Tíminn - 23.02.1972, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Míðvíkudagur 23. febrúar 1972
Er kennslunni
ábótavant?
ffilH lilf 'ÍWfil 111
Versta EBE tilboðið
Það vakti mikla athygli á
fundi Norðurlandaráðs I Hels-
ingfors, þegar Jens Otto
Krag forsætisráðherra
Dana sagði, aö það samnings-
tilboð, sem tslandi hefði veriö
gert af hálfu Efnahagsbanda-
lagsins, væri örugglega það
versta, sem gert hefur verið
þeim þjóðum, sem ekki sækja
um fulla aðild aö bandalaginu.
Krag sagði, að þetta væri
ekki aðeins skilningur Dana á
málinu, heldur teldi hann sér
óhætt að fullyrða, að það væri
almenn skoöun, einnig meðal
landanna sex i Brussel.
Vegna þessa kvað Krag vera
ærna ástæðu til að ætla, að
unnt yrði að bæta þetta
samningstilboð Efnahags-
bandaiagsins gagnvart
tslandi.
Forsætisráðherra Dana
sagði, að danska rlkisstjórnin
ætti auðvelt meö að skilja
sjónarmið tslendinga i land-
helgismálinu, þar sem við
svipaö vandamál væri að
gllma I Færeyjum. Ef ekki
væri unnt aö halda uppi fisk-
veiöum frá Færeyjum, væri
enginn grundvöllur fyrir þvi
aö Færeyingar gætu lifaö þar.
Það er lifshagsm unamál
islenzku þjóöarinnar að færa
fiskveiðilögsöguna út I 50 sjó-
milur, sagði Krag, en
Færeyingar geta ekki leyst
sitt vandamál með stækkun
fiskveiðilandhelgi, því að
vciðisvæðin við Færeyjar
eru svo þröng, að Fær-
eyingar yerða undir öllum
kringumstæðum að veiða á
fjarlægum miðum, m.a. viö
tsland og Grænland. Kvaðst
Krag treysta þvl að tslen-
dingar sýndu skilning á
vandamálum Færeyinga.
íslendingar munu
sýna Færeyingum
skilning
t ræðum þeim, sem islenzku
fulltrúarnir á Noröurlanda-
þingi fluttu að lokinni ræðu
Jens Otto Krags, lýstu þeir
allir yfir, að því mætti treysta
að tslendingar myndu lita á
vandamál Færeyinga meö
sérstökum skilningi og góðvild,
og Bjarni Guðnason sagði það
persónulegt álit sitt aö veita
ætti Færeyingum sérstakar
undanþágur innan 50 milna
fiskveiðilögsögunnar við
island og taldi, að það væri
einnig afstaða alls almennings
á tslandi.
Erlendur Patursson þakkaði
islenzkum fulltrúum hlýhug i
garð Færeyinga og fagnaöi
orðum þeirra um afstöðu
tslendinga til fiskveiðihags-
muna Færeyinga á tslands-
miðum. Hann kvað Færeyinga
hafa kynnzt vináttu islendinga
á ýmsum sviðum. tslendingar
og Færeyingar hefðu komið
sér saman um samvinnu á
sviði fiskútflutnings og hann
minnti á einróma samþykktir
Alþingis og Lögþings Færeyja
um aukna menningar- og ef-
nahagssamvinnu tslendinga
og Færeyinga. Kvaðst
Patursson lita á afstöðu
tslendinga i landhelgismálinu
sem staðfesting á þvi að
alvara væri á bak við þær
ályktanir. Óskaði hann
tslendingum til hamingju með
einróma á-kvörðun um að
stækka fiskveiðilögsöguna i 50
sjómilur 1. september n.k.
—TK
Landfara hefur borizt bréf frá
óánægðri húsmóður, þar sem hún
kvartar undan því, að barn
hennar hafi ekki nóg aðhald i
skólanum hvað nám snertir, og
lætur jafnvel að þvi liggja, að
áhugi kennara hafi dvinað, og
varla sé hægt að ætlast til þess að
nemendur hugsi sjálfir fyrir þvi
að drifa sig við námið. Bréf
óánægörar húsmóður hljóðar
svo:
Kæri Landfari.
Ég á barn i skóla, sem er ekki
tornæmara en gengur og gerist.
Nú i vetur virðist mér að barn
mitt nái ekki eins góðum árangri
og áður við námið. Má vel vera að
þetta stafi af þvf að komið sé á
svonefnt gelgjuskeið, Ég vil þó
ekki lita svo á, að minnkandi
áhuga þess á náminu sé alfarið
hægt að skrifa á reikning gelgju-
skeiðsins.
Ég hef þótzt merkja það á
ýmsu, að eitthvað kunni aö vera
ábótavant kennslunni i skólanum.
Ég dreg þetta af þvi, að þaö er
eins og fri séu gefin af minnsta
tilefni. Einnig eru timar að falla
niður vegna veikinda kennara,
sem getur verið eðlilegt og óvið-
ráðanlegt, en það er undarlegt
þegar slikt gerist dag og dag, og
varla i samræmi við eðlilega
háttu veikinda.
