Tíminn - 25.02.1972, Page 19
Föstudagur 25. febrúar 1972
TÍMINN
19
Er ekki verkamaðurinn
verður launanna?
Á timum ritfrelsis og
málskrúðs um aukið lýðræði, læt
ég eftir mér ritstjóri góður, að
senda þér nokkrar linur upp á
gamlan og góðan kunningsskap,
og ég vona að þær finni náð fyrir
augum þinum og fái rúm á siðum
blaðs þins. Tilefnið er ýmiskonar
orðræður, sem fram hafa farið,
bæði fyrr og siðar, um opinbera
starfsmenn, laun þeirra,
félagsskap, starfshæfni o.fl.
í þessu greinarkorni verður þó
vikið að fáu einu, en þar sem hollt
er og sjálnsagt að skiptast
á skoöunum, og þó einkum aö
hyggjá aö málavöxtum án for-
dóma eða einstrengingsháttar,
langar mig að vekja til umhugs-
unar um nokkur atriöi, ef
verða mætti til skilningsauka og
nokkurrar glöggvunar fyrir þá,
sem vilja hugsa um og kanna mál
án æsinga.
Spurningar þykja oft góðar til
vakningar, og verður þvi ekki
gengið framhjá þeim. Skatt-
þegnar eru gjarnan brýndir með
þvi að laun opinberra starfs-
manna séu greidd af almannafé,
og þvi sé rétt að gæta hófs um
launagreiðslur. Er þá ekki eðli-
legt að spyrja t.d. fyrst. Hvers
krefst opinber starfræksla? Er
unnt að komast af án einhverrar
þeirrar þjónustu, sem rikið eða/
og sveitarfélögin annast?
Um það má vitanlega deila
hvaða þjónustu og i hve rikum
mæli hið opinbera skuli i té láta.
Ef stjórnvöldum finnst nóg að
gert, þá er þeim i lófa lagið að
stöðva lagasetningar, kippa að
sér hendinni og stöðva opinbera
þjónustu. Þróunin virðist þvert
á móti leiða til fjölbreytni opin-
bers rekstrar. T.d. er ekki langt
siðan rikið keypti hlutabréf af
einstaklingum i Aburðarverk-
smiðjunni, með samkomulagi
allra flokka, var það ekki?
Leiðum þá hugann að launum
og starfsháttum hjá riki og
sveitarfélögum. Eftir þeim áróðri
að dæma, sem rekinn er af mörg-
um stjórnmálamönnum, virðast
þeir i vafa um það, hvort launa
beri opinbera starfsmenn likt þvi
sem gert er á almennum mark-
aði. Eftir þeirri reynslu, sem
fengin er af samningsgerð og
dómum, þá verður þvi ekki
hnekkt að einkareksturinn ræður
árlega til sin fjölda manns, sem
Fjórir á sjúkrahúsi
Frh. af bls 20
skoðun, gegnumlýstir og tekin
blóðsýnishorn til að rannsaka
hvort þeir hafi orðið fyrir
skaða.
Guðmundur Guðmundsson,
tæknilegur framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðjunnar,
sagði i gær, að ekki væri enn
búið að ná siðari sprengjunni
úr vélinni. Varnarliðs-
mennirnir vinna að þvi að
hreinsa til og gera efnið óvirkt
með mótefni, sem stráð er yfir
allan mulninginn.
Nær 20 manns, sem talin er
hætta á að hafi komizt i
snertingu við gasið, eða andað
þvi að sér, hafa verið og verða
látnir ganga undir læknis-
skoðun. Sagði Guðmundur, að
reynt verði, eins vel og kostur
er á, að enginn verði fyrir
skaða af þessu og ganga úr
skugga um, að ekkert af efn-
inu hafi komizt inn I öndunar-
færi þeirra manna, sem komið
hafa nærri gasinu.
Ekki er upplýst hvaðan
þessar sprengjur eru, en talið
er öruggt að flugvél hafi sleppt
þeim I Faxaflóa og að þær hafi
komið upp með skeljasandin-
um.
Eru nú verðir við færi-
böndin, sem flytja efni inn I
verksmiðjuna, sem fyrir-
byggja aö fleiri sprengjur
komist þar inn. Verið er að
setja upp tæki á böndin, sem
þannig eru gerð, að þau rjúfa
rafstraum,ef málmhlutir fara
á færiböndin,og eiga þeir þvi
ekki að komast inn I verk-
smiðjuhúsin framvegis.
hefur gegnt opinberum störfum.
