Tíminn - 05.01.1972, Síða 13
I
MIÐVIKUDAGUR 5. janúar 1972
TIMINN
13
eiksmaður úr Hafn-
ttamaður ársins“
Klp-Reykjavík. — í gær
voru kunngerð úrslit í at-
kvæðagreiðslu íþróttafréttarit
ara blaða, útvarps og sjón-
varps um íþróttamann ársins
'71. Voru þau kunngerð í hófi,
sem Samtök íþróttafréttarit-
ara héldu að Hótel Esju, en
þar voru samankomnir þeir
sem urðu í 10 efstu sætun-
um, svo og forráðamenn
þeirra sérsambanda, sem áttu
menn á listanum og íþrótta-
fréttaritarar.
Jón Ásgeirsson, formaður Sam-
takana kunngerði úrslitin. Iþrótta-
maður ársins 1971 var kjörinn
Hjalti Einarsson handknattleiks-
maður úr FH, sem á árinu lék
sinn 50. landsleik, fyrstur allra ís-
lendinga til að ná því marki. Það
gerði hann í leik, sem lengi verð-
ur í minnurn hafður, jafnteflis-
leiknum við heimsmeistarana frá
Rúmeníu 14:14, en í þeim leik
sýndi Hjalti einhverja þá beztu
markvörzlu, sem sézt hefur til ís-
lenzks markvarðar fyrr og síðar.
Hjalti hlaut 53 stig, en 4 stig-
um á eftir honum kom hinn góð-
knnni sundmaður, Guðmundur
Gíslason með 49 stig. Aðeins 1
stig á eftir Guðmundi og 5 á eftir
Hjalta kom- ■ Bjami Stefánsson,
frjálsíþróttamaður. Má því með
sajmi.s^gja að litlu hafi muna® á
þrem efstu mönnum.
AHs fengu 27 íþróttamenn og
kxrnur stig að þessu sinni. Hefur
aðeins einu sinni stærri hópur
fengið stig, en það var 1968 er
28 mam.ns fengu eitt stig eða meir.
Af þessum 27, sem nú vom með,
voru mættir þeir 10 efstu í hófið.
Allir fengu Þeir áritaða gjöf til
minningar um þetta, en það var
bókin Keppnismenn, sem Bóka-
útgáfan Örn og Örlygur gaf.
Þeir sem urðu í 10 efstu sætun-
um urðu þessir:
stig.
1. Hjalti Einarsson, FH 53
2- Guðmundur Gíslason, Á 49
3. Bjami Stefánsson, KR 48
4. Geir Hallsteinsson, FH 35
5. Finnur Garðarsson, Æ 30
6. Ellert B. Schram, KR _ 22
7. Guðjón Guðmundsson, ÍA 19
8. Haraldur Kornelíusson, TBR 17
9. Ólafur H. Jónsson, Val 17
10. Gunnar Gunnarsson, Víking 14
Aðrir, sem hlutu stig í kosn-
ingunni vora:
Guðmundur Hcrmannsson, KR;
Guðni Kjartansson, IBK; Salome
Þórisdóttir, Æ; Haukur Jóhanns-
son, ÍBA; Jón Alfreðsson, ÍA;
Friðrik Guðmundsson, KR; Er-
lendur Valdimarsson, ÍR; Þor-
steinn Hallgrímsson, ÍR; Guð-
mundur Sigurðsson, Á; Óskar
Sigurpálsson, Á; Ragnhildur Páls-
dóttir, UMSK; Valbjörn Þorláks-
son, Á; Kristinn Jörandsson, ÍR/
Fram; Vilborg Júlíusdóttir, Æ;
Björgvin Hólm, GK; Björgvin
Þorsteinsson, GA.
GEYMT EN
EKKI GLEYMT
Vegna þrengsla í blaðinu í flag
verður umsögn um pressuleiki.nn
á mánudagskvöldið — valið á
landsliðinu gegn Tékkóslóvakíu —
getraunaspá og fleira íþróttaefni
að bíða til morguns.
Þeir, sem urðu i 10 efstu sætunum í atkvæðagreiðslunni um íþróttamann ársins 1971. Fremri röð f.v. Finnur Garðarsson, Guðmundur Gíslason,
Hjalti Einarsson, Bjarni Stefánsson, Geir Hallsteinsson. Aftari röð f.v. Haraidur Kornelíusson, Guðjón Guðmundsson, Ólafur H. Jónsson, Ellert B.
