Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 14.01.2004, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 14 janúar 2004 Nýtt fyrir skapandi börn! Nú býður Keramik fyrir alla vetrar- námskeið fyrir skapandi börn. Sex vikna námskeið þar sem farið er í skapandi þætti myndmenntar og málaðir keramikmunir. Á annað hundrað barna hafa tekið þátt í sumarnámskeiðum hjá Keramik fyrir alla, nú býðst skemmtileg og fræðandi viðbót. Námskeið hefjast 7. febrúar, vikulegir tímar í sex vikur. Laugardagar kl. 11-13: Níu til tólf ára börn. Mánudagar kl. 18-20: þrettán til fimmtán ára. Aðeins kr. 8500 fyrir námskeiðið, allt innifalið! Keramik fyrir alla er á Laugavegi 48b, sími 552 2882, meira á www.keramik.is eða í netpósti: keramik@keramik.is Hjá Mími–Símennt er nú í fjórðaskipti boðið upp á námskeið um menningarheim araba. Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður kennir á námskeiðunum, þar sem meðal annars er farið yfir helstu þætti íslam, rætt um stöðu kvenna og fjöl- skyldunnar almennt og sögu þessa svæðis og þróun samfélaganna. „Mér finnst afskaplega jákvætt hvað námskeiðin hafa verið vel sótt og hve fólk er forvitið,“ segir Jó- hanna, „Þótt námskeiðið sé í fyrir- lestraformi þá legg ég mikið upp úr því að vera ekki svo föst í form- inu að fólk geti ekki spurt jafnóð- um. Í framhaldi af spurningum skapast iðulega mjög líflegar um- ræður. Fólk er ótrúlega fróðleiks- fúst og opið,“ sem segist ekki finn- a fyrir að fólk sé hrætt við að tjá sig. „Það hefur tekist að skapa mjög fjörlegt andrúmsloft og fólk er ótrúlega oft tilbúið að endur- skoða það sem það hefur kannski talið sig vita áður.“ Skólinn býður upp á arabískan mat í fjórða tímanum, sem Jóhanna segir að hafi mælst sérlega vel fyr- ir. „Og í tímanum þegar talað er um stöðu kvenna kem ég með ýmsar gerðir af slæðum og útskýri merk- ingu þeirra því slæða er ekki bara slæða, þær þýða allt mögulegt. Þá hef ég núna bætt við einum tíma þar sem við ræðum stríðið í Írak og þetta gerum við allt á aðgengilegum og vel skiljanleg- um nótum.“ Námskeið- ið hefst fimmtudag- inn 22. jan- úar. ■ JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR Leggur áherslu á að fólk tjái sig og spyrji á námskeiðinu. Í SKÓLA Á ráðstefnu sem haldin verður 30. janúar verður fjallað um aðgerðir til að draga út álagi og koma í veg fyrir kulnun starfsmanna í grunnskólum. Ráðstefna Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur: Álag og kulnun í starfi Fræðslumiðstöð Reykjavíkurgengst fyrir ráðstefnu um að- gerðir til að draga úr álagi og koma í veg fyrir kulnun starfs- manna í grunnskólum. Ráðstefn- an er haldin í samvinnu við trún- aðarlækni Reykjavíkurborgar, Skólastjórafélag Reykjavíkur, Kennarafélag Reykjavíkur og Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar. Ráðstefnan verður haldin á Nordica Hótel föstudaginn 30. janúar, kl. 13–17. Á ráðstefnunni verða erindi og pallborðsumræður. Meðal fyrir- lesara eru Kristinn Tómasson, yf- irlæknir Vinnueftirlitsins, Anna Þóra Baldursdóttir, lektor við Há- skólann á Akureyri, dr. Daníel Þór Ólason, aðjunkt við Háskóla Ís- lands, og dr. Valerie Sutherland, ráðgjafi hjá Sutherland Bradley Associates í Bretlandi, sem flytur erindið „Managing Pressure and Burnout in School Work Environ- ment: A Practical Approach“. Ráðstefnan er ætluð starfs- fólki og stjórnendum grunnskóla Reykjavíkur og öðrum sem áhuga hafa. Ráðstefnugjald er 3000 kr. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á vef Fræðslumiðstöðvar Reykja- víkur: www.grunnskolar.is ■ Menningarheimur araba hjá Mími Símennt Fjörlegt og aðgengilegt námskeið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.