Tíminn - 04.12.1971, Blaðsíða 1
Verður samið í nótt eða
kemur sáttatillaga í dag?
Bjðrn Jónsson hreyfir hugmynd um starfsmat
IGÞ-Reykjavík, föstudag.
• Þá er komið að því að dragi til úrslita í samningum vinnuveitenda og fulltrúa verkalýðsfélaganna,
enda eru ekki nema tveir dagar eftir af þeim fresti, sem verkalýðshreyfingin veitti, svo hægt væri
enn að freista þess að ná fram farsælli lausn á málinu. Sáttasemjari rikisins, Torfi Hjartarson, sagði i
dag, að enn væri ekkert hægt að segja um hvernig þessu lyktaði. Hins vegar væri auðséð að nú færi
úrslitatíminn í hönd, og dragi óðum að því að í Ijós kæmi hver úrslitin yrðu.
• Hjá öðrum, sem blaðamaður Tímans hitti úr hópi viðsemjenda, mátti heyra þá skoðun, að líkleg-
ast mætti telja, að sáttasemiari leggði fram tillögu á morgun (laugardag), ef ekki gengi saman
í kvöld eða nótt.
• Björn Jónsson, forseti ASÍ, sagði að nú yrði að reyna til þrautar að ná samningum. Kvaðst hann
vera fremur bjartsýnn á að samningar gætu tekizt við vinnuveitendur. Taldi hann auðheyrilegt
að það væri hinn verri kostur, ef samningaviðleitnin endaði með sáttatillögu í stað samninga milli þeirra
aðila, sem í launadeilunni eiga.
BJÖRN JÓNSSON
— vill semja í nótt
TORFI HJARTARSON
— kemur sáttatillaga?
BJÖRGVIN SIGURÐSSON
— vongóðir, en bíða
STYRJÖLD
SKOLLIN Á
Sjá bls. 7
Enginn vildi láta hafa neitt
eftir sér um það, á hvaða stigi
viðræðurnar væru, hvaða hækk-
anir væri rætt um eða samnings-
rammann yfirleitt. Eins og áður
hefur komið fram í fréttum er
búið að víkja frá ýmsum atriðum
og sérkröfum til a@ flýta fyrir
samningum. Nú virðist liggja
frammi óformleg tillaga frá sátta
semjara um tólf prósent kaup-
hækkun á tveimur árum, sem
komi þannig, að greidd verði
fjögur prósent nú þegar, fjögur
orósent að átta mánuðum liðnum
og fjögur prósent að sextán mán-
uðum liðnum, og gildi sú hækk-
un unz tveggja ára tíma er náð.
Jafnframt mun í þessari tillögu
vera um að ræða níu prósent
hækkun handa Þeim lægst laun-
uðu nú þegar, sem komi í stað
fjögurra prósenta sem annars
yrðu greidd. En að öðru leyti
gildi samningarnir óbreyttir fyrir
lægstu launaflokkanna. Snertir
þetta m.a. starfsfólk í iðnaði og
afgreiðslufólk í búðum.
Sáttatilboð?
Atvinnurekendur höfðu í dag
engu svarað þessari hugmynd.
Það er kannski rangt að kalla
þetta tillögu, því svona hlutir virð
ast fremur vera látnir detta inn
á menn til umhugsunar. Eftir því
sem Tíminn komst næst, virfðist
seim samningsaðilar verkalýðs-
hreyfingarinnar hafi ekki heldur
svarað þessu neinu. Hins vegar
munu þeir hafa óskað eftir því að
vinnuveitendur nefndu einhverjar
nýjar tölur. Svo sitja menn og
bíða. En á meðan þeir bíða heyr-
GS—ísafirði, föstudag.
Almenn óánægja er nú ríkjandi
meðal fiskimanna hér fyrir vest
an með landhelgisgæsluna. Alla
hríðardagana í síðustu viku, voru
stóru togaramir að veiðum við
12 mílna mörkin og allt upp að
ist stöðugt ávæningur af því, að
þetta þóf muni enda með sátta-
tillögu frá Torfa, sem muni þá,
eðli málsins samkvæmt, koma fram
á laugardagsmorgun, svo tími
gefist til að hafa um hana at-
kvæ'áagreiðslu áður en fresturinn
rennur út á miðnætti aðfaranótt
mánudags.
