Tíminn - 05.10.1971, Side 5
Í»RIÐJUDAGUR 5. október 1971
TIMINN
5
DENNI
DÆMALAU5I
— Kannski þeir hafi allir
breytzt í fiðrildi og flogið burtu.
Elísabetu Taylor er nú farið
að faxa talsvert aftur, enda er
hún að verða fertug. Hún viður-
kennir fúslega sjálf, að hið full-
komna andlit hennar sé ekki það
sem það eitt sinn var. Hún hef-
ur einni höku of mikið og hrukk
urnar eru orðnar fastar kring-
um Þessi fögru, fjólubláu augu.
En það er ekki að tala um að
beita neinum brögðum til að af-
má merki ellinnar. Liz hatar
andlitslyftingar og allt þess hátt
ar. — Hver einasta hrukka, seg-
ir hún, - er afleiðing þess lífs,
sem maður hefur lifað, og þar
með hluti af persónuleikanum.
Maður á að vera stoltur af þeim.
Vafalaust hefur Liz þarna mjög
svo rétt fyrir sér, en spurning-
in er, hvort einhverjar af
„eldri“ kvikmyndaleikkonunum
eru sammála kynsystur sinni.
Ekki er annað að sjá, en hvukk-
urnar fari Elísabetu bara allvel.
ukUMmmuiinmuuJUiiiiiiiiiWMHiinnnnimiiinnniiuimmiiiiiiiuiimiunminninmiunuiauminiimmunm »*♦
MEÐ MORGUN
KAFFiNU
Pálmi Ólafsson heitir maður.
Hann var um skeið kyndari á
togarar hjá Þórarni Olgeirssyni,
sem þá var skipstjóri.
Einu sinni var Það, að Pálmi
kom upp úr kyndirúminu. Hann
hafði svitnað mikið og sá ekki
f hann fyrir kolaryki og salla.
Þegar skipstjóri kom auga á
hann, varð honum að orði:
„Ósköp eru að sjá þig, maður!
Þú ert eins og svertingi í fram-
an. Af hverju ertu svona?“
„Það er af því að kolin eru
ekki hvít,“ svaraði Pálmi þá.
Björn Jónsson „keyrari" á
Síglufirði ók einu sinni Jakobi
Havsteen kaupmanni á Akureyri
Og nokkrum öðrum heldri mönn-
um frá skipsfjöl upp að Hvann-
eyri í Siglufirði.
Á leiðinni spurði Jakob:
„Keyrið þér sfld?“
„Já, — og þorska,“ svaraði
Björn.
Þeir þögðu.
Sveitarígur mun hafa verið
nokkur milli Berfirðinga og
Breiðdæla.
Á Djúpavogi höfðu menn það
skimp, að Skúli fógeti hefði
fundið upp hjólbörurnar'til þess
að kenna Breiðdælingum að
ganga á afturfótunum-1
Matthías Jochumsson orti út-
fararljóð, sem sungin voru við
jarðarför Jóns Sigurðssonar og
konu hans.
I þeim skáldskap voiru tvær
ljóðlínur, sem mönnum gekk
illa að skilja, en Grímur
Thomsen kom með þessa skýr-
ingu:
„ „Mikli freysroðinn rauði.“
— Það er auðvitað Jón Sigurðs-
son.
„Reykur, bóla, vindaský.” —
Það er Matthías.“
Skúli á Keldum var ekki
kvörtunarsamur, þó að eitthvað
blési á móti.
Eitt sumarið leit mjög illa út
með grassprettu þar eystra á
Rangárvöllum.
Þegar komið var nálægt slátt-
arbyrjun, var Skúli staddur á
mannfundi niðri í sveitinni.
Bændur býsnuðu mjög fyrir
sér. sprettuleysið, og einn þeirra
vék sér að Skúla og spurði:
„Hvernig er grasið rjá þér,
Skúli?“
„Ha, grasið?“ sagði Skúli.
„Það er grænt.“
Sr. Bjarni Jónsson var settur
biskup um skeið.
Pétur Ottesen alþingismaður
hringir þá eitt sinn til hans og
spyr, hvort hann tali við biskup-
inn yfir íslandi.
Sr. Bjarni spyr á móti, hvort
hann hafi heyrt söguna af telp-
unni, sem var að hlusta á út-
varp og sagði við móður sína:
„Þulurinn var að tala um
lægð yfir Grænlandi og biskup-
inn yfir íslandi — Kemur þá
ekki vont veður mamma?"
Nú hefur Júlíana Hollands-
drottning enn einu sinni verið
að ergja þegna sína. Hún hefur
reyndar alla tíð verið í sam-
bandi við „annan heim“, nokk-
uð sem olli henni vandræðum,
þegar hún fór til spákonu og
tók síðan stjómmálalegar á-
kvarðanir eftir hennar sögn.