Schram og Gunnar Gunnarsson.
„Þetta verður mér ógleym-
anlegt um aldur og ævi“
-segir Iþróttamaður ársins’7í
Það er óþarfi að kynna
fþróttamann ársins 1971, Hjalta
Einarsson fyrr.r lcsendum
íþróttasíðunnar. Hann hefm- um
áraraðir skreytt hana, annað
hvort með mynd eða fögrum
lýsingarorðum.
Þó stundum hafi það skeð
að lýsingarorðin hafi ekki ver-
ið mjög jákvæð, eru þau skipti
teljandi, enda hefur hann oft-
ast gert vel í leikjum sínum —
oft betur en margir aðrir, þó
með honum liafi leikið góðir
menn, bæði í landsliði og með
FH.
Það kom Hjalta sýnilega a
óvairt, þegar Jón Ásgeirsson
formaður Samtaka íþróttafrétta
ritara, tilkynnti úrslitin. Undir
ritaður horfði beint í andlit
Hjalta þegar Jón las nafn hans
upp fyrst. Þar var að sjá undr
un, en síðan ljómaði andlit
hans, þegar hann var beð-
inn um að standa upp og taka
við verðlaununum, sem hann
gerði rjóður út undir eyru við
dynjandi lófaklapp viðstaddra.
Eftir afhendinguna náðum
við sem snöggvast tali af hon-
um, en þá var erfitt að ná
sambandi við hann. Allir voru
að óska honum til hamingju og
myndavélar blaðaljósmyndar-
anna voru á lofti, svo hann gat
varla snúið sér við.
Aðspurður sagði hann að
þessi útnefning hefði komið sér
mjöig á óvart. Hann hefði aldrei
búizt við þessu, og þegar hann
hefði litið á hópinn, sem þama
var mættur, hefði það ekki
komið sér til hugar að hann
yrði í efsta sæti.
Hann sagðist ekki geta lýst
ánægju sinni, þetta væri einn
hátindur ferils síns sem íþrótta
manns — þetta yrði sér ógleym
anlegt um aldur og æfi — eins
oig landsleikuirinn við Rúmeníu,
þegar hann hefði leikið sinn 5C.
landsleik.
Hjalti sagðist hafa byrjað að
leika handknattleik fyrir 20 ár-
um, en sinn fyrsta meistara-
flokksleik hefði hann leikið ár-
ið 1955, en þeir væru nú orðn-
ir á fjórða hundrað og lands-
leikirnir orðnir 52 talsins.
Frá síðasta ári, væri sér eft-
irminnilegastur landsleikurinn
við Rúmeníu, sem hefði farið
14:14, en þar hefði hann leikið
sinn 50. landsleik. Sá leikur
hafi verið einn sá bezti, sem
hann hefði leikið, enda hefði
vörnin, sem hann hefði haft
fyrir framan sig þá, verið stór-
kostlega góð.
Við spurðum Hjalta að því
hvort hann hefði nokkuð í
hyggju að fara að hætta hand-
knattleiknum. Hann sagði að
Hfalti Einarss.
það hefði hvarflað að sér að
fara að hætta. — En eftir þetta
verður maður víst að halda
áfram, enda er það hægara
sagt en gjört að hætta eftir
öll þessi ár. — Ég er búinn að
eyða í íþróttirnar mörgum tím
um, og þeim sé ég ekki eftir.
Þar hef ég kynnzt mörgum góð
um mönnum ,sem annars hefðu
farið fram hjá mér, og átt
ógleymanlegar stundir með
þeim bæði í leik og fyrir utan
völlinn.
Að vera íþróttamaður í dag
er fullt starf fyrir þann sem
ætlar sér og vill ná langt sagði
Hjalti. Það kostar bæði mikinn
tíma og einnig mikið fé, enda
er lítið um það að íþróttamenn
Framhald á bls. 14
um, sem sæmdarheitinu filgir úr hendi Jóns Ásgeirssortar, formanns
Samtaka íþróttafréttaritara. (Tímamyndir Gunnar)
9
I