Tíminn - 23.02.1972, Qupperneq 3

Tíminn - 23.02.1972, Qupperneq 3
Miðvikudagur 23. febrúar 1972 TÍMINN 3 LOÐNUAFLINN 165.000 LESTIR - var 3.500 lestir á sama tíma í fyrra ÞÓ—Reykjavik. Bræla var i gær á loönumiðunum og flestir bátar komnir I höfn. Aður en byrjaði að bræla i fyrrakvöld var nokkur loðnuveiði út af Reykjanesi og þar fengu nokkrir bátar ágætis köst. t Meðallandsbugt var einnig ágæt veiði en fáir bátar voru þar á miðunum. 15 bátar komu til Reykjavíkur i gær með samtals 3000 lestir og af þeim var Héðinn hæstur með 330 lestir. Einn bátur, Grindvikingur, kom til Þorlákshafnar, var hann með 330 lestir. Þrír bátar komu til Eskif jarðar með um 1100 lestir og var Eldborg langhæst með 550 lestir. Til Nes- kaupstaðar komu 4 bátar með um 1200 tonn, vað það allt afli heima- báta. Vikuna 14.—20. febrúar varð loðnuaflinn 44.-231 lest; og er heildarloðnuaflinn á vertiðinni orðinn 165.628 lestir. Samkvæmt skýrslu Fiskifélags Islands hafa nú 58 bátar fengið einhvern afla, en á sama timabili i fyrra höfðu aðeins 15 skip fengið afla, samtals 3605 lestir. Lang aflahæsti báturinn er nú Eldborg GK með 6547 lestir, og i gær losaði Eldborg 550 lestir á Eskifirði, þannig að afli hennar er nú kominn yfir 7000 lestir. Hæstu löndunarstaðir eru nú Vestmannaeyjar með 57.125 lestir, Reykjavik 27.623, Keflavik 14.301, Akranes 1377 og Höfn i Hornafirði með 9556 lestir. Niu bátar eru búnir að fiska 5000 lestir eða meira og eru þeir þessir: Eldborg 6547, Grind- vikingur 5766, Súlan 5698, Gisli Arni 5293. Jón Garðar 5250 Loftur Baldvinsson 5187, Hilmir 5079, Óskar Halldórsson 5068 og Isleifur 5032. Hort heldur forystu í Reykjavíkurmótinu ÞÓ—Reykjavik. 11. uinferð alþjóðaskákmótsins var tefld i fyrrakvöld og urðu úrslitin þau, að Friðrik vann Harvey i 32. leikjum og þar með komst Friðrik upp í þriðja sætið. Önnur úrslit urðu þau, að Hort vann enn einu sinni, og i þetta Hraðskókmót með meisturum ÞÓ—Reykjavi. Hraðskákmót verður haldið i Glæsibæ n.k. sunnudag og hefst mótið kl. 14. Meðal þáttakenda verða flestir ef ekki allir þát- takendur á Reykjavikurmótinu. Nokkur verðlaun verða veitt, og 1. verðlaun eru 40 dalir 2. 30 dalir og 3. 20 dalir. Tefldar verða ni umferðir eftir Monradkerfi. skiptið Jón Kristinsson, þá vann Keene Braga. Guðmundur og Georghiu sömdu um jafntefli, sömuleiðis Stein og Timman og Tukmakov og Magnús. Biðskákir urðu hjá Gunnari og Jóni Torfasyni, og Freysteini og Anderson. Efstu menn að 11 umferðum loknum eru þessir: 1. Hort 9 1/2 v, 2. Georhiu 8 1/2 v, 3. Friðrik 8 og biðskák, 4—5. Stein og Tim- man 8, 6. Tukmakov 7,7. And erson 6 1/2 og tvær biðskákir. Biðskákir voru tefldar i gær- kvöldi. GS-ísafirðir. Kvenfélagið Ósk varð 65 ára 6. þm. Rilefni afmælisins gaf félagið 100 þúsund kr. til Styrktar æskulýðsstarfsemi i bænum. Formaður Óskar er frú Rann- veig Hermannsdóttir. Illllllllll 1— ■ Austrið fölnar Þeir sem einu sinni hafa komið til Kina