Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 10
10 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR RIDDARALIÐSÆFING Riddaralið indverska hersins æfir stíft þessa dagana fyrir hátíðahöld Lýðveldis- dagsins en 26. janúar halda Indverjar daginn hátíðlegan í 54. skipti. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna: Stöðvuðu fisksendingar fyrir mistök VIÐSKIPTI Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna stöðvaði í lok síðasta árs, þrjár sendingar frá íslensku fyrirtæki sem árlega flytur út tals- vert magn af fiskafurðum til Bandaríkjanna. Innihald gámanna var skoðað en komst að lokum til kaupendanna eftir talsverðar tafir. Fyrir aðstoð aðalræðisskrifstofunn- ar í New York hefur þetta nú verið leiðrétt. Í Stiklum, vefriti viðskiptaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins segir að þegar framkvæmdastjóri fyrir- tækisins hafi grennslast fyrir um ástæðu eftirlitsins, hafi komið í ljós að fyrirtækið hafði lent á lista stofn- unarinnar yfir framleiðendur vöru sem við eftirlit hefði reynst salmón- ellumenguð. Haft er eftir fram- kvæmdastjóra útflutningsfyrirtæk- isins að uppákoman hafi komið nokkuð óvart. Mikilvægt hafi verið að leiðrétta þennan misskilning fljótt og vel, til að koma í veg fyrir frekari skaða. Leiðrétting hafi þó ekki fengist fyrr en starfsmenn að- alræðisskrifstofunnar í New York höfðu samband við matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna. ■ Morðið ekki talið vera nein tilviljun „Ég er Tom Cruise,“ var það fyrsta sem Mijailo Mijailovic sagði við yfir- heyrslur en réttarhöld yfir honum hefjast í Stokkhólmi í dag. Lögreglan leggur ekki trúnað á að Mijailovic hafi ráðist á Önnu Lindh fyrir tilviljun. SVÍÞJÓÐ Réttarahöldin yfir Mijailo Mijailovic, sem játað hefur árás- ina á Önnu Lindh, fyrrum utanrík- isráðherra Svíþjóðar, hefjast í Stokkhólmi í dag. Þar með er þungu fargi létt af sænsku þjóð- inni og ekki síst lögregluyfirvöld- um sem rannsakað hafa málið í skugga óleystrar morðgátu vegna morðsins á Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar. Í upphafi var talið að um póli- tískan glæp væri að ræða, sem ætti rætur að rekja til umdeildrar þjóðaratkvæðagreiðslu um upp- töku evrunnar í Svíþjóð, en síðan hurfu þær getgátur af yfirborðinu eftir að Mijailovic var handtek- inn. Í staðinn var leitað svara við þeirri spurningu af hverju hann fékk að ganga laus vegna alvar- legra geðrænna vandamála. Í ákæruskjölum, sem lögð voru fram á mánudaginn, kemur fram að Mijailovic hafi verið á sterkum geðlyfjum og sjálfur segist hann hafa verið langt niðri dagana fyrir árásina. Hann segist hafa gert ár- angurlausa tilraun til þess að leita sér hjálpar í geðathvarfi í Stokk- hólmi í byrjun september en ekki fengið að hitta geðlækni og verið vísað frá. Það hafi orðið til þess að hann fylltist depurð og vonleysi sem leiddi til svefnleysis í þrjá til fjóra sólarhringa fyrir árásina. Við yfirheyrslur hefur Mijailovic gert mikið úr geðtrufl- unum sínum og stöðugt gagnrýnt sænskt heilbrigðiskerfi fyrir að sinna ekki geðsjúkum. „Ég er Tom Cruise,“ var það fyrsta sem hann sagði við yfirheyrslur og þegar honum var tjáð að hann hefði rétt til þess að velja sér verjanda, svaraði hann: „Tom Cruise mun verja bróður minn“. Hann segir að það hafi verið hrein tilviljun að hann réðist á Lindh og að innri rödd hafi skipað sér það. Lögreglan leggur lítinn trúnað á þessa sögu og segir að Mijailovic hafi elt Lindh um versl- unarmiðstöðina í að minnsta kosti 14 mínútur áður en hann réðist á hana. Þá fullyrðir afgreiðslukona í vöruhúsinu að hún hafi heyrt Mijailovic segja við Lindh: „Þú hefur fengið það sem þú áttir skil- ið“. Þá bætir það ekki málstað Mijailovics að hann var klæddur skotheldu vesti þegar hann réðist á Lindh og hafði sótt kosninga- fund leiðtoga Þjóðarflokksins daginn fyrir árásina. ■ STJÓRNMÁL „Skipulagið á mínum nýja vinnustað er afar sérkenni- legt og alls ekki í takt við ís- lenskt samfélag. Fyrirtæki inn- an einkageirans gengju ekki til lengdar ef starfshefðir og skipu- lag Alþingis yrði tekið til fyrir- myndar,“ segir Katrín Júlíus- dóttir, þingmaður Samfylkingar- innar, sem er þeirrar skoðunar að jólaleyfi og sumarfrí þing- manna séu alltof löng. Hún telur vinnubrögðin líða fyrir skipulag stofnunarinnar og segir fyrirkomulagið til að mynda vera mjög óheppilegt fyrir fjöl- skyldufólk, aldrei sé hægt að slá því föstu hversu langur vinnu- dagurinn verði og skorpurnar séu oft langar og strangar. „Mér fyndist eðlilegra að þing- ið starfaði yfir lengri tíma ársins og tel að það yrði í betri takti við atvinnulífið.