Fréttablaðið - 04.02.2004, Blaðsíða 6
6 4. febrúar 2004 MIÐVIKUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 68,9 -0,71%
Sterlingspund 126,61 0,12%
Dönsk króna 11,62 0,10%
Evra 86,53 0,09%
Gengisvísitala krónu 119,20 0,00%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 415
Velta 2.358 milljónir
ICEX-15 2.359 -0,58%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 191.860
Straumur Fjárfestingarbanki hf 153.032
Eimskipafélag Íslands Hf. 85.273
Mesta hækkun
Vinnslustöðin hf. 6,25%
Össur hf. 3,36%
Jarðboranir hf. 2,61%
Mesta lækkun
Guðmundur Runólfsson hf. -8,45%
Grandi hf. -3,57%
Nýherji hf. -2,20%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.509,0 0,1%
Nasdaq* 2.067,8 0,2%
FTSE 4.388,9 0,2%
DAX 4.055,6 -0,4%
NK50 1.354,6 -0,4%
S&P* 1.135,4 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hver stýrði fundi ríkisráðs í fjarveruÓlafs Ragnars Grímssonar?
2Hvað heitir demókratinn sem líkleg-astur er til að hljóta útnefningu
flokksins fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum?
3Hvað heitir liðið sem sigraði í leiknumum Ofurskálina (Super Bowl)?
Svörin eru á bls. 30
LÖGFRÆÐI „Gamla starfið hentar
mér betur,“ segir Vilhjálmur H.
Viðhjálmsson lögmaður, sem
sagt hefur starfi sínu sem borg-
arlögmaður lausu eftir að hafa
sinnt því í fjóra mánuði.
Vilhjálmur hefur undanfarin
ár verið áberandi í starfi sínu
þar sem hann hefur sérhæft sig
í skaðabótarétti. Hann hefur
unnið þar stóra sigra eins og í
svokölluðu Æsumáli þar sem
Kolbrún Sverrisdóttir, ekkja
skipstjóra skelbátsins Æsu, var
skjólstæðingur hans. Kolbrún
og börn hennar fengu dæmdar
milljónir í bætur. Mörgum þótti
sjónarsviptir að Vilhjálmi þegar
hann gerðist borgarlögmaður.
Sjálfur hefur hann komist að
þeirri niðurstöðu að rétt sé að
snúa aftur í almenn lögfræði-
störf.
„Ég hlakka til að byrja aftur í
almennum málflutningi. Þessi
tími hjá Reykjavíkurborg hefur
verið lærdómsríkur og þar hef-
ur mér verið tekið vel en hitt
starfið hentar mér betur,“ segir
Vilhjálmur. ■
STJÓRNMÁL „Einhverra hluta vegna
var forsetinn ekki á boðslistanum.
Fólk hér í bænum undrast það
mjög,“ segir Bryndís Friðgeirsdótt-
ir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, um
hátíðarhöld sem haldin voru um
miðjan janúar á
Ísafirði til að
fagna 100 ára af-
mæli heima-
stjórnar á Ís-
landi. Þar var
Ólafur Ragnar
Gímsson, forseti
Íslands, fjarri
góðu gamni líkt
og almenningur
og bæjarfulltrú-
ar Samfylkingar,
sem þó var boðið
til hátíðarkvöld-
verðar en mættu ekki. Kvöldverð-
urinn var haldinn í nafni menning-
armálanefndar bæjarins en Halldór
Halldórsson bæjarstjóri og Birna
Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar,
skrifuðu undir
boðskortin.
„Ég saknaði
þáttöku almenn-
ings í hátíðar-
höldunum og sá í
því ljósi ekki
ástæðu til að
mæta sjálf.
Þarna var stjórn-
sýslan að
skemmta sér,“
segir Bryndís.
Lárus Valdi-
marsson, oddviti
Samfylkingar í
minnihluta bæjarstjórnar, segir að
ekki hafi verið samantekin ráð hans
og Bryndísar að mæta ekki. „Á sín-
um tíma var samþykkt að fela
menningarmálanefnd að koma með
tillögur um hátíðarhöld. Þegar allt
hafði verið ákveðið fréttum við að
haldinn yrði fínn kvöldverður,“ seg-
ir Lárus.
Hann segir að áætlað hafi verið
að hlutdeild Ísafjarðarbæjar í hátíð-
arhöldunum yrði 750 þúsund krón-
ur. Til kvöldverðarins hafi verið
boðið bæjarstjórn, menningarmála-
nefnd og örfáum starfsmönnum,
þingmönnum og ríkisstjórn en
reyndin hafi verið sú að aðeins tveir
ráðherrar mættu og alls hafi 50
manns setið veisluna. Hann segir að
nær hefði verið að halda samsæti
þar sem bæjarbúar hefðu fagnað af-
mælinu með ráðamönnum.
