Tíminn - 01.03.1972, Page 5
Miðvikudagur 1. marz 1972.
TÍMINN
5
Rússneskar konur verða
hrifnar af Kissinger.
Ekaterina Furtseva, ein aðal-
manneskjan i stjórn Sovétrikj-
anna, hitti fyrir nokkru Henry
Kissinger ráðgjafa Nixons for-
seta i veizlu i sovézka sendiráð-
inu i Washington. Þau Furtseva
og Kissinger ræddust lengi við,
og voru létt og kát: ef dæma má
af orðaskiptum, sem þeim átti
að hafa farið á milli. Furtseva
sagði við Kissinger: —Eg hef
heyrt, að þú sért mjög vinsæll
meðal kvikmyndaleikkvenn-
anna i Hollywood. Er það satt?
Þá svaraði Kissinger: —Ég segi
ekkert um samband mitt við
kvikmyndastjörnurnar. Einn
gestanna sneri sér þá að Furt-
sevu og spurði hana, hvort hún
héldi, að Kissinger ætti eftir að
ganga i augu á rússneskum kon-
um oghún svaraði þvi til, að þar
myndi hann vekja jafnvel enn
meiri aðdáun og eftirtekt heldur
en hjá leikkonunum i Bandarikj
unum. —Ég öfunda ekki
konurnar, sem verða fyrir barð-
inu á þér þar, sagði Furtseva.
Kissinger sagði þá við Furt:
sevu: Ég vona, , að þið hafið
góða hjartasérfræðinga i Mosk-
vu.. —Já það höfum við, var
svarið. Hafðu ekki áhyggjur af
þvi. Loks leit hún á Kissinger og
virti hann fyrir sér svolitla
stund, og sagði svo. —Ég hélt,
að þú værir miklu hávaxnari, já
mikklu stærri, og svo kom
striðnissvipur i augu hennar.
Met í umferðarslysum
í Frakklandi
Hvorki meira né minna en
16.200 dauðaslys urðu i umferð-
inni i Frakklandi á siðasta ári,
samkvæmt tölum, sem
tryggingafélög þar hafa birt.
Auk þessa slösuðust 350 þúsund
manns i umferðarslysum á
sama tima. í sumarleyfa-
mánuðunum júli, ágúst og
september létu 4800 manns lifið
i slysunum. Þótt undarlegt megi
virðast kenna yfirvöldin vega-
bótum i landinu um þessa háu
dauðaslysatölu. Þau segja, að
vegna bættra vegasamgangna
og betri vega fari fólkið hraðar,
og þá verði slysin. Skýrslur
sýna, að aðaldauðaorsök manna
á aldrinum 20 til 25 ára i Frakk-
landi er umferðarslys. Saman-
burðurinn á milli Frakklands og
annarra landa er mjög óhag-
stæður fyrir Frakkana á þessu
sviði. Hefur komið fram i
athugunum tryggingafé
laganna, að í r rakklandi koma 9
dauðaslys á hverja 100 milljón
kilómetra, sem eknir eru, miðað
við 6 dauðaslys i Bretlandi og
aðeins þrjú i Bandarikiunurn
MENGUN MÆLD MEÐ
RAFEINDATÆKNI
Sovézkir tæknimenn hafa
hannað og reynt nýtt og algjör-
lega sjálfvirkt tæki til mælinga
á mengun andrúmsloftsins. Er
ætlunin að setja upp net af slik-
um tækjum i iðnaðarhverfum
borganna Kiev og Leningrad,
svo og við vegi, þar sem bila-
umferð er mikil.
Tæki þetta er litill kassi, sem
hefur að geyma teljara og þess-
konar tól, sem gera mönnum
kleift að hafa eftirlit með magni
eiturefna og ryks i andrúmsloft-
inu, svo og nokkur tæki til að
mæla vindátt og vindstyrk, hita-
stig loftsins og raka.
Mælingarnar má framkvæma
án þess að lát verði á, og niður-
stöður þeirra berast jafnóðum
til tölvu, sem vinnur úr upp-
lýsingunum.
Áður en unnt verður að ráðast
af krafti gegn menguninni,
verða að liggja fyrir eins ná-
kvæmar og ýtarlegar upp-
lýsingar og kostur er á um eðli
mengunarinnar, stig og þess
háttar. Þær mælingar, sem
veðurfræðingar vinna stöðugt
að i neðri lögum andrúmslofts-
ins, eru engan veginn nægi-
legar, eigi árangur að fást áður
★
enlangir timarliða i baráttunni
við loftmengunina. Þess vegna
eru nýjar aðferðir reyndar.
NÝR HÁSKÓLABÆ R
UTAN VIÐ LENÍNGRAD
Petrodvorsets, hið gamla
Peterhof utan við Leningrad,
sem viðfrægt er fyrir alla gos-
brunnana, sém þar eru, verður i
framtiðinni háskólabær, mið-
stöð ýmissa háskólastofnana.
Fyrstu byggingarnar hafa
þegar risið af grunni, þ.e. hús
eðlisfræðideildar háskólans og
rannsóknastofnunar. Þessi hluti
háskólabæjarins verður sex
húsasamstæður: þar verður
aðalbygging, húsnæði fyrir hóp-
rannsóknir og hópstarf, útibú
háskólabókasafnsins með til-
heyrandi lestrarsölum, og 14
rannsóknarstofur. Meðal
bygginga, sem hannaðar hafa
verið á hinu nýja háskólasvæði,
er risastór vatnsgeymir, sem
nota á við rannsóknir á hljóð-
bylgjum i vatni.
