgististaði á frá-
bærum kjörum og að sjálfsögðu
nýtur þú traustrar þjónustu farar-
stjóra Heimsferða allan tímann.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.950
M.v. 2 fyrir 1.
Fargjald kr. 32.600/2 = 16.300.
Skattar, kr. 3.650. Samtals kr. 19.950.
Símbókunargjald kr. 2.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
2 fyrir 1 til
Barcelona
26. október
frá kr. 19.950
Magnús Þór Haf-steinsson alþingis-
maður þarf ekki að
hugsa sig lengi um
þegar hann er spurður
hvað borg í útlöndum
sé honum kærust.
„Það er Bergen í Nor-
egi,“ segir hann
ákveðinn. „Ég bjó í
Bergen í nokkur ár,
stundaði þar nám
og á tvær dætur
búsettar þar.
Þetta er af-
s k a p l e g a
falleg borg.“
M a g n ú s
lætur vel af
Norðmönnum
og segir þá
p r ý ð i s g o t t
fólk. „Norð-
menn eru á
margan hátt
líkir Íslend-
i n g u m ,
n e m a
ef eitthvað er svolítið íhaldssam-
ari og meiri tréhestar. En hinn al-
menni borgari í Noregi er mjög
vinveittur okkur Íslendingum þó
annað megi kannski segja um
stjórnvöld,“ segir Magnús.
Hann segir rigningarorðið
sem fer af Bergen ekki alveg úr
lausu lofti gripið og að mikið
rigni á veturna. „En vorin og
sumrin eru yndisleg. Það er mik-
il náttúrufegurð bæði í borginni
og umhverfis hana. Þetta er tæp-
lega 300.000 manna borg, en
landslagi háttar þannig að hún er
byggð inn á milli fjalla og maður
hefur aldrei á tilfinningunni að
maður búi í stórborg,“ segir
Magnús og bætir við að hann líti
á Noreg sem annað heimaland
sitt. ■
Síðasta golfferðin í ár sem Úr-val-Útsýn skipuleggur verður
farin 5. nóvember til Mojacar á
Spáni. Kjartan Pálsson fararstjóri
segir að ákveðið hafi verið að
bæta við golfferð þegar ljóst varð
að eftirspurnin eftir fleiri ferðum
væri mikil. „Við fórum tvær ferð-
ir í september og þær mæltust vel
fyrir, þetta er nýr staður hjá okk-
ur. Við gistum á hóteli sem heitir
Marine Golf. Það er mjög fínt og
beint fyrir framan hótelið eru
golfvellir.“
Mojacar er í Andalúsíu á Suð-
ur-Spáni og segir Kjartan um að
ræða mikla golfparadís. „Við för-
um á nokkra velli og spilum,“ seg-
ir Kjartan, sem er liðtækur í golf-
inu sjálfur og reyndur fararstjóri.
Hann segist stundum spila með
gestunum – en stundum ekki: „Það
fer eftir því hvort það vantar spil-
ara eða ekki.“
Golfferðir hefjast svo á nýjan
leik í byrjun janúar, en fyrsta
ferðin verður til Tælands 10. jan-
úar, undir leiðsögn Kjartans. ■
VALLE DEL ESTE
Góður golfvöllur í grennd við Mojacar.
Golfferð:
Síðustu
forvöð
MAGNÚS ÞÓR
HAFSTEINSSON
Reynir að fara ekki
sjaldnar en þrisvar á
ári til Bergen.
Bergen yndislegust
Ásgarður á Hvolsvelli
Vegna forfalla eigum við enn laust í hina vinsælu helgartilboðs-
pakka okkar. Þriggja rétta kvöldverður, gisting og morgunmatur
kr. 4.900 pr. mann. Laust 18/10. Einnig hefur losnað í jólahlaðborð
laugarad. 29/11 og 6/12. Jólahlaðborð, gisting og morgunverður
kr. 5.900 pr. mann.
Þeir sem áður hafa hringt, en ekki fengið pláss, vinsamlega hafið
samband aftur. Matreiðslumeistari er Anton Viggósson.
Uppl. og pantanir í síma 895 9516