Fréttablaðið - 16.02.2004, Side 8
8 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Höfum við stefnu?
„Er það ekki furðulegt þegar
við fáum fréttir af hrikalegum
dauðans atburðum sem tengj-
ast eiturlyfjum og alkóhóli að á
sama tíma flæða yfir okkur
alkóhólauglýsingar? Hvaða
stefnu höfum við í þessum mál-
um?“
Karl V. Matthíasson, prestur á sviði áfengis- og
fíknimála, Morgunblaðið 15. febrúar.
Heilræði
„Jafnframt er þeirri ábendingu
komið á framfæri til blaða-
manna almennt að þeir leiti
upplýsinga og skýringa hjá
,,meintum glæpamönnum“
áður en mannorðsdráp eru
framin.“
Örn Karlsson um rannsókn á meintum fjársvik-
um fyrrum stjóra Framsýnar, Fréttablaðið
15. febrúar.
Orðrétt
MÁLSHÖFÐUN Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Keflavíkur og nágren-
nis hefur stefnt utanríkisráðherra,
fyrir hönd varnarliðisins á Kefla-
víkurflugvelli, vegna vangoldins sí-
menntunarálags og launahækkana,
en hvoru tveggja er samningsbund-
ið. Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjaness um síðustu mán-
aðamót en það snertir um 40 starfs-
menn varnarliðsins, verkamenn
sem starfsmenn þungavinnuvéla.
„Menn kjósa að sniðganga þess-
ar samningsbundnu hækkanir.
Þrátt fyrir bréfaskriftir og inn-
heimtutilraunir lögfræðinga berast
greiðslurnar ekki. Einu svörin sem
við fáum eru þau að ekki liggi fyrir
heimildir til að inna af hendir
greiðslurnar,“ segir Kristján Gunn-
arsson, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og ná-
grennis.
Kristján segir að símenntunar-
álagið nemi sex prósentum á laun
síðasta árs og það sem af er þessu
ári. Þá nemi vangoldnar launa-
hækkanir á bilinu 1–3 prósentum.
„Þetta hleypur á einhverjum hund-
ruðum þúsunda og fólk munar um
þessa peninga. Þolinmæðin er ein-
faldlega þrotin,“ segir Kristján.
Hann bætir við að samskiptin við
varnarliðið séu langt í frá viðun-
andi. Viðbrögð séu lítil sem engin
fyrr en málin séu komin til dóm-
stóla.
Haft var eftir Friðþóri Eydal,
upplýsingafulltrúa varnarliðsins, í
fjölmiðlum að þetta mál væri til
umfjöllunar hjá varnarliðinu, en
leita þurfi eftir samþykki banda-
rískra heryfirvalda vegna fjárveit-
inga. ■
Læknadóp helsti
vímugjafi fíkla
Fjórtán manns hafa látist eftir að Byrgið flutti starfsemi sína frá Rockville. Konum í neyslu hefur
fjölgað. Heimilislausir eru yngri en áður. Ofbeldi í fíkniefnaheiminum eykst.
Fjórtán mannshafa látist af
völdum vímuefna
sem rekja má til
lokunar afeitrun-
ardeildar í kjölfar
flutnings Byrgis-
ins frá Rockville.
Flestir létust af
völdum lækna-
dóps. Þá hefur
fækkun um átta-
tíu meðferðar-
pláss á Íslandi frá
því í maí í fyrra
skilað sér í aukn-
um fjölda heimil-
islausra,“ segir
Guðmundur Jóns-
son, forstöðumað-
ur Byrgisins.
G u ð m u n d u r
segir fleira yngra
fólk enda á göt-
unni en áður og að
konur séu sívax-
andi hópur eitur-
lyfjaneytenda.
„Af viðtölum
mínum við þessar
konur má í flest-
um tilfellum rekja
ástæðuna til kyn-
ferðisofbeldis og
að gerendur séu
fósturfeður. Þess-
ar konur hrekjast
að heiman og eiga
þá ekki í önnur
hús að venda.“
Hann undrast
að meðferðarstað-
ir komi þessu mál-
efni ekki út í um-
ræðuna og segir
siðleysi á Íslandi
hafa aukist.
G u ð m u n d u r
segir vímuefna-
mynstur þeirra sem hafast við á
götum úti hafa breyst. „Rónar
sjást varla lengur en yngra fólk er
meira áberandi. Mínar upplýsing-
ar herma að tuttugu unglingar
hafi farið að heiman síðasta sum-
ar. Margir hafast við í her-
bergiskytrum, á gistiheimilum
eða koma sér upp hreiðri í yfir-
gefnum byggingum.
Sem fyrr segir er læknadóp
helsti vímuefnagjafi fíkla. Guð-
mundur segir skýrslur Byrgisins
leiða í ljós að 87% þeirra sem
sækja meðferð koma vegna neyslu
á læknadópi. „Eftirlit milli apóteka
er ekki nægilega gott þrátt fyrir að
það hafi lagast á síðari árum. Það
eru margir þættir sem eru vald-
andi þess að fíklar komist yfir
læknadóp og ekki hægt að kenna
um vanrækslu lækna.“
Guðmundur segir þróun of-
beldismála í tengslum við fíkni-
efnaneytenda ískyggilega. „Ég
hef stundað rannsóknir á þessu
málefni. Bæði hef ég klippt úr
dagblöðum alla umræðu um þessi
mál auk fregna af innbrotum og
líkamsárásum. Þá hef ég talað við
fjölda fólks og komist að þeirri
niðurstöðu að aukningin frá maí í
fyrra er mjög mikil.“
Byrgið hefur fengið leyfi frá
landlækni til að
opna afeitrunar-
deild að nýju.
