Tíminn - 23.02.1972, Page 12

Tíminn - 23.02.1972, Page 12
12 TÍMINN Miðvikudagur 23. febrúar 1972 Sveinn Gunnarsson: KVON- BÆNA SAGA 46 kominn í dauðra manna reit fyrir sumarmál. Herlaug kona hans spurði hann þann sama vetur, hvort hann hefði fengið áfall, þeg ar hann gekk til húsanna. Stuttu áður en hann dó, sagði hann firá því, sem hér fylgir: — Þegar ég koon til húsanna, sá ég eitt þeirra opið og gekk þar inn. Mér var dimimt fyrir aug um, og Árni að raka húsið, og hafði ég farið í þá króna, sem hann var að raka. Diimmt var í húsinu og það lágt. Ég igekk því boginn. Eg leit upp í mænirinn og vildi gæta að, hvort í glugga væri troðið, en um leið og ég rétti úr mér, rak Árni hrífuskafts endann af afli, eða mér fannst það, í brjóstholið neðan við bringubrjóskið. Högg þetta var svo þungt og mikið að yfir mig leið. Þegar ég raknaði við aftur, sat Árni undir herðum mér og var þá iðrandi. Það rann þá mik- ið blóð upp úr mér. Bráðum gat ég farið að tala og sagði: — Árni minn! Þú ert slysinn, því þetta verður mitt dauðamein, en segðu mér nú, hvort þetta var viljandi gert. Ég sálast bráðum, og ef þú lýgur að mér, þá sæki ég á að drepa þig, þegar ég er dauður, en ég skal lofa þér því að láta þig vera í friði, hvort held ur ég lifi eða líð undir lok lík- kistunnar, ef þú segir mér nú þeg ar satt. Árni var farinn að skjálfa af ótta og stundi því upp, að högg þetta hefði verið af ásettu ráði, og svona undirlagt af Fjölni, því hann hefði lofað sér góðum verka launum, ef honum tækist að drepa mig. Kvaðst þá Árni ekki vilja meira að gera, og bað hann mig að lofa séir að styðja mig á heim ferðinni. Ég bað Árna að vera konu minni trúan þessu fáu daga, sem samvera þeirra gæti átt sér stað. Að svo mæltu spurði ég Árna hvað Fjölnir hefði fundið mér til saka, og sagði hann að Fjölnir hefði sagt, að ég hefði borið upp á sig folaldrsmorðið, og sagt að svona piltar þyirftu að vera hýddir annað hvort ár. Fjölnir sagði lftilfjölegt að munnhöggvast við slík nautshöfuð, en áríðandi væri samt að hefna sfn og hefnd- in kæmi verulegast fram með þvi að ryðja þessum orðhákum úr vegi fyrir fullt og allt, eða þann- ig hefði Snorri goði hagað hefnd- um, — Gauti bað Herlaugu að láta Arna ekki gjalda misverknaðar- ins, og láta söguna ekki fara á gang, en Herlaug var stórfeng og átti líka vinkonur. Hún skaut þessu að einni vinkonu sinni, en það var kerling sem mátti trúa. Samt átti sú eina vinkonu af þag- mælsku kyni, og það var óhætt að hvfsla þessu að henni. En þnátt fyrir alla varúð flaug mann frá manni, að Ámi og Fjölnir væri banamcnn hans Gauta. Áirni fór til Fjölnis um vorið og lifði þar í eftirlæti. Oft talaði Fjölnir um það, hvað henni Guðrúnu sinni þætti indæll söngurinn hans, og þá ekki síður danssporið og þessi nýi vals hans væri hverri kven- persónu geðfelldur. Tókst Fjölni mcð hrekkjaviti sínu og lymsku, að telja mönnum trú um og að breiða það út, að Árni fíflaði konu sína og hrakkti hana svo frá sér af vanmennsku sinni. Árni varð hræddur við Fjölni eftir þess ar aðfarir hans og áleit að Fjöln- ir mundi koma sér fyrir kattar- nef, þá er minnst varði og það yrðu laun afreksverka sinna, — þar sem hann væri eini maður- inn, sem vissi um klæki Fjölnis. Hann iðraðist nú mjög, að hafa verið við þetta mál riðinn. Það var nokkru síðar morgunn einn, að gott var veður. Var fé tímanlega rekið til beitar. Árni gekk að raka fjárhús eftir