Er það hagsýni i rekstri að starfs-
þjálfa fólk fyrir aðra launagreið-
endur? Væri ekki hagkvæmara að
bæta uppeldið hjá þvi opinbera,
auka starfsþjálfun með við-
eigandi fræðslu?
Víkjum enn að laununum. I
samkeppnisþjóðfélagi er litið á
vinnuaflið, sem kostnaðarlið.
Einkareksturinn gefur talsvert
fyrir það að hafa umráð yfir sem
hæfustum starfskröftum, og
horfir ekki i að greiða hærri laun
góðum manni. Og af hverju ætli
það sé? Af hverju kom upp Stakk-
onoffhreyfingin svonefnda i Rúss-
landi? Var það ekki til að auka af-
köstin? Var það ekki tillit til
hagsmunahvatar mannsins, sem
réð þeirri stefnu? Eiga ekki
þegnar þjóðfélagsins kröfu á þvi
að fá sem bezta þjónustu? Er þess
ekki krafizt að opinberir starfs-
menn skili sem beztum árangri i
starfi? Stundum heyrast a.m.k.
kvartanir yfir lélegum vinnu-
brögðum, slælegri afgreiðslu,
óhóflegum fjarvistum, skrifstofu-
bákni o.s.frv.
Viðurkennt er meðal helztu
menningarþjóða, að aðbúnaður
allur og viðurgerningur á vinnu-
stað hefur mjög mikil áhrif á.
vinnubrögð. Hjúasælir þóttu þeir
bændur, sem héldu vinnuhjúum
árum saman. Varla mun það hafa
stafað af þvi að vistin þætti lakari
en hjá öðrum. Væri ekki hollt
fyrir riki og sveitarfélög að varð-
veita þá menningu og aöhæfa
kröfum tímans, sem hjúasælt
heimili hafði i heiðri á fyrri
timum?
Nútiminn metur launaupphæðir
mikils, og þess þarf að gæta i
opinberum rekstri, enda virðist
löggjafinn hafa komið auga á það
þegar sett voru kjarasamninga-
lögin. Fordæmi ákvæðanna i
lagagreininni um Kjaradóm má
finna viðar i islenzkri löggjöf,
m.a. i lögum um verðlagningu
landbúnaðarvara.
Hvers vegna er þessari viðleitni
til jafnaðar mætt af jafnmikilli
andúð og við verðum vitni að
hvað eftir annað? ? Of margt fólk
við störfin, of litið unnið! Skrif-
stofubákn!
Samtök opinberra starfsmanna
hafa aldrei farið þess á leit að
ráðherrar og aðrir liðsoddar
sendu aðstandendur sina inn á
skrifstofur rikisins, alveg án
tillits til þarfar og starfshæfni.
Samtökin óska eftir vel starfhæfu
fólki til allra starfa, og þess
vegna gera þau kröfu um sam-
keppnisfær laun, og um bætta
starfsfræðslu. Enginn þarf að
kvarta yfir óhæfu starfsliði, sé
stjórnunin i lagi, ráðning starfs-
manna með eðlilegum hætti, og
aðbúnaður allur á vinnustað, þ.e.
umgengnishættir, fræðsla, tæki
og húsnæði i góðu lagi. Meiri hag-
sýni er að huga að þessum þáttum
mannlegra samskipta, en að
rembast eins og rjúpa við staur-
inn við að sannfæra sjálfan sig og
kjósendur — aðra en opinbera
starfsmenn — um að hag rikis-
sjóðs verði þá fyrst vel borgið, er
kaupniðsla og stirfni stjórnar
öllum aðgerðum stjórnvalda.
Vissulega höfum við i sögunni
dæmi um það búskaparlag, að
hestarnir voru ekki baggafærir,
þegar komið var að lestarferð til
aðdrátta úr kaupstað.
Sá hugsunarháttur mun þó hafa
verið almennur orðinn, áður en
„blikkbeljur” tóku við hlutverki
hestsins, að velfóðruð og velmeð-
farin skepna gæfi betri arð, en sú,
sem lifði við útigang eða fóður-
skort. Vinnuaflið mun og nýtast
vetur, þar sem ánægja ríkir með
alla aðbúð. Eða á það ekki við um
opinbera starfsmenn?
