Tíminn - 25.02.1972, Síða 20

Tíminn - 25.02.1972, Síða 20
Þessi mynd var tekin i veizlunni, scm Kinverjar héldu til heifturs Nixon á þriftjudagskvöldift. Þaft er greinilega hátt til lofts og vitt til veggja f Þjóftarhöllinni I Pcking. Nixon og Chou sitja ásamt fleiri fyrirmennum vift stóra borftift til vinstri. Sinnepgassprengja lenti i mulningsvél Sementsverksmiðjunnar: Fjórir eru á sjúkrahúsi með brunasár eftir aasið —Revkiavik. Oó—Reykjavik Fjórir menn liggja á sjúkrahúsi i Reykjavik illa brenndir af völdum sprengiefnis, sem lak úr sprengju, sem lenti i mulningsvél i Sements- verksmiðjunni á Akranesi. Tvær sprengjur komu upp með skeljasandi, sem dælt var upp úr Faxaflóa, og lentu i mulningsvélinni. Sú fyrri fannst s.l. laugardag en náðist heil og var sprengd s.l. miðvikudagt hin fannst á mánudag, og var sú brotin og lak sprengiefni úr henni. Er talið að það sé sinnepsgas, sem veldur slæmum brunasárum, sé það snert, eða gufu af þvi andað að sér. Mennirnir fjórir, sem brenndust, vöruöust ekki hve skaövænlegt efniö er. Héldu þeir aö þaö væri smurolia eöa eitthvaö henni likt,og hreins- uöu þaö úr mulningnum. í' fyrstu fundu þeir ekki til brun- ans, en um nóttina fór efniö aö virka, og eru mennirnir brenndir á höndum, fótum og andliti. Taliö er aö komizt sé fyrir frekari bruna á mönnunurn,og eru þrir þeirra viö sæmilega heilsu, en einn er verst brenndur, en þó ekki lifs- hættulega. Sprengisér- fræðingur lögreglunnar i Reykjavik og þrir sér- fræðingar og læknir af Kefla- vikurflugvelli voru kvaddir á staöinn. Vinna þeir enn aö eyöingu efnisins i Sements- verksmiðjunni,og leitaö er að fleiri sprengjum i skelja- sandshaugnum. Sprengisérfræðingurinn úr Reykjavik og tveir lögreglu- þjónar frá Akranesi fóru meö heilu sprengjuna upp fyrir bæ- inn, og þar var hún sprengd meö dynamiti. Þá var ekki vitaö aö um sinnepsgas var að ræöa. Fóru mennirnir allir aö sprengjugignum strax eftir að sprengjan var eydd,og hafa þeir allir verið teknir i læknis- Frh á bls. 19 Föstudagur 25. febrúar 1972 Rogers um Kínaför: Allt gengur vel NTB—Pekine. Nixon og Chou En-lai héldu I gær áfram viftræöum sinum i Peking fyrir lokuftum dyruml Nixon sagöi i gær, aö viöræöur sinar vift Chou hefftu verift mjög athy glisverðar, og Rogers utanrikisráöherra sagfti, aft allt gengi vel. Nixon og Chou hafa nú ræftzt vift i alls 12 klukkustundir. í gær bauð Chou Nixon og nánustu ráögjöfum hans til óformlegs kvöldverðar eftir við- ræðurnar. Fyrr um daginn skoðaði Nixon kinverska múrinn og gamlar keisaragrafir, sem eru um 50 km frá Peking. Fréttaskýrendur telja, að leið- togarnir séu sammála um, aö samband landanna skuli halda áfram og þróast. Til mála kemur að skiptast á blaðamönnum og visindamönnum og jafnvel taka upp einhverskonar samband, sem nálgast að vera stjórnmálasam- band. Enginn telur -liklegt, aö fullu stjórnmálasambandi veröi komið á nú þegar. Ronald Ziegler blaðafulltrúi Nixons haföi einnig nóg aö gera i gær, við aö neita að svara spurn- ingum ágengra, bandariskra fréttamanna um, hvaöa málefni heföu verið til umræöu á fundum þeirra Nixons og Chous. Taliö er, að send veröi út opinber tilkynn- ing, þegar heimsókninni lýkur. Þá er einnig talið liklegt, aö á kveðinn veröi fundur meö Mao áður en Nixon heldur heimleiðis á mánudaginn, og þá ef til vill i Hangchow, en vitað er, aö Mao eyðir miklu af tima sinum þar; Nixon fer þangaö á laugardag. Rogers utanrikisráöherra og starfsbróöir hans i Kina, Chi Peng-Fei, ræddu i gær saman i þrjár klukkustundir, sennilega til að ræða nánar þau mál sem Nixon og Chou hafa