Fréttablaðið - 14.01.2004, Síða 4
4 14. janúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
Ertu búin/n að lesa margar af
bókunum sem komu út fyrir jólin?
Spurning dagsins í dag:
Á Reykjavíkurborg að veita Leikfélagi
Reykjavíkur aukafjárveitingu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
26,1%
26,8%
Tvær til fimm
3,6%Fleiri
Eina
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Illviðrið
Björgunarsveitarmenn notuðu rústabjörgunarbúnað
Hrossaflutningabíll valt við Blönduós
VEÐUR Hrossaflutningabíll með
tuttugu hrossum valt á hliðina
við Sauðanes ofan við Blönduós
um eittleytið í gær. Björgunar-
sveitarmenn fóru á vettvang með
rústabjörgunarbúnað sinn og
náðu með honum að stækka gat
sem var á flutningabílnum.
Þannig gátu þeir náð hrossunum
út heilum á húfi.
„Hrossin voru lítið sem ekkert
slösuð,“ segir Kristján Þor-
björnsson, lögreglumaður á
Blönduósi, sem fór á vettvang.
Hann segir að aðkoman hafi ver-
ið ótrúlega góða.
Eftir að búið var að ná hross-
unum út úr bílnum voru þau
teymd á bæinn Sauðanes þar sem
þau voru vistuð í góðu yfirlæti.
Hörður Hermannsson bílstjóri
var að flytja hrossin þegar bíll
hans valt. „Ég var kyrrstæður
þegar þetta gerðist uppi á smá
hæð. Það kom á mig hviða og ég
stoppaði því bílinn. Það hefur
verið svo hált undir að bíllinn
hefur runnið til og við það valt
hann,“ segir Hörður. ■
Illviðri af verstu gerð
Versta veður sem skollið hefur á landinu síðustu árin gekk yfir norðanvert landið í gær.
Víða var illfært, skólahald féll niður og björgunarsveitir þurftu að hjálpa fólki á milli staða.
VEÐUR „Það eru fjögur, fimm ár
síðan við fengum svona veður,'',
segir Sigurður Þ. Ragnarsson veð-
urfræðingur um óveðrið sem
gekk yfir norðan-
vert landið í gær.
Hann segir veðrið
eins og verst ger-
ist hérlendis.
„Versta veðrið í
gær má segja að
hafi verið á Vest-
urlandi og Norður-
landi vestra og
það sem gerir
þetta svona erfitt
er mikil ofankoma
samfara þessu, mjög byljótt veð-
ur af verstu gerð.''
Björgunarsveitarmenn í
Blöndu á Blönduósi höfðu í nógu
að snúast. Þeir ferjuðu skólabörn
úr grunnskólanum og leikskóla-
börn heim til sín og þurftu að losa
hross úr hrossaflutningabíl sem
fauk á hliðina. „Veðrið var alveg
snælduvitlaust. Það sá ekki úr
augum,“ segir Zophonías Lárus-
son, formaður Blöndu. „Framan
af degi var fært fyrir fólksbíla en
þegar leið á daginn var hætt að
moka og allt kolófært. Það voru
skaflar út um allt.“
Á Ísafirði var mjög þungfært
og fór veður versnandi eftir því
sem leið á daginn. Þorbjörn Jó-
hannesson bæjarverkstjóri segir
að þar hafi verið „illa fært fyrir
minni fólksbíla og helst að strætó-
leiðir væru færar. Skólahaldi var
aflýst á Ísafirði eftir hádegi í gær,
eins og víðar á Vestfjörðum og
Norðurlandi.
Snjóruðningstæki höfðu vart
undan á Akureyri þar sem snjó
hefur kyngt niður síðan um helg-
ina. Þar er því orðið mjög þung-
fært. Björgunarsveitin Súlur og
lögreglan aðstoðuðu bílstjóra að
komast leiðar sinnar og þurfti
helst að hjálpa fólki í íbúðarhverf-
um. Helstu götur bæjarins voru
hins vegar orðnar greiðfærar í
gærmorgun. Veðrið var að mestu
gengið niður á Akureyri upp úr
hádegi.
