Fréttablaðið - 16.02.2004, Page 27
MÁNUDAGUR 16. febrúar 2004 27
Umfjöllunkvikmyndir
HOUSE OF SAND AND FOG
Leikstjóri: Vadim Perelman
Aðalhlutverk: Jennifer Connelly, Ben Kingsley, Ron Eldard
LAST SAMURAI kl. 9 B i 14 ára
HUNTED MANSION kl. 7
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 5 Með ísl. tali
SÝND kl. 9
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 5.44, 8 og 10.15 B i 16 ára
SÝND kl. 4, 6.30 og 9
kl. 5.20, 8 og 10.40 BIG FISH
kl. 5.30, 8 og 10.30 Bi. 1621 GRAMS
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
HHH H.J Mbl.
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.Charlize Theron
vann Golden
Globe-verðlaun
fyrir besta
leik í aðalhlutverki
og myndin er
einnig tilnefnd
til Óskarsverðlauna
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
SÝND kl. 6, 8.30 og 22.40 B. i. 16 ára
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
HHH1/2 SV MBL
HHHH Kvikmyndir.com
HHH ÓHT RÁS 2
SÝND kl. 6 M/ísl. tali
Ath. miðaverð 500
SÝND kl. 8 og 10.15 B. i. 14 ára
SÝND kl. 6
SÝND kl. 5.45 8 og 10.30
Með hinni efnilegu Beyoncé Knowles, fimmföl-
dum Grammy verðlaunahafa og Óskarsverðlauna-
hafanum Cuba Gooding Jr.
Söngvarinn Art Garfunkel, semgerði garðinn frægan á sínum
tíma með félaga sínum Paul Simon,
hefur verið dæmdur til að greiða
100 dollara sekt fyrir að eiga mari-
júana í fórum sínum. Garfunkel,
sem er 62 ára, var ákærður eftir að
efnið fannst í limúsínu hans þegar
hann var stöðvaður fyrir of hraðan
akstur í grennd við New York þann
17. janúar. Félagarnir Simon og
Garfunkel hafa nýlokið fyrsta tón-
leikaferðalagi sínu í 20 ár en það
breytti engu um það að lögreglu-
maðurinn sem stöðvaði Garfunkel
hafði ekki hugmynd um hver þessi
fornfrægi söngvari var.
Leikkonan Jennifer Aniston hef-ur hækkað launakröfur sínar
verulega nú þegar sér fyrir endann
á hinum vinsælu
sjónvarpsþáttum
um Vini. Hún hef-
ur hingað til tekið
þrjár milljónir
dollara fyrir kvik-
myndahlutverk en
fer nú fram á sex
milljónir fyrir
hverja mynd.
Fyrstu tilraunir hennar til að fóta
sig á hvíta tjaldinu, Picture Perfect
og Object Of My Affection, fengu
frekar dræmar viðtökur en stelpan
hefur verið að sækja í sig veðrið
undanfarið með myndum, eins og
The Good Girl, Bruce Almighty og
Along Came Polly, en bæði gagn-
rýnendur og forsprakkar kvik-
myndaveranna telja hana hafa ver-
ið að gera góða hluti.
Sá orðrómur gengur nú fjöllumhærra að samningar séu að nást
við írska leikarann
Liam Neeson um
að hann taki að sér
hlutverk í fimmtu
Batman myndinni.
Talsmenn Warner
Brothers, sem
framleiðir mynd-
ina, eru þögulir
sem gröfin en þeir
hafa nú þegar gengið frá ráðningu
Christians Bale í hlutverk Leður-
blökumannsins og Michaels Caine í
hlutverk þjóns hans. Katie Holmes
leikur kærustu Batmans og Cillian
Murphy illmennið Fuglahræðuna.
Fróðir menn telja að stefnt sé að
því að fá Neeson til að leika annað
illmenni.
P.Diddy er alls ekki búinn aðgefa fyrrum eiginkonu sína
Jennifer Lopez upp á bátinn en
kappinn,
sem þykir í
meira lagi
glysgjarn,
gaf henni
forláta dem-
antshálsmen
á Valentínus-
ardaginn.
Menið, sem kostaði 400.000 pund,
er úr platínu með einum stórum
hjartalöguðum demanti. P.Diddy og
Jennifer skildu í október árið 2000
en eftir að slitnaði upp úr sam-
bandi leikkonunnar og Bens
Affleck virðist Diddy sjá sér leik á
borði. Sagan segir að hálsmenið
hafi svínvirkað á Jennifer, ekki síð-
ur en fallegt kortið sem fylgdi með
en þar tjáði Diddy henni ódauðlega
ást sína. ■
Fréttiraf fólki
Pondus eftir Frode Øverli
Myndin er byggð á samnefndriskáldsögu eftir Andre Dubus
og fjallar, í stórum dráttum, um
unga konu (Jennifer Connelly)
sem missir hús sitt vegna skulda.
