Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 14. janúar 2004 ENN MEIRI VER‹LÆKKUN SMÁRALIND Vítaspyrnur á Old Trafford: Síðast fyrir ellefu árum FÓTBOLTI Manchester United hefur ekki fengið á sig mark úr víta- spyrnu í deildarleik á Old Traf- ford í rúman áratug. Ruel Fox, þá leikmaður Norwich, skoraði hjá Peter Schmeichel í 2-2 jafntefli 4. desember 1993. Gestalið fékk síðast vítaspyrnu á Old Trafford 19. apríl í fyrra. Markvörðurinn Ricardo braut á Andy Cole, sóknarmanni Black- burn, og Andy D'Urso dæmdi víta- spyrnu. Ricardo varði hins vegar spyrnu David Dunn og United vann 3-1. Leicester fékk vítaspyrnu í 2-0 tapleik 17. nóvember 2001. Frakk- inn Laurent Blanc braut á Trevor Benjamin og Andy D'Urso dæmdi vítaspyrnu. Muzzy Izzet skoraði en þar sem Fabien Barthez var ekki kominn á sinn stað í markinu og þurfti Izzet skjóta aftur. Barthez varði seinni tilraun Izzet. Í leik United og Middlesbrough á Old Trafford 29. janúar 2000 braut Jaap Stam á Juninho í víta- teignum og Andy D'Urso - enn og aftur - dæmdi vítaspyrnu. Mark Bosnich varði spyrnu Juninho og United vann 1-0 með marki David Beckham. ■ AF HVERJU DÆMDIR ÞÚ EKKI VÍTI? Alan Shearer deilir við dómarann Paul Durkin á Old Trafford á sunnudag. Durkin viður- kenndi eftir leikinn að Shearer hefði átt að fá vítaspyrnu. Enska landsliðið: Fyrsti leikur í Austurríki FÓTBOLTI Englendingar hefja baráttu sína fyrir sæti í lokakepni HM 2006 hefst með leik gegn Austurríkis- mönnum í Vínarborg. Fjórum dög- um síðar leika Englendingar við Pólverja á útivelli en fyrsti heima- leikurinn verður gegn Wales 9. októ- ber. Walesmenn hefja keppni með leik gegn Aserum í Bakú 4. septem- ber. Fyrsti leikur Norður Íra verður gegn Pólverjum á heimavelli 4. september. Riðlakeppninni lýkur 12. október en þá leika Englendingar heima gegn Pólverjum, Walesmenn og Aserar leika í Cardiff og Austurrík- ismenn og Norður Írar í Vín. ■ Foreldrar Verjum tíma með börnunum okkar Hver stund er dýrmæt Heiðar meiddur Heiðar Helguson missir af bikarleiknum gegn Chelsea í kvöld FÓTBOLTI Íslendingarfélögin Chel- sea og Watford leika í kvöld á Stamford Bridge í 3. umferð ensku bikarkeppninnar. Félögin gerðu jafntefli á heimavelli Watford fyrir tíu dögum og skor- uðu bæði Heiðar Helguson og Eið- ur Smári Guðjohnsen í leiknum. Heiðar leikur ekki með Watford í kvöld en hann tognaði í læri á föstudag og missti af leik Watford gegn Coventry á laugardag. Eiður Smári Guðjohnsen hefur leikið síðustu fimm leiki Chelsea og hefur þrisvar verið í byrjunarliði. Eiður Smári var í byrjunarliðinu þegar Chelsea rúllaði yfir Leicester á sunnudag og var ánægður með að fá að leika við hlið Jimmy Floyd Hasselbaink að nýju. „Allir vita að okkur líkar að leika saman,“ er haft eftir Eiði á vefnum TeamTalk. „Við höfðum virkilega gaman af því. Við náum mjög vel saman og náðum nokkrum sinnum skemmtilegu þrí- hyrningaspili í leiknum.“ Leicester leikur á heimavelli gegn Manchester City í kvöld og í húfi er heimaleikur við Tottenham í 4. umferðinni. Leicester verður án Muzzy Izzet og Riccardo Scimeca en endurheimtir hins vegar Matt Elliott og Frank Sinclair. Daninn Kevin Ellegaard leikur í marki Manchester City þar sem City gafst ekki tími til að fá annan markvörð í tæka tíð. Þriðji leikur kvöldsins er viður- eign Scarborough og Southend en sigurvegarinn í leiknum leikur á heimavelli gegn félaginu sem sigrar í leik Chelsea og Watford í kvöld. ■ CHELSEA Eiður Smári Guðjohnsen í baráttu við Callum Davidson hjá Leicester á sunnudag. Eiður var ánægður með að leika að nýju við hlið Jimmy Floyd Hasselbaink.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.