Tíminn - 05.10.1971, Qupperneq 12
12
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 5. c.któber 1971
Þróttur sló út Þrótt
- Þróttur Re. sigraði Þrótt Nk. 6:2 og er þar með kominn
í 8-liða úrslit í Bikarkeppni KSÍÍ.
Þeir yngstu gerðu aftur jafntefli
Úrsti+aleikurirtn milli KR og Fram í 5. flokki í íslandsmótinu í kna+tspyrnu — sá annar í röðinni — fór
fram á sunnudaginn á Melavellinum. Lauk leiknum eins og fyrri leiknum meS jafntefti, 0:0, og verða því
Hðin *ð mætast enn einu sinni. KR og Fram munu einnig mætast í úrslitaieiknum í 2. fiokki, því um
helgina sigraöi KR ÍBA 3:1 og Fram sigraði ÍBA 1:0 í úrslitakeppninni í þessum flokki.
Reykvíski Þróttur varð sér úti
um sæti í 8-liða úrslitum í Bik-
arkeppni KSÍ sl. laugardag, er
það' sigraði nafna sinn frá Nes-
kaupstað 6:2 í leik liðanna, sem
fram fór á velli hinna síðar-
nefndu. Þetta var í 3ja sinn í
sumar sem nafnarnir mætast, og
þetta var í 3ja sinn sem „stóri
Þróttur“ fór með yfirburða sig-
ur af iiólmi. Fyrri leikjunum
tveim, sem báðir voru í 2. deild,
lauk með stórum töluin — 8:2 og
6:1 — en samtals hefur Þróttur
Reykjavík sigrað Þrótt frá Nes-
kaupstað 20:5 í þessum þrem
leikjum.
Hinir austfirzku Þróttarar gengu
ákveðnir til leiks, enda höfðu þeir
Isfirðingar féllu fyrir Akureyringum
- Dómarinn dæmdi þrjár vítaspyrnur í leiknum, en sleppti þeirri fjórðu á lokamínútunum
,,Það var annarrardeildar lykt
af Akureyringum í þessum leik,“
sagði fréttaritari okkár á lcik
ísafjarðar og Akureyrar í Bikar-
keppni KSÍ, sem fram fór á ísa-
firði á sunnudaginn, þegar við
hringdum vestur til að fá nánari
fregnir af leiknum. „Þeir voru
ekki betri en miðlungs 2. deildar
lið, sem hér liafa leikið í sumar,
og þeir geta talizt Iicppnir að
feomast áfram í keppninni, því að
þeir voru engan veginn betri en
ísfirðingar — en örlítið heppnari
og þcir höfðu dómara leiksins
sem er héðan, Jens Kristmanns-
son, með sér á lokamínútunum,
þegar hann sleppti augljósri víta-
spyrnu á Akureyri.“
— Þegar það gerðist var stað-
an 3:2 fyrir Akúreyri og höfðu ís-
firðingarnir sótt án afláts síðustu
15 mín. Þá sló einn af varnar-
mönnum Akureyrar boltann inn í
vítateig á síðustu sek. leiksins,
og bjuggust allir við að dæmd
yrði umsvifalaust vítaspyma, því
að dómarinn hafði fyrr í leiknum
verið búinn að dæma þrjár slíkar
á enn minni brot, en þessari
sleppti hánn. Var mikil óánægja
meðal áhorfenda með þetta, og
höfðu menn orð á því eftir leig-
inn, að ef leikurinn hefði farið
fram fyrr um daginn, hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki fengið
nema 2 menn kjörna í kosning-
unum, sem fram fóru í dag, því
Jens var þar fimmti maður á
lista þeirra.
Þetta var annars góður leikur
og skemmtilegur — einn af þeim
betri sem hér hafa farið fram.
ísfirðingar byrjuðu að skora á
15. mín. Það var Jóhann Torfa-
son. sem skoraði markið eftir gott
upphlaup. Akureyringar fengu
sitt bezta tækifæri í hálfleiknum
þegar þeir fengu vítaspyrnu, en
Magnús Jónatansson skaut úr
henni fram hjá marki.
í síðari hálfleik var aftur
dæmd vítaspyma á ÍBÍ og þótti
mönnum það strangur dómur.
