Tíminn - 25.02.1972, Side 1

Tíminn - 25.02.1972, Side 1
 EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR Bretum og V-Þjóðverjum afhent orðsending um 50 mílna mörkin í gær FÖGNUÐUR - sjá íþróttir á bls. 16-17 KJ—Reykjavík. Á aðalfundi Kaupmanna- samtakanna, sem haldinn var í gær, spurði Einar Bergmann kaupmaður Lúðvík Jósefsson, hvað bændur hefðu fengið í afurðalán árin 1970 og 1971, og hvenær aðalóvini kaup- manna, söluskatts innheimtunni, yrði létt af þeim. t svari sinu sagði viðskiptaráð- herra að rekstrarlán væru veitt til ýmissa aöila i þjóðfélaginu og á ýmsan hátt. Hann sagðist ekki á stundinni hafa tölur yfir afurða- lán bænda sérstaklega, en hafði aftur á móti undir höndum tölur um útlán banka og sparisjóöa á siðasta ári, til ýmissa atvinnu- greina. 1 þessum tölum eru ekki formleg stofnlán, sem ýmsar at- vinnugreinar fá, en listinn litur þannig út: Landbúnaður 1.942 millj. Sjávarútvegur 2.846 millj. Verzlun 4.398 millj. Iðnaður 2.481 millj. 1 framhaldi af þessu sagði ráö- herrann, að menn skyldu ekki falla i þá gryfju að halda þvi fram,að verzlunin fái ekki neitt. Auk þess sem verzlunin hefði fengið 2000 milljónir i erl. vöru- kaupalánum. Þá fór ráöherra nokkrum orð- um um söluskattsinnheimtuna og sagði, að kaupmenn gætu ef- laust með réttu sýnt fram á, að innheimta þeirra á söluskatti ylli aukinni vinnu, en svo væri einnig um ýmsa aðra i þjóðfélaginu, og þar á meðal væru ýmis stórfyrir- tæki, sem inntu þetta innheimtu- starf af höndum. Það væru þvi ekki aðeins kaupmenn, sem inn- heimtu söluskatt og fleira, og ekki væri útlit fyrir aö greitt yröi fyrir innheimtu á næstunni. Þá mætti búast við, aö yrði greitt fyrir þessa innheimtu, yrði sú greiðsla sótt eitthvað. úr almenna bankakerfinu 1971 IGÞ-Reykjavík. í gær barst Timanum fréttatilkynning frá rikis- stjórninni, þar sem skýrt er frá þvi að Einar Ágústsson utanrikisráðherra hafi þann dag, fimmtudag, afhent sendiherrum Breta og Sam- bandslýðveldisins Þýzkalands greinargerðir, þar sem skýrt er frá þvi að ný reglugerð um fimmtiu milna fiskveiðitakmörk komi til framkvæmda 1. september 1972. Jafnframt segir í greinargerðunum til rikjanna tveggja» en þær eru efnislega samhljóða, að ákvæði orðsendinganna frá 1961, um að vísa ágreiningi um fiskveiðitakmörk íslands til Alþjóðadómsins, eigi ekki lengur við og íslendingar séu ekki bundnir af þeim. Það var fyrir hádegið i gær, sem utanrikisráð- herra boðaðisendiherrana á sinn fund til að afhenda þeim greinargerðirnar. Þeir tóku við þeim hvor i sinu lagi, fyrst John McKenzie sendiherra Breta og þvi næst Karl Rowold sendiherra Sambandslýð- veldisins Þýzkalands. Eins og fyrr segir voru greinargerðirnar efnis- lega samhljóða, og fer sú sem afhent var brezka sendiherranum orðrétt hér á eftir: „Viðræður hafa farið fram milli rikisstjórna tslands og Bretlands i því skyni aö finna hagfellda iausn á vandamálum brezkrar togaraútgerðar jafnframt þvf, að tryggðir séu Iffshagsmunir islenzku þjóðarinnar. Afstaöa rikisstjórnar tslands hefir komiö fram við ýmis tækifæri og skal þá sérstaklega visað til greinargerð- arinnar frá 31. ágúst 1971 til brezka sendiráðsins og ræðu ulanrikisráöherra tslands hinn 29. september 1971 I hinum al- mennu umræðum á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, sbr. hjálagt fylgiskjal. Þeim sjónar- miðum, sem liggja til grundvall- Verzlunin fékk 4398 milljónir ar þeirri ákvörðun rikisstjórnar tslands að gefa út nýja reglugerð varðandi fiskveiðitakm örk á landgrunnssvæðinu, er lýst i hjá- lagöri greinargerð, „Fiskveiði- lögsaga islands”, dags. febrúar 1972. Jafnframt þvl aö árétta öll þessi sjónarmið, vill rfkisstjórn tslands nú taka fram eftirfar- andi: t greinargerðinni frá 31. ágúst 1971 var frá því skýrt, ;,að f þvi skyni að efla verndarráðstafanir, Frh á bls. 19 Þessi mynd var tekin af Einari Agústssyni utanrfkisráðherra í gær- morgun, þegar hann hafði lokið við að afhenda sendiherrum Breta og Vestur-Þýzkalands greinargerö um útfærsluna 1. sept. Tfmamynd IGÞ. Vísismenn kaupa hlut í Hilmi hf. Oó-Reykjavík. fslendingar hafa til þessa einungis haft spurnir af hinum voldugu blaðahringum milljónaþjóðanna, og blaðakóngum þeim, sem yfir þeim ráða. Nú virð- ist hins vegar ætla að fara að rætast úr í þess- um efnum hér á landi, en horfur eru á því að upp sé að rísa blaða- hringur t Reykjavík, sem á eftirað láta til sín taka íauknum mæli, fari allt að óskum. Það eru ýmsir eigendur dagblaösins Visis, sem hyggjast færa út kvlarnar, og virðist eins og þeim hafi aukizt ásmegin meö tilkomu ofsett prents. Sá orðrómur hefur gengið um nokkurt skeiö aö Hilmir h.f. , sem er umfangsmikið útgáfu- fyrirtæki, hafi veriö til sölu. Nú hefur þaö gerzt að eig- endur Hilmis h.f. hafa selt hluta úr fyrirtækinu, og eru kaupendur hlutabréfanna nokkrir þeirra aöila, sem standa að útgáfu dagblaðsins VIsis. Blaöinu er ekki kunnugt um, hve mikinn hluta bréfanna Vísismenn keyptu, en Axel Kristjánsson mun enn eiga meirihluta fyrirtækisins og er stjórnarformaður þess. Búið er að ráða nýjan fram kvæmdastjóra Hilmis h.f. Vann sá áður að þvi aö koma Blaðaprenti h.f. á laggirnar. Hilmir h.f. gefur út vikublaðið Vikuna og mánaöarritið tírval. Fyrir- tækið á prentsmiðju og undir það heyrir einnig Blaða- dreifing og myndamótagerðin Rafgraf. -

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.