Tíminn - 04.12.1971, Blaðsíða 10

Tíminn - 04.12.1971, Blaðsíða 10
TfMTN N LAUGARDADGUR 4. desember »71 S, i= II HALL CAINE: GLATAÐI SONURINN 138 hann. mun segja: „Eg. vil hafa t litlu Elínu mína hjá mér, jör'ð- I in má fara veg allrar veraldar“. — f>að er rétt, elskán mín, — 'i hrópaði Magnús og breiddi út 1 faðminn, Elín hljóp til hans og < {frýsti sér að faðmi hans. í næstu andrá var Anna komin til þeirra. I Magnús faðmaði þær báðar að sér, þau grétu öll eins og börn, sem höfðu sigrazt á freistingu. Gesturinn horfði á þau, hann fann, að hann átti enga hlutdeild í hamingju þeirra, hann óttaðist, að hann færi líka að gráta og Ijóstraði upp um sig, hann flýði , því inn í gestaherbfergið. 5. KAFLI. Gcsturinn lagðist upp í rúmið, nú var öllu tapað, hann grét beisklega, hann hafði þráð svo heitt að mega segja: „elsku barn- ið mitt“, en slík orð mundi hann aldrei mega láta sér um rnunn fara, nema í sárþjáðum hugar- fylgsnum sínum. Hann var þó ekki lengi á valdi þessara hug- hrifa. Allt í einu varð hann gagn- tekiim afbrýðissemi, hann þurrk- aði sér um augun, hann skamm- aðist sin fyrir veiklyndið, hann settist upp. Enginn hafði rétt til að ræna dótturinni, hún var hold af hans holdi, engum skyldi tak- ast að taka hana frá honum, jafnvel lögin voru hans megin. Ef hann segði sýslumanninum, að hún væri dóttir hans, var hann skyldugur til að ganga í málið og láta hann fá Elinu. Smám saman kyrrðist hugur hans, honum varð ljóst, að hann gat ekki krafizt föðurréttar síns nema segja til sín og það kom ekki til mála. Enda yrði það aurnur sigur að ná barninu sínu með valdi, sérhver maður óskaði eftir ást barna sinna, hvers virði væri að fá Elínu, ef hún elskaði hann ekki? Hann opnaði augun til að róa umbrotin í huga sínum, þá sá hann máða mynd, sem stóð á borðinu við rúmstæðið. Þetta var mynd af Þóru, sem Margrét frænka hafði átt. Hann tók mynd- ina og skoðaði hana við kerta- ljósið, hendur hans skulfu, hon- um fannst allt í einu, að hann væri horfinn á vit fortíðarinnar til Þóru. Hann heyrði rödd henn- ar, er hún sagði sæl og glöð yfir að vera orðin móðir: „kysstu mig, Óskar, legðu armana um okkur báðar, já, svona.“ Við þessa minn ingu var sem blíðlyndi Þóru næði tökum á hjarta hans ásamt töfr- andi vissu, ef Elín var hans eigin samkvæmt náttúrulögmáli, þá hlaut allt að enda vel, hann þurfti aðeins að segja við hana: „ég er faðir þinn“, þá mundi hún koma til hans, hún gæti ekki annað, svo máttug eru blóðböndin. Þetta ákvað hann að gera, hann ætlaði að tala við hana eina og segja henni ævisögu sína, þá mundi móðir náttúra sjá öllu vel borgið. Þegar hann kom aftur fi'am í stofuna, var Elín þar ein, hún var að taka dúkinn af borðinu, nú varð hann að láta til skarar skríða. Hann veigraði sér við að kasta teningunum og treysta á gæfuna. hann sagði: — Þú ert hugrökk stúlka, barn- ið mitt, að kjósa fátækt, þegar þú áttir kost á að verða auðug, en val þitt var göfugt, auöur er ein- göngu gæði þessa heims, engill- inn, sem færir okkur hamingjuna spyr ekki um, hvort við erum rík eða snauð. Amma þín og frændi eru líka tengd þér ættarböndum og eiga þess vegna rétt tilkall til þín, en ef ég hefði nú verið fað- ir þinn, hefðir þú þá viljað koma með mér? — Elín svaraði ekki strax, hann horfði beint og stöð- ugt á ha-na, hann vissi, að öll fram- tíðargæfa hans var háð svari henn ar. Hið fagra unga andlit stúlk- unnar