munu hvorki gleyma landi né þjóð. Fer saman að landið er „fagurt og fritt”, allt frá köldum fjöllum norðursins til pálmalunda i suðri, og fólkið er fallegt, þrátt fyrir dálitið steingerfingsleg andlit, og þrifnaðarmanneskjur svo frægt má telja um margar sýslur. Kina var löngum notað, af sjálfskipuöum hvitum herrum, sem afsetingarland fyrir markaðsvörur, og urðu úr þvi um tima þriein skipti milli Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Seinna komu Bandarikjamenn til sögunnar. Þeir studdu þá sem börðust fyrir „guð og fööurland- ið” með þeim árangri, að austriö varð enn rauðara en áður, en Maó-rikið brá ýmsu banda- risku fylgifé brotthlaupinna föðurlandsherja undir fætur sina. Og kommúnistar voru enn aö aka i ameriskum bilum árið 1955, fimm árum eftir að skildi með bandariskri aðstoð og Sjang-Kai-sjek á kæjanum I Shanghai. Liklegast munu fá amerisk tæki vera i notkun enn, að tuttugu og tveimur árum liðnum, en Kinverjum væri svo sem trúandi til þess að skjóta einhverju fornu striðsgóssi undir Nixon, aðeins til að geta brosað sinu dulráða brosi i einrúmi, eftir að hann er á brott. Vegna liðinnar sögu á þessari öld er auðvelt fyrir valdhafana I Peking að efla hatur á vestrænum mönnum. A mcðan þjóðin— eða öllu heldur þjóðirnar— I Kina, börðust við hungur og flóð, byggðu herrarnir hundahlaupa- brautir, efldu vændishús og hirtu allan þann arð, sem girugir her- foringjar höfðu ekki þegar krafið sem mútufé og skatt af almenn- ingi. Kina var i sorglegu ástandi á fyrri hluta þessarar aldar, 'komíð langt aftur úr öðrum menningarþjóðuin, sem særði metnað þjóðarinnar meir en orð fá lýst. t Mao sá almenningur von um endurreisn. Nú er endur- reisninni annað tveggja svo langt á veg komið, eða hatrinu farið að linna i þeim mæli, að vogandi er talið að fá Nixon i heimsókn, mann sem er persónugervingur alls þess.sem Kinverjanum hefur verið kennt að hata, á meðan á hatri hans var þörf til að knýja hann áfram við skyldustörf byltingarinnar, og fá hann til að leggja nótt við dag, svo hann mætti verða hinn voldugi i samfélagi þjóðanna. Nú hafa þeir Maó og Nixon tekizt i hendur. Austrið er orðið fölara en það var. En fölastir eru þó Sovétmenn, sem sjá bæði ógnun og ögrun i sliku handtaki. Kinverjar gripu byltinguna fegins hendi til að koma á reglu i húsi sinu. En byltingin sem slik hrín ekki á þeim til iengdar. Ekkert hrin á Kinverjanum til lengdar, jafnvel ekki þau handtök sem birtast umheiminum i dag. Kinverjinn er enn að hefna fyrir hundahiaupabrautirnar. Þegar þeirri hefnd lýkur, verður hann búinn að breyta þeirri mynd af umheiminum, sem blasir við i dag. Risinn er vaknaður og vopn og handsöl munu ryðja honum braut, og hið dulráða bros sem enginn skilur. Rússa ber ei sem neitun Mótmæli að túlka ÞÓ—Reykjavik. Alþjóðaskáksambandið tilkynnti i fyrradag, að frekari við- ræður um hvar einvigi þeirra Fischers og Spasskys færi fram yrðu haldnar í Moskvu