Tíminn - 23.02.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 23.02.1972, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 23. febrúar 1972 TÍMINN 5 Mikið um glæpi Lögregluyfirvöld á Korsiku hafa nú miklar áhyggjur af þvi, að glæpir færast þar mjög i vöxt. Hefur þetta gengið svo langt, að kalla hefur orðið út aukalögreglulið til þess að gæta laga og reglu á eyjunni. Hvernig klæðum við okkur árið 2000? Tizkufrömuðir Parisarborgar láta sér ekki nægja, að velta þvi fyrir sér, hvernig fólk á að klæða sig i dag. beir spá einnig fyrir um klæðnaöinn eftir þrjátiu ár. Hér sjáið þið eina hugmyndina. Hún er reyndar ekkert sérlega frumleg, þunnur röndóttur samfestingur. bað, sem mesta athygli mun eflaust vekja, eru hlustunartækin á eyrum dömunnar. Hún getur fylgzt með nýjustu fréttum og hlustað á hljómlist, á meðan hún gegnur á milli búða eða flýtir sér i vinnuna, og svo eru það hjólaskautarnir á fótum hennar. Enginn veit þó, hvort þessi spá á eftir að rætast, og heldur er það ótrúlegt. Tapaði 25 þúsund pundum Fjárhættuspil gengur ekki alltaf vel. baðsannaðist á 36 ára gamalli konu, June Olwen Creek i Bedford i Englandi. Hún tapaði 25 þúsund pundum i fjár- hættuspili nú fyrir nokkru, og átti aðeins eftir sex pund, þegar hún hætti. bað versta var, að hún hafði svikið mest af peningunum út úr vinum sinum og kunningjum, venzla- mönnum, svo ekki sé talað um eiginmanninum sjálfum. Frú Creek hefur nú verið dæmd i þriggja ára fangelsi. Frúin hafði stundaði fjárhættuspil i langan tima, en maður hennar hafði þó ekki haft hugmynd um það fyrr en árið 1969, er hún gerði tilraun til að fyrirfara sér af peningaáhyggjum. ¥ Eignast börn á ný Tugþúsundir brezkra karl- manna hafa látið gera á sér smávægilega aðgerð, sem hefur það i för með sér, að eiginkonur þeirra þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur yfir þvi, að þær verði ófriskar. beir, sem gengizt hafa undir þessa að- gerð, sem tekur aðeins fimmtán minútur, hafa verið varaðir við þvi, að þeir geti ekki átt von á þvi að eiga fleiri börn um ævina. Nú hafa bandariskir skurð- læknar og sérfræðingar á þessu sviði skýrt samstarfsmönnum sinum i. Bretlandi frá þvi, að með mjög nákvæmri og vanda- samri aðgerð megi jafnvel gera karlmenn þessa frjóa á nýjan leik. Hafa bandariskir skurð- læknar framkvæmt 150 slikar aðgerðir, sem hafa tekizt, á siðustu 10 árum. Skurðlæknir sá, sem flestar aðgerðirnar ★ hefur gert, hefur skrifað um þær greinargerð, og skýrir þar frá þvi,að minnsta kosti 100 þeirra manna, sem hér um ræðir, hafa orðið feður aftur, og þá venju- legast að börnum seinni kvenna sinna. Hafa þessir menn skilið við fyrri konur sinar, sem þeir allajafnan áttu börn með, kvænzt á ný, og þá óskað eftir að geta eignazt börn, og það orðið, eins og fyrr getur. Sænsku skólabörnin geta valið um mat Skólabörn i Stokkhólmi fá mat i skólanum. bau hafa fram til þessa aðeins fengið einn rétt, og ekki getað valið um fleiri rétti. Nú hefur hins vegar verið lagt til, að þau fái fleiri rétti og geti valið það, sem þau helzt vilja sjálf. Borgarráðsmenn i Stokkhólmi eru ekki allir jafn- hrifnir af þessari tillögu. beir segja, að mjög mikill auka- kostnaður muni fylgja slikri breytingu, og sé réttara að bæta fyrst þann mat, sem nú er fyrir hendi, heldur en að auka úrvalið. * Bjórinn veikari Bretar hafa kvartað undan þvi, að bjórinn sé ekki nærri eins sterkur og góður og hann var áður fyrir. Nú hefur stjórnin fengið i hendur skýrslu um rriálið, og kemur þar fram, að þessi staðhæfing hefur við rök að styðjast. A undanförnum sex