Tíminn - 25.02.1972, Blaðsíða 3

Tíminn - 25.02.1972, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. febrúar 1972 TÍMINN 3 Lúðvik Jósefsson viðskiptamálaráðherra: „Ef gengið yrði að öllum hækkunar- kröfum myndi verðlag stórhækka og gæti iafnvel leitt til gengislækkunar” KJ-Reykjavik. — Ég get ekki, á þessu stigi málsins, sagt neitt um það, hvernig framkomnum óskum um hækkun á álagningu verður end- anlega svarað, sagði Lúðvik Jósefsson viðskiptaráðherra, er hann ávarpaði aðalfund Kaup- mannasamtaka Islands i gærdag. Ennfremur sagði ráðherrann: ,,Nú eru þau mál öll i athugun hjá réttum aðilum, en eins og kunnugt er, fjallar verðlagsskrif- stofan fyrst um slikar beiðnir. en siðan gengur málið til niu manna verðlagsnefndar og að lokum til endanlegrar ákvörðun- ar rikisstjórnar. I ljós hefir komið, að flestir þeir, sem hafa með höndum verzlun eða reka þjónustustörf og búið hafa við litið breytt verðlag á verðstöðvunartimanum, telja sig nú verða að fá heimild til mikillar verðhækkunar. Ef orðið væri að fullu við slikum hækkunarbeiðn- um, mundi verðlag stórhækka og varla gæti það leitt til annars en gengislækkunar innan tiðar. Verðstöðvun, sem ákveðin er með lögum, frestar i flestum til- fellum verðhækkunum, en að sjálfsögðu hefir verðstöðvunin ekki leyst þann vanda, sem við var að glima. Nú stöndum við i þessum efnum frammi fyrir samansöfnuðum vanda verðstöðvunartimans sem ekki verður komizt hjá að leysa á einhvern hátt. Ýmsir augljósir gallar eru á gildandi verðákvörðunarreglum, og eftirlitið er ófullkomið. Mér er vel kunnugt um óánægju verzlun- armanna með verðlagseftirlitið og margar ákvarðanir verðlags- yfirvalda. Þá sagði viðskiptaráðherra: ,,Aukinn kostnaður i verzlunar- rekstri, ströng verðlagshöft og samansafnaður vandi verðstöðv- unartimans, — allt veldur þetta kaupsýslumönnum áhyggjum og vissum vanda. En hér er aðeins um aöra hlið verzlunarmálanna að ræða. Hin hliðin litur betur út. Hún endúr- speglar hið góða árferöi, sem við höfum búið við. Hún sýnir stór- vaxandi viðskipti á flestum svið- um, örari umsetningu og betri nýtingu á eignum og áhöldum, og öllu þvi sem verzlunin þarf að kosta til i sinum rekstri”. Siðar sagði ráðherra: Þó að horfur séu þannig góðar um mikla framleiðslu og háar þjóðartekjur á þessu ári, er þvi ekki að neita, að all-mikil hætta erá, að ofþensla geti orðiö á ýms- um sviðum efnahagslifsins. Þannig er óneitanlega nokkur hætta á þvi, að innflutningur geti orðið meiri en sem svarar tekjuöflun þjóðarinnar. Af þeim ástæðum hefir m.a. verið gripið til þess ráðs að draga nokkuð úr heimildum til þess að taka erlend lán til al- mennra vörukaupa. Lán af sliku tagi voru komin yf- ir 2000 milljónir króna i lok s.l. árs og fóru vaxandi siðustu mánuði ársins. Búast má einnig við þvi, að af sömu ástæðum, þ.e. af ótta við of- þenslu i innflutningi, verði gerðar ráðstafanir til að koma i veg fyrir Hornafjarðarbátar byrjaðir með net AA—Hornafirði. Vertiðarbátar eru byrjaðir með net á Hornafirði, og er það óvenjulega snemmt. Neta- bátarnir hafa fengið upp i fimm- tán tonn eftir nóttina og niður i sex tonn. Virðist þvi vera einhver netafiskur á miðunum. aukningu lána tii verzlunar úr bankakerfinu. 