Einn varnarmaður datt á boltann
og var honum spyrnt í hendi
hans, þar sem hann lá. Magnús
Valur í vandræðum á Húsavík
fékk ekki að taka þessa spyrnu,
en Skúli Ágústsson settur til þess
í staðinn og skoraði hann örugg-
lega úr henni.
Skömmu síðar komust Akureyr-
ingar yfir, 2:1, þegar útherji
þeirra komst í sendingu sem ætl-
uð var markverði og skoraði
hann auðveldlega. Við þetta dofn-
aði yfir heimamönnum og Akur-
eyringar skoruðu aftur. Var það
gott mark hjá Skúla Ágústssyni,
eftir skemmtilegt upphlaup upp
miðjuna.
Þegar svo um 20 mín, voru eftir
var enn dæmd vítaspyrna, að
þessu sinni á Akureyringa, og
skoraði Albert Guðmundsson úr
henni. Það er ekki Albert for-
maður KSÍ, heldur nafni hans,
sem einnig er stór og sterkur —
en ekki eins lipur og sá gamli.
Við þetta mark byrjaði aftur að
Framhald á bls. 14.
um helgina á undan sigrað FH,
sem var með beztu liðum í 2.
deild í sumar, 6:0, og voru þeir
því bjartsýnir á útlcomuna í þess-
um leik. En þeir vöknuðu upp
eftir að búið var af) spymu lenett-
inum á milli manna í örfáar sek-
úndur, þegar HaHdór Bragason,
sendi hann í netið eftir auka-
spyrnu, af 25 til 30>metra færi.
Við þessa byrjun brotnuðu
Austfirðingarnir niður og Sunn-
lendingarnir tóku. öll völd á vell-
inum. Þeir bættm fljótlega við
tveim mörkum, en þau gerðu þeir
Hilmar Sverrisson og Sverrir
Brynjólfsson. Örl.ítið lifnaði aft-
ur yfir Austfirðingunum þegar
Theodór Guðmuitdsson, þjálfari
liðsins minnkaði bilið í 3:1, en
rétt fyrir hálfleiik skoraði Sverr-
ir aftur og var þ<ví staðan í háK-
leik 4:1 fyrir Þróttarana í rönd-
óttu peysunum.
f síðari hálfleik var fátt um
fína drætti hjá heimamönnum, en
þó tókst þeim að skora éitt mark.
Gestirnir þökkuðu fyrir sig með
tveim til viðbótar (Hilrnar og Að-
alsteinn) og kviöddu síðan nafna
sinn á Austfjörðum að sinni.
Knattspymulega séð var leikur-
inn heldur ómerkilegur, en þó
mátti sjá þokkalegan samleik hjá
reykvízka Þrótti, enda var vöm
hinna mjög opm og óstöðug. Fjár
hagslega séð var leikurnm þó
verri, því bæði liðin töpuðu stór-
um upphæðum á honum. Innkom-
an á leikina var um 14 þús: kt,
og þegar búið var að draga frá
kostnað við dómara og IhmveiSí,
var ekki eftir nema um S þús.
krónur til skiptanna milh félag-
anna. Sú upphæð dugði skammt
upp í ferðakostnað. Hinir reyk-
vízku þróttarar þurftu að greiða
um 19 þúsund krónur til að kom-
ast austur, og hinir þurftu að
greiða álíka upphæð til að fá sína
leikmenn heim, en þeir voru marg
ir komnir suður á land, þar sem
þeir verða við nám og störf í
vetur.
Veðurguðirnir voru Valsmönnum hjálplegir, er þeir sigruðu Völsung 1:0.
Leikmenn 1. deildarliðs Vals og
3. deildar liðs Völsunga frá Húsa-
vík, sem mættust í Bikarkeppni
KSÍ s.l. laugardag, fengu á þeim
90 mín. sem leikurinn stóð, að
finna fyrir hinni duttlungafullu
veðráttu okkar íslendinga. Þeir
hófu leikinn í logni og sólskini, ]
þá kom steypiregn, síðan slyddaj
og loks hávaða rok. Við þessar j
aðstæður varð knattspyrnan j
fjölbreytt - þótt heldur væri hún
lítil — en baráttan í leiknum
því meiri.
