Fréttablaðið - 16.02.2004, Qupperneq 10
10 16. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Þingmenn reyna að koma í veg fyrir hjónabönd samkynhneigðra:
Hýr hjónabönd gera allt vitlaust
BOSTON, AP Tveggja daga umræður
á ríkisþingi Massachusetts skil-
uðu engri niðurstöðu um hvernig
lagaramma ætti að sníða um hjú-
skaparstöðu samkynhneigðra í
stjórnarskrá ríkisins. Umræðunni
hefur nú verið frestað um mánuð.
Hæstiréttur ríkisins fyrirskip-
aði löggjöf sem tryggði rétt sam-
kynhneigðra til að ganga í hjóna-
band en það hefur mætt mikilli
andstöðu. Samkvæmt þeim dómi
geta samkynhneigðir gengið í
hjónaband upp úr miðjum maí en
áhrifamiklir stjórnmálamenn
vilja koma í veg fyrir það og segja
hjónaband aðeins samband karls
og konu, ekki einstaklinga af
sama kyni.
Baráttumenn fyrir réttindum
samkynhneigðra fögnuðu frestun-
inni því hún tryggði að þingið
samþykkti ekki ákvæði sem
kæmu í veg fyrir hjónabönd sam-
kynhneigðra.
Í Kaliforníu samþykktu kjós-
endur ákvæði fyrir fjórum árum
um að hjónaband væri samband
karls og konu. Það kom ekki í veg
fyrir að borgaryfirvöld í San
Francisco ákváðu að gefa út hjú-
skaparleyfi til samkynhneigðra á
fimmtudag. Eftirspurnin var mun
meiri en búist var við og þurftu
því margir að snúa aftur næsta
dag sem fengu ekki úrlausn sinna
mála. ■
MIÐAUSTURLÖND Snjóbylur lamaði
samgöngur og athafnalíf víða í
Miðausturlöndum um helgina.
Loka varð skólum, opinberum
stofnunum og fyrirtækjum þar
sem nemendur og starfsfólk gátu
ekki komist á milli staða.
Í Amman, höfuðborg Jórdaníu
var þrjátíu sentímetra jafnfall-
inn snjór. Öngþveiti myndaðist á
götum borgarinnar enda heima-
menn óvanir slíkum aðstæðum. Í
norðurhluta landsins var snjólag-
ið allt að áttatíu sentímetrar.
Börn og fullorðnir notuðu tæki-
færið og bjuggu til snjókarla,
fóru í snjókast eða renndu sér á
sleða. Landsmenn fögnuðu því að
heyra loksins fréttir af veðri í
staðinn fyrir fréttir af mann-
skæðum árásum og blóðugum
bardögum.
Einnig var mikil snjókoma í
Sýrlandi, Líbanon, Ísrael og á
hernumdu svæðum Palestínu.
Um 10.000 líbanskir her- og lög-
reglumenn voru kallaðir út til að
hjálpa yfir 400 ökumönnum sem
sátu fastir í snjó á þjóðvegum
landsins. Eitt dauðsfall hefur
verið rakið til veðursins í
Líbanon en maður fékk raflost
þegar rafmagnslína slitnaði í
rokinu. ■
BÖRN AÐ LEIK
Kennsla féll niður í flestum skólum í Jer-
úsalem vegna snjókomunnar og notuðu
börnin tækifærið og renndu sér á sleða.
LÍFVERÐIR ARAFATS Í SNJÓKASTI
Lífverðir Yassers Arafat, leiðtoga Palestínumanna, fóru í snjókast fyrir utan bækistöðvar Arafats í bænum Ramallah á Vesturbakkanum.
YFIR ÞRJÁTÍU LÉTUST Í
ÁREKSTRI Að minnsta kosti 32
létu lífið þegar olíuflutningabíll
lenti í árekstri við yfirfulla
rútu á þjóðvegi í Úganda. Eldur
kviknaði í flutningabílnum við
áreksturinn og brann rútan
einnig til kaldra kola. Slysið er
rakið til glæfralegs framúr-
aksturs.
FORSETI TÚNIS FER TIL
WASHINGTON Zine El Abidine
Ben Ali, forseti Túnis, fór í op-
inbera heimsókn til Washington
til að ræða við George W. Bush
Bandaríkjaforseta um barátt-
una gegn hryðjuverkum, deilu
Ísraela og Palestínumanna og
önnur mikilvæg mál.
■ Evrópa
■ Afríka
40.000 ÍRASKIR FLÓTTAMENN
SENDIR HEIM Yfirvöld í Bret-
landi áforma að senda 40.000
íraska flóttamenn heim þegar
bandaríska hernámsliðið í Írak
færir völdin í hendur heima-
manna. Innanríkisráðherra
Bretlands átti fund með yfir-
manni Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna vegna
þessa.
FJÓRIR JÁRNBRAUTARSTARFS-
MENN LÉTUST Fjórir breskir
járnbrautarstarfsmenn biðu
bana og þrír slösuðust þegar
þeir voru að vinna við endur-
bætur á járnbrautarteinum í
norðvesturhluta Englands. Slys-
ið varð þegar vagn með nýjum
teinum losnaði frá lest sem
hann var tengdur við og rann á
mennina. Þrír voru fluttir á
sjúkrahús og er einn þeirra
alvarlega slasaður.
HAMINGJUSAMAR BRÚÐIR
Alexandra D’AMario og Margot McShane
gengu í hjónaband þegar borgaryfirvöld í
San Francisco ákváðu að staðfesta hjóna-
bönd samkynhneigðra og gefa út
hjúskaparleyfi til þeirra.
Snjóbylur lamaði athafnalíf í Miðausturlöndum:
Óveður í stað átaka
SNJÓKOMA Í JERÚSALEM
Palestínskar stúlkur ganga eftir snævi þakinni götu í Jerúsalem.
FÓTBOLTABULLUR GENGU
BERSERKSGANG
Belgíska óeirðalögreglan var kölluð út til
að hafa hemil á um 300 marokkóskum
fótboltabullum sem gengu berserksgang í
miðborg Brussel eftir að lið þeirra beið
ósigur í leik gegn Túnis. Marokkóarnir
brutu rúður og eyðilögðu símaklefa. Leik-
urinn fór fram í Túnis en mikill fjöldi
marokkóskra innflytjenda býr í Belgíu.