árum hefur bjórinn stöðugt orðið veikari og verri, en á sama tima hefur verð hans hækkað. Sumar bjór- tegundirnar, sem rannsakaðar voru, reyndust svo veikar, að talið var að réttara hefði verið að flokka þær undir gosdrykki heldur en áfengt öl. Er nú von til þess, að yfirvöldin gripi i taumana, þar sem ekki er heimilt að villa um fyrir fólki með rangfrslum i auglýsingum. ★ Blindir geta „heyrt" liti Kanadiskir visindamenn hafa fundið upp litsendi sem gerir blindu fólki kleift að greina liti. Sendirinn, sem visindamenn við háskólann i Ontario i Kanada hafa fundið upp, mun að öllum likindum auka möguleika blinds Britt sagði nei takk bað er ekki hægt að kaupa allt fyrir peninga. Að þessu komst hinn 75 ára gamli Nils Sand- berg, þegar hann hafði unnið um 25 milljónir króna i getraun- um i Englandi nýlega. bar sem hann var sænskur að ætt og uppruna var sænska leikkonan Britt Ekland fengin til þess að afhenda gamla manninum peningaávisunina. Hann gerði áér þá litið fyrir og bað hennar á staðnum, en hún sagði sem sagt: — Nei, takk, og lét sig milljónir hans engu skipta. Hún sagðist ekki gifta sig fyrir peninga. ★ fólks til þess að taka þátt i atvinnulifinu. Litsendirinn er smátæki, sem breytir ljós- bylgjum i hljóðbylgjur. bað er dr. Che Yuk Leung, sem hefur framleitt sendinn, og honum til aðstoðar hefur verið eðlis- fræðingurinn J.W. Mcgowan og liffærafræðingurinn Martin Hollenberg. Sendirinn breytir rauðum, gulum og bláum litum i tær hljóðmerki, en aðrir litir eru gefnir til kynna með samblandi af þessum hljóðmerkjum. Gunnarshjónin höfðu keypt sér nýja læknabók og lásu mikið i henni og veltu vöngum. Einn dag- inn sagði Gunnar við frúna: —Svei mér, ég held, að ég sé kominn með malarfu. bað stendur i bókinni, að þá þjáist maður af svima, ógleði og upp- köstum og fái háan hita. —Já, en það er ekkert af þessu að þér. —Nei, en það stendur hérna, að i fyrstu finni maður ekki til neins. Svo var það Skotinn, sem var að borða brjóstsykur, þegar moli hrökk ofan i hann. Siðan hefur hann alltaf bundið spotta um mol- ana, þega hann fær sér brjóstsyk- ur. A efri árum fékk kaupsýslumað- urinn ákaflega mikinn áhuga á búskap. Hann keypti sér jörð og sagði vini sinum, að siðasta árið hefði hann grætt hálfa milljón á búskapnum. —Er virkilega hægt að græða á landbúnaði, spurði vinurinn. —Já,i fyrra tapaði ég milljón, en núna ekki nema hálfri, svo það er hálf i gróða, ekki satt? —Ég neyðist til að flytja, þvi á hverri nóttu kemur gengilbeinan, sem býr beint á móti mér, úr vinnunni klukkan þrjú og þá hleypur hún allsnakin um alla i- búðina, þangað til hun loks dregur fyrir gluggana. —barftu að flytja þess vegna? —Já, ég hef ekki orku til að sitja uppi á hverri nóttu til klukkan þrjú. —Hvernig gekk i skólanum i dag? spurði pabbi 8 ára son sinn. —Ágætlega, ég svaraði rétt, ’þegar kennarinn spurði hvað syna væri. Ég sagði að það væri synd að sitja inni i svona góðu veðri. í litlu riki i S-Ameriku hafði her- inn tekið völdin, eins og gengur, og hinn nýi stjórnandi ákvað að láta sauma nýja einkennisbúninga á menn sina. Sent var eftir klæð- skera og lögð fyrir hann uppá- stunga að nýjum búningum. Gular buxur, dökkrauð stigvél, hvitar derhúfur og appelsinugulir jakkar með grænum axlaskúfum. —A þetta að vera handa lifverðin- um? spurði klæðskerinn. —Nei, hreytti hershöfðinginn út úr sér. —betta eru búningar leyni lögreglunnar. DENNI DÆMALAUSI Nehei, ég vil alls ekki heyra meira um þessa vitlausu stelpu, sem þekkti ekki ömmu sina frá úlfinum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.