Fréttablaðið - 26.01.2004, Qupperneq 17
Bjarni Benediktsson, þingmað-ur Sjálfstæðisflokksins, er 34
ára í dag. Af því tilefni er hann
staðráðinn í því að leyfa sér að
brjótast út úr hversdagsleikanum.
Öfugt við marga felst það í því að
taka því rólega og halda ekki veis-
lu, enda voru þrjú þorrablót á dag-
skrá vikunnar.
„Ég man nú ekki eftir því að
það hafi neitt stórkostlegt gerst á
afmælisdaginn minn,“ segir hann
líklegast bara vegna þess eins að
hann getur ómögulega munað eft-
ir sinni eigin fæðingu. „Þetta hef-
ur alltaf verið mjög þægilegur og
góður dagur. Konan mín er meira
afmælisbarn heldur en ég. Hún
sér alltaf til þess að þessi dagur
verði ekki alveg eins og hversdag-
urinn. Ég veit ekki hvað við
ákveðum að gera, kannski borða
mat heima og hafa það huggulegt
með börnunum.“
Afslöppunin er kærkomin enda
hefur Bjarni átt í mörgu að snúast
síðustu daga. „Á föstudagskvöld
var þorrablót í Íþróttahúsinu í
Garðabæ. Ég er formaður í knatt-
spyrnudeildar Stjörnunnar og við
fengum 600 manns í mat svo var
ball á eftir. Á laugardag vorum
við að klára heimsóknir í bæjarfé-
lögin í kjördæminu. Erum búin að
halda fundi í öllum bæjarfélögum.
Dagskrá laugardags endaði á
þorrablóti í Kópavoginum. Það
hefur því verið nóg að gera. Svo
er maður byrjaður að huga að
þeim málum sem bíða þegar þing-
ið kemur aftur saman í vikunni.“
Bjarni er greinilega ekki mik-
ið fyrir það að klappa sjálfum
sér á bakið. Hann hefur að
minnsta kosti ekki haldið afmæl-
isveislu frá því að hann fagnaði
þrítugsafmælinu. „Maður gerir
ekkert stórmál úr því þegar
afmælin eru ekki tímamóta-
afmæli. Ég býð kannski ein-
hverjum heim til mín á næsta ári
þegar ég verð 35 en næsta stór-
veisla verður ekki fyrr en ég
verð 40 ára. Ég held ekki svaka
partí í hvert sinn sem ég á af-
mæli,“ segir Bjarni að lokum. ■
17MÁNUDAGUR 26 janúar 2004
Afmæli
BJARNI BENEDIKTSSON
■ alþingismaður fagnar 34 ára afmæli
sínu í dag. Ætlar að taka því rólega.
Rólegur á milli þorrablóta
BJARNI BENEDIKTSSON
„Maður gerir ekkert stórmál úr því þegar
afmælin eru ekki tímamótaafmæli. Næsta
stórveisla verður ekki fyrr en ég verð 40
ára. Ég held ekki svaka partí í hvert sinn
sem ég á afmæli.“
Það var á þessum degi árið 1972sem söngkonan stórkostlega
Mahalia Jackson dó. Hún var far-
þegi á jörðu í 61 hring í kringum
sólina áður en hún kvaddi þennan
heim.
Mahalia fæddist í New Orleans
árið 1911. Líf Mahaliu var ekkert
alltaf dans á rósum. Mahalia vann
fyrir sér sem þjónustustúlka,
hjúkrunarkona, eigandi fegrunar-
stofu og afgreiðslukona í blóma-
búð. Hún söng með kirkjujór
babtista og tileinkaði sér snemma
að syngja til dýrðar drottni.
Hún gerði sína fyrstu plötu árið
1937 og varð á skömmum tíma ein
þekktasta gospelsöngkona allra
tíma. Hún var góð vinkona Arethu
Franklin og átti það einnig til að
koma fram með Duke Ellington.
Hún kunni þó ekki vel við að láta
tengja sig djass- eða blússenunum
sem hún hafði þó áhrif á.
Sem dæmi um hversu virt hún
var í heimalandinu sínu þá söng
hún í Hvíta húsinu þegar John F.
Kennedy var vígður í forsetaemb-
ættið og í jarðaför Martin Luther
King Jr. Mahalia virti þann mann
mikils og söng lagið Precious
Lord sem hann hafði beðið um
sem óskalag á einum tónleika
hennar.
Mahalia blandaði sér í réttlæt-
isbaráttumál blökkumanna og dró
sig í hlé árið 1968 eftir að King og
Kennedy-bræðurnir voru myrtir.
Um svipað leyti skildi hún við eig-
inmann sinn og var mikið skrifað
um skilnaðinn í blöðum. Það tók
þungt á Mahaliu og hún fékk röð
hjartaslaga auk þess sem hún
grenntist ógurlega.
Á seinni árum sínum náði hún
þó aftur jafnvægi og hélt kveðju-
tónleika í Þýskalandi árið áður en
hún dó. ■
MAHALIA JACKSON
Blandaði sér í réttindamál blökkumanna auk þess að vera talin
ein merkasta gospelsöngkona allra tíma.
Mahalia Jackson deyr
Danska nektardansmærin Liaer byrjuð að dansa á súlu-
staðnum Bóhem við Grensásveg.
Þetta þætti
vart í frá-
s ö g u f æ r -
andi nema
fyrir þær
sakir að Lia,
sem dansar
u n d i r
sviðsnafn-
inu Miss
Lia, er sjálf-
sagt fræg-
asta nektar-
d a n s m æ r
Danaveldis
eftir að hún
komst í
heimsfréttir
f y r i r
n o k k r u m
árum þegar
hún krafðist
þess að danska ríkið endurgreiddi
sér brjóstastækkunaraðgerð.
Lia tekur starf sitt hátíðlega en
gerir sér þó grein fyrir því að líf-
tími nektardansmeyja er tak-
markaður.
„Ég á það til að týna mér í tölv-
um og ég vona að ég eigi eftir að
geta menntað mig á þessu sviði.
Þá hef ég eitthvað spennandi að
snúa mér að þegar ég hætti að
dansa,“ segir Lia á heimasíðunni
sinni, www.lia.dk, sem hún bjó til
sjálf.
Þar segist hún einnig elska það
að dansa, daðra og ögra á
skemmtilegan hátt. „Þetta er ein
af ástæðunum fyrir því að ég er í
þessum bransa,“ segir Lia sem
tekur einnig að sér heimasíðugerð
í hjáverkum.
Hún dansar aðallega í Dan-
mörku en bregður sér stundum út
fyrir landsteinana og er nú mætt
til Íslands til þess að sýna áhuga-
sömum brjóstin dýrkeyptu og um-
deildu. ■
LIA
Frægasta nektardansmey
Danaveldis er byrjuð að
dansa á Bóhem við
Grensásveg. Myndir af
henni hafa birst meðal
annars í Se og hör í Dan-
mörku og Noregi og
dönsku klámblöðunum
Rapport og Cats.
Dýr myndi daman öll
Strippl
MISS LIA
■ Hin danska Lia dansar nú á Bóhem.
Hún komst í heimsfréttir þegar hún
krafði danska ríkið um endurgreiðslu á
brjóstastækkun.