komið sér saman um. 1 dag ræöast þeir siðarnefndu við á ný,og i kvöld heldur Nixon gestgjöfum sinum veizlu. A laug- ardag flýgur Nixon til Hangchow, og á sunnudag leggur hann af stað heimleiöis frá Shanghai og þar með lýkur vikuheimsókn hans til Kina, „Mikill heiður — segir Jón Múli um valið á,,Vikivaka" SJ-Reykjavik. Lag Jóns Múla Arnasonar, Vfkivaki, hcfur verift valift til flutnings á hljómleikum, sem halda á i New York og viftar i Bandarikjunum i sumar til minn- ingar um I.ouis Amstrong,djass- snillinginn sem lézt á siftasta ári. Lagift kemur einnig á minningar- plötu, sem gefin verftur út I tengslum vift hljómleikahaldið. Angela Davis loks laus gegn tryggingu „Þetta er ógurlega mikill heið- ur”, sagöi Jón Múli i samtali við Timann, en Vikivaka samdi hann 1968-69 við dansatriði, sem bætt var inn i Delerium búbónis, söng- leik þeirra bræðra, hans og Jón- asar alþingismanns, við endur- sýningu hans i Iðnó. Félagi islenzkra hljómlistar- manna bárust tilmæli um að safna saman islenzkum lögum meö tilliti til hugsanlegs flutnings á tónleikum þessum. Leitað var til islenzkra höfunda léttrar tón- listar, og voru tiu lög send til Bandarikjanna. Lag Jóns Múla var siöan valið úr þeim hópi. Fundi Norður- SB—Reykjavik Bandariska hlökkustúlkan Angela Davis, sem setift hefur i fangelsi I 16 mánufti, hefur nú verift látin laus gegn 100 búsund dollara tryggingu. Hún má þó ekki fara út fyrir svæftiö um- hverfis San Fransisco og má ekki sækja fundi né skemmtanir. Angela var prófessor viö Berkeley-háskóla, en var rekin úr stööunni fyrir aö vera komm únisti. Hun var handtekin I október 1970 vegna þess, aö byssa, sem skráö var á hennar nafn, var notuö til aö reyna aö ræna manni, sem nota átti siöan sem gisl til að fá George Jackson, skoðanabróöur Angelu.lausan úr fangelsi. Ránið tókst þó ekki betur til en svo. aö fjórar mann eskjur létu lifiö, þeirra á meöal dómari. Ekki hefur þó sannazt, aö Angela hafi átt nokkurn annan þátt I þessu en nafnið sitt á byssuskránni. Réttarhöld yfir Angelu Davis hefjast væntanlega i næsta mánuöi. landaráðs lokið NTB-Helsingfors Þingi Noröurlandaráös lauk i gær i Helsingfors. Formaður norsku sendinefndarinnar þakkaöi Finnlandi fyrir gestrisni og góöa skipan þingsins og bauö um leiö ráöiö velkomið til 21. þingsins, sem haldið veröur i Oslo. Til greina kemur, aö haldiö veröi aukaþing i haust, eftir aö ljóst veröur oröið um EBE-málin. Fyrst fannst þýfið, síðan bílstjórinn og þjófurinn að lokum Oó—Reykjavík. Heldur en að stela engu,hirti innbrotsþjófur tvo kassa af niðursoðnum baunum i Skipa- smiðastöðinni Stálvik i fyrrinótt. Hafði hann auðsjáanlega gert leit að peningum, en ekki fundið. En baunirnar fann lögreglan i Hafnar- firði, i gærmorgun i bil, sem stóð upp á endann i Læknum. Var hann i fyrstu grunaður um aö hafa stolið baununum, en hann bar það af sér. Benti hins vegar á annan mann, sem hann tók upp i bilinn um nóttina i Garöahreppi. Var sá með tvo kassa i fanginu og baö um far. Komu þeir sér saman um aö fara til Reykjavikur og héldu á leigubilastöð og ætluöu aö selja baunir- nar þar fyrir áfengi. Þaö gekk ekki. Þá var haldiö til Hafnar- fjaröar þar sem bilstjórinn ók út i Lækinn. Þar stóð billinn upp á endann og fóru mennirnir báðir af staönum og skildu bilinn og baunirnar eftir. I ljós kom aö billinn var tekinn á leigu fyrir tveim vikum og hefur bilaleigan ekkert af honum frétt siöan. Skuldaöi leigu- takinn 17 þús. kr. fyrir bilinn, en átti ekki eyri þegar honum var skilað. Báðir voru mennirnir drukknir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.