fékk á sig áhyggjusvip, sem hvarf skjótt, svo hristi hún höfuðið hægt og alvarleg í bi'agði. Honum leið eins og manni, sem hlýðir á dauðadóm. Hann vai'ð niðurlútur og þungbúinn, en stúlk an ieit upp, falleg og stillt, hún sagði: — Það hefði engu breytt, mér gæti aldrei fundizt þér vera fað- ir minn, nema ég hefði þekkt yður alla ævina. Mér finnst sá einn vera faðir, sem hefur annazt mann og haldið á rnanni, þegar maður er lítill, sem hefur gælt við mann og kysst, þegar maður hefur verið veikur, sá sem alltaf hefur látið sér annt um mann, en ekki sá, sem hefur verið fjar- verandi í mörg ár og ekki sýnt manni nokkra umönnun. MaÖur sem maður mundi ekki þekkja, þó að maður mætti honum á götu. — En Elín, finnst þér ekki vera eitthvað heilagt og innilegt við samband á milli föður og barns, eitthvað sem enginn ann- ar getur veitt barninu, hversu góður sem sá maður hefur verið, jafnvel þótt faðirinn hafi vanrækt skyldur sínar, 'finnst þér það ekki, Elín? — Enn hugsaði stúlkan sig um og enn hristi hún höfuðið. — Ef ég segði nú við þig, elsku barnið mitt, þó að ég hafi ekkert gert fyrir þig, þá er ég samt faðir þinn, þú ert það eina sem ég á og ég þrái, að þú komir til mín og verðir raunveruleg dótt ir mín og skiljist aldrei framar frá mér. Mundir þú samt kjósa að vera hjá frænda þínum? — Tilfinningahitinn og bænarómur hans hafði svo mildl áhrif á Elinu, að henni vöknaði urn augu, en samt var hún óbifanleg. — Já, ég gæti ekki annað, vegna þess, að Magnús frændi hef ur verið faðir minn í raun og sannleika. Þessu var öllu lokið. Hann hafði tapað. Síðasti vonarneistinn var dáinn, ekkert eftir nema vonleysi arstig 27 frá kL 9—11 f.h. Simi 11360 og 11680. Um vitjanabeiðniT vísast til helgidagavaktar. Sími 21230. Ónæmisaðgerðir gegn mænusótt fyrir fullorðna fara fram 1 Heilsu verndarstöð Reykjavlkur 6 mánu- dögum frá kl. 17 — 18. Árbæjarprestakall. Árbæ j arsaf naðar skóla. Barnasamkoma kl. 11,00 f.h. Guðsþjónusta kl. 2. Kaffi sala kvenfélagsms eftir messu Kl. 9 síðdegis hefst kvöldvaka Ræðumaður dr. Jakob Jónsson — Sóknarprestur. Kvöld- og helgarvörzlur apóteka í Dómkirkjan. Messa kl. 11,00. Sr Reykjavík vikuna 4.—10. des. annast Vesturbæjar- og Borgar- apótek. Næturvörzlu í Keflavík 4. og' 5. des. annast Jón K. Jóhannsson. Óskar J. Þorláksson. Messa kl 2. Séra Þórir Stephensen. — Barnasamkoma kl. 10,30 Menntaskólanum v/Tjörnina. Séra Þórir Stephensen. er laugardagurinn 4. des. — Barmárumessa Árdegisháflæði í Rvík kl. 07.27. ■ Tungl í hásuðri kl. 03.03. HEILSUGÆZLA Næturvörzlu í Kefiavik 6. des ann Kópavogskirkja. Kársnespresta- Slysavarðstofan I Borgarspttalan- «m er opln aUan sólarhrtaglnn SimJ 81212. Slökkviliðið og sjúitrablfreiJRr fyr tr Reykjavík og Kópavog staii 11100. Slúkrabifreið i aafnarfirfB tlml 61386. Tannlæknavakt er 1 Heilsuvemaar ítöðinni, þar sean Sly^avarðstoi | an var, og er opln laugardaga o- | sunnudaga kl. S—6 e. h. — Sim = 22411. | Apóteb Hatnarfjarðai « ®Pio an : virke dat- trá Kl 9—7. a laugar e dðgum fcL 9—2 oe a mimindöe = nm og öðrum helgidðeum [ 18 fré kL 2—4. | Nætur- og helgidagavarzla lækns § Neyðarvakt: I Mánudaga — föstudaga 08.00 — E 17.00 eingöngu 1 neyðartiLfelluni | sfmi 11510. Kvöld- nætur og beigarvakt Mánudaga — fimmtudaga 17.00 | — 08.00 írá ' L 17.00 föstudag til 1 H. 08.0C mánudag. Simi 21230. | Almcnnar upplýsingar nm lækni*- e þjónustn i Reykjavfk ern gefnxr i | síma 18888. Lækntagastofm ern lokaðar « I lancardögum, nema stofar á Klapp- * ast Jón K. Jóhannsson. KIRKJÁN Kirkja Óháða safnaðarins. Messa kl. 2. Séra Emil Bjömsson. Neskirkja. Barnasamkoma kl. Kópavogskirkja. 