Tíminn - 07.03.1972, Qupperneq 20
LÍTILL
SNJÓR
Á HÁ-
LENDINU
ÞÓ—Reykjavlk.
Þrátt fyrir algjört snjóleysi i
byggö, er ekki hægt aö segja
þaösama urn Islenzka hálend-
iö. Þar hvílir nýfallinn snjór
yfir öllu, og rjúpan fær þar
engin gric En þótt snjórséyfir
öllu hálendtnu, þá telzt hann
ekki inikill, og hefur sennilega
aldrei verið jafn lltill þar síöan
1965, aö sögn Páls Bergþórs-
sonar veöurfræöings.
Páll sagöi, að það orkaði
ekki tvimælis, að snjóalög
væru mjög litil, miðað við árs-
tima, á hálendinu. Þetta er
eitthvaö svipað og i febrúar-
mánuði 1965, en sá mán. var
mjög hlýr — svipaður þeim,
sem nú er rétt liðinn. Siðan
hefur snjóleysi ekki komið
fyrir.
Ekki sagðist Páll geta sagt
hvað snjórinn væri mikið
minni á hálendinu núna, mið-
að við meðalár, annað en það7
að stór svæöi, sem vanalega
væru þakin snjó yfir þennan
árstima, væru nú auð. Þetta á
t.d. við um svæðin sunnan við
Hofsjökul og svæöið norðvest-
ur af Vatnajökli og norðan við
Heröubreið.
Svona leit fslenzka hálendiö út á
sunnudaginn. Litill snjór virtist
vera yfir þvl öllu, og stór svæöi,
sem vanalega eru þakin snjó,eru
ný ýmist auö eöa þá griliir i dökka
fleti. Myndin er tekin noröan
Vatnajökuls.
Tlmamynd —Gunnar.
1 ||lgi 1 I? í:l [
* Þriöjudagur 7. marz ' 1972.
Svíðþjóð:
Aðskilja ríki
og kirkju?
NTB—Stokkhólmi
Aðskilnaður rikis og kirkju I
Sviþióð verður staöreynd um ára-
mótin 1982-83, aö þvf er segir i
áliti nefndar, sem skipuð var
1968. Jafnframt fellur úr gildi
skattréttur kirkjunnar, og gjöld
verða aðeins innheimt af meölim-
um henner.
Frú Alva Myrdal, sem er for-
maður nefndarinnar, segir, að
það sem gerist um áramótin
1982—íB3, eigi ekki að skoðast sem
algjör skilnaöur, þar sem mörg
bönd muni framvegis tengja riki
og kirkju. Þetta sé aðeins breyt-
ing, sem geri það að verkum, að
sænska kirkjan hefur sama rétt
og önnur trúarsamfélög.
Nefndin leggur áherzlu á, að
samkvæmt lögum sé trúfrelsi i
Sviþjóð,og eigi þvi öll trúarsam-
félög að sitja við sama borð. Með
þessu geti einnig þeir, sem ekki
vilja vera f neinu trúarsamfélagi,
verið frjálsir að þvi. Sænska kirk-
jan eigi sjálf, eins og önnur trúar-
samfélög, aö skipuleggja starf-
semi sína, án áhrifa frá rfkisvald-
inu, segir frú Myrdal. '
OÓ—Reykjavik.
Leitað hefur verið að 63
ára gamalli konu úr Kópa-
vogi siðan á laugardags-
kvöld. Þá hvarf konan
heiman frá sér og hefur ekki
sézt siðan. Konan heitir
Margrét Hallsdóttir, til
heimilis að Melgerði 15.