dagana 2. og 3. marz. Fyrir nokkru mótmælti sovéska skáksambandið úrskurði dr. Euwe um að fyrri hluti einvigisins skuli fara fram I Belgrad en seinni hlutinn i Reykjavik. Framkvæmdastjórn alþjóðasambandsins tilkynnti einnig að ekki væri hægt að breyta úrskurði dr. Euwe nema á þingi sambandsins, en að Euwe sé eigi að siður fús til viðræöna við Sovétmenn um málið. Dr. Euwe telur nauð- synlegt að Spassky taki þátt i viðræðunum. Vegna þessa sneri blaðiö sér til Guðmundar G. Þórarins- sonar og spurði hann um álit hans á þessari tilkynningu Alþjóðaskáksambandsins. Guðmundur sagði, að hann væri mest hissa á þvi, að islenzka skáksambandið hefði ekkert fengið að vita um þessar viðræður fyrirfram. Hitt væri svo annað mál, að dr. Euwe væri i ákaflega slæmri aðstöðu, Þá spurðum við Guðmund um mótmælaorðsendingu Rússa, og sagði hann, að fyrir stuttu hefði sovézki ambassa- dorinn á Islandi sýnt öllum þátttakendum i Reykjavikur- mótinu og forystumönnum skákiþróttarinnar þann heiður að bjóða þeim til kokkteil- drykkju^jáði sovézki sendi- herrann Guðmundi, að orð- sending Rússa væri mótmæli en ekki neitun um að tefla. Mmmwj////m/////jW Sendiferðabifreið meö benzin-eöa dieselvél 108 In. LENGD MILLI HJÓLA ln. mm A Lengd mllll hjóla 106 2692 B Helldarlengd 169.5 4305 C Full hæð 76.2 1935 D Breldd n\/speglurn 88.0 2235 E Breidd án spegla 79.4 2017 F Lengd f. f. öxul 24.3 616 G Breidd afturdyra 50.2. 1275 H Hæð afturdyra 48.7 1237 J Gólfhæð 21.4 543 ln.* mm M Hæð framdyra 55.3 1405 N Broldd framdyra 32.4 823 P Hleðsluhœð 52.7 1337 R Hleðslubreidd 64.0 1628 S Hleðslulengd 92.8 2356 T Breidd m. hjóla 50.0 1270 U Sporvídd 64.8 1646 V Mlnnsta h®ð undlr öxul 6.5 165 i—CF900 Benzln Dlesel ( j\ Lb. Kg. Lb. Kg. ^ J Elglnþyngd 2378 1020 2219 1006 -J Mestl hlassþungl 2550 1215 27fK» I29fl HleðBlurýml 6-7 m» 6-7 m* FRAMDYR 126 ln. LENGD MILLI HJÓLA In. mm A Lengd mllll hjóla 128 3200 B Heildarlengd 189.5 4813 C Full hnð 82.5 2096 D Breldd m/speglum 88.0 2235 E Breldd án spegla 81.0 2057 F Lengd f. f. öxul 24.3 616 G Breidd afturdyra 50.2 1275 H Hœð afturdyra 48.7 1237 J Gólfhsð 22.3 566 K Hffið hllðardyra 58.3 1480 FRAMDYR In. mm L Breldd hliðardyra 35.8 908 M Hœð framdyra 55.3 1405 N Ðreidd framdyra 32.4 823 P Hleðsluhæð 58.3 1480 R Hleðslubreldd 64.0 1628 S Hleðslulengd 112.8 2864 T Breldd milll hjóla 42.4 1077 U Sporvídd 64.8 1646 V Mlnnsta hæð undir öxul 6.0 152 CF1250 Benzin DI«mI Lb. Kfl. Lb. Kfl. Þungi m/hlasti 6227 2824 6227 2824 Elfllnþyngd 2960 1342 3207 ,1454 Meatl hlassþungi 3267 1482 3020 1370 Hleðslurýml 7-6 m» 7-6 m» FRAMDYR OQ HUÐARDYR CF1100 Þungl m/hlassl Elginþyngd Mesti hlassþungi Hleðslurýml 6510 2499 2646 1200 2864 1299 6-7 m* .**RAMDYR OQ HLIÐARDYP CF1750 Þungl m/hlassl Eiglnþyngd Mestl hlassþungi Hleðslurými 7437 3373 3123 1417 4314 1956 7-6 m» 7437 3373 338? 1534 4055 1639 7-6 m* Svarthöfði

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.