1 siðasta hluta ræðu sinnar fjallaði viðskiptaráðherra um viðræðurnar við Efnahagsbanda- lagiö og sagði þá m.a.: Þær viðræður, sem þegar hafa farið fram á milli fulltrúa okkar og fulltrúa Efnahagsbandalags- ins, hafa valdið okkur nokkrum vonbrigðum. I tillögum okkar um viöskipta- samning við bandalagið, var við það miðað, að við veittum löndum bandalagsins sömu réttindi á markaði okkar og EFTA-löndin hafa haft og áttu hér að fá, þ.e.a.s. lækkandi tolla og siðan afnám tolla á flestum iðnaöarvör- um. A móti þessum réttindum til handa bandalagslöndunum, vild- um við fá hliðstæð tollréttindi fyr- ir okkar útfluttu iönaðarvöru og einnig fyrir ýmsar sjávarafurðir okkar. I byrjun viðræðnanna við full- trúa bandalagsins virtust þeir viðurkenna þetta sjónarmið okk- ar og telja eðlilegt að við nytum nokkurra réttinda á þeim mark- aði fyrir okkar aðalútflutnings- vörur. En siðar hefir þetta breytzt og nú er sagt við okkur, að ef við stækkum fiskveiðilandhelg- ina eins og áformaö sé, þá geti ekki orðið um nein sérstök rétt- indi að ræða fyrir fiskivörur frá Islandi. Aþessustigi er ekki ljóst, hvað verður úr þessum samningavið- ræðum. En óhætt er að slá þvi föstu, aö við breytum i engu afstööu okkar i landhelgismálinu, þrátt fyrir kröfur af þessu tagi. Aö lokum sagði ráöherrann: t upphafi þessa árs stendur islenzk verzlun frammi fyrir miklum og margvislegum breyt- ingum. Eflaust eru kaupsýslu- menn misjafnlega bjartsýnir á horfurnar eins og verða vill. Vandamálin eru mörg og sum býsna stór. En við blasa lika margir og miklir möguleikar. Ar- ferði er gott, full atvinna, hækk- andi kaup, mikil sókn i aðal- framleiösluatvinnuvegum þjóð- arinnar. Viöskipti hljóta að veröa mikil. Vandamálin verðum við að leysa á skynsamlegan hátt. Mér er ljóst, að gott samstarf rikisstjórnarinnar við verzlunina i landinu er mjög þýðingarmikið. Ég vænti aö slikt gott samstarf geti tekizt. Reykjavíkurskákmótið: Spennan eyksf Þó—Reykjavík. Það kom i ljós er 13. umferð Reykjavíkurmótsins lauk i gær, að baráttan um efstu sætin er tvisýn og virðast 6 menn koma þar til greina, þó svo að Hort og Georghiu hafi mesta mögu- leikana. Hort, sem er efstur á mótinu.varð að una við jafn tefli i sinni skák á móti Timman, og minnkaöi þar meö forskot hans. Annars urðu úrslitin þau, að Stein vann Braga, Friörik vann Jón Torfason, Georghiu vann Magnús og Tukmakov vann Freystein. Jafntefli gerðu Keene og Guðmundur, Hort og Timm- an, Jón Kristinsson og Gunnar. Skák Anderson og Harvey fór i bið. Eftir 13 umferðir er Hort efstur með 10 vinninga, Georghiu er annar með 9 1/2. 3.—4. eru Friðrik og Stein með 9 v. 5. er Timman með 8 1/2.6. Tukmakov með 8. 