skatt- inn. Kom þá Fjölnir þangað og var nú svo hýr og góður, að Ámi gleymdi því að vera hræddur við hann. Fjölnir gekk um igólf fram og aftur og sneri Ámi þá oft baki að Fjölni. Fjölnir gerði spaug úr hverri setningu og hældi nú Árna. Hann var svo glaðlegur á svipinn og hló nú svo ánægju- lega, eins og barn á æskuskeiði. Tófan er kæn, þegar veiðin er ná- læg. Árni vinsaði hroða frá mylsn unni, hálfboginn og sneri baki að Fjölni. Þegar minnst varði lá Árni flatur á húskróargólfinu, en Fjöln ir ofan á honum. Árni fór að finna að kné Fjölnis klemmdu kvið hans. Þeir horfðust nú í augu, og var þá hýrusvipurinn af Fjölni. Það er fljótt að breytast veður í lofti. Árna sýndist nú Fjölnir vera orðinn ærið hroða- legur ásýndum. Hann sa^ði: — Árni! Ég þurfti að inna þig eftir atriði, en áleit, af því þú ert mannhundur, að vissara væri að setja þig í skrúfstykki áður. Því er svipur þinn breyttur, æðis legur og flóttalegur? Hvað hefir komið fyrir, svo þú þurfir að ger ast svona lævíslegur? Þótti þér svo vænt um Guðrúnu, að þú sjáir eftir að hún er farin héðan, eða býrðu yfir vélræði? Dettur þér í hug að reyna að vinna mér bana, manndráparinn þinn? Ég hefi hugsað mér að verða fljótari til, og að fáum stundum liðnum verð urðu kominn þrjár álnir ofan í króargólfið, og þá eru öll mál í I, minni hendi. Það gerir enginn gangskör eftir framkvæmdum í að leita þín, með því líka að ég segi þú hafir tælt konu mína, og því strikð. Slíkt þykir tæúlegt. Árni bað hann að kvelja sig ekki, láta allt taka fljótt af. En hann sagðist ætla að gera eina játningu fyrir honum, áður en hann dæi og það væri það, að ganga aftur og lofa honum því að ofsækja hann og reyna að koma honum í króargryfju til sín. Tók þá Fjölnir að þrýsta að honum og sagði honum að taka orð sín aftur. — Nei, saigði Árni. Hvað ég hefi sagt, það hefi ég heitstrengt og það efni ég. Ég skal ekki vera margorður, því áður en þessi jól líða verður þú dauður og hvað verður þá úrframtíðarvonum þín um, þorparinn þinn. Fjölnir var ósjálfstæður maður, hvað kjark áhrærði, og alla tíð lífhræddur. Það sanna ég satt að vera af sjálfreynslu síðar. Hann var því farinn að fá taugaóstyrk og segir því: — Ég hefi reynt þig að því, þú ert haldinorður. Nú skal ég lofa þér að lifa, ef þú sverð mér trúar eið og ferð héðan úr sveitinni í næstu kvöldskuggunum. Ég skal gefa þér hest, ef þú ferð á annað landshorn, og svo sagðist hann skyldi borga honum, það sem ó- goldið væri af árskaupi hans og 1045. KROSSGÁTA Lárétt 1) Ormar. 6) Landlækkun. 7) öfugt. Nhm. 9) Anno domini. 10) Land. 11) Efni. 12) Eins. 13) Veik. 15) Hæverska. Lóðrétt 1) Óþokka. 2) Spil. 3) Föl. 4) Eins. 5) Knapi. 8) Æða. 9) Alp- ast. 13) Samtenging. 14) Jarm. Ráðning á gátu No. 1044 Lárétt 1) Miskunn. 6) Tem. 7) GH. 9) ST. 10) Náinnar. 11) Al. 12) LI. 13) Ali. 15) Innanum. Lóðrétt 1) Magnari. 2) ST. 3) Kennsla. 4) Um. 5) Natrium. 8) Hál. 9) Sal. 13) An. 14) In. ' / ' 1 3 p" S H= HOW? WITH WEAPOMS? By force? you KNOW THAT IS AGAINST OUR BELIEFSf v. THAT POES POSE A PROBLEM, POESH'T IT? ggf IF IT C0NTINUE5, MY PEOPLE MAY YET LEARN OF HUNGER/ . ANOTHER GREAT HERD OF SEA- CATTLE PIRATEP AWAy FLASH/ /cAN,T ' r^/you stop them,king o" '-Ma. TRIGON? y mmi i MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 7.00 Morgunútvarp. Fréttir kl. 11.00 Föstuhugleiðing: Séra Páll Þorleifsson fyrrum pró- fastur flytur. