Tíminn - 05.08.1971, Page 14
14
TIMINN
FIMMTUDAGUR 5. ágúst 1971
VÉLSTJÓRAFÉLAG
ISLANDS
Skrifstofan er flutt frá Öldugötu 15 að Bárugötu 11
(þar sem áður var Spai’isjóður vélstjóra).
Viðvörun
Þar sem nokkur brögð munu vera að því, að
menn taki að sér að aka bæði innlendu og erlendu
fólki gegn borgun til skemmtiferða svo og til og
frá vinnu, án þess að þeir menn hafi tilskilin
atvinnuleyfi og þá ekki ökuréttindi eða tryggingu
varðandi bifreiðina, sem veitt getur farþegum
bætur, hvort heldur eru smáar eða stórar, ef slys
ber að höndum, þá viljum vér með tilvísun til
framanritaðs og að gefnu tilefni alvarlega hvetja
fólk, sem greiðir fargjald í allt að 8 farþega bif-
reiðum, sem ekki eru merktar bifreiðastöð og
ekki með gjaldmæli, að kynna sér ýtarlega hver
séu réttindi viðkomandi bifreiðastjóra til slíkrar
þjónustu.
Reykjavík 4- ágúst 1971
Bandalag ísl. leigubifreiðastjóra.
Kennarar
Kennara vantar að Unglingaskóla Þorlákshafnar.
Æskilegt væri að hann gæti kennt leikfimi.
Ódýrt húsnæði fj'rir hendi.
Nánari upplýsingar gefa formaður skólanefndar
í síma 99 3632 og skólastjóri eftir kl. 7 í kvöld og
annað kvöld í síma 91 50688.
Skólanefndin.
Tilkynning frá Skatt-
stofunni í Reykjavík
Föstudaginn 6. ágúst 1971 flytur stofnunin starf-
semi sína á IV. hæð í Tollstöðina við Tryggva-
götu, vesturdyr.
Skattstjóri.
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum þeim vinum og vandamönnum, fjær og nær,
sem á einn eða annan hátt glöddu mig á áttræðisafmæli
mínu, 22. júlí síðastliðinn, þakka ég innilega. Lifið heil.
Marteinn Sigurðsson.
\
MaSui’inn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Lúðvík Rudolf Kemp,
Karlagötu 20,
sem anda'ðist 30. fyrra mánaðar, verSur jarðsunglnn frá Sauðár-
krókskirkju, laugardaginn 7. ágúst, kl. 2 e.h. Blóm vinsamlegast
afbeðin, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanlr.
Elísabet Kemp,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Olíumöl
Franihak. if bls. 1
Aðdraganda að stofnun fyrir-
tækisins má rekja til samþykktar
bæjarstjórnar Kópavogs 27. júní
1969 varðandi könnun á áhuga
sveitarfélaga innan SASÍR um
kaup og rekstur fullkominnar véla
samstæðu til blöndunar olíumalar.
Þann 4. október 1969 var hald-
inn fundur um þetta mál og var
til hans boðið fulltrúum allra sveit-
arfélaga í Reykjaneskjördæmi.
Fól fundurinn ])eim Birni Ein-
arssyni, bæjarfulltrúa í Kópavogi,
Vilhjálmi Grímssyni, tæknifræð-
ingi, Keflavík og Ólafi G. Einars-
syni, sveitarstjóra í Garðahreppi,
að kanna möguleika á slofnun
félags til vinnslu olíumalar.
Skiluðu þeir áliti, dags. 4 marz
1970 og lögðu þar til að stofnað
yrði hlutafélag í þessu skyni með
aðild sveitarfélaganna í kjördæm-
inu og þeirra verktaka, sem sýnt
hefðu áhuga á málinu.
Eins og að framan getur var
haldinn stofnfundur þann 24.
apríl 1970. Stofnendur voru 12
sveitarfélög af 15 í kjördæminu
og verktakafyrirtækin Véltækni
h.f. Miðfell h.f. og Hlaðbær h.f.
Hlutafé var ákveðið 5 milljónir
króna. Sveitarfélögin eiga 55%
hlutafjárins og miðast hlutdeild
þeirra hvers um sig við íbúa-
fjölda þeirra, en verktakafyrir-
tækin eiga 15% hvert.
í stofnsamningi segir, að til-
gangur félagsins sé að framleiða
og selja olíumöl og annað efni til
gatnagerðar, svo og að reka hvers
konar verktakastarfsemi að því er
varðar gatnagerð.
Fyrirtækið hóf starfsemi sína
sumarið 1970 og hafði þá til um-
ráða blöndunarstöð, sem það hafði
keypt af Véltækni h.f., en sú stöð
var keypt til landsins árið 1965.