9. er svo Anderson með 7 1/2 og tvær biðskákir. I gærkvöldi átti að tefla 14. umferð. Þrær fullar sunnanlands Bátarnir sigla með loðnuna frá Reykjanesi til Austfjarða ÞÓ—Reykjavik. Góð loönuveiði var i fyrrinótt á miðunum fyrir SV—landi og fyrir SA—landi. Allar þrær eru nú fullar frá Bolungavik til Vest- mannaeyja, og nokkrir bátar, sem fengu loðnu út af Garðskaga, hafa farið með loðnuna til Austfjarðahafna, en þar er nægi legt þróarrými, enda eru bræð- slurnar margar og stórar. Enginn bátur biður nú i Reyk- javik,og munu liða a.m.k. þrir sólarhringar þangað til hægt verður að hefja löndun á ný. Verksmiðjurnar i Reykjavik bræða eitthvað i kringum 1000 lestir á sólarhring. Þórarinn Pálmason á Djúpa- vogi sagði, að Gisli Arni væri búinn að landa 1016 tonnum i þrem veiðiverðum,en alls mun Gisli Arni hafa landað fimm Faðir minn átti fagurt land SE—Reykjavik. Skógrækt Rikisins frumsýndi i gær nýja kvikmynd, sem ber nafnið Faöir minn átti fagurt land. Myndina gerði Viðsjá. Myndin fjallar um skógrækt ís- lands almennt . Sýndar eru myndir frá Vaglaskógi og Hall- ormstaðarskógi. Þetta er mjög falleg og vel tekin mynd.sem sýnir litina vel og hver árangur- inn hefur orðið i skögrækt og þá sérstaklega i Hallormstaðar- skógi, þar sem fjölmargar út- lendar trjátegundir hafa verið^ ræktaðar á undanförnum árum. Nú hefur veriö byggö Rannsókna- stöð á Kjalarnesi.Þar eru hafnar rannsóknir af fullum krafti á ýmsum plöntum og trjáteg- undum. Þessi mynd er mjög skemmtileg og fræðandi fyrir alla þá, sem áhuga hafa á skógrækt. Gisli Gestsson stjórnaði töku myndarinnar og tók hana að mestu leyti. sinnum á sex sólarhringum á Austf jarðahöfnum. Benedikt Guttormsson i Nes- kaupstað sagði, að tveir bátar hefðu landað þar i nótt,og var það afli heimabáta. Vonast menn i Neskaupstaðeftir meiri loðnu,þar sem næg loöna er nú á miöunum að sögn sjómanna við Ingólfs- höfða og allar þrær fullar á SV—landi, en frá Ingólfshöfða er styttri sigling til Austfjarða en til Vestmannaeyja. Hafa fengið loðnu AA—Hornafirði. Hér eru komin á land tæp tiu þúsund tonn af loðnu, og eru þrærnar fylltar jafnóðum og eitt- hvaö pláss losnar. A allri loðnu- vertiöinni I fyrra komu um sjö þúsund tonn á land á Hornafirði. Mega Hornfirðingar þakka fyrir, að loðnan hefur verið svo til um allan sjó, þvi að Horna- fjarðarbátarnir tveir, Skinney og Gissur hviti, eru báðir úr leik vegna óhappsins i skipasmiða- stöðinni á Akranesi. Vilja sálfræðing til Tefldu fjöltefli að fylgjast með neyzlu ávana og fíknilyfja 'SE—Reykjavik. Fyrir stuttu var haldinn fundur Ungmennafélags Njarðvikur i Stapa, þar sem skorað var á al- þingismenn Reykjaneskjördæmis að: 1. Bera fram sameiginlega þingsál.tillögu, þar sem skorað er á rikisstjórnina að ráða sálfræð- ing tilaðfylgjast með og gera til- lögur um afgreiðslu á lögreglu-og heilbrigðismálum, er snerta neyzlu ávana-og fiknilyfja. 