Hlaut milljónaarf
Siðasta vinkona Maurice
Chevaliers var Odette Junet-
Meslier. Hún bjó með dóttur
sinni Pascale, sjö ára gamalli á
búgarði Chevaliers, La Louque.
Nú hefur þessi óþekkta kona
hlotið 20000 milljónir króna i arf
eftir vin sinn, hinn látna
leikara.
Hittust eftir 20 ár
Ingrid Bergman og Aron Petter
Lindström hafa verið skilin i
tuttugu ár. Þau hittust i fyrsta
sinn eftir skilnaðinn i brúðkaupi
dótturinnar Piu nú nýlega. Pia
er 32 ára gömul, og
starfar sem fréttamaður við
sjónvarpsstöð i New York.
Eiginmaður hennar heitir
Joseph Daly og er fasteignasali
i New York. Ingrid Bergman
kom klædd á mjög yfirlætislaus-
an hátt, og allt hafði verið gert
til þess, að fréttamenn þekktu
hana ekki og tókst það svo vel,
að sumir sögðu, að þetta væri
bezta gerfið, siðan úlfurinn taldi
Rauðhettu trú um, að hann væri
amma hennar. Þegar vitnaðist,
að Ingrid Bergman hefði komið
til brúðkaupsins, og það ein-
sömul, en maður hennar, Lars
Schmidt,var i Skandinaviu, við-
staddur frumsýningu á Jesus
Christ Superstar, varð það til
þess, að blöðin fóru enn einu
sinni að tala um skilnað þeirra
Bergman ogSchmidt. Það hefði
verið hægt að fresta brúðkaup-
inu um einn dag, ef áhugi hefði
verið fyrir hendi hjá Schmidt að
vera viðstaddur, sögðu blöðin,
þótt auðvitað hefði hann ekki
getað sleppt frumsýningunni.
Kvöldið fyrir brúðkaupið hélt
Lindström dóttur sinni hóf, þar
sem maðal annars var stödd nú-
verandi kona hans, Agnes,og
börn þeirra, og svo að sjálf-
sögðu Ingrid Bergman. Hófið
var á Hotel Carlyle. I mörg ár
hafði Pia sagt, að hún hyggðist
alls ekki gifta sig. Hún hafði
reyndar reynt það einu sinn,
þegar húnvar tvitug, og það
hjónaband entist ekki nema 18
mánuði. Hún hafði einnig séð,
hvernig farið hafði um hjóna-
bönd móður hennar og vildi
ekki,að slikt kæmi fyrir sig. En
svo gerðist það fyrir sjö mánuð-
um, að hún hitti Joseph Daly, og
þá voru allar ráðagerðir á bak
og burt. Hér sjáið þið Ingrid
fagnandi við brúðkaupið, og svo
á hinni myndinni er Pia,Joseph
og Lindström. Joseph lætur vel
að hundinum sinum, en hann
fylgdi hjónaefnunum upp að
altarinu. 1 brúðkaupsferð fóru
þau til Vesturindianna. 1 brúð-
kaupsferðina fóru auk brúð-
hjónanna, Ingrid Bergman, og
tvö af sjö hálfsystkinum Piu.
Hvað sem hver segir, er eitthvað
gott i öllu fólki, sérstaklega eftir
góðan kvöldmat.
— Það er verið aö safna handa
stúlku, sem ekki er að fara frá
fyrirtækinu til að giftast. Það er
ég-
Fjölskyldan hafði fengið sima og
Óskar litli spurði pabba sinn:
—Hvers vegna hefur enginn
hringt til okkar áður?
—Það var ekki hægt, þvi við höfð-
um engan sima.
—Hvernig gat fólk vitað það?
Það var i finu kvöldverðarboði.
Einn af gestunum kynnir sig fyrir
ungri stúlku.
—Alexander Gitzbaum, segir
hann - ég er prófessor i sögu.
—En gaman! Segðu mér eina!
Ef það er satt, að ástin sé
draumur, þá er hjónabandið
vekjaraklukka.
Amman fór með dótturdæturnar
litlu i dýragarðinn. Þegar þær
komu að storkunum, sagði am-
ma:
—Þið vitið liklega, að það er
storkurinn, sem kemur með litlu
börnin?
Þá hvislaði önnur systirin að
hinni: — Eigum við að segja henni
frá Pillunni, eða láta hana bara
halda þetta um storkinn áfram?
Það er óumdeilanleg staðreynd,
að helzta skilnaðarorsökin er
hjónaband.
Meðan stúlkum finnst allt i lagi
að gifta sig bara til að komast að
heiman, ætti þeim lika að finnast i
lagi að eiginmaðurinn skreppi að
heiman, bara af þvi hann er
giftur.
Kristófer litli fór að heimsækja
móður sina á fæðingardeildina og
horfði frá sér numinn af hrifningu
á litlu systur sina fá sér að
drekka. 1 næsta rúmi var einnig
móðir með barn á brjósti, en sú
var einmuna brjóstamikil.
Kristófer gekk að rúminu og
fylgdist með svolitla stund, en
sagði svo: — Heyrðu litla barn,
það á ekki að blása, heldur sjúga.