Guðmundur segir
í bréfi frá land-
lækni koma fram
að ein aðalástæð-
an fyrir leyfinu
sé harðnandi
neysla og erfiðari
efni. „Við stefn-
um að því að
hrinda þessu í
framkvæmd eins
fljótt og auðið er.“
kolbrun
@frettabladid.is
KRISTJÁN GUNNARSSON
Formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis segir samskiptin við
varnarliðið langt í frá viðunandi.
BANDARÍKJAFORSETI
George W. Bush segir að gereyðingarvopn
séu mesta ógn heimsins.
Útbreiðsla gereyðingar-
vopna:
Stærsta ógnin
WASHINGTON, AP „Möguleikinn á
leynilegri skyndiárás með ger-
eyðingarvopnum er stærsta ógn
sem blasir við mannkyninu í dag“
sagði George W. Bush, Banda-
ríkjaforseti, í útvarpsávarpi í
gær.
Bush lagði áherslu á nauðsyn
þess að stöðva útbreiðslu gereyð-
ingarvopna og koma í veg fyrir að
þau féllu í hendur hryðjuverka-
manna. Forsetinn sagði að Banda-
ríkjastjórn væri að þróa eld-
flaugavarnarkerfi til að vernda
þjóðina gegn efna- og sýklavopna-
árásum. Hann benti á mikilvægi
þess að þjóðir heimsins ynnu sam-
an en ítrekaði þó að Bandaríkja-
menn hikuðu ekki við að beita
valdi ef þeir teldu að öryggi þjóð-
arinnar væri í húfi. ■
Eingöngu 4 verð
í gangi!
1.000
2.000
3.000
4.000
Útsölulok
Reykjavíkurvegi 66,
220 Hafnarfjörður,
s. 565 3900
Verkalýðsfélag í mál við utanríkisráðuneytið vegna
starfsmanna hjá varnarliðinu:
Launahækkanir og
menntaálag í vanskilum
ROCKVILLE Á MIÐNESHEIÐI
Afleiðing þess að Byrgið flutti frá Rockville er að mati Guðmundar Jónssonar, forstöðumanns Byrgisins,
sú að fleiri hafa látist af völdum vímuefna. Skortur á meðferðarplássi er meginástæðan.
Kona, 31 árs,
lést 2004.
Karlmaður, 50
ára, lést 2004.
Karlmaður, 62
ára, lést 2004.
Kona, 22 ára,
lést 2003.
Karlmaður, 30
ára, lést 2003.
Karlmaður, 43
ára, lést 2003.
Karlmaður, 47
ára, lést 2003.
Kona, 52 ára,
lést 2003.
Karlmaður, 53
ára, lést 2003.
Karlmaður, 53
ára, lést 2003.
Karlmaður, 55
ára, lést 2003.
Karlmaður, 57
ára, lést 2003.
Karlmaður, 57
ára, lést 2003.
Kona, 66 ára,
lést 2003.
HEILBRIGÐISMÁL Forstjóri Landspít-
ala - háskólasjúkrahúss hefur
skipað starfshóp til að fylgjast
með framvindu þeirra ákvarðana
um sparnaðaraðgerðir sem sam-
þykktar hafa verið. Lögð er
áhersla á að stjórnendur sviða og
framkvæmdastjórar sjái til þess
að umræddum aðgerðum verði
hrundið í framkvæmd.
Til þess að fylgja starfinu eftir
á hópurinn að hafa aðgang að
þeim gögnum sem málið varða.
Starfshópurinn skal hafa fullan
aðgang að framkvæmdastjórn,
sviðsstjórum, fjármálaráðgjöfum
skrifstofa og öðrum eftir því sem
hópurinn telur þörf á til að fá upp-
lýsingar um framgang mála.
Hópnum er sérstaklega falið að
fylgjast með að fækkun starfs-
fólks verði eins og ákveðið hefur
verið, starfshlutfall manna verði
eins og ætlað er og að samdráttur
á einu sviði spítalans valdi ekki
útgjöldum hjá öðrum sviðum.
Jafnframt að metin verði áhrif
samdráttar á kennslu og vísinda-
starf, starfsemi dragist saman
þar sem það var fyrirhugað og að
unnið verði að sparnaði í innkaup-
um lyfja og rekstrarvöru í sam-
ræmi við sett markmið. Hópurinn
skal skila skriflegri skýrslu til
framkvæmdastjórnar fyrir lok
hvers mánaðar. Hann skilar loka-
skýrslu í enda október 2004. ■
Aðgerðir á Landspítala - háskólasjúkrahúsi:
Starfshópur fylgist
með sparnaði
FYLGST MEÐ AÐGERÐUM
Þar til skipaður starfshópur mun fylgjast
með því að ákvörðunum um sparnaðar-
aðgerðir á Landspítala verði framfylgt.
Sértrúarsöfnuður í Japan:
Meðlimirnir
sneru aftur
TÓKÍÓ, AP Yfir helmingur þeirra
sem handteknir voru vegna
gasárásar í neðanjarðarlest í
Tókíó 1995 gengu aftur til liðs við
sértrúarsöfnuðinn Aum Shinrikyo
eftir að þeim var sleppt úr haldi.
Tólf manns létust í árásinni og um
5000 veiktust. Alls hafa ellefu
meðlimir safnaðarins verið
dæmdir fyrir aðild að árásinni.
Lögreglan reyndi að uppræta
starfsemi safnaðarins en meðlim-
irnir stofnuðu nýja hreyfingu,
Aleph. Félagar þar eru um 1000
talsins. ■