Fréttablaðið - 14.01.2004, Side 2
2 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
„Mér lýst mjög vel á hann,
seigur strákur“
Þórður Þórðarson hélt Árna Gauti Arasyni á
bekknum þegar báðir léku með ÍA. Árni Gautur er
í þann mund að ganga frá samningum við enska
úrvalsdeildarliðið Manchester City.
Spurningdagsins
Þórður, hvernig lýst þér á gamla
varamanninn?
Björgólfur Thor
orðinn billjóner
Hækkanir Pharmaco að undanförnu hafa aukið eignir Björgólfs Thors
Björgólfssonar verulega. Án þess að tekið sé tillit til skulda eru eignir
hans varlega áætlaðar einn milljarður bandaríkjadala.
VIÐSKIPTI Metin féllu í Kauphöll Ís-
lands í gær. Pharmaco náði því
marki að verða fyrst félaga til að
verða virði tveggja milljarða doll-
ara á tímabili í gær. Pharmaco var
rétt við mörkinn
við lok viðskipta í
gær. Markaðsverð-
mætið var í lok
dags rúmir 138
milljarðar króna.
Hækkanir síðustu
daga hafa lyft
verðmæti KB-
banka yfir 100
milljarða króna. Bankinn er annað
fyrirtæki á eftir Pharmaco til
þess að ná þeim áfanga.
Hækkanir Pharmaco hafa líka
þau áhrif að Björgólfur Thor
Björgólfsson nær því marki að
verða fyrsti Íslendingur til að
verða milljarðamæringur í dollur-
um talið. Hann er því orðinn „bil-
lioner“ í skilningi Ameríkana.
Erfitt er að átta sig á öllum eignum
Björgólfs Thors, þar sem töluverð-
ar eignir hans eru í erlendum eign-
arhaldsfélögum. Eignarhlutur hans
í Pharmaco liggur fyrir og er mið-
að við núverandi verðmæti um 55
milljarðar króna. Hlutur hans í
sölu bjór- og drykkjarverksmiðj-
unnar Bravo í Pétursborg var um
15 milljarðar króna á sínum tíma
og hlutur hans í Landsbankanum
um níu milljarðar. Varlega áætlað
eru eignir hans yfir 70 milljarðar
króna. Miðað við fjárlög þessa árs
gæti hann því rekið íslenska ríkið í
á fjórða mánuð án tekna. Einhverj-
ar skuldir hvíla á þessum eignum,
en ljóst að Björgólfur Thor er lang-
ríkasti Íslendingurinn sem vitað er
um.
Þeir sem eiga einn milljarð
bandaríkjadala eru númer 427 á
lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta
fólk í heimi. Miðað við eins millj-
arðs bandaríkjadala eign er
Björgólfur í góðum félagsskap.
Meðal þeirra sem eiga milljarð doll-
ara er sjónvarpsstjarnan Oprah
Winfrey og William Randolph He-
arst III sem er afkomandi og al-
nafni þess fjölmiðlakóngs sem ríkti
yfir bandarískum fjölmiðlum á síð-
ustu öld. Efstur á lista Forbes er Bill
Gates eigandi Microsoft en eignir
hans eru metnar á 30 milljarða
bandaríkjadala. Hann er því 30
sinnum ríkari en Björgólfur Thor,
en mældur á vog stærðar hagkerfa
Íslands og Bandaríkjanna er
Björgólfur Thor miklu ríkari.
haflidi@frettabladid.is
Keflavíkurflugvöllur:
Rukkað vegna nauðlendinga
FLUGUMFERÐ „Hér er mjög há tíðni
nauðlendingaraðgerða,“ segir Jó-
hann R. Benediktsson, sýslumað-
ur á Keflavíkurflugvelli, um þau
tilvik sem þurft hefur að setja allt
á viðbúnaðarstig á flugvellinum
vegna þess að flugvélar komu inn
til nauðlendingar vegna bilana
eða sprengjuhótana. Gríðarleg
umferð flugvéla er um íslenska
flugstjórnarsvæðið sem skýrir
háa tíðni nauðlendinga.
Jóhann telur líklegt að upp hafi
komið á annan tug tilvika síðan
hann tók við embætti árið 1999.