2. Beita sér fyrir endurskoöun á gildandi löggjöf um meðferð mála, er snerta notkun og dreif- ingu ávana-og fiknilyfja. Leitað verði álits erlendra og innlendra sérfræðinga við samningu laga þessa. Fundurinn var mjög fjölmennur. Meðal fundarmanna voru m.a. kona er átti 19 barnabörn og ung- lingarmilli fermingar og tvitugs. ÞÓ—Reykjavik. Stór meistararnir Stein og Georghiu tefldu fjöltefli á þriöju- dagskvöidiö. Stein tefldi viö máíara og múrara á 29 boröum, liann vann 23 skákir, geröi 4 jafn- tefli og tapaöi einni. Sá sem vann Stein er Haraldur Haraldsson, en þeir, sem geröu jafntefli viö hann, eru Steinþór Gunnarsson, Eli Gunnarsson, Ari Stefánsson og Ilalldór Karlsson. Georghiu tefldi viö lögreglu- menn á 23 boröum, hann vann 18 skákir og geröi fimm jafntefli. Þeir, sem geröu jafntefli viö hann,cru: Ásgeir friðjónsson, Jón Friöjónsson, GIsli Björnsson, Jón Þóroddsson og Gestur Jóns- son. Hætt að höndla Það undarlega hefur skeö nú upp úr siðustu kjarasamingum, aö þeir sem verzlun reka I landinu virðast hafa mestan hug á þvl aö stytta meö einhverju móti þann tima, sem verzlanir eru opnar. Er þvi borið við, aö kjarasamn ingarnir og ákvæöi um styttri vinnutima skeri úr um þetta. Sums staðar er jafnvel freistazt til að fá viðskiptavini til aö á kvarða, hvort þeir vilja heldur hafa opiö á laugardögum eöa fyrir hádegi á mánudögum. Þetta gerist um likt leyti og striöi um kvöldsölutima verzlana er aö ljúka, en hann var auðvitað tekinn upp af dugmiklum kaupmönnum, sem töldu sér hag i sliku. Vörusala byggist á þvl aö kaupandinn eigi greiöan gang aö vörunni, og honum sé auöveldaö meö ýmsu móti aö velja þaö sem hann þarfnast, m.a. meö auglýsingum og björtum og góöum húsakynnum. Mikiö hefur skort á það, aö verzlanir hafi veriö opnar á heppilegasta tima fyrir dag- vinnufólk, einkum þegar haft er I huga, aö stööugt færist I vöxt aö húsmæöur vinni úti. Ilefur þá næsta litill timi gefizt til inn- kaupa, eöa svo sem kiukkutimi á dag, milii 5 og 6 síðdegis, og fyrir hádegi á laugardögum. Þar sem verzlun er komin við verzlun svo að segja, hafa margir sniöiö heimilishald sitt viö þaö aö kaup inn á hverjum morgni smá- vægilegar nauðsynjar. Lokun fyrir hádegi á mánudögum, aö Iiöinni helgi, skapar hreint og beint vandamál. Þaö er vitað mál, aö á dýrtiðartlmum hefur oröiö aö velta öllum hækkunum yfir á neytandann. Menn hafa skiliö kerfið og ekki álasaö kaup manninum fyrir þaö, þótt hann yröi aö fá sömu sneiö af dýrtiöinni og aðrir. ööru máli gcgnir, þegar þeir, sem verzlun annast, ætla sér að fara aö velta vinnutlma- styttingu starfsfólks yfir á neytandann. Þaö mætti likja þvi viö ákvöröun um almennan samdrátt i allri starfsemi, nú þegar fjörutiu stunda vinnuvika hefur veriö ákvöröuð. Kaupmönnum er ætlaö aö liöndla. Vinnutimastytting er innanhússmál þeirra, og kemur neytandanum alls ekki viö. Sizt af öllu á hann aö þola meiri óþægindi en oröin eru af naumt skornum verzlunartima frá föstudagskvöldi til mánudags- morguns. Þaö getur ekki veriö geöþóttamái hvenær verzlanir eru opnar. Opnunartimi þeirra hlýtur aö miöast viö þarfir neytandans, alveg eins og það sem verzlaö er meö. Þess vegna ætti að iengja þann tima, sem verzlanir eru opnar en ekki stytta hann. Svarthöföi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.