Ég þykist vita að skólinn hafi
hæfu starfsfólki á að skipa. Hitt
veit ég einnig, að þegar ég þekkti
til, þá voru kennarar svo áhuga-
samir um sin störf, að ekkert
komst að nema kennslan á meðan
á skólatima stóð. Kennslan var
helzta áhugaefni kennarans, en
ekki starf þar sem mánaðamótin
skiptu mestu. Mikið er orðið um
það nú, að konur kenni sem eru
nýlega búnar að stofna heimili,
eiga börn á hverju ári, og þvi
mörg og mikil og brýn áhugamál
utan skólans, jafnvel áhyggjur,
sem geta haft truflandi áhrif.
Alkunna er, að námsfólk er næmt
á undankomuleiðir, sé athygli
þess ekki haldið vakandi. Þeir
sem eiga bágt með að einbeita sér
við kennsluna ná eðlilega ekki
eins góðum ágrangri og þeir
kennarar, sem gefa sig aö henni
óskiptir. Auðvitað skiptir það
miklu máli að fólk hafi tekjur, og
einkum hjón, sem eru að stofna
heimili, en mér finnst nú samt, að
skólayfirvöld verði að gæta að þvi
að fá fólk til starfa, sem hefur
raunverulegan áhuga á kennslu,
en er ekki stöðugt að tefla við
mammon.
Þessar áhyggjur er ég að rekja
hér, vegna þess að nú um miðjan
vetur hrapar barn mitt um tvo
heila i aðaleinkunn á miðsvetrar-
prófi. Ég skil ekki hvernig það
getur gerzt. Ég er fús til að játa
allar hugsanlegar ástæður fyrir
þvi hér á minu heimili. En það
hefur bara engum breytingum
tekið frá þvi að barn mitt hafði
góða einkunn I skólanum. Og nú
vil ég spyrja, hvort ekkert eftirlit
sé með þvi i barna- og unglinga-
skólum hér i borginni, hvort
kennslan beri nægan árangur?
Eða getur starfsfólk þessara
stofnana gufazt út og inn um
dyrnar, þegar það tilkynnir ekki
veikindafri, að vild sinni án þess
að hafa áhyggjur af þvi hvort
börn hrapa stórlega i einkunnum
hjá þvi eða ekki?
Óánægð húsmóðir.
Þá höfum við lesið bréf hús-
móðurinnar. Það er staðreynd, að
börn geta verið mismunandi upp-
lögð til náms, eftir þvi á hvaða
aldri þau eru. Heimili og skóli
þurfa að hjálpast að við að halda i
hönd þeirra á meðan þau eru að
þræða hina flóknu stiga námsins.
Þvi aðeins fer þetta vel að allir
hjálpist að við námið. Um eftirlit
með sveiflum i einkunnum veit
Landfari ekki, og lætur aðra um
að svara þvi.
Ný
byggingavöruverzlun
Opnum á morgun byggingavöruverzlun að
Reykjavikurvegi 64 (i húsi Húsgagna-
hafnarfjarðar).
Viðskiptavinir verið velkomnir.
Simi verzlunarinnar er 50292.
Röskur
unglingur
sem lokið hefur skyldunámi, óskast til
starfa. Laun eftir samkomulagi.
Þeir, sem hafa áhuga á starfinu, leggi
nafn og simanúmer ásamt upplýsingum
um einkunn við unglingapróf inn á
afgreiðslu Timans, Bankastræti 7, merkt
„205.”
Sinfóníuhljómsveit
Island
Tónleikar i Háskólabiói fimmtudaginn
24. febrúar kl. 21.00. Stjórnandi Proinnsias
O’Duinn, einleikari Gfsli Magnússon. Flutt verður: Sin-
fónia nr. 29 eftir Mozart, Pianokonsert eftir Stravinský og
Sinfónía nr. 1 eftir Sibelius.
Aðgöngumiðar til sölu i Bókabúö Lárusar Blöndal,
Skólavörðustfg 2 og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Austurstræti 18.
Skólatónleikar fyrir framhaldsskóla i Há
skólabiói föstudaginn 25. febrúar. kl. 14.
Stjórnandi Proinnsias O’Duinn. Flutt verður Sinfónia nr. 4
eftir Tjaikovsky og Promeþeus forleikur eftir Beethoven.
Aðgöngumiðar á kr. 100.- til sölu i skólunum og I bóka-
búðum.
Hellusteypuvél
hrærivél ásamt fylgihlutum til sölu. Upp-
lýsingar i sima 33545.
UTBOÐ
Tilboð óskast i að byggja nýbyggingu,
búningsherbergi og böð, fyrir Knatt-
spyrnufélagið Fram, á lóð félagsins við
Safamýri.
Útboðsgagna má vitja gegn kr. 3000.—-
skilatryggingu til Teiknistofunnar
Staðals, Hverfisgötu 106a, Reykjavik.
ja#sjonvarp
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruöum viðskiptavinum okkar full-
komna varahluta- og viðgerðaþjónustu.
Verzlunin
Garöastræti 11 simi 20080