Tíminn - 04.12.1971, Blaðsíða 2
TÍMINN
LAUGARDADGUR 4. desember 1971
Framkvæmd skipulagsmála
Reykjavíkur stefnt í óvissu
Doktorsvörn
við lagadeild
Laugardaginn 4. desember n.k.
fer fram doktorsvörn viS lagadeild
Háskóla íslands. Lúðvík Ingyars-
son lektor mun verja rit sitt „Refs
ingar á íslandi á þjóðveldistíman-
um“ fyrir doktorsnafnbót í lög-
um. Forseti lagadeildar, prófessor
Gaukur Jörundsson stýrir vörn-
inni, en andmælendur verða pró-
fessorarnir dr. Ármann Snævarr
og dr. Magnús Már Lárusson.
Doktorsvörnin fer fram í há-
tíðasal Háskólans og hefst kl. 2
e.h.
Ráðningar-
tíminn veröi
endurskoðaður
SUOMI
Finnlandsvinafélagið Soumi
minnist að venju þjóðhátíðardags
Finna, sem er 6. desember. Held-
ur félagið samkomu í Átthagasal
Hótel^ Sögu, sunnudaginn 5. des.
n.k. Á undan samkomunni verður
haldinn aðalfundur félagsins, og
hefst hann kl. 20. Á hátíðinni mun
formaður flytja ávarp. Sýnd verð
ur kvikmynd frá Finnlandi, Sig-
urður Thoroddsen arkitekt flytur
ræðu, Garðar Corters söngvari
syngur og Kristina Koivulello les
upp. Þá verður spumingaþáttur
undir stjórn Magnúsar Jochums-
sonar fyrrum póstmeistara.
EB—Reykjavík, föstudag.
Á fundi £ borgarstjórn í gær-
kvöldi var lögð fram tillaga að
samþykkt um skipulagsnefnd
Reykjavíkur, þar sem ráðgert er
að koma á fót sérstakri þróunar-
stofnun, er fyrst og fremst hafi
það verkefni ,að annast endur-
skoðun aðalskipulagsins. Jafn-
framt er ráðgert, að núverandi
skipulagsdeild starfi áfram á srvip
uðum grundvelli og áður.
Kristján Benediktsson (F) hef-
ur í borgarráði lagt fram greinar-
gerð um afstöðu sína til tillögunn-
ar, þar sem hann vekur m.a. at-
hygli á, að ef framkvæmt yrði sam
kvæmt tillögunni yrði starfandi á
vegum borgarinnar tvær skipu-
lagsdeildir með mjög óljósa starfs
skiptingu. Hefði þessi skipan mála
marga augljósa galla auk þess
kostnaðar, sem henni fylgdi. Bend
ir Kristján á, að daglegar afgreiðsl
ur og ákvarðanir núverandi skipu-
lagsdeildar þyrftu að vera í fullu
samræmi við þær breytingar, sem
Bazar í
Grensássókn
Kvenfélag Grensássóknar heldur
að venju jólabazar. Verður hann
annan sunnudag í aðventu, 5. des
ember og hefst kl. 15 í Hvassa-
leitisskólanum. Þar verða á boð-
stólum ýmsir eigulegir og nytsam-
ir hlutir, og auk þess verða seld-
ar kökur og „lukkupokar“ sem
njóta mikilla vinsælda yngri kyn-
slóðarinnar.
Allur ágóði af bazarnum rennur
til kvenfélagsins, sem nú hefur
mikla þörf fyrir per.inga, þar sem
konumar hafa tekið að sér að
kosta að öllu leyti innréttingu eld-
hússins í hinu nýja safnaðarheim-
ili Grensássóknar, sem væntanlega
verður tekið í notkun næsta sum-
á döfinni eru á aðalskipulaginu á
hverjum tíma og byggjast á þeim
gögnum og upplýsingum, sem þar
liggja fyrir. Því virðist eðlilegra,
að skipulagsdeild í þeirri mynd,
sem nú er hjá borginni, yrði deild
innan þeirrar stofnunar, sem hefði
með öllu skipulagsmál borgarinn
ar að gera og þá endurskoðun og
framkvæmd aðalskipulagsins sem
aðalverkefni. Með þessum tillög-
um væri framkvæmd skipulags-
málanna stefnt í óvissu.
Þá vekur Kristján m.a. athygli
á því í greinargerðinni að á s.l.
ári gerði Guðmundur G. Þórarins-
son (F) þá tillögu í borgarstjórn,
að skipulagsdeild borgarinnar yrði
efld og settar nýjar reglur um
starfssvið hennar og starfshætti,
með tilliti til vaxtar borgarinnar
SJ—Reykjavík, föstudag.
Anglía, félag enskumælandi
fólks á íslandi verður 50 ára 11.
desember n. k. og verður afmæl
jþins. mippzt á ýmsan hátt.
Tveir gestir frá Englandi koma
hingáð í þessu tilefni, Maybray-
King íávarður fyrrum forseti
neðri deildar brezka þingsins,
sem flytur hér tvo fyrirlestra,
og verður heiðursgestur á afmæl
ishátíðinni að Hótel Borg laugar
daginn 11. des., og John Melville,
sem kunnur er m. a. fyrir leik
sinn í verkum Shakespeares, en
hefur síðustu ár náð miklum vin
sældum sem sjónvarpsleikari.