Hann segir að það fylgi því mikill
kostnaður þegar setja þurfi á við-
búnaðarstig.
„Seinustu tvö árin höfum við
innheimt þann kostnað sem fylgir
því að við köllum út allan tiltækan
mannskap. Kostnaðurinn sem við
innheimtum er á aðra milljón
króna,“ segir Jóhann. ■
SNÆFELLSÖRÆFI
Kærendur telja að umhverfisráðherra hafi
verið vanhæfur í úrskurði um framkvæmdir.
Kárahnjúkavirkjun:
Krefjast
ómerkingar
KÁRAHNJÚKAVIRKJUN Málflutningur
hefst í Hæstarétti í morgunsárið í
máli sem Atli Gíslason, Náttúru-
verndarsamtök Íslands og fleiri
höfða gegn Landsvirkjun og ís-
lenska ríkinu vegna úrskurðar Sivj-
ar Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra um mat á umhverfisáhrifum
Kárahnjúkavirkjunar.
Héraðsdómur sýknaði stefndu í
maí á síðasta ári. Skipulagsstofnun,
sem úrskurðaði í málinu 1. ágúst
2001, féllst ekki á framkvæmdirnar
vegna umtalsverðra óafturkræfra
umhverfisáhrifa, en umhverfis-
ráðherra sneri þeim úrskurði við í
desember sama ár.
Þess er krafist að úrskurður
Sivjar verði ómerktur og felst hluti
af dómkröfunni í því að hún hafi
verið vanhæf í málinu þar sem rík-
isstjórnin var aðili að samningum
Landsvirkjunar og Alcoa. Þetta er í
þriðja skipti sem málið kemur fyrir
Hæstarétt; í fyrsta skiptið var því
vísað frá en í annað skiptið var frá-
vísun Héraðsdóms Reykjavíkur
felld úr gildi. ■
SAEED AL-SAHHAF
Réði sig sem fréttaskýranda á arabískri
sjónvarpsstöð.
Spaugarinn Alí:
Aftur á
skjáinn
DUBAI Saeed al-Sahhaf, fyrrum
upplýsingamálaráðherra Íraks,
betur þekkur sem „spaugsami
Alí“ hefur ráðið sig til starfa hjá
arabísku sjónvarpsstöðinni Abu
Dhabi og mun honum ætlað að sjá
sérstaklega um fréttaskýringar
varðandi Saddam Hussein.
Ekki vantar Alí reynsluna því
hann þurfti oft að koma fram sem
talsmaður Saddams áður en for-
setanum var steypt af stóli og
eignaðist hann þá fjölda aðdáenda
víðs vegar um heiminn fyrir
skáldlega framgöngu sína við að
boða sigur Íraka gegn innrásarlið-
inu.
Alí gaf sig sjálfur fram við
bandaríska herinn í Írak, en var
síðan sleppt. ■
ANNAR BANKARÆNINGINN
Tíu hafa verið handteknir í tengslum við
ránið í SPRON í Hátúni á föstudag.
Vopnað rán í SPRON:
Tíu verið
handteknir
HANDTÖKUR Tveir menn voru hand-
teknir og yfirheyrðir í fyrradag í
tengslum við bankaránið sem
framið var í SPRON í Hátúni á
föstudaginn í síðustu viku. Þeir
gistu fangageymslur lögreglunn-
ar en var sleppt í gær.
Tveir menn grunaðir um ránið,
sem handteknir voru á föstudags-
kvöld, hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til mánudags. Sex
voru handteknir í gleðskap í
heimahúsi snemma á sunnudags-
morgun, þeim var sleppt seinna
um kvöldið eftir yfirheyrslur.
Mennirnir tveir, 18 og 26 ára,
sem sitja í gæsluvarðhaldi neita
sök og þýfið er enn ófundið. ■
Lést af
slysförum
ANDLÁT Maðurinn, sem fannst
meðvitundarlaus á botni Breið-
holtslaugar á
miðvikudaginn 7.
janúar síðastlið-
inn, lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans við
Hringbraut á
þriðjudag. Hann
hét Hallmar Ósk-
arsson, til heimil-
is að Engjaseli 61
í Reykjavík. Hallmar var fæddur
árið 1979.
