Fréttablaðið - 16.02.2004, Side 1
LÖGREGLUMÁL Annar Íslending-
anna, sem lögregla hefur leitað
vegna líkmálsins í Neskaupstað,
hefur menntað sig erlendis meðal
annars í beitingu og
meðferð vopna.
Lögregla verst
frétta af rannsókn-
inni sem er orðin
mjög víðtæk. Í
gærkvöldi leitaði
lögregla fjögurra
manna vegna rann-
s ó k n a r i n n a r ,
tveggja Íslendinga og tveggja Lit-
háa. Heimildir Fréttablaðsins
herma að grunur sé um að sá látni
sé frá Litháen.
Sterkur grunur leikur á að
fíkniefni þau, sem fundust í lík-
inu, hafi átt að fara í sölu á
vinnusvæðinu við Kárahnjúka.
Rannsóknin beinist nú meðal ann-
ars að þeim þætti málsins, sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins.
Lögreglan leitar nú jeppa af Mits-
ubishi Pajero gerð sem er talinn
geta tengst málinu, en hann er
bílaleigubíll og eftir því sem best
er vitað tóku Íslendingarnir hann
á leigu og sennilega var þriðji
maðurinn með þeim, grunað er að
það sé sá hinn sami og fannst síð-
ar látinn við netabryggjuna.
Athygli lögreglu hefur beinst
mjög að skrám farþega til lands-
ins og myndum úr eftirlitsvélum í
Leifsstöð, svo og farþegaskrám
frá Keflavík til Egilsstaða, en lík-
ur þykja benda til að maðurinn
sem lést hafi komið þá leið og síð-
an haldið yfir til Neskaupstaðar.
Einnig eru kannaðir farþegalistar
flugs úr landi, vegna fjórmenn-
inganna sem lögreglan leitar að.
Efnunum sem fundust í innyfl-
um líksins við krufningu var
óvenjulega vel innpakkað miðað
við það sem þekkst hefur þegar
upp hefur komist um burðardýr
fíkniefna hér á landi. Um mikið
magn var að ræða, um 350 grömm,
eins og fram kom í Fréttablaðinu í
gær. Er jafnvel talinn möguleiki á
að þetta mikla magn hafi verið dán-
arorsök mannsins þar sem innyfli
hans hafi skaddast.
Ekki er búið að greina þau öll
enn sem komið er, en unnið er að
því. Þá verður leitað fingrafara á
pakkningunum sem þau voru í. Sú
vinna er sögð nokkuð tímafrek.
Sjá bls. 4
hrs@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MÁNUDAGUR
HINN TVÖFALDI LÝÐRÆÐISHALLI
Diana Wallis, þingmaður frá Evrópuþinginu,
flytur fyrirlestur í Norræna húsinu í dag á
vegum Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn hefst
klukkan 12. Fundarstjóri verður Ólafur
Stephensen. Í erindinu, sem flutt verður á
ensku, mun Diane Wallis fjalla um það sem
nefnt hefur verið „hinn tvöfaldi lýðræðis-
halli“, það er sú staða Íslands innan EES að
hafa hvorki bein áhrif á störf ráðherraráðs
ESB né Evrópuþingsins.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTVIÐRI Á AUSTURLANDI Í
borginni verður hins vegar þungbúnara.
Úrkoman færist í aukana seinnipartinn á
vestanverðu landinu. Milt næstu daga. Sjá
síðu 6.
16. febrúar 2004 – 46. tölublað – 4. árgangur
● fræðin og fjárhagsáætlanir
Jóna Fanney Friðriksdóttir:
▲
SÍÐA 19
Lífið eftir
námsárin
● 32 ára í dag
Guðjón í Oz:
▲
SÍÐA 18
Kominn á
jörðina
● gæti hitt catherine zeta-jones
Úlfur Karlsson:
▲
SÍÐA 30
Keppir á
stuttmyndahátíð
ÞINGMÁLIN DAGA UPPI Stjórnar-
andstaðan hefur lagt fram hundruð frum-
varpa á undanförnum þingum. Örfá hafa
orðið að lögum. Jóhanna Sigurðardóttir
hefur verið iðin við kolann, flutt 410 þing-
mál á 18 árum en aðeins 35 orðið að lög-
um. Sjá síðu 2
AUKIN HARKA FYRIR AUSTAN
Fíkniefnaheimurinn á Austurlandi er
smækkuð mynd af fíkniefnaheiminum
syðra, segir varðstjóri lögreglunnar í Nes-
kaupstað. Aukin harka í fíkniefnaheiminum
eigi jafn vel við eystra og syðra. Sjá síðu 4
FÍKLAR FALLA Í VALINN Fjórtán
manns hafa látist eftir að Byrgið flutti starf-
semi sína frá Rockville. Konum í neyslu
hefur fjölgað, heimilislausir eru yngri en
áður og ofbeldi í fíkniefnaheiminum eykst.