Starfsmat
Augljósir virðast mönnum vera
þeir annmarkar, sem eru á því
fyrir samningsaðila verkalýðs-
hreyfingarinnar, að gera heildar-
samninga svo öllum líki. Hefur
þetta m.a. komið fram í Því að
offsettprentarar eru þegar komnir
í verkfall. Þá virðist sem hlut-
fallslega meiri hækkun á
kaupi hinna lægst launuðu
10 mílum. Til dæmis voru nokkr
ir 1500 tonna togarar að veiðum
aðeins 10—12 sjómflur út af
Súgandafirði. Er togbátar komu
út á miðvikudag voru 20 enskir
togarar að veiðum í Dýrafjai'ðar
hólfinu. Oft hefur það komið fyr
ætli ekki að mælast of vel fyrir
hjá þeim sem næstir eru í laun
um, vegna þess að bilið minnkar.
Þannig erfiðleikar eru að vísu
innanhússmál í verkalýðssamtök
unum. Hins vegar afneita forustu
menn verkalýðshreytfingarinnar
ekki þessum erfiðleikum í sam
eiginlqgum sammingum. Tíminn
spurði Björn Jónsson, forseta ASÍ
að því, hvað væri til ráða til að
auðvelda sameiginlega samninga
í framtíðinni. Björn sagðist varla
geta sagt neitt um það á stund
inni. Hann sagði þó, að ljóst væri
að starfsmat, er tæki til hinna
ýmsu starfsstétta innan verkalýðs
hreyfingarinnar, þar sem jafnframt
væri höfð hliðsjón af störfuan og
launum annarra stétta í þjóðfé
laginu, myndi á vissan hátt leysa
ýmsan vanda, sem samfara er
ir undanfarið, að erlendu togar
arnir hafa togað samsíða fiski-
bátunum.
Það er álit fiskimanna hér, að
stórauka þurfi landhelgisgæsl-
una, því að um 120 erlend veiði
skip hafa verið hér á miðunum
sameiginlegum samningum. Þetta
starfsmat væri hægt að fram
kvæma á ákveðnu tímabili, en
með því félli burt ákveðinn
ágreiningur milli starfsstétta um
launastöðuna innbyrðis, og lægi
í augum uppi, að slíkt mundi auð
velda mjög meðferð ýmissa þátta
samningsmálanna.
Samið í nóít?
Það er sem sagt við margt að
etja í samningum, sem þessum, og
ekki af ástæðulausu að þeir vilja
dragast á langinn. T. d. má geta
þess, að í dag stóð dæmið þann
ig hjá verzlunarmönnum, sem
annars virðast nokkuð ánægðir
með hvað málum þeirra þokar,
að kaupmenn vildu ekki ljá máls
á hugmyndum verzlunarmanna
um framkvæmd fjörutíu stunda
vinnuviku rneðal verzlunarfólks.
Vuzlunarmenn vildu semja um
ákveðið fyrirkomulag, en kaup
menn sögðust ætla að ráða því
sjálfir, hvernig þeir létu starfs
fólk sitt vinna sínar fjörutíu
stundir. Þannig virðast deildar
meiningar vera um svo til hvert
atriði.
En á meðan á þessu gengur
bíða tvær stórar spurningar svars.
Tekst að semja í nótt, eins og
Björn Jónsson vill og er bjart
sýnn á að geti orðið, eða bíða
menn laugardagsins og þá vænt
anlegrar sáttatillögu Torfa Hjart
arsonar?
undanfarið, sem sýnir það, að
fyrir löngu hefði átt að vera bú-
ið að færa landhelgina út.
Slík örtröð er hér á miðunum,
að línubátar eru í vandræðum
með að koma niður línunni.