“ ■ Jón Ólafsson gegn forsætisráðherra: Meiðyrðamálið fyrir dómstóla DÓMSMÁL Stefna, Jóns Ólafssonar kaupsýslumanns á hendur Davíð Oddssyni forsætisráðherra, vegna ummæla sem hann hefur látið falla í fjöl- miðlum um sölu Jóns á eignum sínum á Íslandi, var þingfest í H é r a ð s d ó m i Reykjavíkur í gær. Fyrir Davíðs hönd mætti Ei- ríkur Elís Þor- láksson héraðs- dómslögmaður. Hann bað um átta vikna frest til að skila greinar- gerð og var því ekki mótmælt. Lögmaður Jóns er Sigríður Rut Júlíusdóttir. Í stefnunni krefst Jón þess að ummæli for- sætisráðherra í Ríkisútvarpinu 21. nóvember og Morgunblað- inu daginn eftir, verði dæmd dauð og ómerk. Í báðum tilfell- um ræddi for- sætisráðherra um meint skatt- svik Jóns og rannsókn yfir- valda á þeim og aðkomu Kaup- þings - Búnaðarbanka á sölu eigna hans. ■ JÓN ÓLAFSSON Krefst að Davíð verði dæmdur til greiðslu sektar. DAVÍÐ ODDSSON Lögmaður hans fékk átta vikna frest til að skila greinargerð. HAROLD SHIPMAN Shipman játaði aldrei á sig morðin. „Doktor dauði“ allur: Hengdi sig í klefanum BRETLAND Breski læknirinn, Harold Shipman, sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi árið 2000 fyrir að myrði fimmtán sjúklinga sína, fannst hengdur í fangaklefa sínum í Wakefield-fangelsinu í gærmorgun. Shipman var fundinn sekur um morðin þegar hann starfaði sem læknir í Hyde á Stór-Manchester- svæðinu og mun hann hafa sprautað sjúklingana með ban- vænum skammti af heróíni. Seinna kom í ljós, eftir áfram- haldandi rannsókn, að hann hefði líklega myrt allt að 260 manns á rúmlega 23 ára starfsferli í Hyde og Todmorden í Vestur-Yorkshire á árunum 1975–1998. ■ AFHENDIR SKIPUNARBRÉF Ómar R. Valdimarsson hefur tek- ið við hlutverki ræðismanns El Salvador á Íslandi og afhent stjórnvöldum skipunarbréf sitt. Ómar er framkvæmdastjóri Ís- lenskra almannatengsla og er ræðisskrifstofan til húsa í hús- næði fyrirtækisins að Laugavegi 66 í Reykjavík. STÖÐVAÐ Í BANDARÍKJUNUM Skömmu fyrir áramót stöðvaði matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna þrjár sendingar frá íslenskum fiskútflytjanda. Útflytjandinnn lenti fyrir mistök á lista stofnunarinnar yfir fyrirtæki sem framleiddu salmonellumengaðar vörur. ■ Ræðismaður Innri friður á nýrri öld Nýtt Biblíunámskeið Nýtt og athyglisvert námskeið um líf og boðskap Jesú Krists verður haldið í safnaðarheimili Boðunarkirkjunnar að Hlíðasmára 9, Kópavogi. Það verður á miðvikudögum kl. 20:00 og byrjar 21. janúar. Leiðbeinandi verður Dr. Steinþór Þórðarson sem mörgum er kunnur af fyrri námskeiðum um efni Biblíunnar. Innritun stendur yfir í síma 564-6268 og 861-5371. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. Hjartasjúklingar: Vilja fá endurgreitt HEILBRIGÐISMÁL Landssamtök hjartasjúklinga telja að Trygginga- stofnun ríkisins geti ekki vikist undan skyldum og ábyrgð þegar kemur að endurgreiðslum vegna sérfræðiþjónustu til sjúklinga, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá stjórn samtakanna. Stjórnin telur fordæmi fyrir því að Tryggingastofnun ríkisins greiði hluta kostnaðar þrátt fyrir að samningar hafi ekki verið í gildi. Þannig hafi Tryggingastofnun tekið þátt í kostnaði sjúklinga við heim- sóknir til sjúkraþjálfara. ■ Skipulag Alþingis: Úr takt við samfélagið Nýr björgunarbúnaður: Hugmyndin mjög góð ÖRYGGISMÁL Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri segir að gögn um prófanir á nýstárlegum björgunar- búnaði, sem Þorbjörn Friðriksson uppfinningamaður hefur unnið að, hafi borist fyrir helgi. Búnaður Þorbjörns er sagður henta einkar vel fyrir smærri báta og segir Hermann að vonir séu bundnar við að hægt sé að breyta reglugerðum ef niðurstöður tilraun- a verði góðar. „Hugmyndin er mjög góð og ég held að það megi segja að ef niðurstöður þessara tilrauna verða góðar þá sé fullur vilji hjá okkur og hagsmunaaðilum að gera tillögu um að þetta verði notað fyrir minni bátana,“ segir Hermann. ■ MIJAILO MIJAILOVIC Mijailovic var í skotheldu vesti þegar hann réðist á Lindh. VALT NIÐUR BRATTA HLÍÐ Öku- maður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og rann 36 metra niður hlíð á Norðfjarðar- vegi til móts við Grænafell í Reyðarfirði. Tvær konur og ungt barn voru í bílnum en þau sakaði ekki. Bíllinn er mikið skemmdur. ■ Lögreglufréttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.