Fréttablaðið - 04.02.2004, Qupperneq 18
nám o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur námi
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: nam@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
FRÆÐSLULEIKIR
FÁST Í BT
Keramiknámskeið
Unnið með brennda
og óbrennda leirmuni,
glerungar, steinalitir o.fl.
Vikulegir tímar í 6 vikur,
hefjast 9.feb. kl. 20-23.
Verð aðeins kr. 5000.
Laugavegi 48b, sími 552 2882,
meira á www.keramik.is
eða í netpósti: keramik@keramik.is
Skemmtilegar aðferðir við málun og skreytingu á nytjahlutum.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
Y O G A Y O G A Y O G A
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur.
www.yogaheilsa og NÝTT! Astanga joga
Mikill fjöldi sótti ráðstefnunaBætt líðan – betri skóli, um
aðgerðir til að draga úr álagi og
koma í veg fyrir kulnun starfs-
manna í grunnskólum.
„Fyrir tveimur árum gerðum
við vinnustaðagreiningu í grunn-
skólum. Niðurstaðan var sú að
starfsfólk í grunnskólum upplifði
meiri streitu og álag en almennt
gerist í viðmiðunarhópum. Ákveð-
ið var bregðast við og bæta vinnu-
umhverfið, með það að markmiði
að bæta skólann fyrir nemend-
urna,“ segir Ingunn Gísladóttir,
starfsmannastjóri hjá Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur. „Við réðum
til okkar mannauðsráðgjafa á
fræðslumiðstöð, en markmiðið í
þeirra starfi er að styrkja stjórn-
endur í þeirri viðleitni að bæta
vinnuumhverfið. Einnig fórum
við í samstarf við trúnaðarlækni
Reykjavíkurborgar og stærstu
stéttarfélögin. Árangurinn er sá
að búið er að koma á fót vinnuum-
hverfisteymum í næstum öllum
skólum. Teymin eru skipuð starfs-
mönnum úr hverjum skóla sem
reyna að bæta eigið vinnuum-
hverfi og láta sig varða alla þætti
sem tengjast starfsánægju.
Ráðstefnan nú er liður í að
fylgja eftir þessari vinnu sem
komin er af stað. Við leggjum
áherslu á að allir starfsmenn geti
haft áhrif á vinnuumhverfi sitt og
að mikilvægt sé að þeir fái tæki-
færi til þess. Viðbrögðin við ráð-
stefnunni sýna okkur að þessi um-
ræða hefur haft rétt á sér og fólk
virðist mjög ánægt með framtak-
ið. Við munum halda áfram að
styðja þessi teymi innan skólanna,
en ég tel mjög mikilvægt að
starfsmennirnir taki á þessum
málum sjálfir.“ ■
Breytt viðhorf og skipulag:
Sameiginleg
ábyrgð
Áráðstefnunni Bætt líðan – betriskóli sagði fulltrúi Árbæjar-
skóla frá því hvernig unnið hefur
verið að því að bæta vinnuum-
hverfi í skólanum.
„Við höfum kallað fólk til auk-
innar ábyrgðar í skólastarfinu, um
fleiri þætti en snerta beinlínis
starf þeirra,“ segir Þorsteinn Sæ-
berg, skólastjóri í Árbæjarskóla.
„Þetta leiðir af sér breytt viðhorf
og skipulag innan skólans. Þeir
kennarar sem vilja setjast í stýri-
hópa þar sem fjallað er um einstök
málefni. Þannig leggur fólk sitt af
mörkum við að breyta og bæta. Við
settum meðal annars á fót stýrihóp
sem ber yfirskriftina Vellíðan á
vinnustað. Annar ber yfirskriftina
Kennarahjálp og veitir öðrum
starfsmönnum ráð og aðstoð af
ýmsu tagi auk þess að klappa þeim
á bakið sem vel gengur hjá og
hvetja til aukinna afreka.“
Þorsteinn segist ánægður með
árangurinn. „Við teljum okkur
vera á réttri leið. Fólk verður með-
vitaðri um vinnustaðinn og geri
sér ljóst að hann snýst ekki um ein-
staklinga heldur liðsheild. Við
höfðum líka í auknum mæli til
nemendanna. Sýnum þeim fram á
að þau eru hluti af stórum vinnu-
stað og að árangur næst ekki nema
við vinnum öll saman og öxlum
sameiginlega ábyrgð.“ ■
Dr. Daníel Þór Ólason, aðjúnkt ísálfræði við Háskóla Íslands,
fjallaði á ráðstefnunni um bjart-
sýni, svartsýni, baráttuþrek, áhrif
þess á hugsanir, tilfinningar og
heilsufar.
Niðurstöður rannsókna benda til
að bjartsýni hafi góð áhrif á líðan og
jafnvel heilsu fólks. „Bjartsýnt fólk
virðist síður líklegt til að upplifa
þunglyndi eða streitu og virðist
ánægðara með lífið yfirleitt. Ýmis-
legt bendir til þess að það sé vegna
þess að bjartsýnir takast öðruvísi á
við aðstæður en svartsýnir. Bjart-
sýnt fólk er líklegra til að leita sér
upplýsinga og reyna að takast á við
vandamálin á jákvæðari hátt,“ segir
Daníel Þór en hann fjallaði einnig
um annan eiginleika sem hann kall-
ar baráttuþrek.
„Niðurstöður rannsóknar sem ég
gerði sýndu að þeir sem mældust
með mikið baráttuþrek brugðust já-
kvæðar við streituvaldandi aðstæð-
um en þeir sem höfðu lítið baráttu-
þrek. Jafnframt virtust þeir ein-
beittari og öruggari og sýndu vilja
til að standa sig betur. En rétt er að
taka fram að frekari rannsókna er
þörf á þessu sviði.“
Bjartsýni virðist að hluta til
meðfæddur eiginleiki og að hluta til
lærð í æsku. Fólk getur þó tamið sér
bjartsýnni hugsunarhátt með því að
skoða sjálft sig kerfisbundið, hvern-
ig það bregst við í tilteknum að-
stæðum, og breyta væntingum sín-
um. „Það er því ljóst að draga má úr
svartsýni. En það krefst mikillar
vinnu.“ ■
Styrkir til þróunarverkefna
Menntamálaráðuneytið veitir árlega styrki til þróunar-
verkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu.
Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna á
skólaárinu 2004-2005. Heimilt er að sækja um styrki til
hvers kyns þróunarverkefna en verkefni tengd kennslu
á sviði starfsmenntunar og verkefni á sviði fullorðins-
fræðslu njóta forgangs. Umsóknir skulu berast mennta-
málaráðuneytinu í síðasta lagi 27. febrúar á þar til
gerðu eyðublaði sem hægt er að fá í afgreiðslu ráðu-
neytisins. Eyðublaðið er einnig að finna á vef ráðuneyt-
isins www.menntamalaraduneyti.is.
FORELDRAR HÉLDU UPPI SKÓLASTARFI Í VESTURBÆJARSKÓLA
Á meðan stór hópur starfsfólksins fór á ráðstefnuna Bætt líðan betri skóli. Í skólanum
starfa rúmlega 40 starfsmenn, sem taka í starfi sínu mið af gildunum virðing, traust, gleði,
samkennd, jákvæðni, ábyrgð og metnaður.
INGUNN GÍSLADÓTTIR
Starfsmannastjóri Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur.
Bætt líðan – betri skóli:
Glaðari starfsmenn
eru betri kennarar
DANÍEL ÞÓR ÓLASON
Fjallaði um bjartsýni og baráttuþrek á ráð-
stefnunni Bætt líðan – betri skóli.
ÞORSTEINN SÆBERG
Skólastjóri í Árbæjarskóla segir að starfs-
fólk hafi verið kallað til aukinnar ábyrgðar
um fleiri þætti í skólastarfinu.
Viðbrögð við mótlæti:
Hægt að temja sér
bjartsýnni hugsunarhátt