10,30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Frank M. Halldórsson. — Æsku lýðsstarf Ncskirkju. Fundir pilta og stúlkna 13 til 17 ára, mánudagskvöld kl. 8,30. Opið hús frá kl. 8. Séra Frank M. Halldórsson. kall, guðsþjónusta kl. 2. Séra Jón Auðuns dómprófastur setur séra Árna Pálsson nýskipaðan sóknarprest í Kársnesprestakalli í emþætti. Hinn nýskipaði sókn arprestur messar. Sóknarnefnd. Digranespresta- Kirkjudagur Laugarncskirkja. Messa kl. 2. — í Árþæjar- Barnaguðsþjónusta kl. 10,30- — Séra Garðar Svavarsson. Hallgrímskirkja. Messa kl. 11,00. Dr. Jakob Jónsson. Barnasam- koma kl. 10,00. Karl Sigurbjörns son, cand. theol. Iláteigskirkja- Lesmessa kl. 9,30 f.h. Bamasamkoma kl. 10,30. Séra Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2. Séra Jón Þorvarðsson. Grensásprestakall. Kirkjudagur. Sunnudagaskóli í Safnaðarheim ilinu Miðbæ kl. 10,30. Guðsþjón usta kl. 2. Aðventukvöld kl. 20.30. Séra Jónas Gíslason. Bústaðakirkia. Barnasamkoma kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2. — Hljómleikar kirkjukórsins kl. 5. Séra Ólafur Skúlason. Landholtsprestakall. Barnasam- koma kl. 10,30. Guðsþjónusta kl. 2. Séra Sigurður Haukur Guð- jónsson. Óskastumd barnanna kl. 4. kall. Guðsþjónusta kl. 11,00. Sr. Jón Auðuns, dómprófastur, set- ur sr. Þorberg Kristjánsson, ný- skipaðan sóknarprest í Digranes Ásprestakall. Messa í Laugarásbíó prestakalli í embætti. Hinn ný- kl. 1,30. Barnasamkoma kl. 11 skipaði sóknarprestur prélikar. á sama stað. — Séra Grímur — Sóknamefnd. Grímsson. RIDGi Þetta kom fyrir í síðustu HM keppni og náðu Dallas-Ásarnir 6 L á spil N-S, sem A doblaði (vildi fá út Sp, sem N hafði sagt), en V spilaði T-2. . A ÁD85 ¥ G ♦ Á 107 43 * Á D 4 10 7 43 2 10 7 6 KG82 8 A ¥ ♦ * KG6 Á D 9-&4 965 32 A 9 . ;,J]j ¥ K 5 3 2 1 'í ♦ D * K G 10 9 7 6 5 Það breytti engu hvort Sp. eða T kom út — en án doblsins hefði V kannski fundið trompútspilið, sem gerir spilið erfitt fyrir S. Mike Lawrence tók á T-Ás í blindum og spilaði Hj-G. A tók á ás og spilaði trompi,' en Lawrence átti ekki í neinuni erfiðleikum að trompa tvisvar Hj. í blindum. Á skákmóti í Svíþjó® 1958 kom þessi staða upp í skák Olofsson og Ahman, sem hefur svart og á leik. ABCDEFGH 25.-----Ha8H 26. DxH — Hvfg 27. Rf4 — Bh3! 28. Da2 — HxB-ýi og hvítur gafst upp. (29. RxH — Rf3t 30. Khl — Bg2 mátL Bessastaðakirkja. Messa kL 2 á vegum Félags guðfræðistúdenta. Birgir Ásgeirsson stud. theoL predikar. Organleikæri. Jön D. Hróbjartsson stud. tfaeoL Aðrir guðfræðistúdentar aðsboða og syngja undir stjóm Róberte A. Ottóssonar, söngmálastjóra. — Séra Garðar Þorsteinsson. i’ÉLAGSLÍP Hvítabandskonur Jólafundur félagsins veriðar a3 Hallveigarstöðum þriöjudagtnn 7. des. kl. 20,30. iwiHiiinMiiiniimHn»HtaiiiMMnwmiH«wwiwiiwiiiiniiiiuiBiinmMwm>HHiMWWiwninwmiiunwtaiinni»Miiwnw»HWHnwiiWMiH»iiiMnmiwHHnniiii|nMiiiiHiMiHiHuniiniinniwintnHiinHiiinwnmnw LÓNI Einn ræningjanna hittir Tonto. — Hand- leggurinn á mér. — Svo ríður annað skot ið af, og um leið hörfar Vörður. — Vertu ekki með ncinn bjánaskap, annars ligg- urðu þarna sem þú ert komhin, það sem eftir er. imiMMumimmiMtuuuM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.