John Melville kemur fram á kvöld
vöku fimmtudagskvöld 9. des. í
Norræna húsinu, sem Alan
Boucher prófessor í ensku við
Hóskóla íslands sér um. Verða
þar fluttir kaflar úr enskum
bókmenntum allt frá 16. öld
fram til okkar tíma.
Þá verður sýning á brezkum
bókum og eftirsprentunum eftir
Denis Robin á vegum Britsh
Council vikuna 4. — 12. des. f
næstu viku sýnir Háskólabíó þrjár
brezkar' myndir. 7. og 8. des.
verður Accident (Slys) með
Dirk Bogarde sýnd, þekkt fram
úrstefnuimynd. 9. og 10. des yerð
ur gamla góða myndin um kvenna
morðingjana, Ladykillers, með
Alec Guiness, David Niven og
Herbert Lom sýnd. Þann 11. des.
hefur Háskólabíó síðan sýningar
á nýrri músík og ballettmynd
The Tales of Beatrix Potter, sem
hlotið hefur miklar vinsældir.
6. des. er raunar einnig kvik
myndasýning í tilefni afmælis
og breyttra aðstæðna og viðhorfa.
Lagði hann til, að sérstakri nefnd
yrði falið að gera tillögu um á
hvern hátt skipulagsmálum borg-
arinnar yrði bezt komið fyrir í
framtíðinni. Þessari tillögu hefur
nú verið visað frá í borgarstjóm
með atkvæðum borgarstjómar-
íhaldsins-
í umræðum er urðu um um-
rædda tillögu á borgarstjómar-
fundinum í gær, tók Guðmundur
G. Þórarinsson, meðal annarra, til
máls. Vegna plássleysis verður að
gera grein fyrir ræðu Guðmund-
ar síðar, svo og ýmsum at-
riðum í greinargerð Kristjáns
Benediktssonar. Tvær umræður
voru samþykktar um tillöguna og
verður sú seinni á næsta fundi
borgarstjórnar.
Anglíu, en kl. 8,30 um kvöldið
verða sýndar 6 brezkar heimild
armyndir í Norræna húsinu.
Laugardag 11. des. verður fagn
aður að Hótel Borg. Þar skemmta
þau Órhar Ragnarsson, Ruth
ifágnús'son og leikarar úr Hórinu
og keppt verður um alls konar verð
laun. Sex Bretar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands leika létta tón
list undir borðum. I
Maybray-King lávarður flytur
fyrirlestur um brezka þingið á
vegum lagadeildar kl. 2 11. des.
í 1. kennslustofu Háskólans. Og
mánudaginn 13. des talar hann
um menntun vangefinna bama í
húsnæði enskudeildar Tjamar-
götu 26.
Anglía var stofnuð fyrir til-
stilli Helga Henmanns Eiríksson
ar, nú heiðursfélaga ásamt Ottó
B. Arnar, sem var einn af stofn
félögum, Snæbjarnar Jónssonair
og Ólafs Þorsteinssonar, en félag
inu var ætlað að efla samvinnu
og góðvilja milli íslendinga og
enskumælandi þjóða. Fyrsti for
maður var Ásgeir Sigurðsson ræð
ismaður. Félagar í Anglíu era
nú 250. Félagið hefur litið bóka-
safn í brezka sendiráðinu. Það
hefur 6 skemmtifundi á ári auk
annarra samkoma. Félagið hefur
styrkt íslenzka kennara til nájps
dvala í Englandi og Breta, sem
hingað hafa komið, til útgáfu
starfsemi. Heiðursforsetar félags
ins eru John McKenzie sendi-
herra og Hallgrímur Fr. Hallgríms
son. Formaður er Brian Holt,
ritari Geir Zoega og Ellen Sig
hvatsson gjaldkeri. 140 Bretar
búa nú hér á landi.
ar.
„Styðjum við bakið á
frjálsu félagsstarfseminni"
Afmælis ANGLIU
minnzt á ýmsan hátt
Vietnamfundur í Háskólabíói
TÓNLEIKAR í
HVERAGERÐI
OG ÁRNESI
Gunnar Kvaran, sellóleikari og
Halldór Haraldsson, píanóleikari,
halda tónleika í nýju kirkjunni í
Hveragerði í dag, laugardaginn 4.
desember klukkan 21,00, og á
sunnudaginn í Félagsheimilinu Ár-
/nesi í Gnúpverjahreppi klukkan
hálf tíu. Á þriðjudaginn leika þeir
svo á Akranesi, þar sem þeir leika
á vegum Listvinafélagsins. Þeir
félagar héldu tónleika í Keflavík
á sunnudaginn, en á næsta vori
munu þeir leika fyrir tónlistar-
félagið í Reykjavík.
