Tíminn - 05.10.1971, Page 1
Þessi mynd ver tekin í Ráðherrabústaðnum, þegar sendinefndin frá Ein ingarsamtökum Afrikurikja gekk á fund Ólafs Jóhannessonar forsætisrað-
herra. Lengst tH vtnstri er Óiafur Jóhannesson, þá kemur Motkar ould Daddah forseti Mauritaniu, siðan utanríkisráðherra Kenýa, Mauritaniu, Zam-
btu, Malí og Kamerún. Einnig eru á myndinni túlkur og aðrir aðstoðarmenn. (Tímamynd GE)
Sendinefnd Einingarsamtaka Afríkuríkja.*
Lýsum yfir eindregnum stuðningi
við íslendinga í landhelgismálinu
Tekur
ríkið
til?
KJ—Reykjavik, máimdag.
Að undanfömu hafa orði'ð mikl
ar umræður um umhverfi fisk-
vinnslustöðva, og heftrr Tíminn
í því sambandi birt myndir af
umhverfi frystihúsa í Reykjavík
og víðar. f grern í blaðinu í dag
tekur fiskimatsstjóri, Bergsteinn
Á. Bergsteinsson, undir við Tím-
ann, og bendir jafnframt á að-
gerðir Fiskmatsins í þessu tii-
efni.
Vitnar fiskimatsstjóri í þessu
tflfeffi í reglugerð um eftirlit og
mat á ferskusn fiski o. fl. en í
þessari reglugerð eru m.a. ákvæði
mn trmhverfi fiskvinnslustððva.
í niðurlagi greinar sinnar, seg-
ir fiskimatsstjórr
„Ég tel næst liggja fyrir, að
Fiskmat rikisins fari þess á leit,
að ríkisvaldið feh þæjar- og
sveitarstjómum eða þeim öðram
aðilum er það (ríkisvaldið) kynni
að velja, að láta taka til á lóðum
umhverfis fiskvinnshistöðvar og
lagfæra þær svo viðunandi sé, á
kostnað eigenda fiskvinnslustöðv-
anna.“
ÞÓ—Reykjavík, mánudag.
— Við erum þegar búnir að full-
vissa íslenzku rOdsstjómina um
stuðning okkar í landhelgismálinu,
sagði forseti Mauritaniu, Motkar
ould Daddah, formaður sendinefnd-
ar Einmgarsamtaka Afríkuríkja, á
blaðamannafundi 1 gær. Sendinefnd
in, sem samanstendur af 17 mönn-
um, er nú á ferð um Norðurlöndin,
til að kynna stefnu samtakanna
gegn stefnu Portiraala í Angóla og
Mosambique, og gegn ,,apartheit“-
stefnu Suður-Afrikustjómar gagn-
vart svarta meirflilutanum þar í
landi.
Forseti Mauritaniu sagði, að Por-
túgalar væru með 200 þús. manna
herlið í Mosambique og Angóla, og
væra þeir langflestir Þar. Án stuðn
ings NATO gætu Portúgalar ekki
bairizt af eins mikilli hörku og þeir
gera í Angóla. Portúgalar leggja
NATO til þrjú herfylki, og helming
ur þess herafla berst gegn frelsis-
hreyfingunum í Angóla.
Forsetinn sagði, að frelsisbarátta
Afríkumanna nyti stuðnings margra
landa, og þar væra fremst í flokki
sósíalistísku rfkin og Svíþjóð. Enn-
fremur styddu margar stofnanir
frelsishreyfingarnar og bæri þar að
nefna Menningar- og fræðslustofn-
un Sameinuðu þjóðanna — UNES
CO, Matvæla og landbúnaðarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna — FAO og
Heimssamtök kirkjunnar. Þessar
stofnanir hafa lagt frelsisherjunum
til fé, til að koma upp fræðslustarf-
semi á þeim landsvæðum, sem þeir
ráða yfir.
Þá sagði forsetinn, að á fundi,
sem hann hefði átt með íslenzku
ríkisstjórninni, hefði stjórnin lýst
stuðningi við Einingarsamtökin í af-
stöðunni gegn S-Afríkustjórn og ný-
lendustefnu Portúgala í Angóla og
Mosambique. Forsetinn sagðist von
ast til, að íslenzka stjómin gerði
sitt, til að opna augu Portúgala og
koma þeim í skilning um það, að
timi nýlendukúgunar tilheyrði for-
tíðinni og sagðist hann vita, að
Islendingar myndu gera sitt til þess,
enda hefði ísland verið dönsk ný-
lenda í um það bil sex hundmð ár
og vissum við því vel, hvað væri
að láta kúga sig.
Síðan vék Motkar ould Daddah
að apartheitstefnu S-Afríkustjórn
ar, og sagði, að tíundi hver Afríku-
negri byggi í Suður-Afríku og væru
svartir menn þar í miklum meiri-
hluta. Yfir þessu fólki drottnar hin
hvíta stjórn undir forsæti Fosters,
með ofbeldi. — Fer hún í engu
eftir beiðnum erlendra rikja
Framrald á bls. 14.
Tvísýnar kosningar
í Færeyjum í dag
SB—Reykjavík, mánudag.
Kosnir verða á morgun,
þriðjudag, tveir fulltrúar Fær-
eyja á danska þingið og geta
úrslit þeirra kosninga ráðið
um það, hvaða ríkisstjórn sezt
að völdum í Danmörku. Sex
flokkar bjóða fram í Færeyj-
um og hafa fimm menn mögu-
leika á að ná kosningu. Fær-
eyskir jafnaðarmenn hafa lýst
yfir stuðningi við flokksbræð-
ur sína í Danmörku, en hinir
flokkarnir fimm eru allir þeirr
ar skoðunar, að færeysku þing
mennirnir á danska þinginu
eigi að vera hlutlausir.
Mjög er talið líklegt, að
Johan Nielsen, efsti maður
á lista jafnaðarmanna, nái
kosnipgu og þar með hefur
Jens Otto Krag fengið eitt
þingsæti til viðbótar þeim
87, sem jafnaðarmenn fengu i
dönsku kosningunum um dag-
inn. Borgaraflokkarnir hafa 88
þingsæti á móti, svo þá er stað
an jöfn.
En það er enginn kominn
til að segja, að það sé alveg
öruggt, að Nielsen nái kosn-
ingu og í það heila, er mjög
erfitt að spá nokkru. Fram að
þessu hafa Færeyingar ekki
sýnt mikinn áhuga á þessum
kosningum, en síðustu dagana
virðist harka farin að færast í
leikinn.
Af hinum flokkunum virðist
Fólkaflokkurinn einna líkleg-
astur til að koma manni að og
yrði það þá Hákon Djuurhus,
sem er hlutlaus á danska þing-
inu.
Ef þessar gömlu kcmpur,
sem báðir hafa setið á danska
þinginu, komast ekki að, era
fleiri möguleikar fyrir hendi:
Ef kosningaþátttakan verður
góð í þessum kosningum, hvað
hún er venjul. er ekki í þing-
Framrald á bls. 14.
óigla inn Hotnafjörð í biíðunni, og í baksýn eru Hornófjarðarfjöllin. (Tímamynd Kárfi