Íranskur fjölskyldufaðir og fyrr-
verandi yfirmaður í hernum (Ben
Kingsley) kaupir húsið á nauðung-
aruppboði. Ætlun hans er síðan að
selja húsið á fjórföldu verði og
geta þannig veitt fjölskyldu sinni
á ný þann lífsstíl sem þau þekktu í
gamla landinu. Unga konan erfði
hins vegar húsið af föður sínum
og getur ekki hugsað sér að missa
það. Búin að klúðra svo mörgu
öðru í lífinu. Hjálpsamur (og skot-
inn) lögreglumaður (Ron Eldard)
aðstoðar konuna við að endur-
heimta eignina. Misheppnaðar að-
ferðir þeirra hafa skelfilegar
afleiðingar í för með sér.
Ég tek það fram að það eru
engar hetjur eða skúrkar í mynd-
inni, persónurnar eru ósköp
venjulegt fólk með venjulega
drauma og þrár en röð tilviljana
og stór skammtur af óheppni leið-
ir hópinn óhjákvæmilega í átt til
glötunar. Þetta er einn helsti kost-
ur myndarinnar og gerir hana á
einhvern hátt trúverðuga. Maður
skynjar snemma að allt muni fara
á versta veg og hvílir þessi tilfinn-
ing eins og mara á áhorfandanum
alla myndina. Leikarar eru hver
öðrum betri og ber sérstaklega að
nefna írönsku leikkonuna
Shohreh Aghdashloo, sem leikur
eiginkonuna ráðvilltu. Hún er til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir
hlutverk sitt í myndinni og er hún
vel að því komin. Myndin er ekki
hentug þunglyndum eða þeim sem
stóla á farsæla enda. Hins vegar
ættu áhugasamir um dramatískar
og grípandi kvikmyndir hiklaust
að skella sér. Góða skemmtun?
Kristófer Dignus
KVIKMYNDIR Þýska myndin Gegen die
Wand, eða Beint af augum, vann
Gullbjörninn, á kvikmyndahátíðinni
í Berlín á laugardaginn. Myndin
segir sögu ungrar tyrkneskrar konu
sem er fædd og uppalin í Þýska-
landi en afræður að giftast manni
sem hún elskar ekki til þess að
sleppa undan oki strangtrúaðrar
fjölskyldu sinnar.
El abrazo partido, Týnda faðm-
lagið, í leikstjórn Daniels Burman
vann Silfurbjörninn en þar segir frá
ungum argentínskum gyðingi sem
reynir að komast til Evrópu á
pólsku vegabréfi en endar á því að
rannsaka ástæðurnar fyrir því að
faðir hans kaus að berjast fyrir
Ísrael.
Leikkonurnar Charlize Theron
og Catalina Sandlino Moreno hlutu
Silfurbirni fyrir leik í myndunum
Monster og Maria, llena eres de
gracia en Daniel Handler fékk verð-
laun sem besti karlleikarinn fyrir
Týnda faðmlagið.
Það var formaður sjö manna
dómnefndar, bandaríska leikkonan
Frances McDormand, sem kynnti
úrslitin í Berlín á laugardaginn. ■
KVIKMYNDIR Leikstjórinn Quentin
Tarantino verður formaður dóm-
nefndarinnar á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í ár að því er fram
kemur í tilkynningu frá aðstand-
endum hátíðarinnar. Tarantino,
sem er 40 ára, vann Gullpálmann í
Cannes árið 1994 fyrir Pulp
Fiction og er að vonum upp með
sér yfir ákvörðun Frakkanna.
„Það er ekki hægt að hugsa sér
meiri heiður fyrir kvikmynda-
gerðarmann og kvikmyndaunn-
anda en að fá að sitja í dómnefnd-
inni í Cannes. Þetta er hátindur
lífs míns sem hefur allt snúist um
bíómyndir. Ég er heltekinn af
kvikmyndum og það er gott,“
sagði Tarantino eftir að ákvörðun-
in var gerð opinber.
Seinnihluti Kill Bill tvíleiks
Tarantinos verður frumsýndur í
vor og þar með lýkur hann vinnu
sem hófst við tökur á Pulp Fiction
fyrir 10 árum en þá kviknaði hug-
myndin að Kill Bill. ■
Heima er best
Beint af augum
fékk Gullbjörninn
FATIH AKIN
Leikstjóri myndarinnar Gegen die Wand er
Þjóðverji af tyrknesku bergi brotinn. Myndin
hans vann Gullbjörninn á Berlínarhátíðinni á
laugardaginn og Akin var að vonum kátur.
Tarantino tekur völdin
í Cannes
QUENTIN TARANTINO
Er í sjöunda himni þessa dagana enda
verður hann formaður dómnefndar á
Cannes-hátíðinni í vor.
Guð minn
góður!
Ja hérna hér!
Ég hef séð 4.999
og 6.999... meira
að segja 11.999...
Við vitum hvað
þú ert að ganga
gegnum, Hinrik!
Svo
ná-
lægt...
Við
styðjum
þig!
...en aldrei
49.999!
Ég get
ekki
horft upp
á þetta!
Stuðn-
ingshópur
púsluspil-
ara
Stuðnings-
hópur púslu-
spilara