Fréttablaðið - 14.01.2004, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
OG NÚ ER FJÖR r‡mum fyrir n‡jum vörum
ekki missa af flessu!!www.design.is © 20
03
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opi› virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-15
Nú er rétti
tíminn
Gravity Zero stillanlegu rúmin
á ótrúlegu tilbo›i í Betra Bak.
Spring Air
Aldrei á betra ver›i í Betra bak.
Me› hverju rúmi fylgir hlíf›ard‡na,
pífulak og 2 lúxus bómullarlök.
Svefnsófar
30% afsláttur
Takmarka› magn
Gaflar og náttbor›
15-50%
afsláttur
Hægindastólar
25-30% afsláttur
Teppasett
15-50% afsláttur
Lúxus
sængurver
15-25% afsláttur
TM Line
fataskápar
15% afsláttur
Ég á afmæli eftir nokkra daga ogþað er bara ekkert merkilegt við
það. Þegar ég var lítill deildum við
bræðurnir oft um hver okkar fyndi
einhvern frægan sem átti afmæli
sama dag og við. Einn okkar á af-
mæli sama dag og Berti Möller í
Lúdó og annar á afmæli sama dag og
þáverandi forseti Íslands, Kristján
Eldjárn og sá þriðji sama dag og
talandi páfagaukurinn Vargas. Ég
átti mestu mennina. Ég viðurkenndi
lengi vel aðeins tvo meðeigendur að
afmælisdeginum. Og það engin smá-
menni.
AL CAPONE á sama afmælisdag
og ég. Ég og aðalglæponinn. Þegar
við vorum í glæponaleik var ég alltaf
Capone. Það var ekki ósjaldan sem
ég skaut ímynduðum skotum úr
hvellhettubyssunni, eða bara með
rétt mótaðri fingrasetningu, bræður
mína og nágranna á svipuðu reki.
Fannst ég ósnertanlegur. Var í hugar-
heimi mínum sjálfur Al Capone.
Neitaði lengi vel, og jafnvel enn, að
hann hafi verið vondur maður. Tók
ungur þá ákvörðun að þeir sem eiga
sama afmælisdag og ég eru mínir
menn, í blíðu sem stríðu.
MUHAMMAD ALI á sama
afmælisdag og ég. Það er langtum
meiri sómi að honum en Al Capone.
Aðrir strákar þráðu að eiga leikara-
myndir með Presley, en ekki ég. Ég
vildi Ali, eða Classius Clay eins og
hann hét þá. Hann var minn maður,
meiri en Presley. Þorði og gat. Finn
enn lyktina í Frímerkjahúsinu við
Lækjargötu þar sem hægt var að
kaupa búnt með leikaramyndum.
Spennan náði hámarki þegar búntið
var opnað, er Classius á einni mynd-
anna? Oftast ekki. Þá varð að reyna á
ný og það var gert, aftur og aftur.
DAVÍÐ ODDSSON á sama afmæl-
isdag og ég. Vissi það ekki fyrr en
löngu seinna. Þá var Davíð óbreyttur
borgarstjóri og lengi vel afneitaði ég
honum, vildi ekki viðurkenna hann í
hugarhóp minn. Svo var ekki lengur
hægt að sporna við fótum. Það er ekki
hægt að afneita Davíð. Fyrst það fór
svo að íslenskur stjórnmálamaður
þurfti endilega að eiga sama afmælis-
dag og ég, munaði ekkert um það.
Davíð hefur setið lengur og gert meira
en aðrir. Þó Davíð tali stundum illa um
vinnuna mína þá þykir mér vænt um
hann, tók ungur þá ákvörðun að allir
sem eiga sama afmælisdag og ég skuli
vera mínir menn. Það á við um Capo-
ne, Ali og Davíð. Römm er sú taug. ■
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.www. .is
Taktu þátt
í spjallinu á
...
Mínir menn