Valsmenn höfðu orð á því eftir
leikinn, að mikið hafi þeir verið
heppnir þegar Bergsveinn Alfons-
son, fyrirliði, vann hlutkesti og
valdi rétt mark til að leika á.
Það skipti engu máli þegar leik-
urinn var að hefjast, á hvort mark
ið væri leikið, því þá var blanka
logn. En í síðari hálfleik fór að
hvessa og léku þá Valsmenn und
an sterkum vindi, og réði það
öllu. Þeir töldu að ef heimamenn
hefðu verið undan í síðari hálf-
leik, hefðu þeir sjálfsagt orðið
sigurvegarar í leiknum, því að þeir
hafi verið aðgangsharðir, og
hefðu þeir ekki boðið í að mæta
þeim ef þeir hefðu haft vindinn
með sér.
Húsvíkingarnir voru betri aðil-
inn í leiknum í fyrri hálfleik og
hefði lítið verið hægt við því að
segja þó að þeir hefðu haft
yfir í leikhléi. Þeir áttu í
upphafi tvö góð tækifæri, sérstak-
lega þó annað, en þá tókst Sig-
urði Dagssvni að verja á síðustu
stundu með því að reka tána í
knöttinn og breyta stefnu hans
þannig, að hann fór fram hjá i
stað þess að fara í mark. Það var
feikna kraftur í Völsungum, sem
REYKJANESMÓT í KYRRÞEY?
f niikilli kyrrþey hófst Reykja-
nesmótið í handknattleik um síð-
ustu helgi. Þá léku í íþróttahús-
inu í Hafnarfirði Haukar og
Grótta og lauk þeim leik með
sigri Hauka 22:17.
Gróttuliðið kom Haukunum
sýnil. á óvart, því að þeir voru í
hinum mestu vandræðum með
það. Var staðan í hálfleik jöfn,
8:8, og var það ckki fyrr en undir
lokin að Haukunum tókst að
tryggja sér sigur.
Eftir því sein við höfum frétt
mun mótið halda áfram á morgun
á sama stað, og leika þá FH og
Haukar. Ætti það að geta orðið
hörð viðurgein, því Haukarnir eru
allt annað en hressir út í FH-
inga, sem tekið hafa frá þeim
tvo góða leikmenn, og fá þeir
því sjálfsagt óblíðar viðtökur.
höfðu á sínum snærum tvo fyrr-
verandi landsliðsmenn, þá Hrein
Elliðason og Halldór Björnsson
auk frábærs markwarðar,, sem var
Sigurður Þór Pétursson, er lék
áður með yngri flokkunum hjá
mótherjanum í þessum leik, Val.
Valsmenn voru slakir í fyrri
hálfleik, en vörnin stóð þó fyrir
sínu þá stundina. í síðari hálfleik
reyndi lítið á hann, því að þá byrj
aði að hvessa og heimam. urðu að
draga sig aftur, til að verjast
pressu Valsmanna undan vindin-
um. Áttu þá Valsmenn nokkur góð
tækifæri, en þeirra fyrrverandi
markvörður gerði þeim lífið leitt,
með því að verja meistaralega
hvað eftir annað. Voru þeir farn-
ir að halda að ekki væri hægt að
koma knettinum í netið hjá hon-
um, en þeim tókst það þó loks,
og var Ingvar Eliasson þar að
verki með lúmsku skoti, sem end-
aði í bláhorninu.
Þetta mark nægði Valsmönnum
til sigurs í leiknum og kom þeim
í 8-liða úrslit. Völsungarnir áttu
ekki svar við þessu marki, því
þótt þeir næðu skyndiupphlaup-
um á milli gegn vindinum, tókst
þeim ekki að komast í almennileg
færi og urðu því að sætta sig við
að tapa þessum leik. Var það
sárt, því þeir voru sízt lakari en
1. deildarleikmennirnir að sunn-
an on við veðurguðina réðu þeir
ekki.
Björgvin Björgvinsson, Fram, reynir hér aS komast í gegnum varnarvegg-
inn hjá KR, í hinum sögulega leik í gaerkveidá. (Tímamynd Róbert)