Fréttablaðið - 17.02.2004, Blaðsíða 32
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
Stíflur og
meinlokur
www.undur.is
MÁLVERK?
Síðla ágústmánaðar árið 1970 söfn-uðu Mývetningar, Aðaldælir og
Laxdælir liði. Þeir héldu að Miðkvísl
í Laxá. Þeir beittu fyrir sig sprengi-
efni og rufu stíflugarð í kvíslinni.
Stífla þessi hafði verið reist að þeim
forspurðum. Heimamenn óttuðust
slæm áhrif stíflumannvirkja á lífríki
Laxár og Mývatns. Því næst héldu
stíflubrjótar í langri bílalest til Ak-
ureyrar. Fyrir lestinni fór fánum
prýdd vörubifreið með kjörorðunum:
Með lögum skal land byggja, en með
ólögum eyða.
STÍFLUBRJÓTAR lýstu verknaðin-
um á hendur sér, stoltir af framsýni
sinni sem varðmenn náttúruperla í
Þingeyjarsýslu, og líklega hafa engir
frónverjar, fyrr og síðar, lagt jafn
mikla áherslu á að komast á saka-
skrá. Laxárdeilu lyktaði með sátt við
heimamenn og landsmenn alla, en
ósjaldan síðan hefur Þingeyingum
verið þakkað þetta kraftmikla fram-
tak.
ÞVÍ sætir það furðu að yfirvaldið
skuli enn ráðast til atlögu og heimta
skatt af Laxá. Það virðist einkennileg
meinloka. Með frumvarpi umhverfis-
ráðherra um breytingar á lögum um
verndun Mývatns og Laxár er Lands-
virkjun boðið upp á stífluhækkun og
nú er stefnt á tólf metra án þess að
kannaðir hafi verið aðrir valkostir til
að stöðva sandburð niður ána og án
þess að fyrir liggi verndaráætlun
fyrir svæðið. Magnað hugmyndaflug
einkennir þá sem hyggjast sökkva
neðsta hluta Laxárdals. Sérfróðir
vilja að auki meina að lón ofan við
hækkaða stíflu fyllist af aurburði á
innan við tveimur áratugum og þá
virðist ávinningurinn að engu orðinn.
SAMVINNA umhverfisráðuneytis
og virkjanastofnana er merkilega
náin og notaleg hér á norðurhjara og
umhugsunarefni hvort ekki væri í
því hagræðing að hafa þessar stofn-
anir undir sama þaki. Nú þegar um-
hverfisráðherra hefur lagt niður
Náttúruverndarráð og Náttúruvernd
ríkisins er ráðuneytið blessunarlega
laust við allt innra eftirlit með nátt-
úruvernd. Það er sorgleg staðreynd
að þrjátíu og fjórum árum síðar sé
Laxárdeilan endurvakin og úrkostir
náttúruverndarsinna jafn fátæklegir
og þegar Þingeyingar gripu til ör-
þrifaráða á liðinni öld. ■
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
HUGSAÐU LENGRA
HEKLA • Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.hekla.is • hekla@hekla.is
TERNO: ENN
MEIRI BÚNAÐ
UR
Skoda Octavia hefur alltaf staðist samanburð við mun dýrari bíla
í sama stærðarflokki. Og nú er forskotið orðið enn meira því við
höfum fengið sendingu af Octavia Terno til landsins! Terno er mun
betur búin útgáfa af Octavia, þar sem gengið er skrefinu lengra í
glæsilegu útliti og þægindum, með rafdrifnum rúðum og álfelgum.
Orðið Terno þýðir raunar óvæntur fengur á tékknesku, sem
undirstrikar að þú ættir að drífa þig í HEKLU og tryggja þér eintak.
SkodaOctavia Terno kostar frá 1.745 þús.
N Ý O G B E T R I Ú T G Á F A F R Á S K O D A
OCTAVIA TERNO
AÐ ÞAÐ VÆRI EKKI
HÆGT AÐ FÁ MEIRA
OG ÞIÐ SEM HÉLDUÐ
ÁLFELGUR
RAFMAGN Í RÚÐUM
4 LOFTPÚÐAR
FJARSTÝRÐAR SAMLÆSINGAR
ABS HEMLAKERFI
SPÓLVÖRN
GEISLASPILARI
4 HÁTALARAR
VÖKVASTÝRI
AKSTURSTÖLVA
SJÁLFSKIPTUR EÐA BEINSKIPTUR
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
5
3
9
0
Innifalið í rekstrarleigu: 20.000 km akstur á ári, þjónustuskoðanir og smurþjónusta. Rekstrarleiga er háð gengi gjaldmiðla og getur því breyst án fyrirvara.
Rekstrarleiga frá 27.900 kr. á mánuði.
Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 • HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100
HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 • HEKLA, Selfossi, sími 482 1416