„Þarna voru valdastéttirnar
saman komnar að nudda saman
axlapúðum og láta glamra í skart-
gripunum. Þetta var hirðin. Ég set
spurningarmerki við það í niður-
skurði á þjónustu við bæjarbúa
hvort þetta hafi verið rétta aðferð-
in,“ segir Lárus. ■
Guðjón A. Kristjánsson:
Keimur af
deilum
RÍKISRÁÐSFUNDUR Guðjón A. Krist-
jánsson, Frjálslynda flokknum,
gagnrýndi það á
Alþingi í gær að
boðað hefði verið
til ríkisráðsfundar
án þess að forseti
lýðveldisins væri
látinn vita um
fundinn fyrir
fram.
„Mér finnst umræðan sem ver-
ið hefur um umræddan ríkisráðs-
fund bera nokkurn keim af deilum
milli forsætisráðherra og forseta
lýðveldisins, kannski frá fyrri tíð,
en um það get ég ekki sagt.“ ■
HALLDÓR HALLDÓRSSON
Halldór segir að horft hafi verið til Alþingis
þegar boðið hafi verið til hátíðarhalda
vegna afmælis heimastjórnarinnar.
Halldór Halldórsson:
Afmæli
heimastjórnar
AFMÆLI „Við undirbúning afmælis-
ins var fyrst og fremst horft til Al-
þingis og ríkisstjórnarinnar vegna
þess að verið var að minnast tíma-
móta fyrsta ráðherra Íslands og
heimastjórnarinnar en embætti
forseta Íslands kemur til fjörutíu
árum seinna,“ segir Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði.
Forseta Íslands, Ólafi Ragnari
Grímssyni, var ekki boðið að vera
við hátíðarhöld vegna afmælis
Heimastjórnarinnar sem haldin
var á Ísafirði um miðjan janúar. ■
Játaði sekt sína:
Flutti inn
klámmyndir
DÓMSMÁL Mál manns sem ákærð-
ur hefur verið af ríkissaksókn-
ara fyrir kynferðisbrot var tek-
ið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær.
Manninum er gefið að sök að
hafa flutt inn frá Bandaríkjun-
um klámmyndir á 56 stafrænum
myndadiskum í útbreiðsluskyni.
Maðurinn játaði brot sín fyrir
dómi í dag og er málinu lokið.
Dómur verður kveðinn upp síð-
ar. ■
36/14,50 R 15 GROUND HAWG 28,900. -
38/15.50 R 15 GROUND HAWG 29,900. -
36/14,50 R 16,5 GROUND HAWG 32,900,-
38/15,50 R 16,5 GROUND HAWG 39,900,-
44/18,50 X 15 GROUND HAWG 45,000,-
44/18,50 X 16,5 GROUND HAWG 49,900,-
STÁLFELGUR 12 TOMMU BREIÐAR 12,900,-
STÁLFELGUR 14 TOMMU BREIÐAR 13,900,-
HJÓLBARÐAHÖLLIN H/F
FELLSMÚLA 24 SÍMI - 530 5700
Lækkað verð
á GROUND HAWG
jeppadekkjum
Dollarinn lækkar
og við lækkum líka.
VILHJÁLMUR H.
VILHJÁLMSSON
Snýr aftur til almennra
starfa sem lögmaður.
Fráfarandi borgarlögmaður:
Gamla starfið hentar betur
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Forseta Íslands var ekki boðið til Ísafjarðar. Almenningur er sagður undrast það.
HANNES
HAFSTEIN
Því var fagnað á Ísa-
firði að 100 ár eru
senn liðin frá því að
heimastjórnin var
sett á laggirnar.
BRYNDÍS
FRIÐGEIRSDÓTTIR
Mætti ekki í afmæl-
ið, sem einungis var
ætlað útvöldum.
Forsetanum ekki
boðið til Ísafjarðar
Oddvitar Ísafjarðarbæjar buðu forseta Íslands ekki til hátíðarhalda
vegna 100 ára heimastjórnarafmælis. Bæjarfulltrúar Samfylkingar
mættu ekki fremur en almenningur, sem er sagður undrandi.
Reykjavík:
Innbrot í
Grafarvogi
LÖGREGLAN Brotist var inn í heild-
sölu í Grafarvogi í nótt. Gluggi
hafði verið spenntur upp en engu
stolið svo vitað sé. Á svipuðum
slóðum var brotist inn í bíl og úr
honum stolið hljómflutningstækj-
um. Einn maður var handtekin
skömmu síðar og reyndist hann
vera með þýfið úr bílnum og öðr-
um innbrotum í bíl sínum. ■
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON