Fréttablaðið - 16.02.2004, Side 6

Fréttablaðið - 16.02.2004, Side 6
6 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR ■ Norðurlönd ■ Lögreglufréttir ■ Lögreglufréttir Veistusvarið? 1Hið íslenska reðasafn flyst úr Reykja-vík í byrjun apríl. Hvert fer safnið? 2Sýslumaðurinn á Eskifirði hefur áttannríkt undanfarna daga vegna rann- sóknar á líkfundi. Hvað heitir sýslu- maður? 3Hvaða heimsþekkta tölvupoppsveithefur boðað komu sína hingað til lands í vor? Svörin eru á bls. 30 Mannskæðir eldsvoðar í Kína: Hátt í eitt hundrað manns biðu bana KÍNA Hátt í 100 manns fórust í tveimur eldsvoðum í Kína í gær. Yfirvöld hafa heitið því að hrinda af stað átaki til að trygg- ja að byggingaverktakar og hús- eigendur fari eftir reglum um öryggi og brunavarnir. Að minnsta kosti 51 maður lést þegar eldur kviknaði í fimm hæða vöruhúsi í borginni Jilin í norðausturhluta Kína. Yfir sjö- tíu voru fluttir á sjúkrahús með brunasár og reykeitrun, þar á meðal nokkrir slökkviliðsmenn. Fjöldi starfsfólks og við- skiptavina var í byggingunni þegar eldsins varð vart skömmu fyrir hádegi í gær. Eldurinn átti upptök sín á annarri hæð og breiddist hann hratt út. Yfir 260 slökkviliðsmenn voru kallaðir á vettvang og tók það fjórar klukkustundir að ráða niðurlög- um eldsins. Síðdegis í gær kom upp eldur í hofi í Zhejiang-héraði í suð- austurhluta Kína. 39 brunnu inni en það tók slökkviliðsmenn að- eins hálfa klukkustund að slökkva eldinn. ■ Skuldir samstæðunnar hækka en borgarsjóðs lækka Þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkur gerir ráð fyrir miklum fram- kvæmdum og skuldaaukningu vegna þeirra. Skuldir borgarsjóðs eru sagðar lækka. Minnihlutinn telur áætlunina vera ómarkvissa. REYKJAVÍKURBORG Borgarstjóri hef- ur kynnt þriggja ára fjárhagsáætl- un Reykjavíkur. Áætlunin nær til áranna 2005–2007 og sagði Þórólf- ur Árnason borgarstjóri í fram- söguræðu um áætlunina að hún „endurspegli metnað borgaryfir- valda til að veita íbúum góða þjón- ustu á hagkvæman hátt, ábyrga fjármálastjórn borgarinnar og virðingu fyrir skattfé borgarbúa.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn, telur áætlunina hins vegar vera meira í ætt við „sýndarveru- leika“ og segir að hugmyndirnar sem þar komi fram séu bæði óraunhæfar og ómarkvissar. Gert er ráð fyrir að skuldir borgarinnar aukist á áætlunar- tímabilinu um 13,2 milljarða króna en fram kom í ræðu borgarstjóra að skuldaaukningin sé mest hjá Orkuveitu Reykjavíkur, Fráveit- unni og Bílastæðasjóði en hjá þess- um fyrirtækjum eru áformaðar miklar framkvæmdir á næstu árum. Hins vegar er gert ráð fyrir að skuldir borgarsjóðs sjálfs lækki á tímabilinu úr 52 þúsund á hvern íbúa niður í 42 þúsund. Greinar- munur er gerður á borgarsjóði annars vegar og hins vegar fyrir- tækjum sem eru að hluta eða öllu leyti í eigu borgarinnar. Þau fyrir- tæki mynda, ásamt borgarsjóði, svokallaðan samstæðureikning borgarinnar. Í áætluninni er gert ráð fyrir að sparnaðaraðgerðir skili 1.500 milljónum króna á tímabilinu en minnihlutinn hefur gagnrýnt að nánari útfærslu á þessum sparnaði sé ekki að finna í áætluninni. Þórólfur Árnason sagði í ræðu sinni að hann teldi nauðsynlegt að samskipti ríkis og sveitarfélaga yrðu tekin til gagngerrar endur- skoðunar. Hann gagnrýnir þann þrönga stakk sem sveitarfélögum er sniðinn við uppfyllingu lögboð- inna verkefni sinna. „Setji ríkið lög um ákveðin réttindi íbúana og eigi það sjálft að uppfylla þær skyldur, ræðst það af fjárlögum hvers árs hvernig þessar skyldur eru uppfylltar. Setji þetta sama ríkisvald hins vegar lög um rétt- indi íbúanna sem sveitarfélögun- um er uppálagt að sinna ræður til- tækt fjármagn ekki því í hve mikl- um mæli skyldunum skal full- nægt,“ sagði Þórólfur. thkjart@frettabladid.is BÍLVELTA VIÐ SKAFTÁRBRÚ Bíll valt í gærmorgun við Skaftárbrú. Fram- kvæmdir standa yfir á svæðinu og aka verður hjáleið til að komast á brúna. Ökumaður missti stjórn þegar hann hugðist ná beygjunni inn á hjá- leiðina en mikil ísing var á vegum. Þrír voru í bílnum og meiddust þeir ekki. Lögreglan í Vík segir að stór- slys hefði geta orðið ef bíllinn hefði ekki oltið þeim megin sem hann gerði. Að öðrum kosti hefði hann lent í Skaftánni. STUNGIÐ Á BÍLDEKK Einhver óprútt- inn á Vík í Mýrdal gerði sér að leik að stinga með eggvopni á þrjú bíldekk í fyrrinótt. Eigandi bílsins hafði lagt bílnum við sumarhús sem staðsett er í bænum. Lögreglan á Vík segir ekki vitað hver var að verki. Þá voru fimm stöðvaðir vegna hraðaksturs. AÐ FUNDI LOKNUM Lakhdar Brahimi ræðir við fjölmiðla eftir fund með framkvæmdaráðinu. Vaxandi andstaða: Vilja ekki svæðisþing BAGDAD, AP Andstaða við áform Bandaríkjamanna um að láta átján svæðisþing velja fulltrúa á nýtt þing Íraks fer vaxandi. Þetta kom í ljós á fundi Lakhd- ars Brahimi, sendimanns Sam- einuðu þjóðanna, með fram- kvæmdaráði Íraks sem áður studdi áformin. Samkvæmt þeim ætti almenningur að kjósa nýtt löggjafarþing á næsta ári. Hörð andstaða Ali al- Husseini al-Sistani, trúarleið- toga sjíamúslima, við áætlunina virðist því geta ráðið úrslitum. Talsmaður sendinefndar Sam- einuðu þjóðanna sagði þó í gær að ekki væri hægt að efna til kosninga fyrir fyrirhugað valdaafsal Bandaríkjamanna 1. júlí. ■ FLEIRI STYÐJA STRÍÐIÐ Stuðn- ingur dönsku þjóðarinnar við stríðið í Írak hefur aukist, ef marka má nýja skoðanakönnun. 52% aðspurðra voru á þeirri skoðun að það hefði verið rétt ákvörðun að taka þátt í stríðinu en 38% sögðu að sú ákvörðun hefði verið röng. Í mars í fyrra voru 57% þjóðarinnar andvíg því að Danir sendu hermenn og hergögn til Írak. Notkun sýklalyfja: Aukin hætta á krabbameini VÍSINDI Bandarískir vísindamenn segja að sýklalyf geti aukið veru- lega hættuna á því að konur fái brjóstakrabbamein. Vísindamenn í Washington-há- skóla í Seattle fóru í gegnum sjúkraskrár 10.000 kvenna og komust að þeirri niðurstöðu að hættan á brjóstakrabbameini yk- ist í réttu hlutfalli við notkun sýklalyfja. Áður hefur verið sýnt fram á að á getnaðarvarnarpillan og hormónalyf geti aukið líkurnar á brjóstakrabbameini en vísinda- mennirnir fullyrða að sýklalyf hafi enn meiri áhrif. ■ Laus staða bíleiganda ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 23 69 8 0 2/ 20 04 Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070. Hyundai Terracan Fyrst skráður: 10.2003 Ekinn: 1500 km Vél: 2900 cc ssk. Litur: Grásanseraður Verð: 4.050.000 kr. Búnaður: 35" breyting KVIKNAÐI Í BÍLSKÚR Eldur kviknaði í bílskúr við Hraun- berg í Breiðholti klukkan átta í fyrrakvöld. Bílskúrinn var inn- réttaður sem íbúðarhús og er talið að kviknað hafi í út frá eldavél. Engin var heima þegar eldurinn kviknaði. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang og reykkafarar fóru inn í skúrinn. ÞRÍR STÚTAR TEKNIR Einn öku- maður var tekinn í fyrrinótt á Akureyri grunaður um ölvun undir stýri. Þá voru tveir ungir menn stöðvaðir á Selfossi sömu nótt vegna ölvunaraksturs. Eft- ir að blóðsýni hafði verið tekið var mönnunum sleppt. TVEIMUR BÍLUM STOLIÐ Tveim- ur bílum var stolið af fjórbýl- inu Eyvindará skammt frá Eg- ilsstöðum í fyrrinótt. Báðir bíl- arnir voru ólæstir. Annar bíll- inn fannst í gærmorgun á Fáskrúðsfirði og var hann óskemmdur. Hinn er ófundinn. Um er að ræða rauðan Opel Corsa og biður lögreglan þá sem einhverjar upplýsingar geta gefið að hafa samband. VÖRUHÚS BRENNUR Yfir 260 slökkviliðsmenn voru kallaðir á vettvang til að ráða niðurlögum eldsins og bjarga fólki út úr vöruhúsinu. BORGARSTJÓRI KYNNIR ÞRIGGJA ÁRA ÁÆTLUN Gert er ráð fyrir að skuldir Reykjavíkurborgar hækki um 13,2 milljarða á árunum 2005–2007 en skuldir borgarsjóðs lækki.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.