Tíminn - 25.02.1972, Síða 5
Föstudagur 25. febrúar 1972
TÍMINN
5
Námskeið í tengingu
háspennustreng/a
OÓ-Reykjavik.
Tveir sænskir sérfræðingar
hafa haldið hér námskeið fyrir
tengingar'menn og verkstjöra
rafveitna. Eru námskeiðin haldin
vegna nýrra*tækni, sem mjög er
að ryðja sér rúms á þessu sviði.
Eru þá notaðir svokallaðir Pex
háspennustrengir.
Haldin voru tvö tveggja daga
námskeið og sóttu þau um 50
rafvirkjar frá rafveitum
víðsvegar af landinu. Fór kenn-
slan fram i húsakynnum Rafveitu
Reykjavikur við Elliðaár.
Aðalkostir Pexstrengjanna eru
minni rafmagnstöp i strengjum,
mikið einfaldari frágangur við
lagningu strengjanna,og eru þeir
auðveldir i tengingu við eldri
gerðir, sérstaklega við þær
aðstæður þegar rými er tak-
markað.
Pex-strengirnir eru nokkru
dýrari i innkaupum, en sá
mismunur hverfur vegna hinna
tæknilegu eiginleika strengjanna,
og þegar komið er upp i þá
háspennu að þurfaa oliustreng,
þá eru þessir strengir ódýrari en
eldri gerðir.
Umboð fyrir þessa strengi
h e f u r Johan Rönning h.f.
Byggingasamvinnu-
félag til að reisa
einstaklingsíbúðir
OÓ—Reykjavik.
Unnið er að undirbúningi stofn-
unar byggingasamvinnufélags,
sem eingöngu mun annast bygg-
ingu litilla einstaklingsibúða.
Stofnfundur félagsins verður
haldinn i Lindarbæ nk. sunnudag.
Aðalhvatamenn að félagsstofnun-
inni eru Asgeir Asgeirsson og
Ingþór ólafsson.
Þeir sögðu Timanum, að eftir-
spurn einstaklingsibúða sannaði,
hve brýn þörf væri á byggingu
smáíbúða. Undirtektir þeirra,
sem áhuga hafa á stofnun félags-
ins, hafa verið kannaðar, og
verða 57 manns boðaðir á fundinn
sem að sjálfsögðu verður öllum
opinn. Þeir Ásgeir og Ingþór
sögðust einkum hafa hug á að ná
sambandi við fólk, sem hefði i
hyggju að koma yfir sig eigin hús-
næði, en ekki þeim sem eingöngu
vildu græða á Ibúðum og taka þátt
i byggingu þeirra til að braska.
Ekki er hægt að ákvarða neitt
um byggingastað og fjölda ibúð-
anna, sem fyrst verða reistar,
fyrr en að lokinni formlegri stofn-
un félagsins. En ætlunin er að
byggja ibúðirnar i tveim stærð-
um, 35 fermerta og 45 fermetra.
Verða ibúðirnar að sjálfsögðu
miðaðar við þarfir einstaklings,
þótt i rauninni sé ekkert þvi til
fyrirstöðu að ung hjón búi i þeim
áður- börnunum fjölgar að mun,
eða að fullorðin hjón fái þar inni.
áður en börnunum fjölgar að
mun, eða að fullorðin hjón fái þar
inni.
1 hverri ibúð er gert ráö íyrir
góðri stofu, eldhúskrók og svefn-
stað. Síðar verður það félags-
manna að ákveða, hve mikið á að
vera af sameiginlegum eignum.
Einstaklingsibúðirnar verða
byggðar i blokk, og mun tæpast
borga sig að hefja framkvæmdir
fyrr en að minnsta kosti 40 manns
hafa staðfest kaup á ibúðum, til
að hægt sé að gera hagkvæm inn-
kaup þegar framkvæmdir hef-
jast.
Rafvirkjar á námskeiði, þar sem kennd er tenging nýrri og fullkomnari háspennustrengja. Timamynd
Gunnar
«46 r,,"H■ 'Hd
GRÆNAR
HEILBAUNIR
••••••
GULAR
HÁLFBAUNIR
»»»»»»»
o
5 Italir
köfnuðu
í snjó
NTB-Róm.
Að minnsta kosti fimm manns
hafa látið lifið I stórhrið mikilli,
sem geisað) á ttaliu um
helgina. Margir bæir I N-Vestur-
hiuta landsins eru einangraðir og
víða er snjódýptin 10 metrar.
Spáð er áframhaldandi snjókomu
á þessum slóðum.
1 þorpi einu hefur borgarstjór-
inn beðið um aðstoð til að flytja
ibúana burtu, þar sem snjórinn
nær þegar upp á fjórðu hæð hús-
anna. óttazt er að snjóflóð kunni
að falla á þorpið.
Annars staðar á Italiu hefur
rignt I 80 klst. samfleytt og vegir
og járnbrautarteinar hafa skolast
burtu. Margir dagar munu liöa
þar til samgöngur komast I eðli-
legt horf, og ekki bætir úr skák,
að stjórnendur allra þungavinnu-
véla i landinu eru i verkfalli.
' '
Sólaéir
, HJÓLBARÐAR \
TIL S'OLU j
FLESTAR
STÆRÐIR
Á FÓLKSBÍLA
ÁRMÚLA 7 SfMI 30501
■ÍÍSSSSAS::-:
ý’xýý:;
i F
i p
3 1 $P
i f
SKUGGABALDUR
KOM í BÓKAVERZLANIR í DAG
1
S
|
ISAFOLD