Tíminn - 05.08.1971, Blaðsíða 2
2-
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 5. ágúst 1971
Hornstrandir vinsælar
hjá ferðaiöngum
/
SJ—Reykjavík, þriðjudag.
Hornstrandir hafa verið vin-
sæll staðuj meðal ferðamanna
í sumar. Við vitum um nokkra
fámenna hópa einstaklinga, sem
farið hafa þangað og ferðazt
um gangandi og á bátum. Ferða
félag íslands hefur einnig þeg'-
ar efnt til tveggja ferða á
Hornstrandir í sumar og sú
þriðja, sem stendur í 11 daga,
verður farin nú í ágúst. Far-
arstjóri verður Jón ísdal oí? í
tengglum við þessa ferð gefst
fólki einnig kostur á að skjót
ast í styttri ferð (4 daga) norð
ur í Furufjörð með bíl og síð-
an bát og til baka aftur.
Fyrir rúmum hálfum mánuði
var mikið fjölmenni í Aðalvik
á Hornströndum. Þar var ætt-
armót háö, og tóku þátt í því
um 120 manns. Mikill hluti
þessa fólks var afkomendur
konu í Keflavík, og voru þeir
þó engan veginn allir þarna
saman komnir, því hún á eitt-
hvað á þriðja hundrað niðja á
lífi.
Þá ætlaði Hjálmar Bárðar-
son siglingamálastjóri, að leggja
upp í ferðalag um Jökulfirði
og Hornstrandir nú upp úr mán
aðamótunum ásamt einum eða
tveimur mönnum öðrum. Þeir
eru allir áhugaljósmyndarar
og bera með sér ljósmyndaút-
búnað, auk matar og viðlegu-
búnaðar.
í viðtali við Tímann fyrir
skömmu sagðist Hjálmar vera
að fara þetta til að fá sér
ferkst loft. Hann hefði dálæti
á þessum landshluta, en hefði
ekki komið þangað síðan 1939
og hlakkaði til að endurnýja
þau kynni.
Laxinn hríðfellur í Varmá
ÞS—Hveragerði, miðvikudag. I
í dag tóku menn eftir því, að
laxinn hrundi niður í Varmá og I
Á Hótel Loftleiðum sitja um sjö-
tíu fulltrúar, sem komnir eru hingað
á vegum félaga Sameinuðu þjóðanna
á Norðurlöndum til að rökræða um
mengun og áhrif hennar, og hvaða
ráð séu tiitæk til að draga úr henni.
Þessi sjötíu manna hópur hefur
dvalið hér við rökræður sínar og
erindaflutning síðan á sunnudag.
Ráðstefnan er ein í hópi þeirra, sem
áhugamenn um aukinn ferðamanna-
straum til landsins líta svo hýru
auga. Satt er það að þarna er um
sjötíu manns að ræða, en ráðstefnu-
haldið sjálft hefur þótt heidur fá-
tæklegt hjá þeim, sem' um það áttu
að sjá. Íslenzki aðilinn er félag S.þ.
á íslandi. Formaður þess setti ráð-
stefnuna, en síðan mun hann hafa
orðið að fara úr landi vegna starfa
síns. Ekki tókst betur til en svo,
að framkvæmdastjóri íslenzka fé-
lagsins er nú rúmliggjandi, og mun
ekki hafa haft nein teljandi afskipti
af ráðstefnunni, þar sem hann mun
hafa álitfð að formaðurinn hefði
tekið málið að sér.
Ræðumenn, sem af Islendinga
hálfu áttu að flytja erindi á ráðstefn-
unni, heltust úr lestiinni á síðustu
stundu, en þeir ræðumenn, sem
fer.gnir voru til að hlaupa í skarðið,
hafa, vegna ókunnugleika, dottið í
þann pott að flytja erindi um atriði,
sem búið var að fjalla um áður af
einhverjum fulltrúum frá hinum
Norðurlöndunum. Ráðstefnan hefur
haldið svona áfram við vaxandi undr-
un fulltrúanna, sem vclta því fyrir
sér hvort haldið verði nokkurt loka-
hóf á föstudaginn, þegar ráðstefn-
unni lýkur.
