Tíminn - 05.08.1971, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.08.1971, Blaðsíða 16
Wkœám Fimmtudagur 5. ágóst 1971. Seldu fyrir 44 milljónir 5>ó-Reykjav£k, miðvikudag. í síðustu viku seldu alls 56 skip síldarafla í Danmörku og Þýzkalandi, þar af seldu 54 i Danmörku, en aðeins 2 í Þýzka landi. Heildarafli skipanna var 3.060 lestir, og meðalverðið á i síldinni sem fór til manneldis / var kr. 15,78, en ef sú síld sem fór í bræðslu, og makríll, eru tekin með, þá var meðalverðið krs 14,94. Fyrir þessar 3.060 lestir fengust kr. 44.548.626,00. Hæsta meðalverð í vikunni fékk Bjarmi II EA, en hann seldi þann 30. júlí 47,3 lestir fyrir 975 þús. og er meðalverð ið kr. 20,63. Hæstu heildar- söluna fékk Heimir SU en hann seldi þ. 28. júlí 109 lestir fyrir 1.697 þús. í vikunni seldu 18 skip fyrir meira en eina milljón í sölu- ferð ,og eru þau þessi: Fífill GK 93 lestir fyrir 1.464; Héðinn ÞH 69 lestir fyrir 1.071; Örn RE 69 lestir fyrir 1.015; Óskar Halldórsson RE 72 lestir fyrir 1.100; Gísli Árni RE 84 lestir fyrir 1.311; Hilmir SU 80 lest- ir fyrir 1.263; Jón Garðar GK 79 lestir fyrir 1.232; Loftur Baldvinsson EA 99 lestir fyrir 1.477; Hrafn Sveinbjarnarson GK 65 lestir fyrir 1.001; Ásberg RE 69 jestir fyrir 1.027; Birt- ingur NK 81 lest fyrir 1.395; Heimir SU 109 lestir fyrir 1.697 — Eldborg GK 85 lestir fyrir 1.731; Reykjaborg RE 80 lestir fyrir 1.251; Helga Guðmunds- dóttir BA 96 lestir fyrir 1.458; Börkur NK 87 lestir fyrir 1.341; Akurey RE 70 lestir fyr ir 1.079 og Jón Kjartansson SU sem seldi i Þýzkalandi 60 lest- ir fyrir 1.097. Strokufanginn œtlaði að verzla — var tekinn ÞÖ—Reykjavík, miðvikudag. Tugthúsfanginn, sem stakk af úr garðinum við hegningar- húsið á Skólavörðustíg sl. föstudag, fannst í gær uppi í Árbæ. Rannsóknarlögreglumenn sem voru uppi í Árbæ báru kennsl á manninn þar sem hann var að koma að söluopi. Ætlaði maðurinn auðsjáanlega að fara Framhald á bls. 14 Öryrkjabandalag Islands 10 ára ÞÚRF Á VINNUSTOF- UM FYRIR ÖRYRKJA Af um 80 ibúum í húsi öryrkja í Hátúni 10 eru 2 börn. Þessi litla stúlka heldur á greiðuskúf úr íslenzku gaeruskinni, sem framleiddur er á vinnu- stofu öryrkja í húsinu. Þessi framleiösluvara er seld i Danmörku og kostar sem svarar 140 kr. ísl. þangað komin. (Tímamynd GE) SJ—Reykjavík, miðvikudag. í íbúðarhusi öx-yrkja við Hátún 10, sem • Öryrkjabandalag íslands hefur rejst, búa nú um 80 manns. Mikil eftirspurn er eftir húsnæði í húsi þessu, en bandalagið er langt -komið að byggja annað stór- hýsi, Hátún 10 A, sem cinnig verð ur lelgitíiúsnæði fyrir öryrkja. Ætlunimær að byggja þriðja hús- ið af þéssu tagi, en allar verða þessar byggingar tengdar saman, og á neðstu hæðinni verður í -framtíðinni ýmiss konar þjónusta ' fyrir íbúá - húsanna, vinnustofur, innanhúss-bílastæði o.fl. Um 40% íbúanna í Hátúni 10 stunda vinnu utan hússins, en 15 vinna í bráðabirgðavinnustofu á efstu hæð hússins, sem síðar verð ur mötuneyti og samkomusalur íbúanna. Þarna eru framleiddir greiðuskúfar úr gæruskinni, en markaður hefur fengizt fyrir þá í Danmörku. Vonazt er til að þessi vinnu- stofa eigi eftir að stækka svo, að þeir sem í húsunum búa, og geta ekki stundað Vinnu úti í borginni, íái þar vinnu við sitt hæfi. Mikil þöi-f er á vinnustofum fyrir ör- yrkja, en þriðja íbúðarhúsið verð- ur þó látið sit’ja í fyrirrúmi áður en hafizt verður handa um lágu bygginguna, sem tengir saman hús in þrjú. En allar eru þessar fram- kvæmdir háðar fjái'hagsgetu Ör- yrkjabandalagsins, það byggir eins hratt og efni leyfa. í Hátúni 10 eru 77 íbúðir 25— 55m- að stærð. Átta íbúðai'hæðir eru í húsinu og á hverri þeirra sameiginleg setustofa nieð sjón- varpi og síma. Á neðstu hæð er skrifstofa Öryrkjabandalagsins og þar verður einnig gistideild fyrir fólk sem bíður sjúkravistar eða er nýkomið af sjúkrahúsi. Sjö tveggja manna hei'bergi eru á gistideildinni og fylgja þeim ekki eldhús eins og öðrum íbúðum húss ins. í Hátúni 10 A eru 84 íbúðir 30—45m- að stærð. 