Sjá síðu 8
MOSKVA, AP Björgunarmenn leit-
uðu í allan gærdag að fólki á lífi
undir glerþaki sem hrundi í yfir-
byggðum sundlaugargarði í út-
hverfi Moskvu. Að minnsta kosti
25 biðu bana og yfir 100 slösuð-
ust þegar gler og steyptir burð-
arbitar féllu ofan á sundlaugar-
gesti.
Í fyrstu var óttast að sprengja
hefði sprungið í Transvaal-sund-
laugargarðinum en nú er talið að
þakið hafi gefið sig undan snjó-
þunga. Sundlaugargarðurinn tók
til starfa fyrir einu og hálfu ári
en yfirvöld segja að húsið hafi
verið illa hannað og viðhaldi
ábótavant. Ríkissaksóknari í
Rússlandi hefur þegar hafið
rannsókn á orsökum slyssins og
er búist við því að gefnar verði út
ákærur fyrir vanrækslu.
Glerþakið sem hrundi var
5000 fermetrar að flatarmáli, í
um þrjátíu metra hæð yfir sund-
laugunum. Um 1.300 manns voru
í sundlaugargarðinum þegar
slysið varð. Skelfing greip um
sig meðal gestanna sem reyndu í
ofboði að forða sér. Margir kólu
eða ofkældust þegar þeir hlupu
á sundfötunum út í snjó og
sextán stiga frost. ■
Einn hinna grunuðu
er frá Neskaupstað
Lögreglan rannsakar nú þann möguleika að fíkniefni þau sem fundust í líki við netabryggjuna í
Neskaupstað hafi verið ætluð til sölu á Kárahnjúkavirkjunarsvæðinu. Þá beinist leitin að
fjórum mönnum og jeppabifreið sem talin er geta tengst málinu.
Glerþak hrundi í sundlaugargarði í Moskvu:
Á þriðja tug fórst og yfir 100 slösuðust
■
Annar Íslend-
ingurinn hefur
menntað sig
erlendis í
vopnaburði og
beitingu vopna.
BJÖRGUN Að minnsta kosti 27 börn voru á meðal þeirra 111 sem slösuðust þegar glerþak hrundi í yfirbyggðum sundlaugargarði í
Moskvu.
Bandarískir demókratar:
Fylkja sér
um Kerry
WASHINGTON, AP Fátt fær stöðvað sig-
urgöngu Johns Kerry í kapphlaupinu
um útnefningu Demókrataflokksins í
Bandaríkjunu til embættis forseta
Bandaríkjanna. Um helgina vann
hann yfirburðasigur í prófkjörum í
Washingtonborg og Nevada-ríki.
Svo virðist sem sögusagnir um
framhjáhald Kerrys hafi ekki haft
áhrif á fylgið.
Næsta prófkjör er í Wisconsin á
morgun en þar hefur Kerry sterka
stöðu. Úrslitin ráðast líklega í próf-
kjörum í níu ríkjum, þar á meðal
þeim tveim fjölmennustu, þriðjudag-
inn 2. mars.
Nú hefur Kerry tryggt sér stuðn-
ing 577 kjörmanna, Howard Dean 188
og John Edwards 166. Til þess að
tryggja sér útnefninguna á flokks-
þingi í haust þarf 2.161 fulltrúa. ■
46%62%
● framtíðin í fasteignasölu ● góð ráð
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Auka þarf kröfur
til fasteignasala
Björn Þorri Viktorsson:
M
YN
D
/A
P