Hér á landi hafa lön.g og ströng
mengunarmál staðið undanfarin ár,
og víst. er, að hér er mikill áhugi
á því að hindra mengun, hvernig
sem til tekst um þessa ráðstefnu.
Þá þykir okkur mikill fengur að ráð
stefnum, vegna fjölda þeirra gesta,
sem þeim fylgja óneitanlega. En
það liggur auðvitað í augum uppi,
að sé ákveðið að halda ráðstefnur
hér, þá verða þær að hafa upphaf og
endi. Ráðstefnur eru ekki eins og
skemmtiferðaskip, sem afgreidd eru
með einni Gullfoss-Geysis-ferð áður
en blásið er til brottferðar. Þær
virðist mikið af 5—6 punda laxi
dautt í ánni. Einnig er mikið
dautt af silungi. Hjörtur Jó-
kalla á málsmeðferð og niðurstöð-
ur, og jaínvel ályktanir. AHt er
þetta bölvað puð, sem þoir losna
við, sem einungis sinna hreinrækt-
uðum túristum. Ekki þyklr gott að
skilja við túrista svífandi í lausu
Iofti, en þó fer enn verr þegar heil-
ar ráðstefnur eru látnar svífa með
himinsikautum.
Við höfum haff tilh.neigin.gu til
a'ð trúa þvi, a'ð ísland væri eitt
mesta dýrðarinnar land undir ráð-
stefnur. Og einhver ætti að efna til
iokahófs, til að halda við þénanleg-
um orðrómi um homaskvaMur og
aðira raust. Það sfldptir kannski
meira máli en álybtanir og niður-
stöður. Þær gætu líka snúizt okkur
í óhag fyrst svo bölvanlega vill til,
að gestir okkar eru að þinga um
mengun. Það er nefnilega aldrei
að vita nema þeir kynnu að álykta
sem svo að hér hafi þeir rekizt á
afbrigði sem etoki finnist í lofti eða
á láði eða í legi. Raddir vorsins
heyrist að vísu enn, en hins vegar
fyrirfinnist hvergi þeir tónar klingj-
andi orðgnóttar, sem einkum haldi
uppi ráðstefnum.
hannsson í Laugaskarði, mun
fyrst hafa orðið var við þetta,
er hann var að fara til vinnu
sinnar. Tók hann allt í einu eft-
ir því, að dauður lax var hingað
og þangað í ánni. Fóru menn
nú að athuga málið betur og
kom í ljós, að mest ber á
þessu á svæðinu frá Reykja-
fossi og niður undir Náttúru-
lækningahælið.
Það virðist bara vera stærsti
fiskurinn sem drepst; sá minni
unir vel lífinu í ánni, a.m.k.
enn sem komið er. Fljótt á
iitið koma til greina tvær á-
stæður. Sú fyrri er að áin er
mjög lítil um þessar mundir og
í hana rennur afrennsli frá
hverunum og gæti það truflað
lífsskilyrðin í ánni. Hin tilgát-
an er sú, að frárennsli frá ull-
arþvottastöðinni gæti innihaldið
einhvern óþverra, sem fiskur-
inn þolir ekki, og má benda á
að frárennsli frá ullarþvotta-
stöðinni kemur í ána við
Reykjafoss, en ekkert hefur
borið á laxadauða ofan við foss
inn.
Eldur á Sögu
SB-Reykjavík, miðvikudag.
Slökkviliðið var kallað að Hótel
Sögu í dag, og lagði mikinn reyk
út um glugga á 5. hæð, þegar
það kom á staðinn. Reyk-kafari
fór inn og reyndist þetta vera
herbergi 512 og þar var kviknað
í gluggatjöldum. Litlar skemmdir
urðu, nema á gluggatjöldunum og
gólfteppi.
Svarihöfði.
Höfum ávallt fyrirliggjandi allar stærðir skraut-
hringja á hjólbarða, bæði alhvíta og hvíta með
svartri rönd.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
GÚIVXMÍVINNUSTOFAN H.F.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 30688
Þegar ráðstefnur
fara með himinskautum.
Víta skipun manna
í stjórn LÍN
Blaðinu hefur borizt ályktun frá
stjórnum SHÍ og SÍNE, vegna
Lánasjóðs íslenzkra námsmanna,
þar sem vítt eru vinnubrögð frá-
farandi menntamálaráðherra varð
andi skipun manna í stjórn LIN.
Fer ályktunin hér á eftir og síðan
svar Gy|fa Þ. Gíslasonar fyrrver-
andi menntamálaráðherra.
„Fyrrverandi menntamálaráð-
herra, Gylfi Þ. Gíslason, skipaði
hinn 9. júlí tvo aðalmenn og tvo
til vara í stjórn L.Í.N. til fjögurra
ára skv. eigin tilnefningu. Af
þessu tilefni gera stjórnir S.H.Í.
og S.Í.N.E. eftirfarandi ályktun:
1) Stjórn SHÍ og SÍNE víta
þau vinnubrögð ráðherrans, að
hann skyldi taka svo mikilvæga
ákvörðun þegar sýnt var, að hann
myndi ekki sitja áfram í ráð-
herrastóli nema örfáa daga. Að
okkar skilningi er það nauðsyn-
legt eðlilegri starfsemi Lánasjóðs
að fulltrúar ríkisstjórnarinnar í
sjóðsstjórn standi undir því nafni,
þ.e. að þeir njóti fulls trausts
viðkomandi ráðherra á hverjum
tíma.
2) Annar umræddra fulltrúa
skai skv. lögum „valinn með hlið-
sjón af kunnugleika á námi og
högum þeirra námsmanna sem eigi
eru stúdentar". Síðan lögin voru
sett hafa aðstæður breytzt, þannig
að nú er vöj á slíkum mönnum
úr hópi námsmanna sjálfra, t.d.
meðal nemenda Tækniskólans og
fl. skóla. Með því að sniðganga
þennan möguleika teljum við að
ráðherra h'afi brotið gegn tilgangi
laganna.
3) Stjórnir SHÍ og SÍNE skora
á þá menn, sem ráðherra hefur
skipað í sjóðstjórn, sem og vara-
menn þeirra, að segja af sér þessu
starfi svo að unnt verði að skipa
stjórnina í samræmi við lýðræðis-
reglur. Stjórnir SHÍ og SÍNE fela
varaformanni SHÍ og formanni
SÍNE, að koma þessari áskorun
á framfæri við rétta aðila með
bréfum.
4) Ef þessi áskorun ber ekki
árangur fyrir 15. ágúst n.k. álykta
stjórnir SHÍ og SÍNE að fulltrúar
þeirra skuli leggja niður störf
í stjórn Lánasjóðs þar til lausn
fæst á þessu máli.
F.h. stjórna SHÍ og SÍNE
Sigurmar K. Albertsson
Þröstur Ólafsson.“
„f tilefni af ályktun, sem stjórn
ir Sambands íslenzkra námsmanna
erlendis og Stúdentaráðs hafa gert
og birt hefur verið í fjölmiðlum,
óska ég að taka þetta fram:
Lögum samkvæmt er stjórn
Lánasjóðs skipuð sex mönnum, og
eru fjórir þeirra tilnefndir af eftir
töldum aðilum: Fjái-málaráðherra,
Háskólaráði, Stúdentaráði og Sam
bandi íslenzkra námsmanna erlend
is. Menntamálaráðherra skipar tvo
og skaj annar þeirra vera full-
trúi íslenzkra námsmanna erlend-
is, annarra en stúdenta, en hinn
formaður stjórnarinnar.