84 íbúðir verða einnig í þriðja húsinu. Hús eignin Hátúni 10 er sjálfseignar- stofnun og er húsaleigan frá 3.500 kr. til 6000 kr. fyrir utan ljós og hita. Þegar lokið er byggingu hús- anna við Hátún hyggst Öryrkja- bandalag íslands kanna húsnæðis- vandkvæði öryrkja úti á landi og leita úrbóta á þeim ef einhver eru. örýrkjabandalag íslands var stofnað 5. maí 1961 og hefur því starfað í 10 ár. Aðalviðfangsefni bandalagsins er enn sem fyrr ým- iss konar fyrirgreiðsla fyrir ör- yrkja — atvinnuútvegun, skatta- mál, húsnæðismál, ti-yggingamál o.fl. Sjö öryrkjafélög eiga_ aðild að Öryi-kjabandalagi fslands, Blindrafélagið, Styrktarfélag van- gefinna, Geðverndarfélag íslands, Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, Samband íslenzkra berkla- sjúklinga, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Blindravinafélag íslands. Ályktun stjórnar F.Í.R. um úthlutun úr RithöfundasjóSi Greiðsla verði tekin upp samkvæmt útlánum Útlánahæstu höf. séu ætíS að einum hluta í hópi þeirra sem úthlutun fá Stjórn Félags íslenzkra rithöf- unda gerði eftix-farandi ályktun á fundi sínum 2. þ.m. „Stjórn Félags ísl. rithöfunda vekur athygli á og mótmælir harð lega því misrétti, sem fram hefur komið við úthlutun styi’kja úr Rit- höfundasjóði íslands, að barna- og unglingabókahöfundar hafa aldrei hlotið styrk úr sjóðnum. Það er staði'eynd, að verulegur hluti tekna sjóðsins byggist á eign barna- og unglingabóka í bókasöfn- um landsins, og börn og unglingar munu vei'a tiltölulega fjölmenn- asti hópur bókasafnsgesta. Sama er, hvort litið er á þetta mál frá lagalegu eða siðferðilegu sjónarmiði, þá er ekki stætt á því að sniðganga með öllu þá bók- menntagrein, sem bókasöfnin byggja mjög tilveru sína á. Til dæmis má benda á í þessu sam- bandi nýjustu skýrslu frá Dan- mörku. Þar eru útlán skóla- og Framhald á bls. 14. Reykjavík ’71 Alþjóðleg vörusýning — Reýkjavík ’71 hefst í Laugar- dalnum 26. ágúst næstk. og mun standa fram um miðjan september. Undirbúningur að sýningunni cr nú hafinn, og starfa milli 20 og 30 manns við undirbúninginn. Hér á mynd- inni eru þeir Gunnar Bjarna- son og Magnús Pálsson við vinnu sína í Laugardalshöllinni að ganga frá spjöldum, sem komið verður fyrir á veggjum hallarinnar. Auk þess sem unn ið er innan dyra í Laugardals- höllinni er verið að malbika sýningarsvæði utan dyra, koma upp sumarbústöðum, sem til sýnis vei'ða, og fleira og fleira. AUKAFERB TIL KAUPMÁNNÁ HAFNAR 11. ÁGÚST N.K. — Nokkur sæti laus. Tvær flugvélar, með samtals á þriðja hundrað manns, hafa nú farið til Kaupmannahafnar á vegum Framsóknarfélags Reykja- víkur. Ferðir þessar eru mjög vinsælar og eftirsóttar, en hins vegar ekki auðvelt að útvega flugvélar, nerna með löngum fyrir- vai'a. Var því ekki ráðgert að fara nema tvær ferðir. En nú hefur tekizt að útvega 30 sæti í flugvél, scm fer til Kaupmannahafnar þann 11. ágúst, cn komið verður til baka 25. ágúst. Nauðsynlegt er, að þeir, sem hafa áhuga á þessai'i ferð, setji sig strax í samband við ski'ifstofu Framsóknarfélags Reykjavíkur að Hringbraut 30, símar 24480 og 16066.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.