Hallmar komst aldrei til með-
vitundar eftir að slysið varð en
honum var haldið sofandi í önd-
unarvél. ■
Leitað að ökumanni:
Olli hörðum
árekstri
LÖGREGLAN Lögreglan leitar öku-
manns sem varð valdur að hörð-
um árekstri á Suðurlandsvegi,
rétt fyrir ofan Litlu kaffistofuna,
um klukkan hálf átta á mánudags-
kvöld.
Bíllinn var á leið austur þegar
hann tók fram úr bílarunu, bíll
kom á móti og tókst honum að
smeygja sér aftur inn í rununa.
Ökumaður bílsins sem kom á móti
honum á vesturleið missti hins
vegar stjórn á ökutæki sínu og
lenti framan á jeppa sem kom úr
gagnstæðri átt. Þrír voru fluttir á
slysadeild.
Lögreglan á Selfossi óskar
eftir upplýsingum um þann sem
tók fram úr. ■
VINNUSLYS Vörubílshurð fauk á
höfuð starfsmanns Flytjanda í
Klettagörðum um miðjan dag í
gær. Maðurinn var fluttur á
slysadeild.
BÍLVELTA VIÐ LITLU KAFFISTOF-
UNA Jeppi valt á Suðurlandsvegi,
rétt fyrir neðan Litlu kaffistofuna,
í gær. Ökumaðurinn, sem var einn í
bílnum, slasaðist lítið en bíllinn er
nokkuð skemmdur. Hálka var á
veginum og nokkuð hvasst þegar
umferðaróhappið varð.
TÓLF KÆRÐIR Lögreglan á
Selfossi hafði afskipti af tólf öku-
mönnum frá morgni í gær til
klukkan fjögur síðdegis. Öku-
mennirnir voru kærðir fyrir að
hafa ekki fært bílana sína til
skoðunar á tilsettum tíma.
■ Lögreglufréttir
LEIFSSTÖÐ
Talsvert er um að farþegavélar á leið um íslenska flugstjórnarsvæðið komi inn til
nauðlendingar.
BILLJÓNER
Björgólfur Thor Björgólfsson hefur náð ótrúlegum árangri með fjárfestingum sínum á
fáum árum. Hann er þrátt fyrir ungan aldur ríkasti Íslendingurinn og stefnir hraðbyri í hóp
ríkasta fólks í heimi.
■
Þeir sem eiga
einn milljarð
bandaríkjadala
eru númer 427
á lista tímarits-
ins Forbes yfir
ríkasta fólk í
heimi.
Leikfélag Reykjavíkur:
Borgarráð féllst ekki
á aukafjárveitingu
BORGARRÁÐ Sjálfstæðismenn fluttu
tillögu á fundi borgarráðs um að
Leikfélagi Reykjavíkur yrði veitt
33 milljóna króna aukafjárveiting
vegna yfirstandandi leikárs, með-
al annars til þess að hægt yrði að
standa undir starfslokasamning-
um við eldri leikara og aðra
starfsmenn. Ekki var fallist á til-
löguna á fundinum, en sjálfstæð-
ismenn bentu á mjög erfiða stöðu
leikfélagsins.
„Leikfélagið rétt skrimtir,
þrátt fyrir hagræðingu og við telj-
um að til að hægt verði að reka
það með sómasamlegum hætti þá
verði að koma til aukafjárveit-
ing,“ segir Vilhjálmur Vilhjálms-
son, oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn. Þórólfur Árnason
borgarstjóri hefur að undanförnu
átt fundi með forsvarsmönnum
leikfélagsins um þessi mál.
„Hljóðið í mönnum er nokkuð
gott. Reksturinn hefur batnað og
niðurstöður aðhaldsaðgerða síð-
asta árs eru að skila sér. Það er
samráðsnefnd að störfum sem fer
reglulega yfir þessi mál og það er
ljóst að rekstur leikfélagsins er í
mikilli framför. Við töldum ekki
ástæðu til að afgreiða málið þar
sem það verður skoðað í víðara
samhengi,“ segir Þórólfur. ■
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
Sjálfstæðismenn í borgarráði vildu veita
Leikfélagi Reykjavíkur 33 milljóna króna
aukafjárveitingu til að tryggja betri rekstur
þess.
HALLMAR
ÓSKARSON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI