Tíminn - 05.08.1971, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.08.1971, Blaðsíða 3
J?mMWDAGUR 5. ágúst 1971 TIMINN 3 Olíiimöl flutt með skipum til Austur- lands? EB-Reykjavík, miðvikudag. Ef til vill verður eftir nokkurn tíma farið að flytja olíumöl með skipum frá Reykjavík ti| Austur- lands, en mikill áhugi ríkir nú í kaupstöðum og kauptúnum þar eystra að fá olíumöl í götur. Ólafur G. Einarsson, sveitarstj. í Garðahreppi og formaður Olíu- malar h.f. skýrði fréttamönnum frá því í dag, að Samband sveitar félaga á Austurlandi hefði haft forgöngu um að kanna möguleika á þvi, að fá olíumöl framleidda í blöndunarstöð Olíumalar h.f. Ólafur sagði, að sýnishorn af efnum á Austurlandi til fram- leiðslunnar hefðu verið könnuð, en ekki væri enn búið að finna heppilegt efni til þess arna þar eystra. Ef til vill yrði lausnin sú, að olíumölin yrði fullgerð hér fyrir sunnan og síðan flutt með skipum austur. Kjartan Thors fram- kvæmdastjóri látinn Kjartan Thors Framkvæmda stjóri í Reykjavík er látinn. Kjart- an var fæddur 26. apríl 1890 í Borgarnesi, sonur Thor Jensen og Margrétar Þorbjargar Kristjáns- dóttur. Hann varð stúdent frá Mennlaskólanum í Réykjavík árið 1813, og cand. phil frá Hafnarhá- skóla árið eftir. Síðan stundaði hann lögfræðinám við Háskóla ís- lands, en lauk ekki prófi. Fram- kvæmdastj óri togaraútgerðarfélags ins Kveldúlfs var hann frá 1916 til 1957. Hann var formaður Vjrtrfa- veitendasambands íslands frá stofn beb þ«ss 19S4. Eftirlifandi kona Kjartans Thors er Ágústa Björns- dóttir Thors. Miklar vegaframkvaemdir standa nú yfir á Jökuldal. Þar er veriS að leggia rúmlega 8 km kafla og á þessum kafla þarf að byggja þrjár brýr og eru þær allar í stærra lagi. Blaðamaður Tímans átti þar leið um fyrir stuttu og tók þá þessa mynd og er þar verið að vinna við byggingu einnar brúarinnar. (Tímamynd Þ.Ó.) Ályktun stjórnar F.Í.R. um heimspekideildarmálið VOTTUR AFTURHALDSSEMI 0G ANDUÐAR Á BÓKMENNTAIÐJU FB-Reykjavík, miðvikudag. Tímanum liefur borizt ályktun, sem stjórn Félags ísl. rithöfunda gerði á fundi sínum 2. þ.m. vegna viðhorfa Heimspckideildar H.í. varðandi skipun fyrirlesara í ís- lenzkum hókmenntum við Ilá- skólann. Segir í ályktuninni að telja megi, að afstaða deildarinnar beri vott um afturhaldssemi og andúð á allri hókmenntaiðju, og með afstöðu sinni liafi deildin hrugðizt því lilutverki að standa í fararbroddi hókmenntanna. Ályktunin fer liér á eftir: „Fundur í stjórn FÍR. haldinn að Hótel Sögu 2. ágúst, lýsir undr un sinni yfir viðhorfum Heimspeki deildar Iláskóla íslands til skipun ar fyrirlesara í íslenzkunj bók- menntum við HÍ. Stjórn FÍR vill benda á, að þýðingarmikill liður í þróun bókmenntanna í iandinu eru vinsamleg og opin samskipti við æðsta menntastól landsins í bókmenntafræðum. Lítur stjórnin svo á, að með afstöðu sinni til fyrirlestrastarfsins sé heimspeki- deild jafnframt að lýsa yfir, að hún kæri sig ekki um annað en takmörkuð tengsl við bókmennt- irnar í landinu, og hafi sjálf í hyggju að skilja hafrana frá sauð unum, eins og ótímabær og þarf- laus afneitun heimspekideildar á nýskipuðum fyrirlesara ber vott um. Harmar stjórn FÍR afstöðu heimspekideildar í þessu máli, sem hún trlur, að beri vott um afturhaldssemi og andúð á allri bókmenntaiðju, og, með afstöðu Skrá yfir niðurjöfnun útsvara og aðstöðugjalda 1971 í Ólafsvíkur hreppi hefur verið lögð fram. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun ar eru 17 milljónir. Helztu út- gjaldaliðir eru þessir: Til Almannatrygginga 4 millj. — fræðslumála 1,9 — — fél. og menningarm. 1 — — verkl. framkv. 5,2 — Helztu tekjuliðir eru: Útsvör 10 — Aðstöðugjöld 2,5 — Jöfnunarsj. sveitarfél. 2,2 — Fasteignaskattur 1,4 — Útsvör eru lögð á skv. útsvars- stiga sveitarfélaga 1971 óbreytt. Þeir gjaldendur er greiða að fullu öll' gjöld fyrir 15. okt. fá 10% afslátt af útsvari. sinni hafi heimspekideild brugð- izt því hlutverki að standa í farar broddi listgreinar, sem ætíð hefur verið metnaðarmál þjóðarinnar, að stæði voldugan og lifandi vörð um tungu vora og menningu“. Hæstu útsvör einstaklinga í Ólafsvík bera: Sveinbjörn Sigtryggsson, bygg- ingameistri kr. 179.000,00; Tómas Guðmundsson, rafv.m. kr. 150.600, 00; Hermann Hjartarson kr. 166. 600,00. Hæstu útsvör félaga: Hólavellir h.f. kr. 196.300,00 Smári s.f. kr. 184.300,00 S Vélsm. Sindri h.f. kr. 176.300,00 Hæstu aðstöðugjöld: Hraðfrystihús Ólafsvíkur h.f. kr. 511.200,00 Hólavellir h.f. kr. 353.300,00 Víglundur Jónsson kr. 264.300,00 Kaupfél. Borgf. kr. 216.800,00 Framkv.áætlun Ólafsvíkurhafn- ar 1971 er 14 milljónir. erlendar herstöðvar Hilmar Baunsgaard, forsætis ráðherra Danmcrkur, lýsti hv>, yfir í fyrradag að gefnu tilefni vegna lausafregna um að Nato myndi fara fram á að koma upp herstöð á dönsku yfirráða- svæði, að stjórn Danmerkur hefði ckki í hyggju, að leyfa eriendar lierstöðvar á dönsku landi. Baunsgaard gaf þessa yfir- lýsingu í skriflegu svari við spurningu tveggja þingmanna um það, hvort rætt hafi verið við dönsk stjórnvöld um bygg- ingu lierstöva á vegum Atlants hafsbandalagsins á danskri grund í sambandi við væntanleg ar viðræður stjórna Bandaríkj anna og fslands um brottför bandaríska herliðsins frá Kcfla vík. f yfirlýsingu forsætisráðherr ans sagði, að engar áætlanir væru um að setja upp herstöðv ar í öðrum aðildarríkjum At- lantshafsbandalagsins í stað herstöðvarinnar í Keflavík, og danska stjórnin hefði ekki feng ið ncin tilmæli um slíkt. Þess vegna væri spurningin ekki tímabær. En Baunsgaard sagð- isf þó vilja nota þetta tækifæri til að staðfesta það, að stefna stjórnarinnar væri óbreytt hvað þetta atriði sncrti. Ríkis- stjórnin hefði ekki í hyggju að leyfa byggingu neinna er- lendra herstöðva á dönsku landi. Ófremdarpstand í málefnum aldraðra Sainkvæmt upplýsingum, sem Þjóðviljinn hefur aflað sér frá Styrktarfélagi vangefinna vant- ar nú hælisrými fyrir 200 van- gefna einstaklinga. Samkvæmt þeim fjárveitingum, sem nú liggja fyrir um byggingu hæla fyrir vangefna, myndi það taka 20 ár að fullnægja lágmarks- þörf vangefinna fyrir hælis- rými. Ýmislegt hefur að vísu áunnizt á þessu sviði á síðustu fjórum árum einkum fyrir til- stilli áhugaaðila. Nýbyggingar eru nú risnar við Skálatún og Kópavogshæli, þar sem hægt verður að taka á móti 24 nýj- um vistmönnum um næstu ára- mót. Þá hafa dagvistarheimili verið tekin i notkun á Akur- eyri og Reykjavík, en í Tjalda- nesi hafa ýmsar endurbætur verið gerðar. Þrátt fyiir þetta vantar enn Iiælisrými fyrir 200 vangefna, auk sérþjónustu og félagsráðgjöf, sem koma þarf á. Þetta ófremdarástand í mál- efnum vangcfinna hcfur í för -neð sér gífurlega erfiðleika fyrir fjölda heimila í landinu. Þess vegna er nauðsynlegt að gera stórátak til að koma mál- efnum og aðbúð vangefinna i betra liorf hið bráðasta. — TK. Sólun HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR || snjómunstur veitir góða spyrnu í sn{ó og hólku.. önnumst allar viðgerðir h{ólbarða með fullkomnum tækjum. Snjóneglum hjólbarða. GÓÐ WÖNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík.. Skrá yfir ótsvör og aðstöðu- gjöld Úlafsvíkurhrepps komin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.