Núverandi formaður, Gunnar
Vagnsson, framkvæmdastj., vann
mikið starf að undirbúningi fyrstu
löggjafarinnar um lánasjóð stúd-
enta á árunum eftir 1950. Þegar
fyrst voru sett lög um lánasjóð
íslenzkra námsmanna erlendis
1960, vann hann einnig að undir-
búningi þeirra. Hann átti enn-
fremur mikinn þátt í samningu
löggjafarinnar um þá heildarskip-
un á lánamálum íslenzkra náms-
manna, sem komi'ð var á 1967, og
enn er í gildi ,og hefur hann verið
forma'ður sjóðsstjórnarinnar síðan
og Torfi Ásgeirsson, deildarstjóri
í menntamálaráðuneytinu vara-
forma'ður. Ári'ð 1967 var Erling
Garðar Jónsson tæknifræðingur,
skipa'ður fuljtrúi annarra náms-
manna en stúdenta og Páll Sæm-
undsson tæknifræðingur varamað-
ur hans. Baldvin Tryggvason fram
kvæmdastjóri hefur síðan 1967
verið fulltrúi fjármálaráðherra, en
hann hafði áður fjallað um þessi
mál í menntamálaráði. Breyting
hcfur orðið á fulltrúum anarra
aðila.
Hinn 28. júní s.l. tjáðu embættis
menn í menntamálaráðuneytinu
mér, að þann dag væri skipunar-
tími stjórnarinnar útrunninn.
Hins vegar þyrfti þegar að taka
ýmsar ákvarðanir, svo að hraða
þyrfti skipun í stjórnina. Á þeim
degi gat engum verið Ijóst að
skipan nýrrar ríkistjómar væri
alveg á næsta leiti. Ég vildi ekki
bera ábyrgð á því, að stjómin
sæti umboðslaus og ákvarðanir
yrðu ekki teknar eða síðar vé-
fengdar af þessum sökum. Ákvað
ég því að skipa sömu menn og
áður hefðu setið í stjórninni, nema
hvað ég breytti um röð aðalmanns
og varamanns, hvað snerti fulltrúa
annarra námsmanna en stúdenta,
þar eð aðalmaðurinn var fluttur
úr borginni. Þessi ákvörðun var
tilkynnt stjórnarmönnum, þótt
ekki hafi verið gcngið frá skipun-
arbréfum fyrr en 9. júlí. Þessar
skipanir eru að sjálfsögðu lög-
mætar og í fullu gildi. Ef ég hefði
ekki skipað fulltrúa í stjómina,
eftir að athygli hafði verið vakin
á því, að umboð hennar væri fall-
ið úr gildi, hefði með réttu mátt
finna að því.
Ég hefi aldrei heyrt eða séð
neina opinbera gagnrýni á skipun
fulltrúa menntamálaráðuneytisins
í stjórn Lánasjóðsins, enda er
Gunnar Vagnsson tvímælalaust sá
maður, sem mest hefur unnið að
lánamálum íslenzkra námsmanna
og gleggsta þekkingu hefur á
þeim. Hins vegar tel ég, að nauð-
synlegt sé, að fulltrúar ráðuneytis
í stjórn slíkrar stofnunar njóti
trúnaðar þess ráðherra, sem stofn
unin heyrir undir. Til þess að
taka af hugsanleg tvímæli um
það, hvort það á sér stað í þessum
tilfellum eða ekki, fór ég þess á
lcit við Gunnar Vagnsson og Pál
Sæmundsson, ásamt varamönnum
þeirra, að þeir veiti eftirmanni
mínum kost á að skipa aðra menn
í þeirra stað, ef hann óskar þess.
Tjáði ég honum þetta í gær
(þriðjudag) eða áður en hvorki
ég né hann vissum um samþykkt
þá, sem getið er í upphafi.
Reykjavík 4. ágúst 1971
Gylfi Þ. Gíslason."
r---—------------------------—-—■ i
Héraðsmót Framsóknar-
manna í V-Skaftafellssýslu
Héraðsmót Framsóknar- Ávarp og ræðu flytja Einar
manna í V-Skaftafellssýslu verð Ágústsson, utanríkisráðherra,
ur haldið laugardaginn 7. ágúst og Jón Helgason, bóndi Seglbúð
í Leikskálum, Vík í Mýrdal, ög um. Þrjú á palli skemmta. —
hefst kl. 21,00. Kátir félagar leika fyrir dansi.