Stærsta verkefnið sumarið 1970
var blöndun og útlagning olíumal-
ar á 14 km. kafla af suðurlands-
vegi í Svínahrauni fyrir Vegagerð
ríkisins. Auk þess var framleidd
olíumöl fyrir nokkur sveitarfélög
og aðra aðila.
Stjórn Olíumalar h.f. liafa skip
að frá stofnun:
Ólafur Einarsson, sveitarstjóri,
formaður, Leifur Hannesson, verk
fræðingur, ritari, Pétur Jónsson,
forstjóri, Alfreð G. Alfreðsson,
sveitarstjóri, Hjálmar Ólafsson,
fyrrverandi bæjarstjóri, þar til
hann hvarf úr stjórninni s.l. haust.
Framkvæmdastjóri er Björn
Einarsson, tæknifræðingur, Kópa-
vogi.
Apollo
Framhald af bls. 6
og er lending áætluð á Kyrrahafi
kl. 20.46 á laugardagskvöldið, eða
295 klukkustundum og 12 mínútum
eftir að honum var skotið upp á
mánudaginn í fyrri viku. Innan-
borðs eru 77 kíló af mánajarðvegi.
Án íslendinga
Framhald af bls. 1
einhverjir láti sjá sig. Raunar hafa
verið hér íslenzkir fyrirlesarar,
og hafa þeir verið mjög góð-
ir, eins og t.d. Hjálmar Bárðar-
son. Ringholt bætti því við, að það
gæti verið skiljanlegt að fáir Is-
lendingar væru á þessari ráðstefnu
og hún ekki betur skipulögð, því
að framkvæmdastjóri Félags Sam-
einuðu þjóðanna á íslandi hefði
verið veikur og framkvæmdastjór-
inn hefði þurft að fara af landi
brott rétt um það leyti, sem ráð-
stefnan átti að hefjast, en samt
sem áður væru allir vonsviknir yfir
því hvað ráðstefnan væri illa skipu
lögð. Frá íslendingum áttu að
koma 5 fyrirlesarar, en af einhverj
um ástæðum urðu þeir ekki nema
þrír, og varð ég að útvega aðra úr
STRANDAMENN
Héraðsmót Framsóknarmanna í Strandasýslu verður haldið í
Sævangi, laugardaginn 7. ágúst og hefst kl. 21. Avarp og ræðu
flytja Steingrímur Hermannsson alþm. og Gunnlaugur Finnsson
bóndi Hvilft. Þjóðiagasöngvararnir Kristín og Helgi skemmta.
Hljómsveitin Ásar leika fyrir dansi. — Stjórnin.
mínum hópi, en skemmtilegra hefði
verið að það hefðu verið íslend-
ingar, sérstaklega þar sem þið eig-
ið svo hreina og óspillta náttúru,
en þessi ráðstcfna fjallar einmitt
um mengun og náttúruvernd.
Sagði Ringholt, að það vekti
furðu sína, að íslendingar
skyldu yfirleitt hafa verið að bjóð
ast til að halda þessa ráðstefnu;
þeir hefðu boðizt til þess í fyrra,
og heföi það verið einróma sam-
þykkt að ráðstefnan yrði haldin
hér á landi. — Við hlökkuðum
mikið til komunnar hingað til þess
að starfa með íslendingum hér á
landi, en enginn hefur látið sjá
sig ennþá. En, sagði hann, ykkur
ætti að vera vorkunnarlaust að
Ihalda ráðsbefnur þar sem þið
hafið aðstöðúna í Loftleiðahótel-
inu. Hún er frábær.
Að lokum sagði Ringholt, að
þessi ráðstefna hefði verið illa
skipulögð af íslendingum frá byrj
un, t.d. kom dagslcrá' alltof seint
út til Noregs og var hún illa
gerð. — Því miður, sagði hann, er-
um við ekki ánægð með þessa ráð-
stefnu, en ég vona að ráðstefna
sem Félag Sameinuðu þjóðanna
á íslandi skipuleggur næst, verði
betur vönduð en þessi. Hérna átt-
um við að starfa með fjölda ís-
lendinga, en aðein^ þrír til fjórir
hafa komið, og þeir voru mjög
góðir.
Afíaaukningin
Framhald af bls. 1
í Suður-íshafi segir Bogdanoff,
að sé mikið magn af smáum krabba
dýrum, sem hvalir lifa á. En nú
hefur hvölunum fækkað og eng-
inn nærist lengur á þessum dýr-
um. Sovezkt rannsóknarslcip hef-
ur um 3ja ára skeið veitt þessi
krabbadýr og unnið hefur verið
úr þeim mauk, sem er næringar-
ríkt og bragðgott. Ef þessi aðferð
yrði tekin upp í stórum stíl, væri
hægt að framleiða með henni um
150 milljónir smálesta af eggja-
hvítuauöugri fæðu á ári.