Gunnar Kvaran, sellóleikari,
stundaði nám við Tónlistarskólann
í Reykjavík til ársins 1964, er
hann hélt til Danmerkur. Þar
stundaði hann nám til ársins 1971
við Konunglega tónlistarháskól-
ann í Kaupmannahöfn, Þar sem
aðalkennari hans var Erling
Blöndal Bengtsson og lauk hann
einleikaraprófi þaðan. Þess er
skemmst að minnast, a@ Gunnar
hélt sína fyrstu opinberu tónleika
í Kaupmannahöfn s.l. vor og fékk
mjög góða dóma gagnrýnenda.
Auk þessa hefur hann unnið til
verðlauna, sem kennd eru við>
Gade. Gunnar hefur undanfarið
vérið mjög virkur bæði sem ein-
leikari og í kammertónlist.
Halldór Haraldsson, píanóleik-
ari, stundaði nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og lauk það-
an burtfararprófi 1960. Stundaði
síðan framhaldsnám við Royal
Academy í London árin 1962—’65,
í píanóleik og tónsmíði. Þaðan
lauk hann einleikaraprófi að námi
loknu. Aðal kennari hans þar var
Gordon Grcen. Halldór hélt sína
fyrstu öpíntíeru tónleika í Reykja
vík á véíjúm Tónlistarfélagsins
1965. Síðan hefur hann leikið
nokkrum sinnum með Sinfóníu-
hljómsveit íslands á tónleikum
hennar, síðast Píanókonsert nr. 3
eftir Bartók í febrúar s-1. Þá hef
ur hann komið nokkrum sinnum
fram á vegum Musica Nova og
áður haldið tónleika utan Rvíkur.
Gunnar Kvaran, sellóleikari
Halldór Haraldsson, píanólcikari
EB—Reykjavík, föstudag.
Á fundi í borgarstjórn í gær-
kvöldi, var samþykkt samhljóða
að vísa til borgarráðs tillögu borg
arfulltrúa Framsóknarflokksins
um að kannað verði hvort ekki
sé æskilegt að koma þeirri skip
an á í sambandi við ráðningu
æðstu embættismanna borgarinn
ar, að þeir verði ráðnir til ákveð
ins tíma í senn t. d. fjögurra
ára. Guðmundur G. Þórarinsson
(F) mælti fyrir tillögunni, en
auk hans tók Ólafur Thors (S)
til máls, og kvaðst fylgjandi því
að þetta yrði kannað.
EB—Reykjavík, föstudag.
f umræðum er urðu um æsku-
lýðsmál á fundi í borgarstjórn
í gærkvöldi, vegna framkominna
tillagna frá borgarfulltrúum Al-
þýðubandalags og Markúsi Erni
Antonssyni (S), lagði Alfreð Þor-
steinsson (F) áherzlu á, að borg-
aryfirvöld sköpuðu betri aðstöðu
fyrir hina frjálsu félagsstarfsemi
í borginni, en nú væri fyrir hendi.
Minnti Alfreð m.a. i þessu sam-
bandi á íþrótta- og skátahreyfing-
una og bindindisfélög.
Þá sagði Alfreð m.a„ að hann
teldi ástæðu til að úttekt yrði nú
gerð á æskulýðsmálum borgarinn
Jólabazar
Framsóknar
Verkakvenrtafélaglð ^þiuhsókij
heldur að vanda jólabazar. Verð-
ur bazarinn í dag, laugardag, ‘ og
hefst kl. 2 í Alþýðuhúskjallaran-
um. Margt góðra muna er á baz-
amum nú eins og undanfarið.
ar og kvaðst sammála þeirri könn-
un, sem mun standa fyrir dyrum
að gerð verði á þessum málum.
Alfreð sagðist leggja höfuðáherzlu
á það, að í æskulýðsmálum veld-
ust hæfir starfskraftar, er legðu
áherzlu á að þjálfa sköpunarhæfi-
leika unga fólksins.
Alfreð ræddi nokkuð um starf
semi Æskulýðsráðs. Sagðist hann
vilja vekja athygli á þeirri óæski-
legu þróun, sem orðið hefði á
starfsemi ráðsins. Tómstunda-
iðjan væri á undanhaldi fyrir
tómstundagamaninu — m.ö.o.,
skemmtanahald væri að verða of
fyrirferðarmikil þáttur í starf-
semi Æskulýðsráðs.
Almennur fundur um Vietnam
verður haldinn í Háskólabíói laug
ardaginn 4. desember n.k. kl. 5
síðdegis.
Fundurinn er boðaður til stuðn
ings Þjóðfrelsisfylkingunni í Suð-
ur-Vietnam og friðarskilmálum
hennar, er frú Thi Binh lagði fram
á Parísarfundinum um Vietnam
L. júlí S.l.
Aðalræðumaður fundarins verS
ur Phan Hoi fulltrúi Bráðabirgða-
byltingarstjórnarinnar í Suður-
Vietnam, mun hann skýra afstöðu
stjórnar sinnar. Sýnd verður heim-
ildarkvikmynd frá Vietnam og
einnig verða sýnd atriði í bók-
inni „Svo fór ég að skjóta...“
Kynnir á fundinum verður Vilborg
Dagbjartsdóttir. Undirbúningsn.