„Það hvessir eitthvað á Suð-
Austurlandi í dag en dregur úr öll-
um öfgum í veðrinu þegar líður á
daginn,“ segir Sigurður veður-
fræðingur. „Á Kjalarnesi fór vind-
hraði í hviðum mest upp í 52
metra á sekúndu um níuleytið í
gærmorgun, það eru um það bil
187 kílómetrar á klukkustund og
við slíkar aðstæður þarf ekki að
hafa mörg orð um hvað getur
gerst þegar veðurhæðin er orðin
slík.''
eb@frettabladid.is
Bræla á miðum:
Lítið um
skip á sjó
VEÐUR Fá skip voru að veiðum í
gær. Langflest skipin héldu til
hafnar eða færðu sig í var þegar
brælu var spáð.
Út af Norðurlandi var stórsjór
og nánast engin skip á sjó. Eitt-
hvað var af stærri skipum úti fyr-
ir Austurlandi, Suðurlandi og
Vesturlandi en smærri skip og
bátar voru öll í landi.
Í gærmorgun var Mánafoss
fyrir utan Melrakkasléttu á leið
frá Húsavík til Neskaupstaðar.
Mikill stórsjór var og gekk ferðin
því hægt. Mánafoss fór frá Húsa-
vík um níuleytið á mánudags-
kvöld og áttu þeir ekki von á að
vera komnir til Neskaupstaðar
fyrr en seint í gærkvöldi. ■
Landlæknisembættið:
Upplýsingavefur um þunglyndi
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb-
ættið hefur opnað vef um verk-
efnið „Þjóð gegn þunglyndi“.
Honum er fyrst og fremst ætlað
að auka þekkingu á þunglyndi í
samfélaginu með það að mark-
miði að draga úr tíðni þess, gera
meðferð skilvirkari og fækka
sjálfsvígum, að því er segir í
frétt frá embættinu.
Vefurinn á annars vegar að
koma til móts við almenning
með fræðslu um þunglyndi og
m e ð f e r ð a r -
möguleika og
hins vegar að
vera upplýs-
inganáma fyrir
lykilhópa sem
koma að aðstoð
við þunglynda.
Á vefnum er
meðal annars
ítarlegur kafli
með fræðslu
fyrir sjúka og
aðstandendur þeirra. Þar eru til
dæmis sjálfspróf til að hjálpa
fólki að átta sig á hvort það er
haldið þunglyndi og bent á þá
fjölmörgu aðila sem veita hjálp
og stuðning. Þá er sérstakur
kafli um sjálfsvíg og annar sem
einkum er ætlaður fagfólki.
Veffangið er www.thunglyn-
di.landlaeknir.is, en einnig er
hægt að komast inn á vefinn af
heimasíðu Landlæknisembættis-
ins, www. landlaeknir.is. ■
LANDLÆKNIR
Hefur opnað vef um
verkefnið „Þjóð
gegn þunglyndi“.
EKKERT FLOGIÐ Aflýsa varð öllu
flugi í gær vegna vonskuveðurs á
norðanverðu landinu. 800 manns
áttu pantað far á flugleiðum inn-
anlands en urðu að láta sér lynda
að bíða eftir því að komast á
leiðarenda.
ÓFÆRAR HEIÐAR Öxnadalsheiði,
Holtavörðuheiði og Brattabrekk-
an voru allar ófærar í gær. Eins
var ófært í Víkurskarði og á
Siglufjarðarvegi auk þess sem
ófært var víðast á Vestfjörðum.
BLÖNDUÓS
Illviðri var á Blönduósi í gær.
Úrkoman var það mikil að hætt
var að moka seinnipartinn.
KJALARNES
Á Kjalarnesi fór vindhraði í hviðum mest upp í 52 metra á sekúndu.
„Veðrið
var alveg
snælduvit-
laust. Það
sá ekki úr
augum.
AKUREYRI
Veður var slæmt á Akureyri og
færð sums staðar með versta
móti. Veðrið gekk þó niður
þegar leið á daginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Enga 43,5%
Heilbrigðisráðherra:
Skipar nýja
stjórnarnefnd
LANDSPÍTALI Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
hefur skipað nýja stjórnarnefnd
Landspítalans-háskólasjúkrahúss
til fjögurra ára. Fyrir stjórnar-
nefndinni liggur að fjalla um fjár-
hag Landspítalans og þær aðgerð-
ir sem þarf að grípa til svo endar
nái saman.
Ráðherra skipaði Pálma Ragn-
ar Pálmason verkfræðing, for-
mann nefndarinnar án tilnefning-
ar og er Birna Svavarsdóttir
hjúkrunarforstjóri varamaður
hans. Aðalmenn eru fjórir sam-
kvæmt tilnefningu Alþingis og
tveir voru tilnefndir af starfs-
mannaráði Landspítalans. ■