Hvers vegna eru þeir taldir
unirmálsmenn? Það er spurning
sem gaman væri aö fá svar við
frá þeim, sem halda uppi leynt og
ljóst ómannlegum andróðri og
lltilsvirðingu á starfskröftum
þeirra.
Guðjón E. Baldvinsson
Orðsending
Frh. af bls 1
sem nauðsyniegar eru tii að
tryggja lifshagsmuni Islenzku
þjóðarinnar á hafinu umhverfis
landið, telur rfkisstjórn tslands
nú nauðsyn bera til að færa út
fiskveiðitakmörk islands þannig,
að þau nái yfir hafsvæði land-
grunnsins”. Þar var einnig sagt,
að rikisstjórn islands væri þeirr-
ar skoðunar, að nú hafi verið náð
að fullu tilgangi og markmiði á-
kvæðaorðsendingannafrá 1961 um
að visa tilteknum ágreiningsat-
riðum til dómsúriausnar. Rikis-
stjórn islands telur þvi, að ákvæði
orðsendinganna eigi ekki lengur
við og að islendingar séu þess
vegna ekki bundnir af þeim.
Rikisstjórn islands hefir þvi
ákveðið að gefa út nýja reglugerð
um 50 mllna fiskveiðitakmörk frá
núgildandi grunnlinum umhverf-
is islands og að hún komi til
framkvæmda hinn 1. september
1972, svo sem segir I ályktun Al-
þingis, sem samþykkt var sam-
hljóða hinn 15. febrúar 1972.
Rlkisstjórn islands vonar, að
viöræður þær, sem nú standa yfir,
muni svo fljótt sem veröa má
leiða til hagfelldrar lausnar á
þeim vandamálum, sem hér er
um að ræöa.
Afrit greinargerðar þessarar
verður sent aðalritara Sameinuðu
þjóðanna og ritara Alþjóöadóms.
ins”.
GETUM
UTVEGAÐ
með
stuttum fyrirvara
FRA SVIÞJOÐ
yfirfarnar, notaðar vörubifreiöar, vinnuvélar, véla-og
vöruvagna. Einnig notaöa varahluti i góðu standi i
sænsku vörubifreiðarnar. Hagstætt verö.
Upplýsingar I slma 43081 frá 9 —12.30 fh.
eða I box 195, Kópavogi.
FERÐAKYNNING SUNNU
Spönsk hútíð
1. Sagt frá fjölbreyttum ferðamöguleikum.
2. Litmyndasýning.
3. Bingó.Vinningar tvær utanlandsferðir.
Mallorkaferð og Kaupmannahafnarferð
(Alli Rúts stjórnar bingóinu)
4. Los Valdemosa, hinir heimsfrægu spönsku
söngvarar skemmta tvisvar á hverju kvöldi.
23. febr. miðvikud.
24. febr. fimmtud.
25. febr. föstud.
26. febr. laugard.
27. febr. sunnud.
29. febr. þriðjud.
1. marz. miðvikud.
Hótel Akranes
Sjálfstæðishúsið Akureyri
Sjálfstæðishúsið Akureyri
Sindrabær Höfn, Hornafirði
Stapa, Keflavik
Selfossbiói
Samkomuhúsið Vestmanna
eyjum
Skemmtanirnar hefjast allar kl. 20.30 aö kvöldi, nema I Vestmanna-
eyjum kl. 20:00.
Dansleikir verða einnig á skemmtunum á Akranesi
Akureyri og i Höfn i Hornafirði.
Notið þetta einstæða tækifæri til að njóta heims
frægra skemmtikrafta sem hvarvetna vekja mikla
hrifningu. Taka þátt i stórbingói þar sem kostur
gefst á tveimur utanlandsferðum, sem eru ennþá
ódýrari en hinar vifrægu Sunnuferðir, þar sem fólk
fær jafnan mest fyrir peningana.
ÉJÉ ferðaskriístofa bankastræti 7
travel símar 16400 12070
BlLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
HJOLASTILLINGAR
MOTORSTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR Simi
Látið stilla i tíma. 4 O 4| ITj A
Fljót og örugg þjónusta. I W I U U
+
MUNKD
RAUÐA
KROSSINN