Bretar vísa útfærslunni
til alþjóðadómstólsins
Brezka stjórnin tilkynnti i gær,
aö hún ætli aö biöja Alþjóöa-
dómstólinn í Haag aö fjalla um
útfærslu islenzku fiskveiði-
lögsögunnar I 50 milur. Anthony
Royle aöstoöarutanrfkis-
ráöherra Bretlands skýröi frá
þessu I fyrirspurnartima á fundi
neöri málstofu brezka þingsins I
gær. llann sagöi, aö þótt ákveöiö
heföi veriö aö vfsa málinu til
Alþjóðadómstólsins, væri ekki
loku fyrir þaö skotiö, aö haldiö
yröi áfram óformlegum
viöræöum Breta og tslendinga I
von um aö samkomulag tæki\t.
Royle sagöi, aö brezka stjórnin
vonaöist til aö ná samkomulagi til
þess aö tryggja fiskveiöar Breta
viö tslandsstrendur, meöan máliö
væri til athugunar hjá Alþjóöa-
dómstólnum.
Bretar leggja máliö fyrir
dómstólinn 1. september, sama
dag og islenzka lögsagan verður
færð út i 50 milur.
Herskipavernd vonandi
óþörf
Patrick Wall, þingmaður úr
ihaldsflokknum, spurði Royle,
hvort hann gæti staðfest, að brezk
skip, sem væru viö löglegar at-
hafnir á alþjóða siglingaleiðum,
myndu njóta verndar brezka
flotans, ef nauðsynlegt væri.
Royle svaraöi þvi til, að hann gæti
ekki fullyrt, að brezk herskip
Framhald á bls. 15
Innbrotspartí
í Golfskálanum!
Klp — Reykjavík. Hópur
unglinga á aldrinum 15 til 18 ára,
hefur i vetur hvaö eftir annað
brotizt inn i skála Golfklúbbs
Ness og notaö hann til gleð-
skapar. Hefur hópurinn valdið
miklum skemmdum á skálanum
sjálfum, innanstoksmunum og
ööru, og einnig stoliö þar útvarps-
tæki og ööru lauslegu, einnig
kylfum og kúlum frá meðlimum
klúbbsins, sem margir hverjir
hafa geymt þessa hluti I
skálanum i vetur. En á þeim
árstima er ekkert keppt I þessari
iþrótt, og stendur þá skálinn
auöur.
Skálinn er á sunnanverðu
Seltjarnarnesinu, og eru þar
engar mannaferðir yfir vetar-
timann. Þetta geröi unglingahóp-
urinn sér ljóst, og þegar
húsnæðisskortur svarf að, var
það ráð tekið að brjótast þarna
inp og halda parti.
Þegar ljóst var, að einhverjir
gerðu sér ferð inn i skálann,tóku
fjórir ungir menn úr klúbbnum þá
ákvörðun að sitja fyrir innbrots-
þjófunum. Þeir fengu sér ,,labb-
rabb tæki” — tveir sátu i bil
nokkuð frá húsinu,en tveir sátu
inni i myrkrinu.
Ekki þurftu þeir lengi aö biða
eftir „gestunum”. Seint á laugar-
da'gskvöldið heyrðu þeir að
brotin var rúða i skálanum og 5
unglingar skriðu inn um gatið.
Þeir biðu þar til allir voru komnir
inn. Þá stukku þeir á fætur og
gripu hópinn. Varð þeim heldur
hverft við, þegar mennirnir komu
út úr myrkrinu; héldu aö þetta
væru draugar. Féll einn pilturinn
úr hópnum i yfirlið, og ein stúlka
tók á rás og hljóp út i gegnum
stóra rúðu, sem var mannhæðar-
há. Var mesta mildi að hún skyldi
ekki stórslasast, þvi að rúðan var
úr 6 mm. gleri og fór i mél þegar
stúlkan hljóp á hana. En hún
slapp með smá skrámur.
Framhald á bls. 15
Pétur Björnsson formaöur Golfklúbbs Ness sópar saman glerbrotunum fyrir utan skálann. Stóri hlerinn
er fyrir rúöunni, sem stúlkan hljóp út I gegnum. ( Timamynd Gunnar).