Þetta var 1956. Nú hefur drottn
ingin aftur leitað ráða andanna,
—- ★ —★ —
Karl Gustaf, „Tjabbe“ Svía-
prins, er hið mesta kvenna gull,
eins og flestir vita. En nú þykir
ýmsum kominn tími til að hann
fari að festa ráð sitt, og þá eink-
um afa hans, hinum 87 ára
gamla Svíákonungi. Sá gámli
vill helzt, að prinsinn kvænist
Önnu Bretaprinsessu, en það
segir Tjabbe, að ekki komi til
mála. Nýlega var blaðamaður
frá brezka blaðinu Daily Mirror
staddur í Stokkhólmi og átti
hann þar viðtal við prinsinn um
samband Þeirra Önnu. Éins og
flestir vita, hafa oft sézt myndir
af þeim saman og hann hefur
skroppið í heimsókn þangað.
En prinsinn vill ekki meina, að
þetta sé neitt meira. — Ég elska
hana ekki og ég held, að það
sama sé að segja um hana. Við
skrifumst ekki á og hringjum
heldur ekki hvort til annars.
Svo var prinsinn spurður að
því, hvers vegna hann væri þá
svo oft að hitta hana.
— Það er afi, sem hefur kom
ið því til leiðar, svaraði Tjabbe.
— Eg held, að hann vilji endi
lega, að það vetðum við tvö og
ég er viss um, að það var upp-
í þetta sinn gegnum mann
nokkurn, sem segist geta lækn-
að fólk með einhverju segul-
magni, sem í sér sé. Drottning-
in kallaði á segulmanninn til að
lækna veikindi tengdamóður
sinnar, sem er 87 ára. Talið er
að þetta geti leitt til þess, að
Beatrix prinsessa setjist fyrr í
hásætið en ella.
— ★— ★ —
runalega þessvegna, að við vor-
um alltaf bæði boðin í sömu
veizlurnar og kynntumst. Við
erum ágætis kunningjar og mér
finnst Anna sérstaklega indæl
stúlka, en ég elska hana bara
ekki.
— Hefurðu verið ástfanginn?
spyr blaðamaðurinn.
Þá roðnaði krónprinsinn og
yppti svo öxlum. — Já, en það
var bara ekki hægt . . .
Að lokum spurði blaðamað-
urinn, hvort prinsinn héldi, að
hann myndi kvænast prinsessu.
Prinsinn vildi ekki svara beint,
en sagði: — Þegar ég gifti mig,
verður það aðeins af ást, ekki
neinu öðru.
Elzti maður í Rússlandi, Sji-
rali Mislimov frá Aserbaidsjan,
er 166 ára að aldri og nú eru
afkomendur hans orðnir 220 tals
ins. Þeir voru 117 þar til fyrir
örfáum dögum, að dóttur-dóttur-
dóttir hans eignaðist þríbura,
allt stúlkur. í frétt þessari, sem
cir frá Tassfréttastofunni komm,
segir að lokum, að þríburamóð-
irin hafi átt 10 börn fyrir, eftir
13 ára hjónaband og að langa-
langafanum líði vel og sé hress
og kátur.
— ★ — ★ —
Tveggja ára ítölsk stúlka,
Lydia að nafni, er alveg að setja
foreldra sína á kúpuna. Hún ét-
ur þá hreinlega út á gaddinn.
En þetta er nauðsynlegt ijrir
litlu stúlkuna, ef hún á at? halda
lífi. Barnið hefur mjög sjald-
gæfan efnaskiptasjúkdóm, sem
ekki er hægt að lækna með
lyfjum og hún er of ung til að
þorandi sé að skera hana upp.
Til að líkami hennar fái nóg f
vítamínum og eggjahvítuefni til
að halda lifi, þarf blessað barn-
ið að innbyrða gríðarlegar mál-
tíðir á dag. Hún borðar til jafn-
aðar á dag eitt kíló af kjúkl-
ingum, kálfakjöti og héra, sex
egg, tvö kfló af banönum og tvo
til þrjá lítra af mjólk í aðal-
máltíð, en auk þess snæðir hún
millimáltíðir, sem samanstanda
af þrem lítrum af vatni, gulrót-
um, selleríi, spínati, smjöri,
osti og baunum. Til að fjölskyld-
an hafi efni á þessum ósköpum,
hafa flest húsgögnin á heimilinu
verið seld. Lydia litla á tvö syst-
kini, sem verður að loka inni, til
að þau sjái ekki systur sína
borða, því þau geta ekkert feng-
ið nema kássu og hrísgrjón. —
Þrátt fyrir ótal umsóknir hef-
ur ríkið ekki enn fallizt á að
styrkja foreldra Lydiu til matar-
kaupanna. Læknirinn segir, að
ef Lydia fái ekki allt Það að
borða, sem hún þurfi, muni hún
fá hægan dauðdaga.
-★-★■