Að lokum segir Bogdanoff, að
hér sé ekki um ímyndun að ræða,
þetta verkefni sé orðið brýnt og
á því verði að byrja strax, meðan
höfin séu enn forðabúr.
Strokufangi
Framhald af bls. 16.
að verzla í opinu, þegar hann
var gripinn.
Strokufanginn var undir á-
hrifum áfengis, þegar hann var
gripinn, eftir því sem Gísli Guð-
mundss. rannsóknarlögreglumað
ur tjáði okkur, og sýndi hann
lögreglumönnunum mótþróa, þeg
ar þeir tóku hann og fluttu hann
í fangageymslu lögreglunnar í
Hverfissteini. EÍcki var hægt að
yfirheyra manninn að svo
komnu, því maðurinn var það
mikið undir áhrifum áfengis,
en yfirheyrsla átti að fara fram
strax og maðurinn væri búinn
að jafna sig og hefur það vænt-
anlega komið fram í dag, hvar
hann hefur haldið sig um helg-
ina.
Strokufanginn hvarf úr hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg,
meðan fangarnir voru í sínum
daglega göngutúr sl. föstudag,
fangavörðurinn hefur sennilega
aðeins litið frá. og þá hefur
fanginn notað tækifærið og
vippað sér yfir garðinn, enda
er hann 'ekki hár. Ekkert spurð-
ist til fangans þá daga, sem
hann var frjáls ferða sinna, utan
einu sinni að maður þóttist
hafa séð hann á gangi í miðbæn-
um, en það þarf ekki að vera,
því vel getur verið að um ann-
an mann hafi verið að ræða.
Gísli Guðmundsson rannsókn-
arlögreglumaður sagði blaðinu,
að eins og fólk vissi þá væri það
orðið daglegt brauð að fangar
strykju úr hegningarhúsinu, og
nauðsynlegt væri að fara að
hækka garðinn fyrir utan húsið
og að gera glugga rammgerðari,
enda væri það lítið verk.
Rithöfundasjóður
Framhald af bls. 16.
barnabókasafna meira en 50% af
45 milljón eintökum, sem út eru
lánuð árlega.
Þess er fastlega vænzt, að út-
hlutunamefnd Rithöfundasjóðs
íslands taki þetta mál til ræki-
legrar athugunar á fundum sín-
um fyrir næstu úthlutun og sjái
sér fært, að að jafnaði skuli út-
hluta útlánahæstu höfundunum,
þannig að barna- og unglingabóka-
höfundar og höfundar annars vin-
sæls' lesefnis séu ætíð að einum
hluta í hópi þeirra, sem úthlutun
fá ár hvert.
Jafnframt séu teknar til end-
urskoðunar reglur um úthlutun
samkvæmt fjölda bókatitla. f stað-
inn sé tekin upp úthlutun sam-
kvæmt útlánum, en þess gætt að
láta mismunandi greiðslu koma
fyrir útlán, eftir því, hvers eðlis
bókin er, þannig að Ijóðabækur
séu í hæsta flokki o.s.frv.“
íþróttlr
Framhald af bls. 12
það sé alltof sjaldan. En hefur
ekki orðið ein breyting hér til
hins verra, cg þar er átt við
félögin. Áður fyrr, segjum fyrir
10 til 15 árum var það algengt
að Reykjavíkurfélögin þrjú
ÍR, Ármann og KR sendu sína
beztu menn utan til keppni og
buðu einnig erlendum köppum
á mót sín. Síðustu árin hefur
þetta lagst algerlega niður, því
miður. Hvernig væri nú að leið-
togar félaganna í Reykjavík og
e.t.v. í Kópavogi tækju sig sam-
an og héldu stórglæsilegt al-
þjóðamót a.m.k. einu.sinni á
ári með þátttöku heimsfrægra
erlendra íþróttamanna. Slíkt
ætti að vera möguleiki og bezt
væri að félögin hefðu samvinnu
um gtórmál sem þetta. Sam-
vinna félaganna um Fimmtu-
dagsmótin hefur verið ágæt,
af hverju ætti ekki samvinna
um þetta að geta tekizt eins
vel. Hugsanlegt væri og að
efna til stórmóts norðanlands
með hinum erlendu köppum og
beztu afreksmönnum okkar t.d.
á Sauðárkróki og Akureyri.
Einnig ættu félögin að efna til
utanferða stöku sinnum, slíkt
er ávallt gott fyrir félagsand-
ann og ferðir félaga verða ávallt
eitthvað öðruvísi en ferðir með
landsliði og er þó alls ekki ver-
ið að kasta neinni rýrð á ferð-
ir landsliða. Vð sláum þá botni
í þetta frjálsíþróttaspjall að
sinni, en víkjum e.t.v. síðar að
fleiri hliðum á þessu máli.