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.15 Þáttur um heilbrigðismál. Guðmundur Björnsson augn- læknir talar um sjóngalla og gleraugu. 13.30 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: Abdul Rah- man Putra fursti. Haraldur Jó- hannsson hagfræðingur les kafla úr bók sinni um sjálf- stæðishetju Malaja (1). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 Miðdegistónleikar: islenzk tónlist 16.15 Veðurfregnir. Þættir úr sögu Bandarikjanna. Jón R. Hjálm- arsson skólastjóri flytur átt- unda erindi sitt: Strið og friður. 16.40 Lög leikin á kiukknaspil og spiladós. 17.00 Fréttir. 17.10 Tónlistarsaga. 17.40 Litli barnatiminn.Valborg Böðvarsdóttir og Anna Skúla- dóttir sjá um tímanna. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Daglegt mál. 19.35 ABC.Asdis Skúladóttir sér um þátt úr daglega lifinu. 20.00 Stundarbil.Freyr Þórarins- son kynnir létta nútimatónlist. 20.30 Framhaldsleikritið „Dickie Dick Dickens” eftir Rolf og Alexöndru Becker. Endurflutn- ingur tólfta og siðasta þáttar. 21.10 Einsöngur i útvarpssai: Guðrún A Simonar syngur. 21.30 Mestur I heimiólafur Ólafs- son kristniboöi flytur erindi eft- ir Henry Drummond um kær- leiksóð Páls postula, þýtt af Birni Jónssyni ráðherra og rit- stjóra. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passiusálma (21). 22.25 Kvöldsagan: Astmögur Iðunnar. Jóna Sigurjónsdóttir byrjar lestur á stuttri ævisögu Sigurðar Breiðfjörðs eftir Sverri Kristjánsson. 22.45 Djassþáttur. Jón Múli Arna- son kynnir. 23.30 Fréttir i stuttu máli. Dag- skrárlok. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 18.00 Siggi. Vegavinna. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. Þulur Anna Kristin Arngrimsdóttir. 18.10 Teiknimynd. Þýðandi Sól- veig Eggertsdóttir. 18.15 Ævintýri i norðurskógum. 21. þáttur. Eli Rocque snýr aftur Þýðandi Kristrun Þórðardóttir. 18.40 Siim John. Enskukennsla i sjónvarpi. 13. þáttur endur- tekinn. D R E K I Nú er búið að ræna enn einni hjörð sjávargripa. Ef þetta heldur áfram, getur fólkið mitt átt eftir að kynnast hungri. — Getur þú ekki stöðvað þessa ræningja Trigon Konungur? — Hvernig þá? Með vopnum? Með valdi? Þú veizt, að það ar andstætt trúarskoðunum okkar. — Það eru heldur vandræði, svo ekki sé meira sagt. Eg sagði þér, að það væri aldrei hægt að treysta kvenmanni. — Hr. Walker fór þess á leit, að Bellu yrði ekki refsað þunglega. Hún skaut ekki og auk þess hjálpaði hún til við að ná morðingjunum. — Hver er hr. Walker? —Menningin er heldur þreyt- andi til lengdar félagar. Þaö er gott að komast aftur inn i hinn friðsæla og örugga frumskóg. 18.55 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Heimur hafsins. Italskur fræðslumyndaflokkur. 6. þáttur. Sjórannsóknir. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 21.20 Feröir Gullivers. (The Three Worlds of Gulliver). Bandarisk æfintýramynd frá árinu 1960, byggð á hinni al- kunnu sögu eftir enska rithöf- undinn Jonathan Swift (1667- 1745). Leikstjóri Charles H. Schneer. Aðalhlutverk Jo Morrow, Kerwin Mathews og - June Thorburn. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Gulliver hefur fengið atvinnu sem skips- læknir, en unnusta hans, Elisa- bet, má ekki af honum sjá, og þegar skipið lætur úr höfn, laumast hún um borð og felur sig. 1 . óveðri miklu fellur Gulliver útbyrðis, og þá hefjast ævintýri hans. 22.55 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.